Alþýðublaðið - 06.04.1990, Side 3
Föstudagur 6. apríl 1990
3
Kirkjurád gluggar í grein í Heimsmynd:
„Þetta heitir að sigla
undir fölsku fíaggi"
— segir í álykturx ráösins um umfjöllun um dulhyggjufólk
Greinar og viðtöl í Heims-
mynd I mars urðu tilefni þess
að Kirkjuráð þjóðkirkjunnar
sendi frá sér ályktun. Þar er
gagnrýnt að birtar eru myndir
af dulspekifólki inni í tveimur
kirkjum, Landakotskirkju og
Langholtskirkju í heimildar-
leysi og með annarleg mark-
mið í huga.
,,Af myndunum mætti ráða að
hér væri á ferð kirkjufólk eða jafn-
vel fulltrúar kirkjunnar. Undir
þetta ýtir enn frekar mynd og texti
á bls. 22, þar sem sagt er frá
„prestsvígslu” eins dulspekings-
ins. Myndmálið er hér i engum
tenglum við innihald greinarinnar
eða raunveruleikann yfir höfuð.
Staðreyndin er sú að kirkjan hefur
lýst yfir andstöðu sinni við kenn-
ingar nýaldarsinna. Umrædd
kona, Þórunn Maggý, er hvorki
prestur kaþólskra né lúterskra.
Myndmálið er skýrt; það er verið
að setja ákveðið jafnaðarmerki á
milli dulspeki og kristinnar kirkju.
Þetta heitir að sigla undir fölsku
flaggi", segir í ályktun Kirkjuráðs-
ins.
Það kemur og fram að myndirn-
ar í kirkjunum voru teknar án leyf-
is presta og umsjónarmanna við-
komandi kirkna. Ólafur Skúlason,
biskup, segir að á síðustu áratug-
um hafi mjög fjölgað hvers kyns
sértrúarhópum og kirkjudeildum.
„Grundvöllur trúfrelsis og þess að
menn geti lifað saman i sátt og
samlyndi er að þeir beri virðingu
fyrir skoðunum hvers annars,
virði það sem öðrum þykir heilagt
og villi ekki á sér heimildir. Þess
vegna er bannað í lögum að spotta
Séra Ólafur Skúlason biskup — „að
bera virðingu fyrir skoðunum hvers
annars".
trú manna. Kirkjur eru helgaðir
staðir, þær eru fráteknar fyrir
kristna þjónustu og guðsdýrkun.
Kirkjan vill virða skoðanir ann-
arra. En um leið óskar hún eftir
því að sérstaða hennar og það sem
henni er heilagt, sé virt í ræðu og
riti”, segir biskup.
Prófkjör Alþýduflokksins á Akranesi:
Eina próf kjörii á Skaganum
í dag og á morgun fer fram próf- maí n.k. og eru stuðningsmenn föstudag frá kl 16til20ogámorgun,
kjör AlþýðuflokksinsáAkranesi. Al- hvattir til að mæta á Röst, Vestur- laugardag frá kl. 10 til 17. Myndin
þýðuflokkurinn er eini flokkurinn á götu 53, þar sem prófkjörið fer sem hér fylgir er af frambjóðendum
Akranesi, sem efnir til prófkjörs fram. Kjörstaður verðuropinn í dag, í prófkjörinu.
vegna bæjarstjórnarkosninga 26.
Flugleiðir fá Hafdísi, 3 milljarda króna þotu:
Næsta vor með
sjö nýjar
Boeing-þotur
FIMMTÍU MILLJÓN dollara,
eða um 3000 milljón króna flug-
vél, Hafdís, af Boeing 757 gerð
var afhent Sigurði Helgasyni,
forstjóra Flugleiða í gær vestur í
Seattle í Bandaríkjunum. Er hér
um að ræða dýrasta farkost
landsmanna til þessa.
Hafdís mun lenda á Keflavíkur-
flugvelli fyrsta sinni að morgni 10.
maí n.k. Sá dagur er reyndar oft
settur í samband við komu annars-
konar farartækja til landsins, innrás-
arflota breska hersins, en það gerð-
ist fyrir nákvæmlega 50 árum 10.
maí n.k.
