Alþýðublaðið - 24.08.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 24. ágúst 1990
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
MATVÖRUVERÐ LÆKKAÐI: í einni verslun á Noður-
landi vestra gerðust þau undur og stórmerki að matvöru-
verð lækkaði frá könnun sem Verðlagsstofnun gerði í lok
apríl. Þetta var i Kaupfélagi V-Húnvetninga á Hvamms-
tanga. Gunnar Sigurðsson kaupfélagsstjóri sagði Al-
þýðublaðinu í gær að í maí hefði álagning í versluninni ver-
ið lækkuð. ,,Við treystum þvi að viðskiptavinir verði varir
við þetta og komi hingað aö versla," sagði Gunnar. Verð-
samanburður á 50 algengum vörutegundum í búð hans
reyndist líka hagstæður miðað við aðra kaupmenn á svæð-
inu, 94,2% — en hagstæðastur hjá Gesti Fanndal á Siglu-
firði 91,5%.
MATVÖRUVERÐ HÆKKAÐI: Svo haldið sé áfram að
segja frá verðlagi á Norðurlandi vestra, þá hækkaði mat-
vöruverð frá í apríllok í Verslunjnni Tindastóli á Sauðár-
króki um 5% og í Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd
um 3,8%.
ARNARSTOFN Á UPPLEIÐ: Átján arnarungar kom-
ust úr tíu arnarhreiðrum á þessu ári. Fuglaverndunarfélag
Islands segir aö vitað sé auk þess um 20 arnarpör sem
helgað hafa sér óðal en varp hefur misfarist hjá þeim. Örn-
inn er mjög viðkvæmur og getur minnsta ónæði orðið til
að varp hans misfarist. Þegar arnarstofninn er á uppleið er
algengt að annar fuglinn af pari sé ekki orðinn kynþroska,
en ernir verða kynþorska á 5—7 ári. Fuglaverndunarfélag-
ið segir að nú sé álitið að arnarstofninn sé á uppleið. Ekki
er langt síðan stofninn var talinn í útrýmingarhættu.
INNFLUTTUM HUNDI LÓGAÐ: Dagur segir frá því
á miðvikudag að Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefði
fengið upplýsingar um smygl Akureyrings á hundi frá Dan-
mörku. Hundinn hafði eigandinn borið með handfarangri
sínum. I yfirheyrslum viðurkenndi maðurinn. Hundinum
var lógað — en maðurinn kærður til ríkissaksóknara.
VIÐSKIPTIN VIÐ USA RÆDD í WASHINGTON:
Viðskipti íslendinga og Bandaríkjamanna, og þá einkum
ferðamálin í víðtækustu merkingu, verða rædd á ráðstefnu
Amerísk-islenska verslunarráðsins í Washington 27. og 28.
september næstkomandi. Þetta er fimmta ráðstefnan um
viðskipti ríkjanna. Skrifstofa verslunarlifsins annast undir-
búning hér heima og skráir þátttöku. Talið er að um 100
íslendingar muni fara vestur og sækja ráðstefnuna, en
Flugleiðir greiða fyrir með lágum fargjöldum.
ER KVENÞJÓÐIN SÁTT? Þannig spyrja kvennalista-
konur á ferðum sínum um landið þvert og endilangt dag-
ana 27. ágúst til 7. september. Þingkonur Kvennalistans
munu skipta með sér liði og fara um héruð ásamt heima-
konum, fara á vinnustaði, bjóða viðtalstíma og halda fundi
til að kynna stefnu sína. ,,Með tilliti til síbyljunnar um
„þjóðarsáttina" hlýtur aðalspurningin aö vera: Er kven-
þjóðin sátt?" segir í fréttatilkynningu Kvennalistans í gær.
TVÖ LÖG HALL-
GRIMS: Komin eru útTvö
lög eftir Hallgrím Helga-
son tónskáld. Þau heita I
lunda landi (Prófasturinn
dansar) og Vinar minni (El-
egia). Lögin eru tileinkum
Borge Hilfred, konsert-
meistara Suðurjósku sin-
fóníuhljómsveitarinnar í
Sonderborg, en hann frum-
flutti lögin fyrir 40 árum.
Nóturnar, fyrir fiðlu og pí-
anó, fást hjá Erni og Örlygi.
VERÐTILBOÐI Á LAMBAKJÖTI AÐ LJÚKA: nú
líður að því að hætt verði að bjóða lambakjöt á lágmarks-
verði. Um næstu mánaðarmót. 31 ágúst, verður lamba-
kjötsútsölunni hætt. ísumar var gert söluátak á lambakjöti
í samvinnu við Spaugstofuna og var m.a. leitað að léttustu
lundinni. Eins og kunnugt er var það Vestmanneyingur-
inn, Sigurbjörn Guðmundsson, sem dæmdist með léttustu
lundina í harðri úrslitakeppni fyrr í sumar.
ítalska verslimarfélagid yfirtekur Fíat:
Bilafyrirtæki og
Sigurjón Sighvats-
son standa að baki
Italska verslunarfélagið
heitir nýstofnad hlutafélag
sem hefur umboð fyrir Fí-
atbifreiðar á Islandi.
Fjöldi stórra fyrirtækja í
bílaviðskiptum standa að
baki þessum rekstri. Fíat-
umboðið var áður í eigu
Sveins Egilssonar hf.
