Alþýðublaðið - 10.10.1990, Side 2

Alþýðublaðið - 10.10.1990, Side 2
2 Miðvikudagur 10. okt. 1990 45. flokksþing Alþýðuflokksins FORYSTA TIL FRAMTÍÐAR Alþýðuflokksmenn ganga til flokksþings um næstu helgi undir yfirskriftinni: „Forysta til fram- tiðar." Af yfirskriftinni má ráða að Alþýðuflokkur- inn ætlar sér forystuhlutverk á sviði islenskra stjórnmála á komandi árum og áratugum. Eðlilega velta menn þvi einnig fyrir sér hvort verið sé að skir- skota til forystu flokksins til frambúðar. Gleyma þeir „ fortíðinni"? Gudmundur Magnússon, 34 ára sagnfræðingur, hinn mætasti maður að flestu leyti, verður í framboði hjá Sjálfstæðisflokkn- um í prófkjöri vegna næstu al- þingiskosninga. Guðmundur sækist eftir 6. sæti á lista flokks- ins í Reykjavík og hefur hann og stuðningsmenn hans opnað kosningaskrifstofu að Kirkju- torgi 4 í Reykjavík. Guðmundur nýtur mikils álits — en eitt skyggir á. Það er sú staðreynd að Guðmundur þótti nokkuð „rauð- ur" á litinn á sínum yngri árum. Sagt er að meðalsjálfstæðismað- urinn hafi minni líkt og fíllinn, — hann gleymi aldrei neinu — og fyrirgefi fátt. Kaupir hann kirkjuna? Séra Karl V. Matthíasson á ísa- firði segir í Vestfirska fréttablað- inu að það hafi hvarflað að sér að kaupa sjálfur gömlu brunnu kirkjuna til að geta flutt hana af þeirri lóð sem fyrirhuguð er fyrir nýja kirkju. Hann gæti svo farið í að lagfæra hana þegar ástæður leyfðu. Bygging nýrrar kirkju á ísafirði strandar nú á því áliti Húsafriðunarnefndar að varð- veita skuli gömlu kirkjuna, en hún brann fyrir 3 árum og er stórskemmd á eftir. Sóknar- nefnd telur velkomið að menn varðveiti gömlu kirkjuna, en það sé þó ekki safnaðarins að standa undir kostnaði við við- gerðina. Mátti kjósa sjálfan sig Eins og greint var frá hér í dálk- inum í sumar, kærði minnihluti bæjarstjórnar í Bolungarvík at- kvæðagreiðslu um ráðningu bæjarstjóra, taldi ólöglegt að 01- afur Kristjánsson bæjarstjóri tæki þátt í atkvæðagreiðslu um eigið starf. Félagsmálaráðuneyt- ið hefur fellt sinn úrskurð: Ólafi var heimilt að kjósa sjálfan sig. Flokksþing Alþýðuflokksins sem hefst á föstudaginn hefur enn sem komið er ekki dregið að sér mikla athygli fjölmiðla. Flokks- þing almennt eða landsþing stjórnmálaflokkanna þykja ekki ýkja spennandi umræðu- og fréttaefni nema þegar tekist er á um hverja skal velja til forystu. Ekkert hefur komið fram sem bendir til að tekist verði á um sæti í æðstu stjórn flokksins. Hverjir verða i nýrri forystu?_______________________ Hins vegar er engan veginn frá því gengið hverjir koma til með að skipa nýja forystusveit Alþýðu- flokksins sem kosin verður á flokksþinginu. Jón Baldvin Hanni- balsson, formaður flokksins, sæk- ist að vísu eftir endurkjöri. Oráðið er hins vegar hverjir muni sækjast eftir öðrum toppembættum í flokknum. Jóhanna Sigurðardótt- ir, varaformaður flokksins, hefur ekki gefið upp hvort hún sækjast eftir endurkjöri en þó reikna menn almennt með því. Aðrir sem helst hafa verið nefndir sem hugs- anlegir í æðstu embætti flokksins eru þeir Jón Sigurðsson iðnaðar- ráðherra, Guðmundur Árni Stef- ánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Rannveig Guðmundsdóttir, al- þingismaður. Eyjólfur K. Sigurjónsson, sem var kosinn gjaldkeri flokksins á síðasta flokksþingi, lét af því emb- ætti á miðju kjörtímabili og óvíst er hver kemur til með að fylla skarð hans. Eiríkur Briem hefur gegnt embætti gjaldkera frá því að Eyjólfur lét af því embætti. Lára V. Júlíusdóttir hefur verið ritari flokksins frá síðasta flokks- þingi og ekki er vitað hvort hún sækist eftir því starfi áfram. Innan flokksins er ritaraembættið talið ganga næst formanns- og varafor- mannsembættunum að virðingu. Formaður Framkvæmdanefnd- ar Alþýðuflokksins var kosin Elín Alma Arthursdóttir á síðasta flokksþingi. Hún lét hins vegar af þeirri stöðu enda átti hún óhægt um vik þar sem hún var búsett í Eyjum. Guðmundur Einarsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, hefur gegnt þeirri stöðu