Alþýðublaðið - 11.07.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 11. júlí 1990
INNLENDAR FRETTIR
3
FRÉTTIR
IHNOTSKURN
TONLISTARHUS ! Áhugamenn um byggingu tónlistar-
húss eru ódrepandi í baráttu sinni og munu án efa ná til-
settu marki. Á dögunum reistu þeir skilti á lóð þeirri sem
Reykjavíkurborg úthlutaði samtökum þeirra. Þar stendur:
TONLISTARHÚS mun rísa HÉR. Markmiðið er að almenni-
legt tónlistarhús verði risið í höfuðborginni 1994 — á 50
ára afmæli íslenska lýðveldisins.
ENDURUNNIÐ í AUKNUM MÆLI: Neytendasam-
tökin segja að framleiðendur og innflytjendur hafi ekki
staðið sigsem skyldi að bjóða neytendum umhverfisvænar
vörur. Það sé því ánægjulegt að nú skulið kominn á mark-
að óbleiktur salernispappír úr endurunnum pappír. Þessi
pappír er um margt góður, — gæðin eru sambærileg við
annan slíkan pappír — framleiðslan stuðlar að verndun
umhverfis — og varan er þar að auki ódýrari.
ÞRIFALEGASTI BÆRINN: Það fer ekki mikið fyrir
keppninni um „þrifalegasta bæinn“ og „þrifalegasta þorp-
ið“ hér á landi. Þessi keppni er háð um alla Evrópu í sumar
í tilefni af „ári ferðamannsins". Otalmargt fleira lesum við
í blaðinu Eurotourism um viðburði í sambandi við þetta ár,
— en ekkert heyrist hér á landi um þessa hluti, m.a. Ijós-
myndasamkeppni, samkeppni um veggspjöld, keppni mat-
reiðslumeistara og fleira. Hefur ferðamálaráð kannski
gleymt sér?
VEÐURSTOFAN ÞJÓNUSTAR FERÐAFÓLK: sér-
stök þjónusta við ferðamenn á hálendinu hefur nú verið
tekin upp hjá Veðurstofu íslands. Tvær nýjar veðurstöðvar
hafa verið teknar í notkun, þannig að veðurhorfur fyrir há-
lendið bætast við í útvarpi og í svarsíma að morgninum.
Þessar nýju stöðvar eru Versalir á Sprengisandsleið í 610
metra hæð yfir sjó við suðurenda Stóravers og Snæfells-
skáli í 810 metra hæð milli Snæfells og Sauðahnjúka. Veð-
urskeyti frá þessum stöðvum eru lesin með veðurfregnum
kl. 6.45 og 10.10 á morgnana. Einnig með útvarpsfréttum
kl. 7 og 8 og með enskum fréttum kl. 7.30.
LANDSMÓTIÐ HEFSTÍ FYRRAMÁLIÐ: Landsmót
ungmennafélaganna hefst í Mosfellsbæ í fyrramálið kl. 9
með klukkustundar hátíðadagskrá. Að henni lokinni verð-
ur tekið til við keppnisíþróttir, sem eru af ýmsu tagi. Körfu-
knattleikur, skák, golf, jurtagreining, frjálsar íþróttir,
bridge, handbolti, knattspyrna, hestadómar, sund, blak —
og frá 20 annað kvöld til kl. eitt eftir miðnætti er rokkhátíð
á Álafossi. Landsmótið er eins konar „ólympíuleikar" okk-
ar hér á landi og má reikna með gífurlegum fjölda gesta
á þessu landsmóti, sumir segja allt að 20 þúsund manns,
þegar flest verður.
ÓDÝRAST (0G DÝRAST) í REYKJAVÍK: Spagettí,
barnamatur, tepokar, eldhúsrúllur og fryst fiskflök reynd-
ust á hagstæðasta verðinu í Reykjavík, þegar Neytenda-
samtökin gerðu verðkönnun á matvörum í höfuðborgum
Norðurlandanna. Tuttugu tegundir matvöru voru kannað-
ar. í átta tilvikum var Kaupmannahöfn með lægst verð,
Stokkhólmur og Reykjavík í 5 tilvikum og Osló í tveim.
Fimm varanna voru dýrastar í Reykjavík, hrökkbrauð, sem
var tvöfalt dýrara hér en í Stokkhólmi, rjómaís, sem var
149% dýrari hér en í Kaupmannahöfn, egg, sem reyndust
rúmlega tvöfalt dýrari en í Kaupmannahöfn, ostur og svín-
akótelettur.
