Alþýðublaðið - 24.08.1990, Síða 4
4
VIDHORF
Föstudagur 24. ágúst 1990
MMUBLM
Ármúli 36 Sími 681866
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið
FLYST FISKVINNSLAN
ÚR LANDI
Evrópumarkaöurinn er mikilvægasti viðskiptamarkaöur íslend-
inga. Hátt gengi á helstu gjaldmiölum Evrópuríkja aö undanförnu
hefur gefiö byr undir vængi. Breskt pund er skráö 10,8% hærra
í dag en þaö var viö áramót, en í Bandaríkjunum hefur dalurinn
lækkað um 7,6% á sama tímabili. Óvenjulegt fiskverö þessa dag-
ana á mörkuðum í Evrópu gefur af sér skammtímaarð. Þessar
breytingar hafa verið okkur í hag um tíma en eru ekki til aö reiða
sig á til frambúðar.
Xímabundnum sveiflum á mörkuðum getum viö snúiö okkur í
hag. Meö því aö takmarka framboð á fiski erlendis hefur okkur
einnig tekist aö nýta okkur hverfula stööu. En viö eigum viö mikil
lönd og stór aö glíma, sem eru Evrópubandalagsríkin. Meö stöö-
ugt meiri samvinnu ríkja Evrópu er viö búiö að smáríki sem
standa utan við verði æ afskiptari.
INIú hefur Evrópubandalagið ákveðið að verja sem svarar 153
milljörðum íslenskra króna í endurnýjun fiskvinnslu og fiskmark-
aöa í bandalagsríkjunum. Upphæöin á að renna á næstu þremur
árum til fyrirtækja í einkaeign eöa í opinberri eigu. Bandalagið
veitir styrki fyrir allt að helmingi þess sem fjárfesting kostar í við-
komandi fyrirtæki. Meö þessu móti hyggjast ríki EB gjörbreyta
vinnslu og færa til nýrra hátta markaðskerfi sín.
Þessi breyting á markaðssvæðum okkar í Evrópu mun gjör-
breyta samkepppnisstööu fiskvinnslufyrirtækja á meginlandinu.
Hætt er við aö viö munum fljótlega finna fyrir því og þaö mun
koma okkur í koll. íslendingar hafa sett þá kröfu fram í viðræðum
við Evrópubandalagið aö viðunandi lausn fáist á fiskverösmál-
um. Þaö þýðir meðal annars aö viö viljum komast inn á markað-
inn meö allan fisk tollfrjálsan. Hér hefur fiskvinnsla átt í vök aö
verjast og ekki notið opinberra styrkja í neinni líkingu viö það
sem gerist í Evrópubandalaginu. Siglingar meö ferskan fisk á er-
lenda markaöi hafa aukist. Nú eru ríkin sem kaupa mest af okkur
aö endurskipulegga fiskvinnslukerfið og því er ekki aö furða þó
aö spurt sé hvort hætta sé á aö fiskverkun færist smám saman
úr landi. Núverandi kvótakerfi tekur ekki á vandanum sem viö
blasir.
Nebúkadnessar
eða Belsassar?
— Um Saddam Hussein —
I grein sem ég skrifaði um Rush-
iemálið fyrr á þessu ári gaf ég í
skyn að Vesturlandabúar ættu
ekki von á neinu góðu frá löndum
íslams. I raun og veru hefur ríkt
kalt stríð milli krossins og hálf-
mánans í tuttugu ár.
Nebúkadnessar
Nú er Saddam Hussein flest ann-
að en heittrúaöur múslim. Og víst
er um að bandamenn Bandaríkj-
anna á þessum slóðum eru snöggt-
um meiri trúmenn en Saddam. En
mér er til efs að ráðamenn Saúdí-
Arabíu og Persaflóarikjanna séu
Vesturlöndum vinveittir í hjarta
sínu, þeir halla sér að „vantrúar-
hundunum" af hagkvæmnis-
ástæðum. Og Saddam er sjálfur
fulltrúí andvestrænnar þjóðernis-
hyggju, skyldri þeirri sem Nasser
boðaði. Því liggur Saddam áherslu
á meintan skyldleika sinn við Ne-
búkadnessar annan, konung í Ba-
býlon, sem endurreisti Babýlons-
veldið eftir margra alda niðurlæg-
ingu. Og ekki spillir fyrir að Ne-
búkadnessar vann Jerúsalem árið
587 f.Kr. og herleiddi gyðinga,
sem frægt er orðið.
