Alþýðublaðið - 24.08.1990, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 24.08.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 24. ágúst 1990 7 NÆSTAFTASTA SÍÐAN Garbo fjórum mánuðum eftir andlátiö: Stöðugt i fréttunum GRETA GARBO — rætt er um falsaða minningabók vestanhafs, — legstað í Stokkhólmi í heimalandi hennar. GRETA GARBO hefur nú hvílt í gröf sinni í nokkra mánuði. Engu að síður linnir ekki látun- um í fjölmiðlum, Greta er frétta- efni út fyrir gröf og dauða. Dánarbú Garbo heitinnar er kom- ið í mál við hina frægu bókaútgáfu Simon & Schuster og vill stöðva út- gáfu á ævisögu Garbo eftir Antoni Gronowicz. Bókaútgáfan heldur því fram að þarna sé á ferðinni bók sem byggð sé á viðtölum við leikkonuna — erf- ingjarnir telja hins vegar að bókin sé falsað verk. Gronowicz sem dó 1985 hélt því fram að Garbo sjálf hefði gefið leyfi til að gefa bókina út, með því skilyrði að bókin kæmi ekki fyrr en að henni látinni. Hand- ritið hefur því legið í bankahólfi frá árinu 1976. Simon & Schuster auglýsa bókina stíft og segja hana innihalda opin- skáar lýsingar Gretu sjálfrar á DAGFINNUR Álið er málið ,,Ekki er álið sopið þó að í aus- una sé komið" segir gamalt mál- tæki. Því hafa þeir í Hafnarfirði fengið að kynnast. Þeir töldu sig nefnilega lengi hafa verið með álið í ausunni. Þá hefur sést til Ak- ureyringa og Reyðfirðinga með ausur á lofti í von um áldropa. Að sjálfsögðu nota þeir álausur í takt við nýja tima, álöld á íslandi. Ég sem er maður sátta og málamiðl- ana finnst að þeir sem nú eru að slást um álver verði að mætast á miðri leið. Mér reiknast það til að sá staður muni vera við Fjórðungs- vatn á Sprengisandi. Staðhættir þar eru á allan hátt þeir ákjósan- legustu fyrir áliðjuver. Fyrir því staðarvali eru ótal rök en ég mun aðeins rekja þau helstu. í fyrsta lagi eru mjög góð hafnar- skilyrði við Fjórðungsvatn og öldurót þar aldrei meira en góðu hófi gegnir um góða höfn. í öðru lagi liggur það mjög miðsvæðis á orkuveitusvæði landsins, við ræt- ur raforkunnar, og sparar það ómælt í minni orkuflutningi. í þriðja lagi er engin íbúabyggð í hættu á þessu svæði vegna meng- unar og því er þetta kjörsvæði út frá mengunarsjónarmiðum. í fjórða lagi uppfyllti það allar kröf- ur um byggðastefnu því við Fjórð- ungsvatn býr enginn og því á svæði sem er brýnast að koma í byggð að öðrum svæðum ólöstuð- um. I fimmta lagi er Fjórðungs- vatn á mótum austurs og vestur, norðurs og suðurs eins og nafnið ber með sér. Allir fjórðungar geta því gert tilkall til staöarins nema fimmti fjörðungur íslands, Vest- firðir, en þeir eru nú ekki taldir með. Þegar kostir Fjórðungsvatns eru bornir saman við þá staði sem mest hafa verið í umræðunni koma yfirburðir þess glögglega í Ijós. Það uppfyllir þá kröfu forsæt- isráðherra um að vera úti á landi nema menn vilji meina að það sé inni á landi. Úti á landi er sam- kvæmt skilgreiningu forsætisráð- herra frá Hafnarfirði suður og austur, hringinn í kringum landið og niður að Elliðaám. Það hlýtur því að vera úti á landi. Nýfram- komin rök fyrir staðsetningu ál- versins vega létt í samanburði við Fjórðungsvatn, þ.e. að hátt í 100 blómlegustu bújarðir í Eyjarfirði legðust í eyði með tilkomu álvers en það mundi leysa til frambúðar offramleiðsluvanda landbúnaðar- ins ef af yrði. Þótt þau rök vegi þungt duga þau engan veginn á móti ótvíræðum