Alþýðublaðið - 21.02.1990, Qupperneq 8
Miðvikudagur 21. febr. 1990
Mosfellsbœr:
Bjóða A-flokkar, konur og
framsóknarmenn from somon?
Þreifingar í gangi og fundur í kvöld
Alþýðuflokkurinn, Al-
þýðubandalagið,
Kvennalistinn og Fram-
sóknarfiokkurinn í Mos-
fellsbæ standa nú í við-
ræðum um sameiginlegt
framboð fyrir næstu
bæjarstjórnarkosning-
ar. Oddur Gústafsson
bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins vildi ekkert
um málið segja annað en
að það væri á mjög við-
kvæmu stigi.
Staða Sjálfstæðisflokks-
ins er mjög sterk í Mosfells-
bæ. beir eiga nú 5 bæjar-
fulltrúa af 7. Alþýðuflokk-
urinn og Alþýðubandalag-
ið eiga síðan sinn bæjarfull-
trúann hvor. Við síðustu
bæjarstjórnarkosningar
missti Framsóknarflokkur-
inn sinn fulltrúa í bæjar-
stjórn yfir til Sjálfstæðis-
flokksins.
Andstæðingar Sjálfstæð-
isflokksins í Mosfellsbæ
eygja nú þann kost helstan
ef fella eigi meirihlutann að
bjóða fram sameiginlegan
lista. Með sameiginlegu
framboði munu atkvæðin
væntanlega nýtast mun
betur en bjóði flokkarnir
fram hver í sinu lagi. Til
stendur að fulltrúar flokk-
anna fundi í kvöld og mun
þá væntanleg skýrast hvert
framhaldið verður.
Gigtarsjúklingar mótmæla ,,sjúklingaskatti“:
Aðgerðin hlýt-
ur að byggjast
á misskilningi
trúað að slík aðför væri gerð
að sjúklingum með vitund og
vilja aðila vinnumarkaðarins,
þessi opinbera aðgerð hlyti
að byggjast á misskilningi.
— segir Jón Þorsteinsson, formaöur Gigtarfé-
lags Islands.
Fjöldi gigtarsjúklinga
kom saman á fund hjá
Gigtarfélagi íslands í gær-
dag. Félagið hefur mót-
mælt harðlega hækkun
sem gerð var á greiðslum
sjúklinga fyrir læknis-
hjálp sérfræðinga. Að
sögn Jóns Þorsteinssonar,
læknis, formanns Gigtar-
félagsins hefur reglugerð-
arbreyting 100% hækkun
í för með sér fyrir gigtar-
sjúklinga sem leita þurfa
til sérfræðinga.
Talsvert fjölmenni gigtarsjúklinga kom saman á fundi félagsins i gær.
A-mynd: E. Ól.
Ný kvótalög fyrir Alþingi:
Fjöldi bókana og fyrirvara
Sagði Jón að reikna mætti
með að 50 þúsund íslending-
ar væru haldnir einhverjum
gigtarsjúkdómi, þar aí um
20% eða 10 þúsund manns
með króníska liðagigt og ill-
víga bandvefssjúkdóma sem
krefjast umönnunar sérfræð-
inga ævilangt.
,,Það er beinlínis ómann-
úðlegt að leggja á sérstakan
sjúklingaskatt," sagði Jón og
benti á að samkvæmt rann-
sóknum landlæknis yrðu
sjúklingar með króniska sjúk-
dóma fátækari með hverju
árinu sem líður. Yrði þvi vart
Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra
mælti fyrir frumvarpi til
laga um stjórn fiskveiða í
efri deild Alþingis í gær.
Margir aðilar hafa komið
nálægt samningu frum-
varpsins og þó svo að
náðst hafi samkomulag
um að leggja það fram nú
eru fyrirvarar og bókanir
við framkomið frumvarp
nánast jafn margar og
nefndarmenn sem áttu
sæti í nefndinni sem vann
að undirbúningi frum-
varpsins.