Ekki þarf mikið hugarflug til að
sjá skyldleika milli þeirrar herleið-
ingar og meðferðar Saddams á út-
lendingum í Irak og Kúvæt. Þeir
mega sitja við vötnin ströng og
syrgja sína Síon, hvort heldur hún
heitir New York ellegar Reykjavík.
En tæpast verður innrás íraka í
Kúvæt skýrð með sagnfræðidellu
einræðisherrans. Saddam er eng-
inn skýjaglópur, heldur ákaflega
útspekúleraður fantur. Eftir styrj-
öldina við Iran var Irak skuldum
vafið og heisti lánardrottinn þess
var drottinn Kúvæta, emírinn. Og
til þess að gera illt verra fundu Kú-
vætar upp á þeim ósóma að gera
skuldir Iraka heyrumkunnar og
þar með stórskaða lánstraust
þeirra á alþjóðlegum lánamörkuð-
um. í ofanálag þótti Saddam Kú-
vætar linir í olíuverðkröfum og
bar þá þeim sökum að þeir fram-
leiddu meira af olíu en þeim bar
samkvæmt kvótakerfi O.P.E.C.
Saddam hefur löngum skilið að
sókn er besta vörnin og ákvað því
að gera einfaldlega út af við þenn-
an lánardrottinn sinn og hirða eig-
ur hans í leiðinni. Sagt er að her-
nám Iraka á Kúvæt sé mesta rán
sögunnar og Saddam því nefndur
„þjófurinn frá Bagdad". Ekki þar
fyrir að farið hefur fé betra en
emírinn af Kúvæt og allt hans
hyski. Ein af ástæðunum fyrir vin-
sældum Saddams meðal arabísks
almennings er sú staðreynd að Kú-
væt var í reynd eins konar „apart-
heidland" þar sem innfæddir lifðu
í vellystingum praktuglega en rétt-
laus erlendur tötralýður mátti
þræla myrkranna á milli. En þess-
ar vinsældir eiga sér líka rætur í
hatri margra araba á Vesturlönd-
um. Og líklega hefur Saddam sett
heimsmet í vanþakklæti er hann
braut Kúvæt undir sig því Kúvætar
áttu stóran þátt í að forða honum
frá ósigri í stríðinu við írana með
peningagjöfum og lánum.
Þessi maður á ekki í sér snefil af
drengskap eins og dæmin sanna.
lnnrás hans i íran var svona
álíka drengileg og það að sparka í
liggjandi mann. Andúð vestrænna
manna á kierkunum í Iran gerði
að verkum að margir gleymdu því
hver hóf stríðið milli Irana og
íraka. Og Saddam sýndi andlegt
ásigkomulag sitt í verki er hann lét
murka lífið úr konum og börnum
með eiturgasi. Grimmd hans er
slík að hann minnir einna helst á
Assýríukonunga en þeir létu sér
ekki nægja að herleiða sigraðar
þjóðir, heldur útrýmdu þeim. Ein-
hvern tímann varð ráðherragreyi í
stjórn Saddams það á að gagnrýna
alvaldinn á ríkisstjórnarfundi.
Sagt er að Saddam hafi beðið
hann að koma með sér afsíðis og
þar einfaldlega réttað hann með
byssuskoti. Assúrbanípal Assýríu-
kóngur hefði ekki getað gert bet-
ur! Reyndar hóf Saddam pólitísk-
an feril sinn sem flugumaður en
hann reyndi ásamt fleirum að
koma einræðisherranum Abdel
Karim fyrir kattarnef. Tilræðið
mistókst og komst Saddam til
Kaíró eftir ævintýralegan flótta
gegnum auðnina.
Saddam tók í arf eftir Abdel Kar-
im eitthvað sem kallast arabískur
sósíalismi og virðist skyldur ráð-
herrasósíalisma Alþýðubanda-
lagsins. Einkaframtak er leyft að
vissu marki en ríkið er með nefið
niðri í hvers manns koppi. Nær má
geta aö efnahagskerfi þetta auð-
veldar Saddam að stjórna lýðnum
sem reyndar virðist auðteymdur
eins og almenningur í múslímsk-
um löndum gjarnan er. Alþýða
manna rís upp í Austur-Evrópu, S-
Afríku og Líberíu en synir og dæt-
ur íslams halda að sér höndum.
