Alþýðublaðið - 10.10.1990, Qupperneq 8
Gabriel
höggdeyfar
Verslið hjá fagmanninum
GS varahlutir
•••• ••••• •
• • • • •
•••• ••••• •
• • • • •
• ••••• •••
• •
• • • • • • • •
• • • • • • • •
WASHINGTON: Bush Bandaríkjaforseti bættist í gær í
hóp þeirra sem fordæma dráp ísraelshers á tveim tugum
Palestínumanna í fyrradag. Bush sagðist harma atburðinn
og kvað ísraelsmenn verða að sýna meiri stillingu. Banda-
ríkjaforseti neitaði á hinn bóginn, eins og aðrir leiðtogar
Vesturvelda, að tengja atburðina í ísrael við ástandið við
Persaflóa og kvaðst ekki þeirrar skoðunar að drápin í Jerú-
salem yrðu til að rjúfa samstöðuna gegn írak. Fréttaskýr-
endur vestan hafs töldu hins vegar i gær að töluverðar lík-
ur væru til að einmitt það gæti gerst.
MOSKVU: Míkhaíl Gor-
batsjov forseti Sovétríkj-
anna hyggst skrifa George
Bush forseta Bandaríkj-
anna bréf til að skýra hon-
um frá ferð háttsettra sov-
éskra embættismanna til
íraks. Við heimkomu sendi-
nefndarinnar fyrir helgi
var því haldið fram að við-
ræður embættismannanna
við ráðamenn í Irak ykju
vonir um friðsamlega lausn
Persflóadeilunnar.
LONDON : Olíuverð steig enn í gær í kjölfar útvarpsræðu
Saddams Hussein þar sem hann var harðorður í garð
Israelsmanna og sagði þá ekki eiga annarra kosta völ en
aö hverfa á brott úr löndum araba. Olíuverðið fór yfir 40
dollara fatið, en olíukaupmenn segja þó engan skort á olíu.
Það er hins vegar óttinn við styrjöld sem veldur hækkun
olíunnar.
BARCELONA: Borgarstjórinn í Barcelona á Spáni,
Pascual Maragall, segir borgina munu græða 500 millj-
ónir dollara á Ólympíuieikunum sem þar verða haldnir eft-
ir tæp tvö ár. Þetta er tvöfaldur sá hagnaður sem varð af
Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984.
HELSINKI: Sovéski flugræninginn Níkolaj Selívanov,
sem á föstudaginn var handtekinn í Helsinki þegar vél
hans lenti þar, hefur hafið hungurverkfall til að leggja
áherslu á kröfur sínar um pólitískt hæli. Selívanov rændi
flugvél i innanlandsflugi í Sovétríkjunum á föstudaginn og
skipaði áhöfninni að fara til Stokkhólms. Vélin varð hins
vegar að lenda í Helsinki vegna eldsneytisskorts.
BRUSSEL: Kjarnorkuslys um borð í sovéskum kafbáti
árið 1961 hefði getað orðið álíka umfangsmikið og Tsjern-
óbyl-slysið árið 1986. Slysið var þaggað niður á sinum tima
en sovéskur verkfræðingur sem var um borð í kafbátnum
þegar slysið varð, sagði frá því á alþjóðlegri ráðstefnu um
kjarnorkuslys í síðustu viku. Skipstjórinn og sjö aðrir úr
áhöfninni létust af völdum geislavirkni eftir slysið.
NYJU DELHI : Átta indverskir námsmenn fyrirfóru sér í
gær í áframhaldandi öldu sjálfsvíga sem framin eru til að
mótmæla áætlun ríkisstjórnarinnar um fjölgun atvinnu-
tækifæra til handa lágstéttunum. Sjálfsmorðin eru alls orð-
in a.m.k. 30.
NEW YORK: Fimmtugs-
afmælis Johns Lennons
var minnst víða um heim í
gær. Ekkja bítilsins, Yoko
Ono, bað fólk að minnast
hans með því að láta
drauma hans, um ást og
frið í veröldinni, rætast.
John Lennon var fæddur 9.
október 1940. Hann var
myrtur fyrir utan íbúð sína
í New York 8. desember
1980, fertugur að aldri.
M0SKVU : Sovétríkin munu fyrirsjáanlega tapa jafnvirði
40 milljarða króna vegna minnkandi viðskipta af völdum
Persaflóadeilunnar fyrir lok ársins. Þetta fullyrti prófessor
við sovésku vísindaakademíuna í gær.
BEIRUT: Talsmaður shííta í Líbanon lýsti því yfir í gær að
lausn 12 vestrænna gísla í landinu tengdist örlögum hundr-
uða arabískra fanga í Israel.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón Jón Daníelsson
Rússland
Markaðskerfi
1. nóvember
Rússneska þingið sam-
þykkti í gær að hrinda í
framkvæmd róttækri
áætlun um markaðsbú-
skap frá og með næstu
mánaðamótum. Forsætis-
ráðherra Rússlands, ívan
Sílaev, varaði sambands-
stjórnina í Kreml við að
reyna að hindra fram-
kvæmd hinnar svokölluðu
500 daga áætlunar í
stærsta Sovétlýðveldinu.
,,Ef áætlun okkar verður
ekki viðurkennd, grípum við
til annarra úrræða, jafvel ör-
þrifaráða," sagði rússneski
forsætisráðherrann í gær en
neitaði að skýra nánar við
hvað hann ætti.
