Alþýðublaðið - 10.10.1990, Page 1
MPYDUMMB
Aklu ekki úl i óvissuna
aklu ó
Ingvar
Helgason hf.
Sævarholða2 Simi 91-67 4000
153. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAGUR
lO. OKTÓBER 1990
JÓHANNA VILL
BREYTINGAR Á HÚS-
BRÉFAKERFINU: jó-
hanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra kynnti á
ríkisstjórnarfundi í gær
drög að frumvarpi um
breytingar á húsbréfakerf-
inu. Drögin verða kynnt
stjórnarþingflokkunum á
næstunni. Helstu breyting-
ar sem félagsmálráðherra
vil gera eru þrjár. í fyrsta lagi að húseigendur geti fengið
húsbréf vegna meiriháttar endurbóta á húsnæði sínu. í
öðru lagi geti húskaupendur fengið húsbréf sem svara til
75% af húsverði í stað 65% áður og í þriðja lagi að þeir sem
eiga í greiðsluerfiðleikum eigi einnig kost á húsbréfum til
að greiða skuldir sínar með.
ATVINNULEYSISSJÓÐUR RÝRNAR: fnneign at-l
vinnuleysissjóðs hefur rýrnað mjög á síðastliðnum 20 ár-
um. Árið 1970 átti sjóðurinn inneign sem svaraði greiðslu-
getu fyrir 10 milljón atvinnuleysisdögum en á nú aðeins
fyrir um milljón bótadögum. í útvarpsfréttum í gær kom
fram í máli Guðmundar Þ. Jónssonar, fulltrúi ASÍ í stjórn
sjóðsins, að höfuðstóll sjóðsins dugi ekki nema í 11/2—2 ár
miðað við 2% atvinnuleysi.
320 MILLJÓNA KRÖFUR í KNÞ: Kröfur í þrotabúl
Kaupfélags Norður-Þingeyinga nema alls um 320 milljón-
um króna. Stærsti kröfuhafinn er Samvinnubankinn með
130 milljónir en aðrir stórir kröfuhafar eru Vátryggingafé-
lag íslands, Samvinnulífeyrissjóðurinn, Stofnlánadeild
samvinnufélaganna, Byggðasjóður og ríkissjóður. Ekki
liggur fyrir hversu miklar eignir þrotabúsins eru.
GÆÐAMJÖL 0G LÝSI FRÁ ÍSLANDI: Það er eins
með fiskmjöl og lýsi og aðra framleiðslu að gæði eru mis-
jöfn. Félag ísl. fiskmjölsframleiðenda hefur nú stofnað
gæðasamband innan sinna vébanda. Tilgangurinn er sá
að ná fram auknum gæðum á hinni íslensku framleiðslu,
— ört vaxandi samkeppni á mörkuðum kallar á þessar að-
gerðir, segir Jón Ólafsson hjá félagi fiskmjölsframleið-
endanna. Flestar Ioðnuverksmiðjur landsins hafa óskað
eftir inngöngu í sambandið og mun framieiðsla þeirra auð-
kennd með sérstöku gæðamerki, standist framleiðslan
mat. Sveinn Jónsson lífefnafræðingur veitir gæðasam-
bandinu forstöðu.
HUSEIGENDAFELAGIÐ: Nú hefur Húseigendafélagiðj
flutt starfsemi sína í nýtt og rúmgott húsnæði að Síðumúla
29 í Reykjavík. Félagið er hagsmunafélag húseigenda um
allt land og eru félagsmenn um fimm þúsund talsins. Af
hagsmunamálum verður í vetur lögð áhersla á að fá af-
greitt frá Alþingi frumvarp til laga um ábyrgð á stein-
steypu, en Húseigendafélagið hafði frumkvæði að samn-
ingu þess frumvarps. Hér er á ferðinni mikið hagsmuna-
mál fyrir húseigendur því steypuskemmdir hafa kostað
fjölda manns gífurlegar fjárhæðir í viðhaldi og viðgerðum
undanfarin ár án þess að nokkur virðist bera ábyrgð á því
hvernig fór. Ennfremur mun félagið vinna áfram að því að
fá ekknaskattinn svonefnda felldan niður.
LEIÐARINN i DAG
Fyrri leiðari Alþýðublaðsins fjallar um tilhugalíf Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðubandalagsins sem eink-
um birtist í sameiginlegum grátsöng gegn álmálinu.
Síðari leiðarinn fjallar um mikla fylgisaukningu Al-
þýðuflokksins í nýrri skoðanakönnun.
SJÁ BLS. 4.
Forysta til
framtíðar
Söngglaðir
Seltirningar
Fréttaskýringu um flokkd-
þing Alþýðuflokksins ur i
naéstu helgi er að finna í blaq-
inu í dag. Það hefur lítt verið
fréttum en engu að síður getil-
orðið hasar um menn og má -
efni.