Belsassar___________________
Eins og áður var minnst á gumar
Saddam mjög af meintum skyld-
leika sínum við Nebúkadnessar
annan sem hann segir forföður
sinn. En Saddam mætti minnast
þess að ættfræðin er fallvölt vís-
indi. Vel má vera að ekki sé dropi
af blóði herkonungsins mikla í æð-
um Saddams en ekki er hægt að
útiloka að slátrarinn frá Bagdad sé
kominn í beinan karllegg frá þeim
ógæfusama Belsassar, síðasta kon-
ungi Babýlon. Það var á vegg í
höllu Belsassars að orðin dular-
fullu „mene, rnene tekel uparisin"
birtust en þau þýddi Daníel spá-
maður eitthvað á þá leið að ,,þú
(konungur) ert veginn og léttvæg-
ur fundinn, ríki þitt mun falla Pers-
um í skaut". Skömmu síðar bund-
ust Persar, Medar og fleiri andskot-
ar Babýloníu samtökum, um-
kringdu borgina og unnu. Ekki er
laust við að manni finnist ýmislegt
líkt með liðsafnaðinum við Persa-
flóa og þeim sem Persar stóðu fyr-
ir forðum. Og svo verður manni
hugsað til spásagnar Jóhannesar
um ragnarökin við Armageddon
sem einmitt er á þessum slóðum.
En áður en lesendur mínir fara að
halda að ég sé kominn með trúar-
dellu skal tekið fram að ég hef
enga trú á heimsslitum í þessari
umferð. Til allrar guðsiukku fyrir
heimsbyggðina eru Kanar og
Rússar vinir, ef þessi uppákoma
hefði átt sér stað fyrir 6—7 árum
hefði heimsfriðurinn verið í
hættu.
Hversu útspekúieraður sem
Saddam kann að vera virðist hann
ekki skilja að lok kaldastríðsins
þýða að athafnamöguleikum fúl-
menna af hans gerð hefur fækkað
mjög. Áður var alltaf hægt að spila
á togstreitu risaveldanna.
Lokaorð
Aðeins tíminn getur skorið úr
um hvort Saddam er nýr Nebúkad-
nessar eða Belsassar. Við skulum
að minnsta kosti vona að Kúvæt-
vandinn leysist með friðsamlegum
hætti. En Saddam mætti minnast
spádómsorða Biblíunnar: „Svo
voveiflega mun Babýlon kollvarp-
ast, borgin mikla, að engar menjar
skulu eftir verða."
Stefán Snævarr
RADDIR
Teluröu samninga flugumferöarstjóra sprengja þjóöarsáttina?
Sæmundur Björnsson, 79 ára,
ellilífeyrirþegi — gerir ekki neitt
nema raða saman plúsluspili:
„Ég hef ekki trú á því að þjóðar-
sáttin haldist með þessu upp-
hlaupi flugumferðarstjóra. Þeir
eiga að fylgja eftir þjóðarsáttinni.
Annars hef ég ekki mjög mikið
fylgst með þessum málum en þó
hef ég lesið aðeins meira en bara
fyrirsagnir blaðanna."
Bergrún Sigurðardóttir, 40 ára,
atvinnurekandi:
„Nei, ég er ekki hrædd um að
flugumferðarstjórar sprengi þjóð-
arsáttina. Ég er þó ekki aö segja að
það geti ekki gerst þegar komin er
af stað hreyfing. Ég held samt að
það gerist ekki vegna þess að
þjóðarsáttin er það sterk."
Trausti Tómasson, 42 ára, að-
stoðarstöðvarstjóri hjá Flugleið-
um:
„Ég hef ekki fylgst mikið með
þessu máli. En ég hef trú á þjóðar-
sáttinni, að hún sé að stefna í rétta
átt. Við erum að gera eitthvað
annað en við höfum verið að gera
undanfarinn áratug. Ég vona
a.m.k. að allt verði betra en áður."
Anna Brandsdóttir, 33 ára, starfar
á elliheimili:
„Ég held að samningar flugum-
ferðarstjóranna sprengi alveg ör-
ugglega þjóðarsáttina. Það þarf
ekki mikið til að þeir verði
sprengdir."
Páll Halldórsson, 40 ára, eðlis-
fræðingur og formaður BHMR:
„Flugumferðarstjórar hafa bara
notað sinn samningsrétt. Ef þjóð-
arsáttin þolir ekki frjálsan samn-
ingsrétt þá má hún fara."