Helstu breytingar sem
lagðar eru til frá núgildandi
lögum eru eftirfarandi: Lögin
verði ótímabundin eins og al-
gengast er. Botnfiskveiði-
heimildir verði miðaðar við
tímabilið 1. sept. til 31. ágúst
og verði það fiskveiðiárið. Út-
gáfa veiðileyfa verði einföld-
uð verulega frá þvi sem nú er
og gerð skil á milli veiða í at-
vinnuskyni og tómstunda-
veiða. Oheimilt verði að
fjölga öllum gerðum og
stærðum fiskiskipa sem fá
veiðiheimildir. Tekið verði
upp eitt samræmt aflamarks-
kerfi, sóknarmarkið afnumið
og sérreglum um veiðar smá-
báta fækkað frá þvi sem nú
er. Tekin verði upp opinber
tilkynningarskylda við sölu á
fiskiskipum. Hámarksálag
vegna útflutnings á óunnum
þorski og ýsu verði hækkað
úr 15% í 20% en hámarks-
álag á öðrum botnfisktegund-
um verði áfram 15%. Flestar
meginreglur fiskveiðistjórnar
verði lögbundnar og þeim at-
riðum sem ætluð eru ráð-
nerra til ákvörðunar fækkað.
Það virðist borin von að
víðtæk samstaða náist um
frumvarpið. Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson hefur þegar
lýst sig andvígan því í flestum
atriðum. Hann spuröi sjávar-
útvegsráðherra á Alþingi í
gær hvers vegna halda ætti
áfram með kvótakerfið með
tilliti til reynslunnar. Hvort
ekki væri nær að taka upp
sóknarstýringu.
Einn alþingismaður sagði
við blaðið að skoðanir þing-
manna á hvernig ætti að
standa að stjórnun fiskveiða
væru nánast jafn margar og
þeir. Almennt virðist það þó
álit manna að afgreiða verði
frumvarpið fyrir þinglok. Það
gæti því orðið þrautin þyngri
fyrir sjávarútvegsráðherra að
berja saman sameiginlega
niðurstöðu.
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
ÍSLAND
i gær
að íslenskum
tima.
Hitastig
i borgum
Evrópu
kl. 12
Fréttir í
stuttu náfí
Gagnrýna
fjárfestingar-
slys og bruðl
„Fundarmenn gera sér
grein fyrir þeim vanda er
steðjar að í íslensku at-
vinnulífi, er að hluta staf-
ar af aflasamdrætti, en
einnig af ýmissi óráðsíu,
bæði í rekstri atvinnulífs-
ins og samfélagsins," seg-
ir í samþykkt félagsfund-
ar í Félagi starfsfólks í
húsgagnaiðnaði. Bendir
fundurinn á ýmis ,,fjár-
festingarslys", Kringluna
og Flugstöðina og varar
við vinnubrögðum af því
tagi að ráðherrar lofi
milljarða fjárfestingum,
eins og íþróttahöll, án
þess að spyrja skattgreið-
endur leyfis. „Launafólk í
framleiðslugreinunum
getur ekki sífellt bætt á
sig auknum byrðum í
auknum skattaálögum,"
segir í samþykktinni.
Græningjar í
framboð
Samtök græningja
halda fund á laugardag
kl. 15 í Gerðubergi, þar
sem rætt verður og undir-
búið grænt framboð til
borgarstjórnar í Reykja-
vík og málefnagrundvöll-
ur lagður fyrir slíkt fram-
boð.
Vísitölur
hækka rólega
Hagstofan hefur reikn-
að hinar ýmsu vísitölur,
— hækkun þeirra um
þessar mundir er róleg
miðað við það sem áður
hefur gerst. Vísitala bygg-
ingarkostnaðar hækkaði
þannig um 2% frá í janúar
og má rekja þá hækkun
að mestu til launahækk-
ana. Launavísitala hækk-
aði um 0,5% og lánskjara-
vísitalan um 1,35% miili
mánaða, er hún nú 2844
stig og gildir fyrir mars.
Lögreglan
samþykkti
Af 619 lögreglumönn-
um sem rétt áttu á að
greiða atkvæði um breyt-
ingar og framlengingu á
kjarasamningi greiddi
tæplega helmingur at-
kvæði. Samþykkir voru
175, en nei sögðu 105.