Alþýðublaðið - 11.07.1990, Side 8

Alþýðublaðið - 11.07.1990, Side 8
•tit •••• • •••••••••• •••• • •• •••• •• •••• •••• • • • •••• •••• • •• •••• •• • • •••• ••• • •••• • • HAVANA: Tveir kúbanskir námsmenn leituðu hælis í sendiráði Tékkóslóvakíu á mánudag. Alls hafast nú sjö flóttamenn við í sendiráðinu því fyrr þann sama dag leit- uðu fimm manns skjóls þar. Samkvæmt heimildum tékk- neskra fjölmiðla klifruðu nemendurnir tveir yfir veggi sem umkringja sendiráðið síðla á mánudag örfáum mínútum áður en lögreglan kom að sendiráðinu. BONN: ítölsk stjdrnvöld sögðu í gær líklegt að þeir 3000 Albanir sem hafast við í sendiráðum í Tírana, höfuðborg landsins, fái heimild til að halda til Italíu einhvern tímann á næstu tveimur sólarhringum. Þeir Albanir sem heimilað var að yfirgefa land sitt á mánudag nutu nýfengins frelsis í Tékkóslóvakíu í gær en óráðið er hvar þeir muni setjast aö. Flestir flóttamannanna eru milli tvítugs og þrítugs. BEIRUT: Ekkert hefur heyrst frá mannræningjum þó að heimildir íranskra stjórnvalda hafi staðfest að til standi að leysa evrópska gísla úr haldi fljótlega. KEMER0V0, SOVÉTRÍKJUNUM: Kolaverkamenn í Sovétríkjunum hafa ítrekað þá ákvöröun sína að fara i verkfall í dag til að mótmæla stefnu stjórnar Gorbatsjovs. Verkfallsleiðtogar í Kermerovo héraði segja að 200 þúsund verkamenn í 60 námum hefji 24 stunda verkfall á mið- nætti. VELIK0 TUROVO, BÚLGARÍU: Fyrsta lýðræðislega kjörna þing Búlgaríu í 45 ár kom saman í gær þrátt fyrir tilraunir þjóðernissinna til að varna þingfulltrúum af tyrknesku bergi brotnum inngöngu í þinghúsið. KUWAIT: íranir og Kúwaitbúar hafa heitið því að byggja upp traust milli ríkjanna. Þetta kom fram á fyrsta fundi leiðtoganna sem haldinn hefur veriö eftir islömsku bylt- inguna í Tehran árið 1979. NAIR0BI: Fimmtán manns hafa látist í óeirðum sem geisað hafa í höfuðborg Keníu, Nairóbí og nágrannabyggð- um borgarinnar þrjá síðustu daga að sögn þarlendra dag- blaða. C0L0MB0 : Sri lanskar öryggissveitir búa sig nú undir að gera árás á sveitir aðskilnaðasinnaðra Tamíla en átök hafa staðið milli aðila í hátt á annan mánuð. ADDIS ABABA : Leiðtogar Afríkuríkja deildu í gær um leiðir til að auka lýðræði í löndum Afriku. Leiðtogarnir gagnrýndu þó þrýsting Vesturlanda á breytingar í ríkjum Afriku svipaðar þeim sem orðið hafa að u ndanförnu í Aust- ur-Evrópu. HELSINKI: Hæstiréttur Finnlands hefur úrskurðað að heimilt sé að senda ungan mann, sem fyrir skömmu rændi Aeroflot farþegaflugvél með 55 manns um borð, til Sovét- ríkjanna. Maðurinn sem aðeins er 20 ára hefur. hótað því að fremja sjálfsmorð verði hann framseldur til Sovétríkj- anna. WASHINGT0N: Bandarískir demókratar hafa lýst því yfir að flokksþingið 1992 þar sem forsetaframbjóðandi flokksins verður útnefndur verði New York-borg en ekki New Orleans. Borgaryfirvöld í New York-borg hafa boðið 15 milljóna dollara fjárstuðning til að standa straum af kostnaði við þinghaldið. ERLENDAR FRÉTTIR Umsjón: Laufey E. Löve Gorbatsjov endurkjörinn Kosið var á milli Gorbatsjovs og Teimuraz Avalíaní, leiötoga kommúnista í Kemerevo-héraði. (MOSKVA, Reuter) Míkhaíl Gorbatsjov var endurkjör- inn í embætti Ieiðtoga sov- éska kommúnistaflokks- ins í gær með 3411 at- kvæðum gegn 501. Kosið var milli Gorbatsjovs og Teimuraz Avalíaní, fyrrum leiðtoga námaverkamanna frá Síberíu. Þetta er í fyrsta sinn sem ekki er sjálfkjörið í embætti leið- toga flokksins. Gorbatsjov réðst harkalega gegn harðlínumönnum og yf- irmönnum hersins þegar hann ávarpaði flokksþing kommúnistaflokksins í gær. Hann sagði að allar hug- myndir um að innleiða ein- ræði í stjórn landsins væri brjálæði og að engin leið væri að snúa til fyrri tíma, umbætur yrðu ekki umflún- ar. Flokksþingið gekk þá til