Alþýðublaðið - 11.07.1990, Síða 2

Alþýðublaðið - 11.07.1990, Síða 2
2 Miðvikudagur 11. júlí 1990 Fátækt á íslandi: Fátækt hefur aldrei gert mér þungt i skapi Nú heyrist þvi offt ffleygt að öryrkjar séu sá þjóðffélagshópur sem búi við einna slökust kjör. Okkur þótti þvi nauðsynlegt að skyggn- ast aðeins bak við tjöldin og athuga þetta segir Guöbjörg Ó. Ólafsdóttir ellilífeyrisþegi og sjúklingur nanar. Fólk Útibússtjóri íslandsbanka á ísafirði Halldór Margeirsson, 48 ára, hefur verið ráðinn útibússtjóri hjá íslands- banka á ísafirði. Halldór á að baki 30 ára starfsferil hjá Útvegsbankanum á staðnum, en frá 1975 gegndi hann stöðu skrif- stofustjóra hjá bankan- um. Glasgow-verð i Reykjavik? I nýútkomnum Verzlun- artíöindum, málgagni Kaupmannasamtaka ís- lands segir frá ráðstefnu samtakanna um vöru- verð á íslandi. Ragnar Guömundsson, kaup- maður, fjallaði þar um hugtakið ,,Glasgow-verð" og hvað þar lægi að baki. Ragnar sagði: „Glasgow- verð er í raun mikið fram- boð af ódýrum varningi á stórum markaði". Saman- burður væri oft út í hött. Hér á landi mætti oft finna ódýrari vörur en í ýmsum þeim borgum sem við ferðumst gjarnan til, þar á meðal Glasgow. Verðlaunaður fyrir sölu á Álfinum Kristinn Gudmundsson, ungur Kópavogsbúi, fékk fjallahjól að launum fyrir dugnað við sölu á Álfin- um, sem SÁÁ seldi í maí og fékk góðar viðtökur almennings. Kristinn seldi hvorki meira né minna en 500 álfa. Góður árangur það — og gott sölumannsefni á ferðinni! Forsetinn verður heiðursdoktor Frú Vigdís Finnbogadótt- ir, forseti íslands, mun veita viðtöku heiðurs- doktorsnafnbót við há- skólann í Nottingham í Englandi. Vigdís hélt utan í morgun. í ferðsinni mun forsetinn heimsækja Grimsby um helgina og tekur þar þátt í hátíða- höldum til heiðurs sjó- mönnum, §koðar verk- smiðju dótturfyrirtækis SH þar í borg og hittir ís- lendinga sem búsettir eru á Humberside-svæðinu. Kornelíus Sigmundsson forsetaritari er með í ferð- inni. Þegar skoðaðar eru bætur almannatrygginga miðað við júní 1990 sést að og örorkulíf- eyrir nemur 11.181 kr. á mán- uði , full tekjutrygging ein- staklingsins eru 20.126 kr., heimilisuppbót er 6993 kr. og sérstök heimilisuppbót nem- ur 4810 kr. á mánuði. Þeir sem dvelja á sjúkrastofnun- um fá 5793 kr á mánuði í vasapeninga. Auk þessa eru ýmsar bætur aukalega sem greiddar eru t.d. til ekkna og ekkia og þeirra sem þurfa að sjá börnum farborða. Hjá Tryggingastofnun ríkis- ins fékkst það uppgefið að alls væru það um 4482 ein- staklingar sem fengju greidd- an örorkulífeyri en það er fólk sem hefur verið metið með 75% örorku eða meiri. Örorkustyrkur er greiddur þeim sem hafa milli 50—75% örorku en alls eru það um 1815 manns. Þeirsem mælast með minni en 50% örorku fá eina greiðslu en hún er reikn- uð út af sérfræðingum sem taka tillit til líklegra framtíð- artekna. Getur sú greiðsla numið töluverðum upphæð- um. Auk þeirra sem hér hafa verið taldir fá 174 manns ör- orkulífeyri vegna vinnuslysa. Til að kynnast einhverri hlið þessara mála nánar heimsóttum við Guðbjörgu Ó. Ólafsdóttur einn sólbjart- an morguninn. Hún tók hlý- lega á móti gestinum í fallegri og snyrtilegri íbúðinni og samtalið hófst eins og af sjálfu sér. Úr vestustu sveit ú íslandi Hvaðan ertu? Ég er vestan úr Barða- strandasýslu, úr vestustu sveit á Islandi, Rauðasandi, en það er milli Skorar og Látrabjargs. Þar er mín sveit fyrir opnum Breiðafirði. Þar er eitt höfuðból sem heitir Saurbær sem er nú komið í eyði eins og mörg sveitabýlin nú til dags og þar er erfitt með samgöngur. Þegar ég var barn voru milli 70 og 80 manns í sveitinni en núna held ég að sé aðeins búið á þremur bæjum og þá fullorð- ið fólk og kannski eitthvað börn. Þar fæddist ég og ólst upp. Hvenær fluttist þú þaðan? Ég fluttist þaðan 19 ára, en ég er fædd '21. Vegna þess að ég átti við veikindi að stríða og gat ekki unnið vanaleg störf þá þurfti ég að læra eitt- hvað sem ég gat lifað á svo ég lærði saumaskap hjá Guð- rúnu Arngríms í Bankastræti og hef meira og minna unnið við það um