,,Við komum okkur saman
bílaáhugamenn um að stofna
þetta fyrirtæki, sagði Birgir
Þórisson eigandi framköll-
unnarinnar Á stundinni, en
hann er sonur Þóris Jónsson-
ar hjá Sveini Egilssyni hf.
Auk hans eru stofnendur
þessa fyrirtækis Bílahöllin
hf.,sem er í eigu Jóns Ragn-
arssonar, rallkappa; Bílasalan
Blik; Sigurjón Sighvatson,
kvikmyndagerðarmaður í
Bandaríkjunum; Semoco
sem er verkstæði Sveins Eg-
ilssonar; Sævar Pétursson og
Kristján Gunnarsson, sem
reka bílaverkstæði, og Guð-
mundur Örn Jóhannssson,
fyrrverandi starfsmaður
Sveins Egilssonar. Guðmund-
ur er framkvæmdarstjóri
Italska verslunarfélagsins.
1 stjórn fyrirtækisins eru:
Jón R. Ragnarsson, Sævar
Pétursson, Kristján Gunnars-
son, Jón Sigurðsson og Birgir
Þórisson, til vara eru Þórir
Jónsson og Björn Jóhanns-
son.
„Þetta verður ekki stórt
fyrirtæki í byrjun á meðan
við erum aö koma hlutunum
á hreint. Fíatumboðið var
með öðrum samkeppnisbíl-
um hjá Sveini Egilssyni sem
var ekki nógu gott. Það er
miklu mun betra að reka um-
boð sem þetta eitt og sér.
Brýnasta verkefnið nú er að
koma þjónustunni og vara-
hlutunum í rétt horf,“ sagði
Þórir.
Italska verslunarfélagið var
að fá sína fyrstu bílasendingu
nú en fyrirtækiö mun fara á
fullan skrið nú í október.
,,Ég hef trú á því að þetta fyr-
irtæki eigi eftir að dafna enda
er þetta góður hópur sem
stendur þarna að baki. Það er
að koma nýr Fíat fjölskyldu-
bíll á markaðinn, Fíat Tempra
’91 árgerð."
Stofnhlutafé fyrirtækisins
eru 29 milljónir króna. En
þess má geta að fyrirtækið
má ekki bera nafnið Fíat-um-
boðið hér á landi. Það má ein-
ungins bera það nafn hjá höf-
uðstöðvum Fíat.
Hœkkun á álagi til sjómanna hjá ÚA:
Hækkar fiskverð um 16%
Samkomulag það sem
Útgerðarfélag Akureyr-
inga og sjómenn hafa gert
um að hækka álag á
heimalöndun úr 12% í
30% hækkar fiskverð um
16%. „Við erum með
seinni skipunum,” segir
Gunnar Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA um
hækkunina, og segir hana
hafa komið til vegna sí-
hækkandi verðs á mörk-
uðum.
Gunnar segir að alls kyns
verð hafi verið í gangi hjá
öðrum útgerðarfyrirtækjum,
og að hámarkaðsverð sem
komi til af því að framboð sé
skammtað framkalli skekkju
á verði til þeirra sem landi
heima. „Minnihlutinn nýtur
markaðsverðsins, og þá er
spurningum það hversu lang-
ur tími líður þar til að verður
klórað í bakkann. Ég held að
varla sé hægt að kalla þetta
miklu hærra en það," segir
Gunnar.
Ýmsir vilja halda því fram
að með þessu sé verið að
brjóta þjóðarsáttina. Eins og
kunnugt er hefur ríkisstjórn-
in sett bráðabirgðalög um
kjarasamninga sem kveða á
um að ekki skuli farið út fyrir
ramma þjóðarsáttar í kjara-
samningum.
Gunnar vísar því á bug að
verið sé að brjóta þjóðarsátt
með álagshækkuninni.
„Hvað má þá segja um metin
sem slegin eru á fiskmörkuð-
unum þessa dagana?" spurði
Gunnar Ragnarsson í samtali
við Alþýðublaðið í gær.
Oddviti Kópavogskratanna:
Látum ekki yfír
okkurganga
„Ég er afar óhress með
það hvernig rætt er og
ritað um væntanleg
framboðsmál okkar hér
í Reykjaneskjördæmi,
síðast í dag í Pressunni. I
blaðinu er ekki minnst
einu orði á þingmann
flokksins, Rannveigu
Guðmundsdóttur, rétt
eins og hún skipti engu
máli,“ sagði Guðmundur
Oddsson, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins í Kópa-
vogi í gær.
Guðmundur sagðist ekki
vilja efna til neinna vær-
inga milli byggðalaganna í
Reykjaneskjördæmi, og
hann sagðist ekki hafa neitt
á móti þeim Guðmundi
Árna eða Jóni Sigurðssyni,
nema síður væri.
„Málið er bara það að við
Kópavogsmenn látum ekki
yfir okkur ganga í þessu
máli og styðjum okkar
góða fulltrúa sem nú situr á
Alþingi. Menn mega ekki
tala eins og þeir gera, í
þessum efnum *eru engir
kóngar eða keisarar, sem
sjálfskipaðir verða í efstu
sæti listans. Við munum því
ekki una því að látið sé eins
og Rannveig sé grafin og
gleymd," sagði Guðmund-
ur.
Rannveig Guðmundsdóttir,
alþingismaður — Kópa-
vogsbúar vilja standa vörö
um þingmann sinn.