Þing Sovétríkjanna hefur
gefið Míkhaíl Gorbatsjov frest
fram til 15. þessa mánaðar til
að leggja fram áætlun sem
samræmi þá áætlun sem
Rússar hyggjast nú hrinda í
framkvæmd og áætlun
Ryzhkovs forsætisráðherra
Sovétríkjanna, sem gerir ráð
fyrir hægari breytingum.
Efnahagur Sovétríkjanna
vegur nú nánast salt á hyl-
dýpisbrún. Iðnaðarfram-
leiðsla fer minnkandi, vöru-
skortur verður æ meira áber-
andi og ófriðar gætir bæði á
vinnumarkaði og milli fólks
af ólíku þjóðerni.
Sú 500 daga áætlun sem
Rússar ætla að hrinda í fram-
kvæmd 1. nóvember mun
valda verulegri röskun í þjóð-
lífinu. Útgjöld ríkisins verða
skorin verulega niður, þar
með talin útgjöld til hermála.
Miklar eignir verða færðar í
einkaeign og verðlag verður
Noröur-írland
Tveir skotnir i
aras a eyoibyli
Tveir meðlimir írska lýð-
veldishersins, IRA, lélu líf-
ið og þrír voru handteknir
i skolárás breskra her-
manna á eyðibýli rétt hjá
þorpinu Loughgall í Ar-
magh-héraði suðvestur af
Belfast í gærmorgun. Ann-
ar hinna látnu, Dessie
Grew, er talinn hafa drepið
um tiu lögreglumenn og
hermenn á þeim tíma sem
hann starfaði með IRA.
Haft var eftir talsmönnum
írska lýðveldishersins í gær
að IRA gæti auðveldlega
hefnt þessarar árásar. Sam-
kvæmt heimildum innan IRA
hafa samtökin nú yíir að ráða
800 nákvæmnisrifflum og
nægu sprengiefni til starf-
seminnar í þrjú ár.
írski lýðveldisherinn hefur
á síðari árum beint stærri
hluta af árásum sínum gegn
Englandi og í síðustu viku
voru tveir handteknir á Eng-
landi og ákærðir fyrir að hafa
ætlað að drepa enskan kaup-
sýslumann sem jafnframt er
sagður náinn vinur Karls
Bretaprins.
Á föstudaginn réðist lög-
regla og her inn á fjöldamörg
heimili og vinnustaði víðs
vegar á Norður-írlandi og
höfðu á brott með sér pen-
inga, skjöl og tölvur. 800
manns tóku þátt í þessum að-
gerðum sem sagðar voru lið-
ur í því að komast fyrir fjár-
rnögnunarleiðir IRA.
Nú iekur alvaran við
Á aðeins 11 mánuöum hrundu múrarnir í Evrópu og heims-
myndin gjörbreyttist. Hápunkti sínum náði þróunin með
sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands nú eftir mánaða-
mótin. Nú eru fagnaðarlætin að baki og alvaran tekur við.
Þjóðverja bíður geysimikið endurreisnarstarf á fjölmörgum
sviðum. Tæknivæðing í landbúnaði Austur-Þýskalands er
t.d. viðamikið verkefni. Hér sjást nútímavinnubrögð við kart-
öfluuppskeru í Austur-Þýskalandi. Þau munu fljótlega heyra
sögunni til og sömu sögu er að segja um Trabantinn.
látið ráðast nema verð nauð- byrja með verður háð verð-
synjavarnings sem til að lagsákvæðum.
Heimsmeistaraein vígið
Jafnt eftir
spennuskák
Fyrstu einvígisskákinni
í fimmta einvígi Kas-
parovs og Karpovs um
heimsmeistaratitilinn
lauk með jafntefli í New
York í fyrrinótt. Skákin
var töluvert spennandi og
töldu sérfróðir menn
heimsmeistarann heppinn
að sleppa með jafnteflið,
eftir að hann hafði leyft
sér full-ævintýralega tafl-
mennsku.
Sovétmennirnir tveir hafa
ekki hleypt öðrum að í barátt-
unni um titilinn síðustu ár og
þegar einvígið í New York
hófst í fyrrakvöld höfðu þeir
alls teflt 120 skákir frá því
1984 þegar baráttan milli
þeirra hófst. Munurinn er
ótrúlega lítill því heimsmeist-
arinn hefur eins vinnings for-
skot.
Karpov og Kasparov hafa
rótgróna andúð hvor á öðr-
um en persónulegrar óvildar
virtist þó ekki gæta að ráði í
upphafi þessa einvígis. Meist-
ararnir brostu sínu blíðasta
og tókust vinsamlega í hend-
ur áður en þeir settust að tafl-
inu.
Þótt þeir séu báðir Sovét-
mei.n tefla þeir ekki undir
sama fána að þessu sinni.
Karpov teflir sem áður undir
fána Sovétríkjanna en heims-
meistarinn kýs að hafa fána
Rússlands sínum megin á
borðinu.
Fyrsta einvígi þeirra Kar-
povs og Kasparovs var háð
veturinn 1984—85. Þar feng-
ust ekki endanleg úrslit, held-
ur var einvíginu slitið eftir 48
skákir og Karpov hélt þá
heimsmeistaratitlinum. Ann-
að einvígi háðu þeir haustið
1985 og þá vann Kasparov tit-
ilinn með tveggja vinninga
mun. Hann jók enn á yfir-
burði sína í þriðja einvíginu
1986 en hélt titlinum á jöfnu
1987. Nú takast þeir á í
fimmta sinn og verður fyrri
hluti einvígisins háður í New
York en sá síðari í borginni
Lyon í Frakklandi.
Önnur einvígisskákin verð-
ur tefld í nótt.