Alþýðublaðið - 08.12.1990, Side 1
Vindillinn
og pipan
jafnhættu-
legog
sigarettan
Vindla- og pípureyking-
ar eru jafnskaðsamar
heilsunni og sígarettu-
reykingar. Þetta stingur í
stúf það sem fyrr hefur
verið haldið. Niðurstöð-
urnar byggjast á viðamikl-
um rannsóknum Hjarta-
verndar á dánarorsökum
þúsunda íslendinga.
„Menn hafa yfirleitt talið
vindla- og pípureykingar til-
tölulega skaðlitlar, en þær
virðast koma út sem nokkurn
veginn eins mikill áhættu-
þáttur og sígarettureyking-
arnar,“ segir Nikulás Sigfús-
son, yfirlæknir Hjartavernd-
ar. Á vegum Hjartaverndar
hafa mjög víðtækar rann-
sóknir leitt þetta í ljós. í dag
reykja 4 af hverjum 10 kon-
um en 25—30% karla. Dregið
hefur úr reykingum karla, en
það gengur verr að halda
konunum frá reyknum.
Hugsað til jólanna
Börnin eru farin að telja dagana til jóla og raunar þeir ful lorðnu líka. Einar Ólason Ijösmy ndari
Alþýðublaðsins smellti þessari mynd af dreng sem hann sá á Landsspítalanum og það er
ekki laust við að drengurinn gefi Ijósmyndaranum hornauga, eöa ef til vill er hann aðeins að
hugsa upp óskalistann fyrir jólin.
LAUGARDAGUR
8. DESEMBER 1990
16
dagar
tiljóla
HVERS ÓSKAR ÞÚ ÞÉR Í JÓLACJÖF?
Ásta Sigríður Einarsdóttir, fegurðardís og
nemi:
,,Ég myndi gjarnan vilja góda bók og konfekt-
kassa."
Æ
RÆk
Fatnaður til Pól-
lands
Hann Ingþór Sigurbjörnsson
hefur í 10 ár safnað fatnaði og
sent til bágstaddra í Póilandi.
Hann er enn að, kominn á ní-
ræðisaldur.
Veruleikinn napri
Hvað segir nú veruleikinn napri
um hugmyndirfrjálshyggjunn-
ar? spyr Stefán Snævarr meðal
annars í grein sinni.
Maðurinn og
fjármagnið
Ilafnaðarstefnan tekur rétt
nannsins fram yfir hagsmuni
jármagnsins, segir í ítarlegri
ilyktun kjördæmisráðs Al-
jýðuflokksins á Austurlandi.
MÁLSHÖFÐUN HÓTAÐ: nú er í undirbúningi máls-
höfðun vegna útboðs nýrrar Vestmannaeyjaferju í stað
Herjólfs, en Alþýðublaðið greindi á miðvikudaginn frá
þeim deilum sem upp eru komnar vegna útboðsins. Skipa-
tækni, sem sá um útboðið og hefur metið tilboðin, undir-
býr málssókn á hendur fulltrúa þess aðila sem telur sig
hafa boðið lægst. Fyrirtækið Islux, sem lagði fram tilboð
í ferjuna fyrir hönd tævanska aðilans, bíður eftir skriflegu
svari um tilboðin. Skipanefndin mun koma saman í næstu
viku og fjalla sérstaklega um bréf íslux. í fyrradag ákváðu
forráðamenn Skipatækni að undirbúa málshöfðun á hend-
ur Islux fyrir það sem þeir telja ærumeiðandi ummæli.
Gústaf H. Hermannsson, forráðamaður íslux, hefur ekki
sætt sig við meðferð málsins og hefur ritað bréf þar að lút-
andi. Gústaf segist engu hafa að leyna og þakkar fyrir tæki-
færið sem gefist með málssókninni. Þá muni málavextir
allir verða heyrumkunnir.
RAGNAR ARNALDS
FORMAÐUR: Mennta-
málaráðherra hefur skipað
í stjórn Kvikmyndasjóðs ís-
lands til næstu þriggja ára.
