Alþýðublaðið - 19.09.1990, Qupperneq 8
• • • • • «•• • • ••••••••• • • • •
• • • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • •• • •••• • • • •
NIKOSIU: Leiðtogi samtaka róttækra Palestínumanna
segir að skæruliðar sem styðji stjórnvöld í Baghdad séu
reiðubúnir að ráðast gegn Bandaríkjamönnum og Evrópu-
búum geri Bandaríkin árás á írak. ,,Við erum tilbúnir til
árásar á Bandaríkjamenn og Vesturlandabúa um leið og
Bandaríkin gera árás," sagði George Habash, leiðtogi þjóð-
ernissinnaðra Palestínumanna sem berjast fyrir sjálfstæði
Palestínu.
WASHINGTON: Bandaríkin ætla að loka eða draga úr
starfsemi á 150 herstöðvum sínum víðs vegar um heiminn,
þar af 108 herstöðvum sem staðsettar eru í V-Þýskalandi,
að sögn Dicks Cheney, varnamálaráðherra Bandaríkj-
anna.
KHAFJI , (Saúdí-Arabíu): Landmæraverðir Saúdí-Arabíu
hafa hert eftirlit á landamærunum við Kúvæt og nota nú
hunda til að leita uppi vopn, sprengiefni eða eiturlyf, sem
hugsanlegt sé að íraskir njósnarar smygli yfir landamærin.
AZRAQ TWO CAMP, (Jórdaníu): Yfirmaður hjálpar-
sveita Sameinuðu þjóðanna sem sendar voru til hjálpar As-
íumönnum sem flúið hafa Kúvæt, segist vonast til að hægt
verði að koma upp loftbrú til að flytja þá á brott. Sadruddin
Aga Khan prins hefur fengið þau skilaboð frá Baghdad að
hann sé ekki velkominn þangað. Hann segist þó vonast til
að komast þangað.
KAIRO: Verkamannasamtök Egyptalands saka íraka um
að neyða egypska verkamenn í íraska herinn. ,,Við höfum
ákveðið að leggja fram kvörtun til Alþjóða verkamanna-
sambandsins vegna þessa máls,“ sagði embættismaður
Verkamannasambands Egyptalands.
WASHINGTON: Bandaríkin ætla að reyna að hindra að-
gang íraka að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabank-
anum í vikunni og ætla einnig að fara fram á fjárhagsað-
stoð til handa þeim vanþróuðu ríkjum sem standa gegn Ir-
ak í Persaflóadeilunni.
PARIS: Utanríkis- og varnamálaráðherrar 9 Vestur-Evr-
ópuríkja komu saman í gær til að ræða hertar hernaðarað-
gerðir gegn Irak.
MOSKVU: Utanríkisráðherra Saúdí-Arabíu segir að sov-
éskt herlið sé velkomið til landsins taki Sovétmenn þá
ákvörðun að ganga til liðs við hernaðarbandalag ríkja
gegn írökum.
BRUSSEL: Sovétríkin hafa samþykkt að lána Bandaríkj-
unum stórt skip til að flytja herbúnað til Persaflóa, að sögn
embættismanna NATO. Þetta þykir brjóta blað í sögu sam-
skipta stórveldanna.
AMSTERDAM: Yfirvöld í Hollandi hvöttu til að eftirlit
yrði hert í loft með viðskiptabanninu gegn írak og ætla aö
senda F-16 orrustuvélar til Tyrklands í þeim tilgangi.
L0ND0N: Verð á olíu er nú hærra en verið hefur í 9 ár
vegna innlimunar Kúvæts í írak.
T0KI0: Atlanta-borg í
Bandaríkjunum hefur verið
falið að sjá um framkvæmd
Ólympíuleikanna sem
halda á sumarið 1996.
Helsti keppinautur Atlanta
um hnossið var höfuðborg
Grikklands, Aþena.