síðan. Af þessu má ljóst vera að það er eng- an veginn víst hverjir koma til með að veljast í forystusveit Al- þýðuflokksins á komandi flokks- þingi og ekki er að vita nema koma kunni til harðra kosninga um einstök embætti. Umheimur — umhverfi — umhyggia_______________ „Forysta til framtíðar" er yfir- skrift þingsins eins og fram kemur hér að framan en „umheimur — umhverfi — umhyggja" verður notað sem undirslagorð. Lýsir það allvel þeim málefnum sem jafnað- armenn vilja leggja áherslu á. ís- land og umheimurinn hafa vissu- lega verið í brennidepli og hefur Jón Baldvin, formaður Alþýðu- flokksins og utanríkisráðherra, leitt þá umræðu. Einkum snýr um- ræðan að hugsanlegri inngöngu íslands í EB og hugmyndum um sameinaða Evrópu. Umhverfi höfðar til þess mála- flokks sem stöðugt meiri athygli beinist að. Alþýðuflokkurinn hef- ur verið leiðandi í umhverfismál- um og má þar nefna framtak Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra en hann hafði forgöngu um að koma á fót söfnunarkerfi og endur- vinnslu á einnota umbúðum. Umhyggja undirstrikar þá vel- ferðarstefnu sem Alþýðuflokkur- inn boðar og það félagslega rétt- læti sem hann berst fyrir. Eitt stærsta málið á þessu sviði er ótví- rætt húsnæðismálin en þar hefur Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra haft ótvíræða for- ystu um að koma þeim málum til betri vegar. Kaupleiguíbúðakerfið, húsbréfakerfið og ný lög um fé- lagslegt húsnæði eru allt mál sem lúta að því að leysa húsnæðis- vanda einstaklinga til framtíðar. Sterk málefnaleg staða Það liggur alveg Ijóst að mál- efnalega stendur Alþýðuflokkur- inn að mörgu leyti mjög sterkt. Honum hefur tekist að ná fram flestum sínum stærstu umbóta- málum þótt það hafi oft á tíðum kostað mikil átök. Önnur eru vel á veg komin þó endanleg lending sé ekki fyrirséð, t.d. álmálið. Þegar verk núverandi ríkisstjórnar verða skoðuð mun koma í ljós að það sem upp úr stendur eru verk Alþýðuflokksins. Skoðanakönnun sem birtist í DV fyrri tveimur dög- um staðfestir að Alþýðuflokkur- inn er á uppleið en hann hefur ekki mælst með jafnmikið fylgi í skoðanakönnunum frá síðustu kosningum. Það má búast við líflegu þingi hjá krötum um næstu helgi. Þótt samstaða náist um hverjir skipi forystusveit flokksins má engu að síður búast við fjörmiklum mál- efnalegum umræðum svo ekki sé minnst á heitt mál eins og nafn- breytingu á flokknum. Fyrir þing- inu liggur tillaga um að við nafn Alþýðuflokksins verði bætt „Jafn- aðarmannaflokkur íslands". Fleiri hugmyndir um undirnafn hafa skotið upp kollinum og þótt hér st ekki stórmál á ferðinni getur það engu að síður kallað á heitar og til- finningaþrungnar umræður. Önnum kafnir þingfulltrúar á síðasta flokksþingi. RADDIR Flokkar þú „svarta vanskilalistann“ undir persónunjósnir? Davið Guðnason, 40 ára, bifreið- arstjóri „Já, ég tel hann til persónu- njósna. Mér finnst þó í lagi að upp- lýsingar sem þessar liggi fyrir hjá bönkum og ákveðnum fyrirtækj- um. Þá vantar algjörlega að gera greinarmun á hvort það er greið- andi eða ábyrgðarmaður sem lendir á svona lista." Hermann Björgvinsson, 71 árs, fyrrum slökkviliðsmaöur „Ég geri það. Ég tel alveg hik- laust að svona upplýsingar eigi ekki að liggja fyrir." Anika Berndsen, 43 ára, hús- móðir „Mér finnst ekki að hver sem er eigi að geta fengið aðgang að slík- um persónulegum upplýsingum. Mér finnst gegna öðru með lán- stofnanir." Anna Nikulásdóttir, 28 ára, hús- móðir „Já, eiginlega. Það þarf að vera mjög þröngur hópur sem hefur aðgang að svona upplýsingum. Þær eiga ekki að vera fyrir hvern sem er." Jón Magnússon, 44 ára, hæsta- réttarlögmaður „Ekki að mínum dómi. Þetta eru upplýsingar sem liggja fyrir opin- berlega og ekki er flókið að afla sér, en fólk á að vísu misgreiðan aðgang að. Vandinn er hins vegar ef upplýsingar á listanum eru rangar. Síðan er það svo spurning hversu víðtækar upplýsingar um einstaklinga eiga að liggja frammi."

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.