Alþýðublaðið - 19.09.1990, Side 6
6
Miðvikudagur 19. sept. 1990
Sívinsælar Skeiðaréttír
Réttum líkur nú senn og tekur þá við sláturtíð og
svo eftirleitir. Löngum hefur það verið tilhlökkunar-
efni á íslandi að sjá lagðprútt og dragvænt fjall-
safnið nálgast byggð og síðan að draga björgina í
dilka. Fé hefur nú á nokkrum árum fækkað um
helming á landinu, en það kemur ekki í veg fyrir það
að Islendingar fjölmenna í réttirnar, taka lagið og
hressa upp á gömul kynni. Þá finnst líka mörgum
hinn sterki fjárstofn landsmanna viss líftrygging, á
tímum , þegar menn á borð við Saddam Hussein
vaða uppi og hóta heimsbyggðinni illu. Á föstudag-
inn var réttað í Skeiðarétt og sótti þangað múgur
og margmenni að vanda. Komu menn vítt að og
tóku óspart þátt í réttarstörfunum og söngnum á
eftir. Mátti sjá þarna allar hetjur víkingaþjóðarinnar,
allt frá skipstjóra úr Grindavík með dótturina á herð-
unum að stjórna fjöldasöng til gildra bænda úr Ár-
nesþingi. Á eftir beið svo þessi dásamlega kjötsúpa
á bæjunum og rjómapönnukökur. Ljósm.: G.T.K.
RAÐAUGLÝSINGAR
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RfKISINL
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í reis-
ingu á 113 staurastæðum í 66 kV háspennulínu milli
Valla við Hveragerði og Þorlákshafnar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Rafmagns-
veitnanna, Gagnheiði 40, 800 Selfossi, Dufþaks-
braut 12, 860 Hvolsvöllur og Laugavegi 118, 105
Reykjavík frá og með fimmtudeginum 20. septem-
ber 1990 og kostar kr. 700 hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins í Reykjavík fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn 17.
október 1990, og verða þau þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda, sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK-
90006 66 kV Þorlákshafnarlína. Staurareising".
Rafmagnsveigur ríkisins,
Laugavegi 118,
106 Reykajvík.
RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS
LAUGAVEGI 13
101 REYKJAVIK
SfíEFSIMI Nfí. 29814
SIMI 21320
Auglýsing um forverkefni
Rannsóknaráð ríkisins hefur ákveðið að veita styrki
til forverkefna er miði að því að kanna forsendur
nýrra áhugaverðra rannsókna- & þróunarverkefna.
Um slíka styrki geta sótt fyrirtæki, stofnanir og ein-
staklingar. Við mat á umsóknum verður sérstaklega
litið til röksemdafærslu um tæknilegt og hagrænt
mikilvægi verkefnisins og hugmynda um leiðir til að
koma niðurstöðum verkefnis í framkvæmd, ef það
skilar jákvæðum árangri.
Markmiðið með stuðningi við forverkefni er að kort-
leggja betur tæknileg og þróunarleg vandamál og
markaðsþörf, svo og forsendur samstarfs, áður en
lagt er í umfangsmikil r & þ verkefni, sem hugsan-
lega verða styrkt úr Rannsóknasjóði.
Gert er ráð fyrir að upphæð stuðnings við forverk-
efni geti numið allt að 500.000,- kr.
Umsóknarfrestur er til 15. október nk.
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins á Vesturlandi
KJÖRDÆMISÞING
Kjördæmisþing (aðalfundur Kjördæmisráðs) Al-
þýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi fer fram á
hótelinu í Borgarnesi laugardaginn 22. september
og hefst klukkan 10.00.
Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar
3. Kosning stjórnar og varastjórnar
4. Nefndakjör
5. Kosning fulltrúa í flokksstjórn
6. Önnur mál
Á fundinum mun Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra gera grein fyrir fyrirhuguðum breyt-
ingum á skipulagi Húsnæðisstofnunar ríkisins og
Eiöur Guðnason alþingismaður mun fjalla um
stjórnmálaviðhorfið.
Gert er ráð fyrir að fundinum Ijúki um kl. 18.00.
Stjórn Kjördæmisráðs.
Aðalfundur FUJ í Hafnarfirði
verður haldinn föstudaginn 21. september í Al-
þýðuhúsinu í Hafnarfirði kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hvetjum alla hafnfirska ungkrata til að mæta.
Búist er við óvæntri uppákomu eftir fundinn.
Stjórnin.
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins
Norðurlandskjördæmi Eystra
Verður haldið á Akureyri laugardaginn 29. septem-
ber nk. í Alþýðuhúsinu og hefst kl. 10.00 fyrir há-
degi.
Stjórnin.
HAMRABORG
FÉLAGSMIÐSTÖÐJAFNAÐARMANNA
HAMRABORG 14A KÓPAVOGI
Alþýðuflokkskonur
Fundur verður haldinn laugardaginn 22. september
nk. kl. 12.00 í félagsmiðstöð Al þýðuf lokksins í Kópa-
vogi Hamraborg.
Fundarefni:
Flokksþingið 1990.
Samband Alþýðuflokkskvenna.
\> & Q
Félagsmiðstöð jafnaðarmanna
Hverfisgötu 8—10
Síppi 15020
A föstudagskvöldið
21. sept. verður Val-
gerður Halldórsdóttir,
nýkjörin formaður
Kvenfélagsins í
Reykjavík, gestgjafi í
Rósinni.
Munið að Rósin er
opin frá kl. 20.00—
01.00 á föstudags- og
laugardagskvöldum.
Komið og njótið
góðrar stundar í
Rósinni.
Allir jafnaðarmenn
velkomnir.
Aktu eins oa þú vilt
aðaoriraki!
ÖKUM EINS OG MENNI
IUMFHRÐAR
RÁÐ