Alþýðublaðið - 21.02.1990, Síða 7

Alþýðublaðið - 21.02.1990, Síða 7
Miðvikudagur 21. febr. 1990 7 ÚTLÖND Búist er við auknum ferðamanna- fjölda i Prag Talið er að surnarið 1990 komi straumur ferðamanna til Prag og er nú farið að leggja áherslu á að undirbúa móttöku þeirra. Þráttfyrir byggingu nýrra hótela og endurnýjun eldri hótela óttast menn að skortur muni verða á gistiaðstöðu. Valdhafar í Tékkóslóvakíu höfðu lítinn áhuga á auknum ferða- mannafjölda fram aö árinu 1980. Það var iönaður og landbúnaður sem voru mál málanna. Þegar „perestroikan” byrjaði í Austur- Evrópu fóru menn að gefa ferða- málunum gaum og gerðu sér ljóst aö Prag hefði gífurlega mikla möguleika til að laða að sér ferða- menn. Borgin er engri annarri lík — að vísu eru margar fallegu bygg- ingarinnar slitnar og lúnar en þær eru „ekta" ekkert Disneyland. í elsta hluta borgarinnar eru bygg- ingar sem voru reistar á þeim tíma sem Columbus fór í vesturátt. Mik- ill. hluti hjarta borgarinnar hefur fengið skínandi andlitslyftingu — vinnupallar sem héldu sumum gömlu húsunum uppréttum hafa verið fjarlægðir og byggingarnar endurnýjaðar. Karlsbrúin sem er elsta steinbrú í Mið-Evrópu þykir Prag er ein þeirra fáu borga í Miö- Evrópu sem slapp viö skemmdir í heimsstyrjöldinni sídari og þess vegna er þar aö finna ótrúlega gamlar minjar og byggingar — jafn- vel frá tíma Rómaveldis. sérstakt augnalyndi og er oft líkt við glitrandi eðalstein, en hún var byggð um árið 1300. Til skamms tíma var talið að vantaði um 10.000 gistirúm en verktakar frá Austurríki, Frakklandi og fleiri löndum hafa tekið að sér að byggja upp hótel þar sem heima- menn höfðu ekki bolmagn til að anna framkvæmdum. Frakkar seldu Tékkum nýjar langferðabif- reiðar til flutninga á ferðamönn- um, með þægindum sem ekki höfðu áður þekkst i Tékkóslóva- kíu. Það mun vera ætlunin að létta ferðamönnum hinar mjög svo tímaferku vegabréfsáritanir og slaka á skriffinnskunni. Tollayfir- völd höfðu orð fyrir að taka hart á ferðamönnum og vera heldur súr- ir og leiðinlegir í framkomu — en þetta á einmitt að gjörbreytast segja menn austur þar. SJÓNVARP Stöð 2 kl. 20.30 AF BÆ í B0RG (Perfect Stranger) Bandarískur skemmtiþáttur — varla af besta taginu, svona hálfgildings la la þáttur í besta falli. Segir af útlend- ingi í Bandaríkjunum sem býr hjá frænda sínum. Þetta er það sem Kaninn kallar „one-joke-show". Allt i lagi ef menn hafa alls ekkert annað að gera. Sjónvarpið kl. 20.35 A TALI HJÁ HEMMA GUNN Enn er Hemmi mættur og hjá hon- um er á tali eins og venjulega. Gestir verða mýmargir að þessu sinni, það er líka eins og venjulega. Meðal þeirra má nefna dægurlagahöfund- inn Gylfa Ægisson, Kristján Hreins- son og kvartett úr Hveragerði. Að auki fastir liðir; falin myndavél, spurningakeppni og eitthvað fleira fylgir væntanlega i kjölfarið. Sjónvarpið kl. 21.40 NELS0N MANDELA Glæný bresk heimildamynd um ævi baráttumannsins Nelsons Mandela en segja má um þann mann aö hann sé frægasti fangi heimsins, a.m.k. í seinni tíð, eftir að Rudolf Hess lést. Mandela hafði setið 27 ár í fangelsi þegar hann var látinn laus á dögun- um, hann er nú rétt rúmlega sjötug- ur að aldri og hefur verið tákn um frelsis- og jafnréttisbaráttu blökku- manna í Suður-Afríku og reyndar víðar. Sjónvarpiö kl. 22.10 SALAAM B0MBAY Indversk/frönsk/bresk bíómynd, gerd 1988, leiksljóri Mira Nait. Gríðarlega athygliverð kvikmynö, sýnd hér á síðustu kvikmyndahátíð og vakti þá mikla athygli. Myndin greinir frá harðri lífsbaráttu barna í fátækrahverfinu í Bombay á Ind- landi og þykir draga upp af þeirri baráttu ófagra mynd og hörkulega — áhorfandanum er hvergi hlíft í þeirri nöturlegu mynd sem dregin er upp af fátæt barna í Indlandi. Myndin hefur hlotið verðlaun á kvikmyndahátíðum víða um heim. Sýningin tekur rétt rúma tvo tíma, að sjálfsögðu með innslagi frá frétta- stofunni. Nú er kvikmyndalistinni ekki hlíft við dægurþrasinu eins og síðasta miðvikudag. Mikið óheilla- mál — 11 fréttir sjónvarpsins. Stöð 2 kl. 22.30 MICHAEL ASPEL Hinn ákaflega geðþekki, kurteisi og siðfágaði breski sjónvarpsmaður Mi- chael Aspei tekur á móti gestum i sjónvarpssal. Aspel er býsna skemmtilegur maður, nær góðu sambandi við gesti sína sem oftast nær eru stjörnur úr heimi kvik- mynda eða sjónvarpsins, Bretar eða Bandaríkjamenn. % n Wm STOD 2 17.50 Töfraglugginn (18) 15.40 Bankaránið mikla (The Great Georgia Bank Hoax) Myndin fjallar um óvenjulegt bankarán 17.05 Santa Barbara 17.50 Fimm félagar 1800 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn Umsjón Stefán Hilm- arsson 18.15 Klementina 18.40 í sviðsljósinu 1900 19.20 Hver á að ráða? Bandarískur gaman- myndaflokkur 19.50 Bleiki pardusinn 20.00 Fréttir og veður 20.35 Á tali hjá Hemma Gunn Skemmtiþáttur 21.40 Nelson Mandela Bresk heimildamynd. Sjá umfjöllun 22.10 Salaam Bombay Indversk/ frönsk/bresk frá árinu 1988. Sjá umfjöllun 19.1919.19 20.30 Af bæ i borg Gamanmyndaflokkur 21.00 Á besta aldri Páttur tileinkadur eldri kynslóðinni. Umsjón Helgi Pétursson og Maríanna Friöjóns- dóttir 21.45 Studdarar Framhaldsmynda- flokkur 22.30 Michael Aspel Sjá umfjöllun 2300 23.00 Eltefufréttir 23.10 Salaam Bombay. Frh. 00.15 Dagskrárlok. 23.10 Furðusögur 5 Þrjár safnmyndir úr smiðju Stevens Spieh berg, hver annarri betri 00.20 Dagskrárlok

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.