dagana með heimilisverkum. Var fötlun þín meðfædd? Nei, hún var ekki með- fædd. Það var þannig að sennilega hefur einhver kom- ið á heimilið og hefur smitað mig og föður minn af berkl- um, sem þá voru mjög al- gengir hér í landi, en hann var búinn að liggja í brjóst- himnubólgu en ég aftur á móti var með meiðsli í hnénu svo við höfum bæði fengið berklabakteríuna í okkar veiku punkta. Hann lést tii þess að gera ungur maður, 43 ára gamall, en ég fékk varan- leg örkuml svo að fóturinn á mér styttist um 6 cm. Svo var gert við það þegar ég var 14 ára hérna á Landsspítalanum og ég fékk staurfót en það hefur alltaf aðeins hamlaö mér. Ekki það að það hafi hamlað mér sem ungri manneskju en ég gekk með tvær hækjur frá því að ég var þriggja ára þar til ég var ell- efu ára. í þá daga var ekkert verið að spekúlera í því þótt einn krakki þyrfti að ganga með tvær hækjur. Það myndi ekki ske í dag. Annars vorum við mörg systkinin og áttum ákaflega gott æskuheimili og gleðilega æsku. Þú flyst semsagt suöur og lærir sauma? Já, ég lærði sauma og flutti aldrei alveg heim aftur. Ég fór fyrst á sumrin en svo settist ég að hér fyrir sunnan. Svo gifti ég mig 23 ára og átti heima þrjú ár á Patreksfirði, sem var þremur árum of lengi, og svo fluttumst við hingað suöur og hér höfum við búið. Hvermg ert þú metin sem öryrki? Ég er metin 75% öryrki en núna er ég bara ellilífeyris- þegi eins og annað gamalt fólk. Hvernig finnst þér þú kom- ast af? Það er nú svoleiðis að mað- urinn minn lést þegar hann var 53 ára en ég saumaði fyr- ir aðra. Hann slasaðist mjög mikið í vinnuslysi og náði aldrei fullri heilsu og lést nokkrum árum seinna. Þá voru börnin í skóla, en við eigum 3 börn og ég hef verið ákaflega heppin með þau, ég á bestu börn í heimi. Dreng- irnir fóru snemma að vinna, en ég gat ekki kostað þá til mennta, því miöur, en þeir hafa bætt við sig og eru ákaf- lega vel sjálfstæðir. Hvað hefur þú til að lifa af? Ég hef ellilífeyri og tekju- tryggingu auk þess sem ég hef lyfjauppbót því ofan á önnur skemmtilegheit er ég hjartasjúklingur og ég er með sykursýki og þetta allt saman kostar mikla peninga. Ég verð að sprauta mig tvisvar á dag og verð að taka lyf við hjartanu, en ég fékk hjarta- áfall í haust og það dó hluti úr hjartanu sem ekki kemur til starfa aftur, en ég náði mér en er ekki mjög mikill bógur eft- ir enda er maður ekki mikill vinnuhestur þegar maður fer að nálgast sjötugt. Annars þykir mér óhemjugaman að handavinnu, að prjóna og sauma og svoleiðis, þannig eyði ég tímanum. Ég hef svo sem ellilífeyri, tekjutryggingu og lyfjauppbót en einnig hef ég hálfa heimilisuppbót. Af hverju ég hef ekki nema hálfa veit ég ekki, það eru mér æðri menn sem ráðstafa svo- leiðis. Enginn þarff____________ að liða skort Hvernig finnst þér búið að fötluðum í þessu þjóðfélagi? Ég læt það vera. Ég held að það þurfi enginn að líða skort nema það sé sjálfum honum að kenna. Þeir sem að drekka og reykja þurfa mikla pen- inga og þessar bætur duga þeim skammt til svoleiöis hluta, en þar sem ég geri hvorugt hef ég það umfram. En ég held að það sé hægt, og ég veit það því ég hef gert það árum saman, að lifa á bótum frá almannatrygging- um, þ.e.a.s. ef maður borgar ekki gífurlega húsaleigu. Reykjavíkurborg á þessa blokk og ég fékk þessa íbúð þegar maðurinn minn dó og börnin mín voru í skóla og hér er húsaleigan milli ellefu og tólf þúsund á mánuði svo ég hef 31 þúsund eftir. Á því er hægt að lifa en hjá mér fer mikið í t.d. einnota sprautur, í lyf og það sem ég þarf til að halda mér tórandi. En ég hef alltaf verið sátt við lífið og fá- tækt hefur aldrei verið mér þannig að hún gæti gert mér þungt í skapi. Held að ffólk ætti að geta liffað__________ sæmilegu liffi__________ ú bótunum Hvernig er það með kjör þeirra sem eru einna verst settir? Ég veit það ekki, ég þekki það ekki. Sem betur fer eru þeir sem ég þekki nokkuð ánægðir, en ég hef umgengist mikið fólkið inni í Sjálfsbjarg- arhúsi, og mér virðist sem flestir þeirra hafi það þokka- lega gott. Og