HRESSILEG SÖNGLÖG Á FERÐALAGINU:
Barnaleikir 2 er ágæt hljóðsnælda sem Umferðarráð ög
BG-útgáfan hafa gefið út. Alþýðublaðið hefur látið fólk af
yngstu kynslóðinni hlýða á þessa snældu og fengið góða
dóma um hana. Á löngum bílkeyrslum um landið er upp-
lagt að geta spilað snælduna fyrir börnin. Á henni er
skemmtileg tónlist Birgis Gunnlaugssonar og félaga sem
flestir þekkja, en auk þeirra eru Barnakór Seljaskóla og
Rokklingarnir með tónlist á snældunni. Eddi frændi kemur
lika við sögu.
Aöaleigendur Stöövar 2 telja sig þurfa aö tala við Verzlunarbankamenn
tveim hrútshornum, telja aö þeir hafi veriö
BEITTIR BUKKINGUM
Tap á rekstri Stöðvar tvö var á siðasta ári
155 milljónir króna. Einnig er eignastaða
sjónvarpsstöðvarinnar neikvæð um 671
milljón. Þaðer 171 milljón lakari eignastaða
en núverandi meirihluta eigenda var sagt að
hún væri er þeir gengu til samninga við Eign-
arhaldsfélag Verslunarbanka íslands hf. um
kaup á stöðinni.
Þungbrýndir Stöðvar-menn a blaðamannafundi í gær, —
þeir telja sig hafa verið blekkta. A-mynd: E.ÓI.
Jóhann J. Ólafsson sagði á
blaðamannafundi í gær í til-
efni þess að nú hafa verið
lagðir fram endurskoðaðir
reikningar fyrir árið 1989 að
þegar núverandi meirihluta-
eigendur gengu til kaupa
hefðu verið lögð fram gögn
sem sýndu að eignarstaða Is-
lenska sjónvarpsfélagsins og
íslenska myndversins saman-
lagt væri neikvæð um 500
milljónir. Nú kemur hinsveg-
ar í ljós að eignarstaðan var
neikvæð um 671 milljón
króna.
Þá var einnig gefið í skyn
við kaupin að rekstur fyrir-
tækisins kæmi út á núlli um
síðustu áramót, en tap reynd-
ist hins vegar 155 milljónir
króna.
Þá kemur einnig í ljós að
þrír hluthafar skulda sam-
kvæmt þremur skuldabréf-
um samtals 24 milljónir.
Skuldabréf þessi eru til 15 ára
og fyrsta afborgun mun vera
1994 með 5% ársvöxtum.
Bréfin eru óverðtryggð og
óveðtryggð, eða eins og segir
í tilkynningu frá Stöð 2, „nær
einskis virði."
Þá kemur það í ljós af hálfu
endurskoðenda Islenska
myndversins, sem er dóttur-
fyrirtæki íslenska sjónvarps-
félagsins, að kostnaðarverð
fasteignar sem íslenska
myndverið keypti á árinu er
langt umfram markaðsverð
slíkra fasteigna.
Þorvarður Elíasson, sjón-
varpsstjóri, sagði að heildar-
skuldir Stöðvar tvö væru eitt-
hvað í kringum einn milljarð.
Þorvarður Elíasson sagði
að fyrstu fimm mánuði þessa
árs hefði verið um 66 millj-
óna króna hagnaður á rekstri
stöðvarinnar.
Þá kom einnig fram á fund-
inum að hugmyndir um sam-
einingu Sýnar og Stöðvar tvö
eru ekki lengur á borðinu.
„Eg er enginn
Þorsteinn Pálsson"
— segir fjármálarádherra og vísar á bug spám Vísbendingar
Fjármálaráðuney tið efndi til blaðamanna
fundar i gær vegna spár vikuritsins Vísbend
ingar um verðlagshorfur til ársloka 1991
Samkvæmt þeirri spá er gert ráð fyrir veru
legri verðbólgu og þenslu á næsta ári.
Vikuritið Vísbending fjallar
um efnahagsmál og er gefið
út af Ráðgjöf Kaupþings hf.
Vegna þess hve rnikla athygli
þessi spá hefur vakið í fjöl-
miðlum þótti fjármálaráðu-
neytinu ástæða til að gera at-
hugasemdir við þessa hana.
Á blaðamannafundinum í
gær sagði Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra
að forsendur þær sem spá
Vísbendingar byggist á alls
ekki standast. I fyrsta lagi er
afkoma ríkissjóðs betri fyrstu
fimm mánuði ársins en áætl-
anir á fjárlögum gerðu ráð
fyrir. í öðru lagi hefur innlend
lánsfjáröflun gengið mjög vel
og undanfarnar vikur hefur
verið tryggð sala spariskír-
teina fyrir um 2 milljarða
króna og er hún þá orðin um
4 milljarðar króna frá ára-
mótum.