landkostum Fjórðungsvatnsins. í Reyðarfirði færu hins vegar aðeins eitt eða tvö kot í eyði með tilkomu álvers og er því ekki inni í myndinni lengur. * Eg skora því á stjórnmálamenn og almenning að hætta að karpa um staðsetningu þessa álvers og sameinast um álver á Sprengi- sandi. Með góðum vilja gætu þá allir þingmenn sagst hafa náð í ál- ver í sitt kjördæmi (Vestfirðingar að sjálfsögðu ekki taldir með) ijema þeir í Reykjavík og Reykja- nesi en þeir eru ekki marktækir enda hafa þeir flestir gleymt upp- runa sínum í alvörukjördæmun- Stokkhólmi. Minnir þetta óneitan- lega á flutning jarðneskra leifa þjóð- skáldsins okkar, Jónasar Hallgríms- sonar, til íslands á sínum tíma. Mats Hulth, sósíaldemókrati, borgarstjóri fjármála í Stokkhólmi, segir Gretu vera frægasta Stokk- hólmarann og að borgarbúar séu al- mennt stoltir yfir leikkonunni. „Ég tel það því sjálfsagt að borgin finni leikkonunni viðeigandi grafreit í sinni heimaborg," segir Hulth. Hins vegar er á það bent að það er nán- ustu ættingja að ákveða um legstað- inn, við þá hafi ekki verið rætt um málið. „mönnunum í lífi hennar“, meðal annars kvikmyndaleikstjóranum Mauritz Stiller og hljómsveitarstjór- anum Leopold Stokowski. Gronowicz hélt því fram að hann hefði verið kunningi Gretu Garbo í tuttugu ár, — þessu er hafnað í rétt- inum af dánarbúinu, bróðurdóttur- inni, Gray Reisfeld. Greta hafi ein- mitt neitað því i marggang að hafa yfirleitt nokkru sinni hitt Gronowicz að máli. Ferill þessa rithöfundar er annars dálítið undarlegur. Árið 1984 gaf hann út ævisögu Jóhann- esar Páls páfa. Þeirri bók var kippt út úr bókabúðum þegar Vatikanið lýsti því yfir að bókin væri fölsuð. Þetta eru Gretu-fréttirnar vestan- hafs. I heimalandi stjörnunnar, Sví- þjóð, er minna hugsað um falska minningabók, en þeim mun meira um nýjan legstað hennar, sem mönnum finnst að eigi að vera í Óperuæfingar á götum úti Hljómsveit San Frans- isco-óperunnar hefur undan- farna daga mátt æfa sín verk á götum úti — við miklar vin- sæidir vegfarenda, ferðafólks og skrifstofufólks í matarhlé- um, segir Reuter í gær. San Fransisco-óperan úthýsti bók- staflega 69 manna hljómsveit sinni vegna samningaþjarks. Hélt hljómsveitin þá út á göt- urnar til að æfa fyrir vetrar- dagskrána sem senn mun hefj- ast. Samningar hljómsveitarinnar runnu út á sunnudaginn var — og var þá boðin kauphækkun um 4% — hljómsveitin krafðist 12% hækkunar. Nú stefnir í að starfsár óperunnar hefjist ekki á tilsettum tíma að sögn óperustjórans. En hvað hafa hljómsveitarmenn í laun í Bandarikjunum? Jú, Lotfi Mansouri óperustjóri sagði að tónlistarmenn hefðu 40 þúsund dali í grunnlaun fyrir 23 vikna timabil. Það jafngildir meira en 2 milljónum íslenskra króna. Líklega þætti það rausnarlega borgað hér á landi. Nicu a sjúkrahús með skorpu- lifur Nicu, sonur einræðishjón- anna Elenu og Nikolaes Ceaus- escu, hefur fengið leyfi til að fara úr fangelsinu þar sem hann hefur setið allt þetta ár. Var honum leyft í gær að fara á sjúkrahús þar sem hann gengst undir nauðsynlega að- gerð. Nicu, airæmdur glaum- gosi meðan ættmenni hans héldu um stjórntaumana, þjá- ist af skorpulifur og bólgu í vé- linda. Nicu er ákærður fyrir kerfis- bundna útrýmingu fólks i bænum Sibiu, en þar voru 87 drepnir og 300 særðust í bardögum hersins og Securitate, rúmensku leyni- þjónustunnar. KROSSGÁTAN DAGSKRÁIN