Formaður stjórnar sjóðsins
er Ragnar Arnalds alþingis-
maður en aðrir stjórnar-
menn eru: Lárus Ýmir Ósk-
arsson, tilnefndur af Félagi
kvikmyndargerðarmanna,
Hrafn Gunnlaugsson til-
nefndur af Sambandi ís-
lenskra kvikmyndafram-
leiðenda, Friðbert Pálsson tilnefndur af Félagi kvikmynda-
húsaeigenda og Edda Þórarinsdóttir tiinefnd af Bandalagi
íslenskra listamanna. Varaformaður stjórnar er Þórunn J.
Hafstein deildarstjóri.
BANKIKAUPIR BANKA: Bankastjórnir Búnaðarbank-
ans og Landsbankans hafa undirritað samning um kaup
Búnaðarbankans á útibúi Samvinnubankans á Akranesi.
Gert er ráð fyrir þetta komi til framkvæmda 17. desember.
Steingrímur Hermannsson um hugsanlegt þingrof:
Verð að sjá ffyrir
ákveðnar forsendur
„Ég verð að sjá fyrir því
einhverjar ákveðnar for-
sendur að rjúfa þing,“
sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráð-
herra við Alþýðublaðið
þegar hann var spurður
um hvort hugsanlega yrði
rofið þing nú í desember
og kosningar boðaðar í
febrúar. Ymsir innan
stjórnarflokkanna virðast
þeirra skoðunar að það sé
heppilegast nú þegar
haustþingi lýkur og fjár-
lög hafa verið afgreidd.
Jón Sigurðsson, ráðherra
Alþýðuflokkksins, vildi ekki
gera mikið úr hugsaniegu
þingrofi en sagði að það væri
stórfrétt ef þeir sem væru að
fást við pólitík hefðu ekki
hugleitt og rætt þann mögu-
leika. „Alþýðuflokkurinn er
tilbúinn í kosningar hvenær
sem er,“ bætti hann við.
Forsætisráðherra sagði í til-
efni af afstöðu Sjálfstæðis-
flokksins til bráðabirgðalag-
anna: „Það er vitanlega al-
veg ljóst að þessi óábyrga af-
staða sem kemur fram hjá
Sjálfstæðisflokknum gefur
mönnum „blod pá tanden" ef
það má orða það þannig. Ég
skil það. Hins vegar tel ég það
hverri ríkisstjórn til vegsauka
að sitja út kjörtímabilið þegar
hún getur það án þess að
nokkur stóráföll verði.“
Kosningaþing hafa oft þótt
erfið og efnahagsmál oft farið
úr böndunum þar sem stjórn-
málaflokkar hafa veigrað sér
við að grípa til óvinsælla að-
gerða þótt þær kunni að vera
nauðsynlegar. Auk þess
reyna stjórnarflokkar gjarn-
an við. slíkar aðstæður að
sýna séjrstöðu sína en stjórn-
arandstaðan fer, eðlilega, í
builandi stjórnarandstöðu.
Hvort slíkar forsendur rétt-
lættu stjórnarslit hafði, for-
sætisráðherra eftirfarandi að
segja: „Ég held satt að segja
að stjórnarandstaðan hafi
fengið svo á baukinn núna að
þeir hljóti að gæta sín betur
það sem eftir er þingsins."
LEIDARINN Í DAG
Stafar lýðræðinu hætta af afþreyingu? spyr Alþýðu-
blaðið í leiðara dagsins. Blaðið gerir að umtalsefni sí-
auknar sjónvarpssendingar á undanförnum árum;
innlendar jafnt sem gervihnattasendingar. Blaðið
bendir á hættuna sem felst í miklu vinnuálagi og inn-
antómri afþreyingu á víxl; blanda sem getur skekkt
dómgreind manna og frumkvæði og gert þá að and-
legum þiggjendum í víðustu merkingu.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4; STAFAR LÝÐRÆÐINU
HÆTTA AF AFÞREYINGU?
RITSTJORN % 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR 0 681866