JERUSALEM: Fjármálaráðherra ísraels, Yitzhak Mod-
ai, sagði að yfirvöld í Moskvu hefðu fullvissað sig um að
þau muni ekki stöðva flæði sovéskra gyðinga til ísraels
þrátt fyrir andstöðu araba.
FREETOWN Bandarískur erindreki flaug til Líberíu og
sagðist ætla að reyna að fá uppreisnarleiðtogann Charles
Taylor til að samþykkja vopnahlé í landinu.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Glúmur Baldvinsson
Daniel Ortega, leiðtogi Sandínista
VILJUM RÆÐA
VIÐ STJÓRNINA
— en med skilyrðum
„Við viljum ræða við
stjórnina,“ sagði Daniel
Ortega, leiðtogi stjórnar-
andstöðu Sandinista á
blaðamannafundi hér í
Stokkhólmi á laugardag,
„en þá verður ríkisstjórn-
in að breyta um stefnu."
Ortega er gestur á flokks-
þingi jafnaðarmanna hér
og ávarpaði hann þingið.
Óskaði hann þess að tí-
undi áratugurinn yrði ára-
tugur friðar.
„Þegar 21. öldin gengur í
garð verðum við að hafa náð
þeim árangri að réttlæti ríki í
heiminum. Við getum ekki
flokkað lönd í fyrsta og ann-
an gæðaflokk eins og tíðkast
hefur. Stórveldi og smáþjóðir
eiga að njóta sama réttar, —
og á þeim hvíla sömu skyldur.
Ef við náum markmiðinu get-
um við hrósað okkur af friði,
jafnrétti og réttlæti," sagði
Ortega og kvað hann þetta
mikilvægustu áskorun til
allra þjóða á tíunda áratugn-
um. Tækniframförunum og
lýðræðinu yrðu allir að fá að
deila. ,,Við treystum á ykkur,"
sagði Ortega.
Astandið í landi Ortegas er
vægast sagt ömurlegt. Verð-
bólgan í Nígaragúa er 3500%
og hefur tvöfaldast á stuttum
tíma. Ortega segir Sandínista
setja þau skilyrði fyrir við-
ræðum við stjórnina „að hún
láti af þvingunaraðgerðum."
Hann ásakar Bandaríkja-
menn um þvingunaraðgerð-
irnar sem þeir setji sem skil-
yrði fyrir 300 milljóna dollara
styrk. Sandínista kvað hann
reiðubúna að leita lausna á
núverandi kreppu.
„En ríkisstjórnin verður
líka að finna leiðir svo að
komist verði hjá verkföllum
og öðrum aðgerðum.
„í sumar skall á allsherjar-
verkfall að undirlagi Sandín-
ista.
Ríkisstjórnin sem nú situr
leysti stjórn Sandínista af
hólmi að loknum kosningum
Fjármálahneyksli norska
forsœtisráðherrans
Syse hyggst
sitja áfram
Jan Syse, forsætisráð-
herra Noregs og formaður
Ihaldsflokksins, sætir
harðri gagnrýni og kröfur
gerast nú háværari um að
hann segi af sér eftir að
hann viðurkenndi að hafa
brotið hlutafélagalög.
Flestir fjölmiðlar Noregs
segja að Syse njóti ekki leng-
ur trausts til að gegna emb-
ætti forsætisráðherra og
stjórnarandstöðuflokkarnir
gagnrýna hann harðlega og
krefjast tafarlausrar afsagnar
hans. Samstarfsflokkar
Ihaldsflokksins í minnihluta-
stjórninni hafa einnig gagn-
rýnt Syse en vilja þó ekki að
hann fari frá. í leiðara norska
dagblaðsins Nationen, sem
styður Miðjuflokkinn sem á
aðild að ríkisstjórninni, segir,
„Því miður, Syse, þú verður
að fjúka."
Syse hefur verið sakaður
um að veita sér og mági sín-
um lán úr fyrirtæki sínu.