Ríkarður Örn Pálsson fjalla
um tónkeika Selkórsins á Hvol
svelli um sl. mánaðamót. Hanr
segir Selkórinn fara vel og ró
lega af stað og ætli sér greini
lega ekki um of.
Gul hæna eða brún
„Skólinn byrjaði umsvifa
laust að rugla mig þegar kenn
arinn las mér um einhverja litlí
gula hænu," segir Jónas Jón
asson en hann segir sína skoð
un á málfari og menntun.
Landsbergis var mjög ánægður með vináttu og stuðning (slendinga á fundi með fréttamönnum að viðstöddum Steingrimi
Hermannssyni forsætisráðherra og Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra. A-mynd E. Ól.
Landsbergis á fundi meö fréttamönnum
Þakkaði eindreginn
sluðning íslendinga
Landsbergis, forseti
Æðsta ráðs Litháens,
sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær að líkja
mætti hernámi Litháens
við hernám Kúvæts. Hann
sagði Litháa hafa beðið eft-
ir að öðlast sjálfstæði á ný
síðan Sovétríkin hernámu
landið í heimstyrjöldinni
síðari. Hann sagði að ekki
hefði orðið mikill árangur
af viðræðum við Sovét-
menn til þessa en meðan
viðræður færu fram væri
von um að lausn fengist.
Á fundinum þakkaði
Landsbergis fyrir einlægan
stuðning Islendinga við mál-
stað Litháa og sagði að svo
eindreginn stuðningur hefði
komið á óvart.
Landsbergis átti annríkt í
gær. Dagurinn hófst með
heimsókn í Árnasafn en síð-
an var fundur með Steingrími
Hermannssyni, forsætisráð-
herra, og Jóni Baldvin Hanni-
balssyni, utanríkisráðherra.
Að loknum hádegisverði
með Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta Islands, var haldið til
Þingvalla þar sem dvalist var
fram eftir degi. í gærkvöldi
efndi forsætisráðherra til
kvöldverðarboðs til heiðurs
Landbergis.
í dag mun Landbergis ræða
við Kristínu Halldórsdóttir
frá Kvennalista og síðan við
Þorstein Pálsson, formann
Sjálfstæðisflokksins. Hann
mun síðan verða viðstaddur
setningu Alþingis og eiga
fund með Guðrúnu Helga-
„Tíminn er stuttur og
bjargið er hátt sem þarf að
klífa. Við þurfum að safna
um 180 milljón króna
hlutafé til að uppfylla kröf-
ur um eigið fé þegar sótt er
um flugleyfi. Þá umsókn
þurfum við að leggja fram
í síðasta lagi fyrir hádegi
næstkomandi mánudag.
Það eru komin loforð uppá
um 90 milljónir króna og
það skýrist á allra næstu
dögum hvort þetta tekst
eða ekki,“ sagði Víglund-
ur Þorsteinsson, forsvars-
maður ísflugs, í samtali
við Alþýðublaðið.
ísflug stefnir að þvi að ná til
dóttur, forseta sameinaðs
þings. Hann mun einnig eiga
fund með Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra
og ávarpa almenning við
Ráðherrabústaðinn klukkan
sín leyfum Arnarflugs til
áætlunarflugs til Amsterdam
og Hamborgar. Flugleiðir
fengu leyfin tímabundið, eða
til 1. nóvember þegar Arnar-
flug ákvað að hætta flugi um
stundarsakir að minnsta
kosti. ísflug hefur flugrekstr-
arleyfi til leiguflugs, en Víg-
lundur sagði vonlaust að reka
eingöngu leiguflug hérlendis.
Fyrir því væri enginn grund-
völlur.
Að sögn Víglundar hefur
starfsfólk Arnarflugs lofað yf-
ir 20 milljónum króna í hluta-
fé og ýmsir aðrir aðilar lagt
fram hlutafjárloforð, en jafn-
framt hefðu nokkrir helst úr
18. I kvöld mun hann snæða
kvöldverð í boði Jóns Bald-
vins Hannibalssonar utanrík-
isráðherra. Landbergis held-
ur af landi brott í fyrramálið.
lestinni sem hefðu ætlað að
leggja fram hlutafé. ísflug
hefði tryggt sér flugvél til
áætlunarflugsins ef dæmið
gengi upp. Víglundur Þor-
steinsson taldi einsýnt að ef
ísflugi tækist ekki að afla til-
skilins hlutafjár og fá flugleyfi
fengju Flugleiðir áfram leyfi
til áætlunarflugs til Amster-
dam og Hamborgar.
Gjaldheimtan hefur innsigl-
að skrifstofur Arnarflugs, en
félagið sótti um greiðslu-
stöðvun í tvo mánuði meðan
reynt yrði að endurskipu-
leggja fjárhaginn.
Isflug reynir aö ná flugi
Búið að safna 90
milljóna hlutafé
RITSTJORN r 681866 — 83320 • FAX 82019 • ASKRIFT OG AUGLÝSINGAR r 681866