Alþýðublaðið - 17.11.1990, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 17. nóvember 1990
RAÐAUGLÝSINGAR
Fræðslu- og jaf nréttisf ulltrúi
Akureyrarbær auglýsir lausa til umsóknar stööu
fræðslu- og jafnréttisfulltrúa.
1. júní sl. árs samþykkti bæjarstjórn Akureyrar jafn-
réttisáætlun til fjögurra ára og er verksvið fræðslu-
og jafnréttisfulltrúa að vinna að framkvæmd henn-
ar.
Einnig er honum ætlað að sjá um fræðslu- og end-
urmenntunarmál starfsfólks.
Starf þetta er hið fyrsta sinnar tegundar hérlendis
og því um spennandi brautryðjendastarf að ræða.
Krafist er a.m.k. þriggja ára háskólanáms, t.d. á sviði
félagsvísinda, uppeldis- og kennslufræða eða sálar-
fræði. Reynsla af kennslustörfum æskileg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Akureyrarbæj-
ar og STAK.
Meirihluti þeirra sem nú gegna stjórnunar- og
ábyrgðarstöðum hjá Akureyrarbæ eru karlar en
stefnt er að því að jaf na stöðu kynjanna, sbr. 9. grein
laga nr. 65/1985 um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla.
KONUR ERU ÞVÍ HVATTAR TIL AÐ SÆKJA UM
STARFIÐ.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hugrún Sig-
mundsdóttir form. jafnréttisnefndar, í síma 96-
27461 e. kl. 20.00 og starfsmannastjóri í síma 96-
21000.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem
fyrst.
Umsóknarfrestur er til 7. desember nk. og skal um-
sókn send starfsmannastjóra á umsóknareyðu-
blöðum sem fást hjá starfsmannadeild Akureyrar-
bæjar Geislagötu 9, sími 96-21000.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Forval
VKS auglýsir hér með forval verktaka vegna fyrir-
hugaðs útboðs á tölvuvæddu afgreiðslukerfi fyrir
póst- og símastöðvar.
Útboðið mun ná til vélbúnaðar, hugbúnaðar, upp-
setningar, viðhalds og þjálfunar starfsfólks vegna
fyrsta áfanga afgreiðslukerfisins.
Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu VKS, Bílds-
höfða 14 næstu daga milli kl. 9.30 og 16.30.
Skilafrestur upplýsinga vegna forvalsins er til kl.
14.00 þann 17. desember nk.
Vf RK-Oc; KFRFISFR/fÐISK )FANI IF
llll OSIK )H» \ 14 II.’ KlNMWIk. SIMI I.H" '.(«)
Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
Við skólann er laus staða fjármálafulltrúa. Leitað er
eftir manni með bókhaidsþekkingu og reynslu af
fjármálastjórn.
Viðkomandi skal hefja störf í janúar 1991. Laun
samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna.
Nánari upplýsingar gefur konrektor, Sverrir Einars-
son, á skrifstofu skólans.
Við skólann er einnig laus staða skólaritara. Um er
að ræða hálft starf.
Æskilegt er að umsækjendur hafi nokkra tungu-
málaþekkingu og vélritunarkunnáttu.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar gefur áfangastjóri, Steingrímur
Þórðarson, á skrifstofu skólans.
Forfallakennarar
Forfallakennara vantar í Foldaskóla, Langholtsskóla
og Ölduselsskóla í Reykjavík. Meðal kennslugreina
eru íslenska, danska, saga, stærðfræði, líffræði og
eðlisfræði í eldri bekkjum.
Upplýsingar veittar í skólanum og á Fræðsluskrif-
stofunni.
Fræðslustjórinn í Reykjavík
Austurstræti 14
Sími 6215520.
Til sölu einbýlishús á Akureyri
Byggðavegur 91
Kauptilboð óskast í húseignina, Byggðaveg 91, Ak-
ureyri, samtals 778 m3 að stærð. Brunabótamat er
kr. 13.904.000,-
Húsið verður til sýnis í samráði við Bjarna Kristjáns-
son, framkvæmdastjóra svæðisstjórnar málefna
fatlaðra Norðurlandi eystra (sími: 96-26960).
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum
aðila og á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík.
Skrifleg tilboð óskast send skrifstofu vorri að Borg-
artúni 7, Reykjavík, fyrir kl. 11.00 þann 28. nóvember
1990.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Vélamið-
stöðvar Reykjavíkur, óskar eftir tilboðumí snjótroð-
ara ROLBA RATRAK, árgerð 1974. Hentar litlum
skíðasvæðum.
Tækið verður til sýnis í porti Vélamiðstöðvar
Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 1, dagana 19., 20. og
21. nóvember.
Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 22. nóvember
kl. 14.00 á skrifstofu Innkaupastofnuna Reykjavík-
urborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Heilsugæslustöð Húsavík
Boðinn er út lokafrágangur heilsugæslustöðvar á
Húsavík, þ.á m. málun inni, frágangur gólfa og raf-
lagna, innréttingar, hreinlætistæki og frágangur lóð-
ar. Verkið er boðið út í einu lagi. Gólfflatarmál húss-
ins er um 1477 m2.
Tilboð óskast í verkið bæði miðað við verklok 31.
maí 1991 og miðað við verklok 31. október 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgar-
túni 7, Reykjavík til og með fimmtudegi 29. nóvem-
ber gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R. Borgartúni 7,
þriðjudaginn 4. desember nk. kl. 14.00.
|rMÍ\iKAUpASTOFI\IUI\l RÍKISIIMS
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 — 108 Reykjavík — Sími 678500
Starfsmaður
Starfsmann vantar í eldhús í félags- og þjónustu-
miðstöð aldraðra að Norðurbrún 1.
Ráðningartími frá 1. desember. Um er að ræða
100% starf.
Upplýsingar gefur forstöðumaður á staðnum eða í
síma 686960.
Umsóknarfrestur er til 23. nóv.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
HAMRABORG
FÉLAGSMIÐSTÖÐJAFNAÐARMANNA
HAMRABORG 1 4A KÓPAVOGI
Kópavogskratar
Mætum öll á almennan fund í KRATAHÚSINU að
Hamraborg 14a á mánudagskvöldið kl. 20.30.
Til fundarins mæta:
Jón Sigurðsson, við-
skipta- og iðnaðarráð-
herra.
Rannveig Guðmunds
dóttir alþingismaður.
HÉR .. Gefst gott
tækifæri til að spyrja
tvo af okkar efstu
mönnum á lista, sem
eru einmitt mikið í
sviðsljósinu.
NÝIR FÉLAGSMENN
eru alltaf velkomnir.
Mætum öll.
Stjórnin.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
í prófkjöri Alþýðuflokksins á Vesturlandi fer fram á
skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8—10 frá kl.
10—16 alla virka daga.
Laugardaginn 24. nóv. er opið frá kl. 13—18.
Skrifstofa Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
í prófkjöri Alþýðuflokksins í Norðurlandi eystra fer
fram á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu
8—10 frá kl. 10—16 alla virka daga.
Laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. nóv. er opið
frá kl. 13—18.
Skrifstofa Alþýðuflokksins í Reykjavík.
KRATAKAFFI
miðvikudagskvöldið
21. nóvember, kl.
20.00 í Félagsmiðstöð
jafnaðarmanna að
Hverfisgötu 8—10.
Gestur verður Þröstur
Ólafsson.