Alþýðublaðið - 11.07.1990, Page 1

Alþýðublaðið - 11.07.1990, Page 1
MPYÐUBUÐIÐ Aktu ekki út i óvissuna aktu ó Ingvar Helgason hf. Sævarhofða2 Simi 91-67 4000 102. TOLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1990 ALVARLEGT MAL: Georg Þór Kristjánsson, bæjarfull- trúi Sjálfstæðislokksins í Vestmannaeyjum, neitar að segja sig úr bæjarstjórn vegna stórsmygls í Vestmannaeyjum sem hann hefur játað aðild sína að. Sigurður Jónsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, sagði í samtali við Alþýðublaðið, að þetta mál yrði litið alvarlegum augum og taldi að ef Georg segði ekki af sér yrði mjög erfitt fyrir hann starfa í bæjar- stjórn Vestmannaeyja Fimm aðrir menn, af Bakkafossi, eru tengdir þessu stærsta smyglmáli sem upp hefur komist. Smyglvarningurinn er talinn um 300 milljón króna virði. Góssið var áfengi, vindlingar og talstöðvar. VILLTAR PLONTUR: í vor auglýsti Byggðastofnun eftir fólki sem vildi reyna fyrir sér í grasasöfnun. Viðbrögð við auglýsingunni voru afbragðsgóð og hafa 116 látið skrá sig. Þetta er tilraun til að nýta þá möguleika sem villtar plöntur bjóða til að auka fjölbreytni atvinnulífs. Einnig hefur Byggðastofnun gefið út ritið Nýting villi- gróðurs, leiðbeiningar viðsöfnun verkunogsölu. Heftið er ætlað því fólki sem vill reyna að hafa tekjur af söfnun og sölu plantna sem eru nýtanlegar til matar, í te eða krydd. EINN FÉKK TVÆR MILLJÓNIR: Tvær milljónir komu á einn miða í drætti Happdrættis Háskóla íslands í gær. Þær komu á miða nr: 57759. 250 þúsund krónur komu á miða nr: 33352, 44453 og 56908. 17 númer fengu 75 þúsund krónur hver. Aukavinningur að upphæð 50 þús- und krónur kom á tvo miða: 57758 og 57760. Alls voru dregnir út 100 25 þúsund króna vinningar og enn fleiri 12.000 króna vinningar. GLYMUR SELDUR: Árni Samúelsson, eigandi Bíóhall- arinnar, festi kaup á skemmtistaðnum Glym í gær. Gekk hann þar með inn í kaup Reykjavíkurborgar á Broadway er var í eigu Olafs Laufdals. Kaupverð var 135 milljónir króna en Reykjavíkurborg keypti Glym á 117 milljónir af Ólafi á sínum tíma. Ein meginástæða kaupanna ku vera sú að mikil hávaðamengin var frá Glym en Bíóhöllin er stað- sett við hlið hans. VEITIR EKKIFRAMKVÆMDALÁN: Húsnæðismála- stjórn hefur ákveðið að veita ekki ný framkvæmdalán úr byggingarsjóði ríkisins það sem eftir er þessa árs. Fram- kvæmdasjóður hafnaði í síðustu viku öllum umsóknum til framkvæmda við byggingu söluíbúða fyrir aldraða. Um- sóknir lágu fyrir um byggingu allt að 400 söluíbúða fyrir aldraða. Borgin sótti um 770 milljón króna framkvæmda- lán næstu þrjú árin til byggingar íbúða fyrir aldraða við Skúlagötuna. Jóhanna Sigurðardóttir, sagði í samtali við RÚV, að þetta væri alfarið ákvörðun Húsnæðismálastjórn- ar og ráðuneytið hafi engin afskipti haft af þessu. 0LÍSBÍLLINN MISN0TAÐUR: Olíuverslun íslands vill koma á framfæri athugasemd vegna fréttar um að sendiferðabíllinn með smyglinu sem Georg Þór Kristjáns- son ók hafi verið merktur Olís, en Georg er aðili að smygl- málinu. Tekið er fram að mjög strangar reglur gilda um notkun á bifreiðum félagsins. Forsvarsmaður Olíuverslun- ar segir að þessar reglur hafi augljóslega verið brotnar með alvarlegum hætti. Félagiö mun bregðast við með við- eigandi aðgerðum. LEIDARINN Í DAG í leiðara Alþýðublaðsins í dag er fjallað um ár- angur í verðlagsmálum. Þar segir að þó að nokkur árangur hafi náðst, líkist þó glíman enn að mestu baráttu sjúklings við hitamælinn. Stjórnvöld hafi vikist undan því að taka á skipu- lagi í sjávarútvegi og landbúnaði. Eigi árangur að nást til frambúðar verði að draga úr miðstýr- ingu á efnahagssviðinu. Fátækt á íslandi Rætt við Guðbjörgu Ó. Ólafsdóttur sem bæði á við ör- orku og fátækt að stríða. Engin siðfræði á leigumarkaðnum „Það gengur illa að leigja tveggja herbergja íbúðir yfir 30 þúsundum," segir Jón frá Pálmholti í samtali við Alþýðu- blaðið. / „Eg er enginn Þorsteinn Pálsson/': sagði Ólafur Ragnar Gríms- son fjármálaráðherra og vísar á bug spá Vísbendingar um að mikið launaskrið og þensla standi fyrir dyrum. Siguröur Jónsson, efsti maöur á D-lista í Eyjum, vill bœjarstjórastööu í Njarövík: Fer I rá Eyjum „Nafn mitt átti að vera leynilegt en þetta hefur greinilega kvisast út. Já, það er rétt ég hef sótt um bæjarstjórastöðu í Njarðvík,“ sagði Sigurð- ur Jónsson efsti maður á lista Sjálfstæðisflokks- ins í Vestmannaeyjum, sem meirihlutinn hafn- aði bæði í sæti bæjar- stjóra og í embætti for- seta bæjarstjórnar. „Hvort sem ég fæ þessa stöðu eða ekki er ég ákveðinn í því að fara frá Vestmannaeyjum. Ég og kona mín erum bæði kennarar að mennt og höfum einnig verið að at- huga með kennarastöð- ur víðsvegar." Þrátt fyrir að andstaða hafi verið mikil við hann frá bæjarstjórnarmeirihlut- anum í Vestmannaeyjum segist hann hafa fundið fyr- ir miklum meðbyr frá bæj- Sigurður Jónsson, — efsti maður á sigurlista Sjálfstæð- isflokksins vill bæjarstjóra- stöðu í Njarðvík. DV-mynd arbúum: „En meðan þessi meirihluti er við stjórn í Eyjum á ég ekki heiman- gengt hér,“ sagði Sigurður. Sigurður hefur starfað í 36 ár að bæjarmálum segist hafa orðið fyrir vonbrigð- um með samstarfsmenn sína og segist því sjá fram- tíð sína fyrir sér annars staðar en í Vestmannaeyj- um. Rigning og Síðan skein sól Hljómsveitin Síðan skein sól lét rigninguna í gær ekki á sig fá og kom borgarbúum skemmtilega á óvart með uppákomu við Miklatún. Tilefnið var útkoma nýrrar safnplötu frá Skífunni sem inniheldur nokkur lög þeirra félaga. Auk þess er tónleika- ferð hljómsveitarinnar að komast á fullt skrið. Sérstakt strigaskóræktarátak verður kynnt á tónleikaferðinni. Þessar ungu stúlkur voru mættar til að njóta tóna og afmælistertna en söngvarinn Helgi Björnsson átti afmæli þennan dag. RITSTJORN rc 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR r 681866

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.