Alþýðublaðið - 12.10.1990, Side 17
Föstudagur 14. sept. 1990
FORYSTA TIL FRAMTÍÐAR
17
Jón Sigurdsson vidskipta- og idnaðarráðherra:
Undir lok kjörtimabilsins er óstœða til að lita yf ir f ar-
inn veg eg huga jafnframt að framtiðinni. Senn verða
kosningar og þó stöndum við Alþýðuflokksmenn
frammi fyrir dómurum okkar — kjósendum. Við mun-
um flytja mól okkar af öryggi og festu. Af öryggi, þvi
við treystum þvi að þjóðin dœmi okkur af verkunum.
Af festu, þvi við hvikum hvergi fró þeirri sannfœringu
að okkar stefna sé stefna framtiðar og frelsis.
Jón Sigurösson viðskipta- og iðnaöarráðherra: „Staða Alþýðuflokksins er einstök meöal íslenskra stjórnmálaflokka.
Hann er óbundinn af fjötrum hagsmunasamtakanna og hann er laus við fordóma kynjahreyfinga og kreddupólitíkur.
Með stjórnarþátttöku sinni nú hefur hann sýnt og sannað þessa stöðu sína."
Þetta á við um bankasameining-
una. Það var búið að tala í tuttugu ár
um að fækka bönkum og styrkja
bankakerfið. Nú hefur það verið
gert á tíu mánuðum með fækkun
banka úr sjö í þrjá. Þessi sameining
styrkir bankana í samkeppni við öf 1-
ugar erlendar stofnanir og stórir
bankar geta betur sinnt þörfum
stórra fyrirtækja. Nú hefur íslensk-
um fyrirtækjum og almenningssjóð-
um verið gefinn milliliðalaus að-
gangur að erlendum fjármagns-
markaði. Þannig hefur verið fylgt
stefnu aukins frjálsræðis og sam-
keppni.
Þetta á við um stóriðjusamning-
ana. Þessa daga eru samningar um
nýtt álver á lokastigi. Þar með næst
merkur áfangi í atvinnusögu lands-
ins.
Það er liðinn hálfur annar áratug-
ur frá því framkvæmdir hófust á
Grundartanga og aldarfjórðungur
frá því að byrjað var á byggingu ál-
versins í Straumsvík.
Þetta hlé var orðið alltof langt.
Það var sannarlega kominn tími til
að tengja.
Orkufrek stóriðja er ekki allsherj;
arlausn í atvinnumálum, en hún
verður að vera snar þáttur í atvinnu-
uppbyggingu hér á landi til að halda
hér lífskjörum sem eru sambærileg
við það sem best gerist með nálæg-
um þjóðum.
Jqfnvaegi og framiarir
Hér hefur verið tæpt á nokkrum
mikilvægum málum þar sem horft
er til langs tíma. Þar hefur náðst
meiri árangur en nokkur stjórn get-
ur státað af á jafn skömmum tíma.
En ekki er síður mikilsvert að sam-
tímis hefur tekist með samstarfi rík-
isstjórnar og verkalýðshreyfingar
að koma á betra jafnvægi í þjóðar-
búskapnum en ríkt hefur í áratugi,
þrátt fyrir erfitt árferði.
Nú vænkast hagur þjóðarinnar á
ný, verðbólga er minni en hún hefur
verið í tuttugu ár. Betra jafnvægi í
efnahagsmálum leggur grunn að
skipulagsumbótum í hagkerfinu og
auknu frjálsræði í viðskiptum inn-
anlands og milli landa um leið og ís-
land tengist Evrópumarkaði nánari
böndum.
Staða Alþýðuflokksins er einstök
meðal íslenskra stjórnmálaflokka.
Hann er óbundinn af fjötrum hags-
munasamtakanna og hann er laus
við fordóma kynjahreyfinga og
kreddupólitíkur. Með stjórnarþátt-
töku sinni nú hefur hann sýnt og
sannað þessa stöðu sína.
Dæmin sem hér hafa verið rakin
eru dæmi um árangur. Hann byggist
á pólitískri forystu og þrotlausu
starfi. Á þeim grunni höldum við nú
glæsilegt flokksþing og sækjum
fram til kosninga. Þennan árangur
leggjum við óhrædd undir dóm
kjósenda.
Það er engum blöðum um það að
fletta að í Alþýðuflokknum hefur
búið sá kraftur sem á kjörtímabilinu
hefur þokað íslensku þjóðinni fram
á veg til framfara og betri lífskjara.
Þegar á fyrstu vikum stjórnarsetu
sinnar sýndi Alþýðuflokkurinn um-
bótavilja sinn þegar hann hafði for-
göngu um að brjóta einokunarmúr
fiskútflytjendavaldsins þegar gefin
voru út leyfi til freðfisksölu á Banda-
ríkjamarkaði. Þar var hann trúr
hugsjónum sínum því baráttan gegn
forréttindum einstaklinga og lok-
aðra, þröngra valdahópa hefur ætíð
verið eitt helsta stefnumál okkar.
Við lögðum grundvöllinn að að-
skilnaði dóms- og framkvæmda-
valds, róttækustu leiðréttingu á
dómskerfinu í marga áratugi. Þar
með var Islendingum forðað frá
vansa á alþjóðavettvangi og sögu-
legum áfanga náð til réttarbóta í
landinu. Baráttunni fyrir réttlæti
lýkur aldrei.
Verkin talq_______________________
Þannig settum við stefnuna strax
í upphafi og höfum síðan unnið okk-
ar verk, verk, sem mörg hver munu
einkenna kjörtímabilið.
Kaupleiguíbúðir og húsbréf munu
móta húsnæðiskjör þjóðarinnar inn
á næstu öld og gera fólki kleift að
eignast húsnæði án skuldafjötra og
skelfingar víxla og vanskila.
Umhverfismál hafa verið tekin
fastari tökum og yfirsýn yfir þau fal-
in sínu ráðuneyti. Sett hefur verið á
stofn söfnunarkerfi og endurvinnsia
fyrir einnota umbúðir — sannkallað
þjóðþrifaverk, sem hjálpar til að
halda landinu hreinu og fögru og
nýta betur takmarkaðar auðlindir
jarðar.
Undir forystu Alþýðuflokksins
höfðu Islendingar forgöngu um að
undirbúa samninga EFTA við Evr-
ópubandalagið. Nú vinnum við að
því með öðrum NATO þjóðum að
leggja grundvöll að hinni nýju Evr-
ópu, Evrópu án múra og þvingana,
Evrópu vonar og frelsis.
Til að búa í haginn fyrir komandi
kynslóðir er okkur nauðsvnlegt að
efla atvinnu og efnahag. Við þurf-
um störf, sem gefa góð lauri, bæði til
að veita vinnandi fólki góð lífskjör
og til að varðveita það samfélag vel-
ferðar og öryggis, sem við höfum
verið að byggja.
Elling atvinnu_______________
Á þessu sviði höfum við unnið
þarft verk.
J J Orkufrek
stóriðja er ekki
allsherjarlausn í
atvinnumálum, en
hán verður að vera
snar þáttur í
atvinnuupp-
byggingu hér á
landi til að halda
hér lífskjörum sem
eru sambœrileg við
það sem best gerist
með nálœgum
þjóðum, í (