leynilegrar atkvæðagreiðslu þar sem næsti leiðtogi sov- éska kommúnistaflokksins skyldi valinn. Gorbatsjov gaf formlega kost á sér til emb- ættisins en sjö aðrir buðu sig fram á móti honum. Þeirra á meðal Alexander Jakovleyev og Eduard Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkj- anna, sem báðir eru hallir undir Gorbatsjov. Sex þeirra sem buðu sig fram drógu hins vegar framboð sin til baka þannig að aðeins eitt mót- framboð stóð eftir. Það var Teimuraz Avalíaní, leiðtogi kommúnista í Kem- erevo héraði sem er mikið kolavinnsluhérað sem bauð sig fram gegn Gorbatsjov. Av- alíaní var einmitt i forsvari fyrir verkfalli sovéskra námu- verkamanna á síðasta ári. Av- aiíaní hlaut aðeins 501 at- kvæði á móti 3411. Avalíaní er meðal annars þekktur fyrir að hafa árið 1978 skrifaði bréf til Brez- hnevs, fyrrum leiðtoga Sovét- ríkjanna, þar sem hann ásak- aði leiðtogann um að vera við það að leiða sovésku þjóðina í glötun. í bréfinu hvatti hann Brezhnev til að segja af sér embætti. Nikaragúa: Chamorro kallar til her til að bæla niður átök MANAGUA, Reuter) Vio- leta Chamorro, forseti Ník- aragúa, kallaði í gær til her og lögreglu til að bæla niður átök verkamanna og stuðningsmanna ríkis- stjórnarinnar í Managua, höfuðborg landsins. Talið er að átökin nú séu þau verstu sem blossað hafa upp í höfuðborginni á þessum áratug. Hermenn, gráir fyrir járn- um, unnu að því í gær að fjar- lægja götuvígi sem verka- menn höfðu hlaðið upp. Tals- menn verkamanna sögðu að ekki kæmi til greina að binda enda á verkfall þeirra sem hófst á mánudag fyrr en full- trúar stjórnvalda fallist á að setjast niður með verkfalls- mönnum til að ræða kröfur þeirra. Einn maður dó og 34 særð- ust í átökunum í gær og er tala þeirra sem fallið hafa þar með komin upp í fjóra síðan á föstudag. Chamorro sagði í yfirlýsingu í útvarpi að hún hefði fyrirskipað hernum að skerast í leikinn til að aðstoða lögreglu við að bæla niður átökin. Forsetinn hvatti landsmenn til að taka hönd- um saman til að binda enda á átökin og standa þar með vörð um sjálfstæði og frelsi landsins. Verkfallið hefur haft víð- tæk áhrif á atvinnustarfsemi í landinu. Flugvellir og landa- mæri hafa lokast. Opinberar stofnanir og ríkisrekin fyrir- tæki hafa einnig lokast og truflanir hafa verið á raf- magni. Þá hefur sáning kaffis og baðmullar raskast veru- lega en þetta eru helstu út- flutningsvörur landsins. Fundur leidtoga sjö helstu idnríkja: Sluðningur við Gorbatsjov (HOUSTON, Reuter) Leið- togar sjö helstu iðnríkja heims lýstu því yfir í gær að þeir hygðust veita Gor- batsjov, leiðtoga Sovétríkj- anna, verulegan stuðning og að þeir hugleiddu að endurnýja lánsheimildir til handa Kínverjum en tekið var fyrir þær eftir blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar í fyrra. í fréttatilkynningu frá fund- inum kemur fram að ríkin sjö eru tilbúin til að styðja að- gerðir sem miða að því að opna sovéskt þjóðfélag með þvi að koma á fót lýðræðis- legu stjórnkerfi og markaðs- kerfi. Þar er einnig skorað á stjórnvöld í Kúbu og Rúmen- íu að þau stígi skref í átt til þess að auka lýðræði í lönd- unum. Endanleg ákvörðun um hvort Sovétmönnum verður boðin efnahagsaðstoð verður tekin í dag þegar 16. fundi leiðtoganna lýkur. DAGSKRA FUNDARINNS NATO Reynt veröur aö tá stjórnvöld í Moskvu til aö fallast á aöild Þýskalands aö NATO SOVÉSKUREFNAHAGUR V-Þýskaland, Frakkland og Ítalía leggjatil 15 milljarða efnahagsaöst. en Bandaríkin og Bretland vilja skilyröa lánveitinguna. LANDBÚNAÐUR Bandaríkin vilja að niöurgreiöslur veröi afnumdar á næsta áratugi UMHVERFISVERND Leiötogar Evrópu ríkja vilja aö Bandaríkin hraöi aögeröum sem miöa að því aö vernda umhverfið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.