Alþýðublaðið - 24.02.1990, Blaðsíða 16
Bóksalar og útgefendur:
MMDUBMSIl
—“mm
■
Laugardagur 24. febr. 1990
Útgefendur Idta bóksala
líta út eins og okrara
— segir Pétur Sveinsson, formaöur bóksalafélagsins
Bókaútgefendur og bók-
salar virðast vera komnir í
hár saman út af því sem
menn viija kalla eðlilega
viðskiptahætti, en ágrein-
ingur er um hvað sé eðli-
legt. A fundi sem þessir
aðilar áttu með sér á
fimmtudag náðist ekki
samkomulag í deilunni og
endaði fundurinn með því
að fulltrúar bókaútgef-
enda strunsuðu af fundi.
Málið snýst einkum um
verðlagningu á bókum,
annarsvegar í bókabúðum
bóksala og hinsvegar í
svokölluðum forlagsbúð-
um, sem bókaútgefendur
reka sjálfir í tengslum við
forlög sín, en þar bjóða
þeir bækur á lægra verði
en bóksalar.
Forleggjarar hafa margir
hverjir á sínum snærum
bókabúðir, forlagsbúðir þar
sem þeir bjóða bækur á for-
lagsverði sem er mun lægra
en það verð sem bóksalar
bjóða. Pétur Sveinsson, for-
maður Félags bókaverslana,
sagði við Alþýðublaðið í gær
að bóksalar gætu ekki sætt
sig við það að tvö verð væru
í gangi á sama titli. Annars-
vegar hið fasta verð sem for-
lögin ákvæðu bóksölum,
hinsvegar það verð sem (or-
leggjar ákvæöu sjálfir að selja
bækur sínar á í forlagsversl-
unum.
Pétur sagði jafnframt að
þess væru dæmi aö forleggj-
arar auglýstu með slagoröinu
„okkar verð", til viömiöunar
viö það verð sem bóksalar
seldu bækur á sem væri
hærra og gerði aö verkum að
bóksalar litu út eins og okrar-
ar. Petta gerðu forleggjarar
þrátt fyrir að þeir ákvæðu
sjálfir verð á bókum sínum
hjá bóksölum. Þetta gætu
bóksalar ekki sætt sig við.
Þetta væru ekki eðlilegir viö-
skiptahættir.
En um fleira er deilt en for-
lagsverslanirnar — þaö er
VEÐRIÐ
í DAG
Þykknar upp meö hægt
vaxandi austan og suð-
austanátt, dálítil snjó-
koma meö suður og suö-
vesturströndinni síðdegis
en úrkomulaust annars
staöar. Frostlaust víö suö-
urstróndina en annars
1—6 stiga frost.
ekki síöur um allskonar sölu-
mennsku sem íorlögin hafá
ástundað, þ.e. þegar þau
sendasölumenn frá heimili til
heimilis til aö bjóða bækur á
sérkjörum, með afborgunar-
kjörum og löngum greiöslu-
tíma. Pétur Sveinsson sagði
um það atriði aö það væri
einfaldlega bannaö sam-
kvæmt landslögum að selja á
þann hátt.
Ennfremur vilja bóksalar
aö öll forlög taki upp reikn-
ingsviðskipti, en láti af um-
boössölukerfinu sem lengi
hefur verið við lýði en að
mati bóksala er það orðiö úr-
elt. Að auki telja bóksalar að
reikningsviöskiptakerfiö geri
þeim auöveldara að skipta
bókum úr verslunum sínum,
forlögin taka þá eldri bækur
sem greiðslu fyrir nýjar og
það þýöir aö bóksalar sitja
ekki uppi með eldri og óseíj-
anlegar bækur.
Sem stendur er enginn
samningur í gildi milli bók-
sala og bókaútgefenda — Pét-
ur Sveinsson segir við Al-
þýðublaðið að útgefendur
séu óbilgjarnir og vilji ekki
hlusta á neinar tillögur frá
bóksölum. Nú standa því mál
þannig að hver bóksali semur
viö hvert einstakt forlag sér-
staklega.
1*1*. . »* *t,
; »t ftr
tgr f w f. * *|
rJlffiifr aU *tw
,,Það á að treysta fólki..."
Biskupinn okkar, séra Ólafur Skúlason, heimsótti Brasiliu fyrir skömmu ásamt fylgdarliði. Séra Óiafur sagði blaðinu að hann
og hans fólk hefði verið varað sérstaklega við „götubörnunum" í borgunum, börnum sem foreldrar hafa skilið eftir i reiðileysi.
Biskup kvaðst hinsvegar vera sú manngerð sem treystir fólki. Hann rétti því einum „götudrengnum" myndavél sína, og bað
hann að taka mynd af sér í hópi annarra slíkra. Hér er árangurinn: Mynd tekin af brasilskum dreng sem lífið leikur sannarlega
grátt.
MEIRA UM BRASILÍUFÖR BISKUPS — BLS. 11
Fólk
Ung kennaradóttir frá
Hrafnagili í Eyjafirði, As-
dís Birgisdóttir, var á dög-
unum kjörin Ungfrú
Norðurland. í Degi segir
Ásdís að hún hafi hug á
að nema iþróttafræði aö
loknu stúdentsprófi frá
MA í vor.
★
Jingo Hirutsuka, heitir
Japani einn, 67 ára, sem
dvalið hefur langdvölum
hérlendis fjarri heima-
landi og fjölskyldu. Hann
er vinnuforkur mikill og
vinsæll tijá starfsfólki
Granda hf. lesum við í
Grandafréttum. Hans
verkefni er að fylgjast
með karfavinnslu á veg-
um fyrirtækisins Tayo í
Japan. Hiratsuka segir að
sjálfum finnist honum
best að borða karfann
hráan, skorinn í þunnar
sneiðar og boröa hann
með soyasósu og jap-
anskri piparrót. Japansk-
ar húsmæður vilji hann
síður þannig, hann sé of
feitur. Yfirleitt grilla þær
karfann, eða sjóði hann í
salti og sykri.
★
Tveir ungir háskólanem-
ar fengu styrk til fram-
haldsnáms á aðalfúndi
Verslunarráðs íslands á
dögunum, 160 þúsund
krónur hvort. Þau eru
Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir, viö nám á Ítalíu og Jón
Björnsson, sem nemur í
Bandaríkjunum. Náms-
fólk úr Verslunarskóla ís-
lands fær sérstaka athygli
Námssjóðs Verslunar-
ráðsins, þegar styrkjum
er úthlutað á ári hverju.