Sjónvarpið 17.50 Fjörkálfar 18.20 Hraðboðar (1) 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Popp- korn 19.20 Leyniskjöl Piglets 19.50 Dick Tracy 20.00 Fréttir og veður 20.30 Eddie Skoller 21.35 Alamut- fundurinn (The Alamut Ambush) 23.10 Gríma rauða dauðans (Masque of the Red Death) 00.40 Út- varpsfréttir í dagskrárlok. Slöð 2 16.45 Nágrannar 17.30 Emilía 17.35 Jakari 17.40 Zorro 18.05 Henderson krakkarnir 18.30 Bylmingur 19.19 19.1920.30 Ferðast um tímann 21.20 Vík milli vina (Continental Divide) 23.00 Stórslys í skotstöð 7 (Disaster at Silo 7) 00.35 Síðasti tangó í París (Last Tango in Paris) 02.40 Dagskrár- lok. Rós 1 06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir 07.03 í morgunsárið 09.00 Fréttir 09.03 Litli barnatíminn:09.20 Morg- unleikfimi 09.30 Innlit 10.00 Fréttir 10.03 Þjónustu- og neytendahornið 10.10 Veðurfregnir 10.30 Á ferð 11.00 Fréttir 11.03 Samhljómur 11.53 Á dagskrá 12.00 Fréttayfirlit 12.01 Úr fuglabókinni 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Dánarfregnir. Auglýsingar 13.00 i dagsins önn 13.30 Miðdegissagan: Manillareipið 14.00 Fréttir 14.03 Ljúflingslög 15.00 Fréttir 15.03 í fréttum var þetta helst 16.00 Fréttir 16.03 Að utan 16.10 Dagbókin 16.15 Veðurfregnir 16.20 Barnaútvarpið 17.00 Fréttir 17.03 Tónlist eftir Frédéric Chopin 18.00 Fréttir 18.03 Sumaraftann 18.30 Tón- list. Auglýsingar. Dánarfregnir 18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Auglýsingar 19.32 Kviksjá 20.00Gamlar glæður 20.40 Til sjávar og sveita 21.30 Sumarsag- an: A ódáinsakri 22.00 Fréttir 22.07 Að utan 22.15 Veöurfregnir. Orð kvöldsins 22.25 Úr fuglabókinni 22.30 Danslög 23.00 Kvöldgestir 24.00 Fréttir 00.10 Samhljómur 01.00 Veðurfregnir 01.10 Naeturútvarp. Rós 2 07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg- unfréttir 09.03 Morgunsyrpa 11.03 Sólarsumar 12.00 Fréttayfirlit. Aug- lýsingar 12.20 Hádegisfréttir 14.10 Brot úr degi 16.03 Dagskrá 18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Söðlað um 20.30 Gullskífan 21.00 Á djasstónleikum 22.07 Nætursól 01.00 Næturútvarp. Bylgjon 07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Fréttir 09.10 Páll Þorsteinsson 11.00 Valdís Gunnarsdóttir 12.00 Hádegisfréttir 14.00 Snorri Sturluson 16.00 (þrótta- fréttir 17.00 Síðdegisfréttir 17.15 Reykjavík siðdegis 18.30 Kvöld- stemmning í Reykjavík 22.00 Á næt- urvaktinni 03.00 Freymóður T. Sig- urðsson. Stjarnan 07.00 Dýragarðurinn 10.00 Siggi Hlöðvers og brjálaða Bina 14.00 Kristófer Helgason og sögurnar 18.00 Darri Óla og linsubaunin 21.00 Arnar Albertsson á útopnu 03.00 Jó- hannes B. Skúlason. Aðalstöðin 07.00 í morgunkaffi 08.30 Föstudag- ur til fjár 09.00 Á nýjum degi 12.00 Hádegisspjall 13.00 Með bros á vör 16.00 I dag, í kvöld 19.00 Við kvöld- verðarborðið 20.00 Undir feldi 22.00 Kertaljós og kaviar 02.00 Næturtón- ar. □ 1 2 3 □ 4 5 6 ■ 7 8 9 10 ■ 11 ■ Í2~ 13 □ Lárétt: 1 brúnin, 5 lamb, 6 eira, 7 þyngd, 8 glöggur, 10 mynt, 11 munda, 12 reimar, 13 lofar. Lóðrétt: 1. stakar, 2 ílát, 3 um- dæmisstafir, 4 blökkumenn, 5 brúsar, 7 hnífar, 9 fisk, 12 hljóm. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 slöpp, 5 stör, 6 lag, 7 el, 8 auglit, 10 rr, 11 æða, 12 óður, 13 aular. Lóðrétt: 1 staur, 2 lögg, 3 ör, 4 pilt- ar, 5 slarka, 7 eiður, 9 læða, 12 ól.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.