annað fólk sem er á bótum frá almannatrygg- ingum, sem að hagar sér eins og siðað fólk, held ég að geti lifað sæmilegu lífi. Heldurðu að fólk geri kannski of háar kröfur? Það held ég ekki. Við get- um ekki gert kröfur. Þú sérð það að manneskja sem þarf að leigja sér húsnæði, þó það sé eins og ég með lága leigu, gerir ekki mikil ósköp með það sem eftir er. Svo fyrir ut- an það er t.d hjá mér mjög dýrt að fá skó. Fóturinn á mér er það mikið styttri að ég verð að láta vinna upp alla skó og viðgerðir á skónum, sem tryggingarnar borga ekki, eru yfirleitt hærri held- ur en verðið á skónum. Svo það er eins gott að velja sér góða skó sem endast lengi. En eins og ég segi, ég fyrir mitt leyti get lifað á því en lít- ið þar fram yfir. Éinnst þér að það mætti breyta fyrirkomulaginu á ein- hvern hátt? Ég veit það ekki, það verða mér fróðari menn að dæma um. Ég geri mig ánægða með það sem ég hef og lifi eftir því. Mér finnst ég, fyrir mitt leyti, lifa þokkalegu lifi. Ekki það að ég hef átt góð börn sem hafa gert mikið fyrir mig og þau hafa oft hjálpað mér þannig að ég hef getað ferð- ast víða erlendis. Hverjir heldur þú að séu verst settir af öryrkjum í dag? Tvímælalaust óreglusamt fólk sem kann ekki að fara með sitt fé og þeir sem þurfa að vera í hárri húsaleigu. Það er orðið dýrt að lifa í dag. En hverju er hægt að breyta get ég ekki sagt. Það væri þá ekki nema að hjálpa því fólki sem hefur þessar lágu tekjur til að komast í viðunandi húsnæði sem það ræður við. Fólk sem reykir yfir tvo pakka af sígar- ettum á dag, þegar pakkinn kostar yfir tvö hundruð krón- ur, hlýtur að hafa töluverðan toll á mánuði sem við hin losnum við. En þetta er alveg undir fólki sjálfu komið. Þaö geta allir hætt að reykja ef þeir vilja. Þegar ég fékk syk- ursýki varð ég að hætta aö borða eiginlega allan þann mat sem mér fannst bestur svo ég vorkenni þeim ekki nokkurn skapaðan hlut að hætta að reykja. Það er ekk- ert erfiðara. Mikilvæg* qð liffa reglusömu liffi_____________ Áttu einhver ráð til handa fólki sem verður fatlað? Ég held ég eigi engin. Fyrst í minni bernsku, þegar að ég gekk við hækjur, var ég á mínu foreldraheimili. Og þó pabbi minn dæi ungur þá átt- um við afskaplega gleðilegt æskuheimili. Ég myndi segja að fólk ætti að reyna a.ð gera eitthvað sem það getur þrátt fyrir sína fötlun, lifa reglu- sömu lífi og lífsgleðin er fyrir öllu. Ef fólk situr í fýluþá get- ur því ekki liðið vel. Ég held að fyrsta skilyrði þess að geta íifað góðu lífi sé að vera í góðu skapi. Finnst þér þú finna fyrir beiskju t.d. hjá því fólki sem þú kynnist hjá Sjálfsbjörg? Já, hjá sumu. Sumir eru bitrir út í örlögin, finnst þeir hafa verið snuðaðir um mikið og spyrja afhverju ég en ekki einhver annar, en maður get- ur ekki hugsað svoleiðis. Það er alltaf tilviljun. Svo hugsa þeir þegar drukkinn maður sest undir stýri á bíl, þá er hann að leika sér að dauðan- um, dauða sjálts sín og ann- arra. Ég held að fólk sé ekki ábyrgt gjörða sinna þegar jrað hagar sér þannig. Nú sumir slasast af tilviljun. Hvernig finnst þér að t.d. ungt fólk sem slasast í bílslys- um ætti að hugsa? Já, eins og ég segi, það ætti að gera það sem það gæti til að ná þeirri heilsu sem hægt er og sætta sig við það og reyna að gera það besta úr líf- inu. Sem betur fer er það fjöldi fólks sem gerir það en einstaka manneskja verður auðvitað bitur og segir af- hverju gat þetta ekki hent einhvern annan en mig. Þannig að ég á engin ráð handa þeim sem lenda í óheppni. Guðbjörg er greinilega manneskja sem kann að njóta lífsins og lætur ekki bugast. Hún viöurkenndi að auðvitað hefði það oft verið leiðinlegt sem barn að geta ekki tekið þátt í leikjum hinna barnanna. En hún lagði áherslu á að maður yrði að læra að njóta annarra hluta. Hún hefur yndi af tón- list og bókalestri auk þess sem hún hefur gaman af að vinna í höndunum. Hún á mikið ríkidæmi þar sem hún á góða að og samhenta fjöl- skyldu. I .unililígfirieríls i lulori l?.6fcn í____ Jc (;

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.