Hafdís er hin fyrri af tveim þotum
sem Flugleiðir eignast af þessari
gerð, sú síðari verður afhent á
næstu vikum ásamt þotu af gerðinni
Boeing 737—400 en tvær slíkar
komu í fyrrasumar og hafa verið í
rekstri síðan. Fimm nýjar og glæsi-
legar þotur verða því senn í förum
hjá Flugleiðum, sem státar af nýj-
asta flugflota Evrópu.
Auk þessara fimm nýju þotna hafa
Flugleiðir undirritað kaupsamning
á tveim þotum til viðbótar, eina af
hvorri gerð. Verða þær afhentar fé-
laginu næsta vor.
Gömlu DC-8 þoturnar sem þjónað
hafa dyggilega hjá félaginu munu
nú hverfa úr landi ein af annarri, sú
síðasta í haust.
Nýr Baldur í notkun:
HINN NÝIÞJÓÐVEGUR
YFIR BREIÐAFJÖRÐ
— stór stund fyrir okkur segir Guðmundur Lárusson framkuœmdastjóri
Ný Breiðafjarðarferja var af-
hent eigendum sínum á mið-
vikudaginn. Ferjan hlaut nafn-
ið Baldur, eins og gamla skipið,
og var það skipasmíðastöðin
Þorgeir og Ellert hf. á Akra-
nesi sem smíðaði skipið fyrir
hlutafélagið Baldur hf. í Stykk-
ishólmi. Að sjálfsögðu var mik-
ið um dýrðir og voru m.a. flest-
ir þingmenn Vesturlands og
Vestfjarða, samgönguráðherra
Steingrímur J. Sigfússon og
forráðamenn Baldurs hf. mætt-
ir til að taka á móti ferjunni.
Jón Dalbú skipstjóri og Guð-
mundur Lárusson framkvæmda-
stjóri Baldurs hf. voru að sjálf-
sögðu ánægðir með nýja skipið.
„Þetta virðist vera gott sjóskip og
verður gaman stjórna því á
Breiðafirðinum," sagði Jón. Guð-
mundur tók undir orð Jóns og
sagði að stefnan væri að fyrsta
ferðin á milli Stykkishólms og
Brjánslækjar yrði í dag, föstudag.
Nýja ferjan er tæplega 500 tonn
og mun leysa nafna sinn Baldur,
sem siglt hefur á þessari leið síð-
astliðin 22 ár, af hólmi. Nýi Baldur
mun geta flutt 200 farþega, allt að
25 fólksbíla og 3 vöruflutningabíla
eða rútur í ferð. Smíði skipsins tók
nokkru lengri tíma en áætlað var
en upphaflega átti að afhenda það
í ágúst 1988. Stefán Skarphéðins-
son sýslumaður í Barðastrandar-
sýslu og stjórnarformaður Baldurs
hf. sagði að þrátt fyrir þessa bið
væri aðalatriðið að ferjan er kom-
in og væri þetta bylting í ferðamál-
um í landsfjórðungnum.
Eiður Guðnason þingmaður var
viðstaddur afhendinguna og sagði
hann að ferjan sýndi það að ís-
lenskur skipaiðnaður væri fylli-
lega samkeppnisfær við þann er-
lenda. „Þetta er hinn nýi þjóðveg-
ur yfir Breiðafjörð og er ég þess
fullviss að ferjan á eftir að stór-
auka ferðamannastrauminn á
svæðinu yfir sumartímann.”
Með tilkomu nýju ferjunnar
mun verða brotið blað í samgöng-
um við Vestfirði. Ekið verður að
og frá borði og mun siglingatím-
inn yfir í Breiðafjörð styttast veru-
lega, eða úr 3'h tíma í 2Vi tima.
Næsta sumar er áætlað að tvær
ferðir verði á dag á milli Stykkis-
hólms og Brjánslækjar, með við-
komu i Flatey.
Nýji Baldur, — mikil samgöngubot milli Vestfjarða og Vesturlands.
A-mynd: Andrés Pétursson.