Fjármálaráðuneytið vísar
einnig algerlega á bug þeirri
forsendu spár Vísbendingar
að mikið launaskrið og
þensla standi fyrir dyrum.
Vísbending reiknar með
samskonar þenslu í ár og
varð árið 1986 en ráðuneytið
vísar því algerlega á bug.
Fjármálaráðherra segir að
ekki verði gerð sömu mistök
í hagstjórninni og gerð voru
þensluárið 1986. ,,Eg er eng-
inn Þorsteinn Pálsson", sagði
Ólafur Ragnar. Öll stefnumót-
un ríkisstjórnarinnar mun að
hans sögn miðast við að við-
halda þeim stöðugleika sem
náðst hefur í efnahagslífinu. í
máli fjármálaráðherra kom
fram að ef skynsamlega yrði
haldið á málum og haldið
áfram að draga úr halla ríkis-
sjóðs ættu að vera allar for-
sendur til að verðbólgan hér
á landi verði á næsta ári svip-
uð og í nágrannalöndunum.
Fjármálaráðherra notaði
einnig tækifærið til að kynna
þann árangur sem náðst hef-
ur í innlendri lánsfjáröflun.
Eins og fram hefur komið hef-
ur nú þegar verið tryggð sala
á spariskírteinum uppá 4
milljarða frá áramótum. Til
viðbótar þessu hafa ríkisvíxl-
ar umfram innlausn verið
seldir fyrir rúmlega 6 millj-
arða króna á sama tímabili.
Innlend lánsfjáröflun ríkis-
sjóðs í heild nemur því um
10—10,5 milljörðum króna
frá áramótum. Ef trúa má
starfsmönnum fjármálaráðu-
neytisins hefur nú á miðju ári
náðst betri árangur í inn-
lendri lánsfjáröflun en í mörg
ár. Pétur Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Þjónustumiö-
stöðvar ríkisverðbréfa, sagði
áskriftasöluna hafa tekist
mjög vel. Meðaláskrift er um
10.000 kr. á mánuði og inn-
heimtan hefur tekist mjög
vel. Þetta áskriftarfyrirkomu-
lag þekkist hvergi annars
staðar í heiminum en hefur
hlotið verðskuldaða athygli.
Um helmingur áskrifenda
borgar með greiðslukortafyr-
irkomulaginu.
Fjármálaráðuneytið vildi
taka skýrt fram að það fagn-
aði aukinni umræðu um efna-
hags- og ríkisfjármál en lagði
einnig ríka áherslu á að mikil-
vægt væri að almenningur
geti treyst því að hún fari
fram á ábyrgan hátt og væri
byggð á staðreyndum.
Athugasemd frá Haraldi Johannessen, forstjóra Fangelsismálastofnunar:
„Rangt að konan hafi
fengið þessi svör##
Vegna fréttar í Alþýðu-
blaðinu 10. júlí sl. er fjallar
um fangelsismál vill Fang-
elsismálastofnun að eftir-
farandi komi fram:
í fréttinni segir að eigin-
kona eins þeirra manna
sem nú afplánar 4 ára fang-
elsisrefsingu vegna ráns á
Seltjarnarnesi árið 1988
hafi fengið þau svör hjá
Fangelsismálastofnun að
fanginn ætti ekkert betra
skilið en að afplána refsing-
una með tveimur geðveik-
ustu föngum landsins.
Það er rangt að konan
hafi fengið þessi svör hjá
stofnuninni. Starfsfóík
fangelsiskerfisins hefur um
árabil vakið athygli á því að
geðveika fanga eigi að vista
á viðeigandi stofnunum
heilbrigðiskerfisins en ekki
i fangelsum. Störf fangelsis-
yfirvalda stjórnast ekki af
annarlegum sjónarmiðum í
garð einstakra fanga, eins
og látið er að liggja í frétt
blaðsins. Fylgt er lögum,
reglugerðum og venjuhelg-
aðri lagaframkvæmd í
þessum málaflokki.
Áhersla er lögð á að gæta
hlutleysis í hvívetna og
föngum ekki mismunað
með geðþóttaákvörðun-
um. Hins vegar vill bregða
við að fólk sem Fangelsis-
málastofnun þarf að hafa
afskipti af, er stundum ekki
alls kostar sátt við kerfið og
grípur þá jafnvel til ýmissa
ráða til að reyna að klekkja
á því. Það er í sjálfu sér
mannlegt.
Virðingarfyllst,
Haraldur Johannessen,
forstjóri.