Hann greiddi lánið þremur
mánuðum seinna en þar sem
halli var á rekstrinum og
skuldir umfram eignir var
lánveitingin ólögleg. Syse
hefur ítrekað viðurkennt að
hafa brotiö lög en ætlar ekki
að segja af sér. Hann segist
ætla að láta viðurkennda
endurskoðendur fara yfir
fjármál sín og búist er við að
þeirri rannsókn ljúki í vik-
unni.
Samkvæmt skoðanakönn-
unum undanfarið nýtur Syse
Syse situr sem fastast.
lítilla vinsælda og ágreining-
ur ríkir í samsteypustjórn
hans um mörg veigamikil
málefni, eins og um það
hvort Noregur eigi að sækja
um aðild að Evrópubanda-
laginu.
Stjórnmálafræðingar í Nor-
egi telja að Syse muni komast
hjá því að segja af sér og að
fjaðrafokið vegna málsins
muni hjaðna svo framarlega
sem engar nýjar óþægilegar
staðreyndir verði dregnar
fram í dagsljósið.
Ortega ásamt forsætisráðherra Nikaragúa, Chamorro.
25. apríl í vor. Daniel Ortega
hafði þá stjórnað landinu í
rúman áratug, eða frá 1979.
Fjórtán flokkar eru í ríkis-
stjórninni en flokkur Sandín-
ista er erfiður andstæðingur
með 40% fylgi og langstærsti
stjórnmálaflokkurinn í land-
inu.
Með gengisfellingunum
hefur gjaldmiðillinn orðið sí-
fellt minna virði og er nú einn
milljónasti úr dollar. Ríkis-
stjórnin hefur skorið niður út-
gjöld til heilbrigðis- og
menntamála og aðrar að-
gerðir hafa einnig leitt til al-
menns samdráttar í Iandinu.
„Við teljum nauðsynlegt að
draga saman seglin," viður-
kennir Ortega, „en spurning
er hvernig það er gert. Við
viljum efla lýðræði en kostn-
aður og ágóði af framleiðsl-
unni verður að deilast jafnt.”
Á blaðamannafundinum á
laugardag sagði Ortega það
dæmigert fyrir ástandið í Níg-
aragúa að erlendir sendi-
menn í landinu hefðu mót-
mælt hækkunum á rafmagni.
„Hvað þá með almenning?"
spurði Ortega og ásakaði rík-
isstjórn Nígaragúa um stjórn-
arskrárbrot með því að auka
framkvæmdavaldið.
Ólympíuleikarnir 1996
Atlcmta
hreppti
hnossið
Atlanta-borg í Banda-
ríkjunum var í gær falið að
sjá um framkvæmd Ólym-
píuleikanna sumarið
1996. Niðurstaðan var til-
kynnt eftir atkvæða-
greiðslu í Alþjóða-
ólympíunefndinn, sem
fram fór í Tókýó.
Atlanta bar sigurorð af
Aþenu, höfuðborg Grikk-
lands, í síðustu umferð at-
kvæðagreiðslunnar en kosn-
ingin var endurtekin þar til
ein borg hafði fengið hreinan
meirihluta. Auk Atlanta og
Aþenu bitust fjórar aðrar
borgir um hnossið: Belgrad,
Manchester, Melbourne og
Toronto. Margir töldu eðlilegt
að Aþena hreppti hnossið en
þar fóru fram fyrstu Ólympíu-
leikarnir árið 1896 og hún oft
nefnd Ólympíuborgin. Al-
þjóðaólympíunefndin valdi
hins vegar nýtískuborgina
Atlanta, enda má búast við
miklum gróða á sölu sjón-
varpsréttar í Bandaríkjunum.
Atlanta er í Georgíu-ríki
sem er í suðausturhluta
Bandaríkjanna. Yfirvöld þar í
borg segjast ætla að halda
glæsilegustu Ólympíuleika
allra tíma og fyrirhuga að
eyða 1,2 milljörðum dollara í
íramkvæmd leikanna.