Alþýðublaðið - 08.12.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 8. desember 1990
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
Tveir góðir SS-arar með birkireykt hangikjötslæri, eitt hinna
síðustu sem verður reykjavikurreykt, Guðjón Guðjónsson,
markaðsfuiltrúi og Leifur Þórsson verksmiðjustjóri.
SLÁTURFÉLAGIÐ FLYTUR AUSTUR: nú líður senn
að því að Sláturfélag Suðurlands flytji austur á Hvols-
völl. Þá Iýkur starfsemi félagsins við Skúlagötuna í Reykja-
vík, en þar hefur verið umsvifamikil matvælaframleiðsla
í 83 ár. Reykofnarnir við Skúiagötu eru því með síðasta
jólahangikjötið sem unnið verður í höfuðborginni. SS stát-
ar af birkireyktu hangikjöti, sem viðskiptavinir kunna vel
að meta. Hver maður hefur sinn smekk í þessu efni og ríkj-
andi eru hefðir í fjölskyldum, hangikjötið verður að vera
þetta eina rétta, jól eftir jól, annað gengur varla, allt sam-
kvæmt hefðinni.
Myndin er frá skólalokum og sjást hér fulltrúar fyrirtækj-
anna átta, verkefnisstjórinn lengst til vinstri, þá Sigurður
Benediktsson í Klaka sf., Þorkell Jónsson í Samey, Sigurður
Garðarsson í Vogum hf., Óskar Hallgrímsson i Silfurlaxi hf,
Tryggvi Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri í Össuri hf.,
Reynir Hugason í Aries hf., Kristján Valdimarsson í Fínull hf.
og Jón Stefánsson í Miklalax hf.
FYRIRTÆKI RIFJA UPP STAFRÓF MARKAÐS-
SETNINGAR: Starfsmenn átta fyrirtækja hafa setið á
skólabekk allt frá því í desember í fyrra. Með reglubundnu
millibili hafa þeir farið yfir það sem kallað er á fagmanna-
máli „stafróf markaðssetningarinnar". Útflutningsráð
hleypti þessu verkefni af stokkunum og hlaut verkefnið
nafnið Útflutningsaukning og hagvöxtur. Markaðsskóli Is-
lands, Samvinnustofnun Útflutningsráðs og Stjórnunarfé-
lag íslands sáu framkvæmdina, en Iðnlánasjóður fjár-
magnaði. Verkefnisstjóri var Haukur Björnsson. Fyrir-
tækin átta eru lítil og meðalstór, öll með útflutningshæfa
vöru eða þjónustu. Sérstaka viðurkenningu fyrir vel unna
áætlun fékk fyrirtækið Össur hf. en það er stoðtækjaverk-
smiðja. Leggur það fyrirtæki megináherslu á tvær vöru-
tegundir sem það hefur þróað, sílíkón-hulsur til nota milli
stúfs og gervilims og gerviökkla.
ÍSLENSKIR VÍKINGAR ÓSKAST: Á næsta ári verður
Leifs Eiríkssonar minnst á verðugan hátt með siglingu vík-
ingaskips frá Noregi til Vínlands, það er að segja Banda-
ríkjanna. Áhöfnin verður skipuð Norðmönnum og íslend-
ingum, en af einhverjum óskiljanlegum orsökum vilja
Norðmenn eigna sér hlutdeild í Leifi. En hvað sem því líður
þá eiga þeir frumkvæði að þessari siglingu en bjóða íslend-
ingum að vera með í áhöfninni- og það er laust pláss fyrir
okkar fulltrúa. Farkosturinn verður eftirlíking Gaukstaða-
skipsins. Látið verður úr höfn frá Bergen á þjóðhátíðardegi
Norðmanna þann 17. maí og siglt til Reykjavíkur við við-
komu i Orkneyjum, Hjaltlandseyjum og Færeyjum og tek-
ur sú sigling um einn mánuð. Frá Reykjavík verður síðan
haldið til Grænlands og þaðan áfram til Nýfundnalands,
Halifax, Boston og New York, en til Washington verður
komið 9. október, sem er dagur Leifs Eiríkssonar í Banda-
ríkjunum. Á öllum viðkomustöðum verður ýmislegt til há-
tíðabrigða.
JÓLATRÉ í HAFNARFIRÐI: í dag verður mikið um
dýrðir í miðbæ Hafnarfjarðar því klukkan 14 verður kveikt
á jólatré frá vinabæ Hafnarfjarðar í Danmörku, Frederiks-
berg. Athöfnin fer fram á Thorsplani þar sem fulltrúi frá
danska sendiráðinu mun afhenda tréð. ingvar Viktorsson
formaður bæjarráðs flytur ávarp og séra Sigurður Helgi
Guðmundsson flytur hugvekju. Karlakórinn Þrestir tekur
lagið. Að þessu loknu verður bæjarbúum boðið uppá kaffi
og skemmtun í íþróttahúsinu við Strandgötu. í Alftafelli
verður sýndt nýtt myndband „Bærinn í hrauninu" af stór-
um skermi. í Hafnarborg verða flutt nokkur tónlistaratriði
kl. 15,30, en þar stendur nú yfir myndlistarsýning Stein-
þórs Marinós Gunnarssonar og Sigrúnar Steinþórsdóttur
og að sjálfsögðu er kaffistofan opin.
Jólahlaðborð
á islenska visu
— en reynt aö hafa þaö sem danskast
Jólin nálgast og veit-
ingahúsin keppast við að
bjóða almenningi sérstök
jólahlaðborð. Sumir staðir
auglýsa „danskt“-borð en
aðrir eru á alþjóðlegum
nótum, þó að augljóst sé að
veitingahúsamenn þekkja
það danska.
1 Verðið á jólahlaðborðinu
er á bilinu 1395 kr. og upp í
1600 kr. í hádeginu. Boðið er
upp á kalda og heita rétti og
allt að 50 krásir á borðum. Al-
þýðublaðið kannaði verð á
höfuðborgarsvæðinu og á
þeirri landsbyggð, sem er
sunnan við Straum. Það er
rétt fyrir fólk að kanna hvaða
„Vil
leyfa
öðrum
að
spreyta
sig"
Skíöaskálinn býður
upp á feröir í Hvera-
dali á jólaföstunni
í Skíðaskálanum í Hvera-
dölum hvílir Carl Johansen
veitingamaður sig á hlað-
borðinu í jólamánuðinum,
sem annars er allan ársins
hring á sunnudögum. „Ég vil
leyfa öðrum að spreyta sig,“
segir Cari. Það er greiðfært
upp í Hveradali og mikið
pantað. Boðið er upp á ferðir
með hópa fram og til baka og
tvö glös af jólaöli á 1000 kr.
Carl vonast til að veturinn nú
verði betri en í fyrra. Þá varð
hann að hætta við 16 árshá-
tíðir. Nú skýst fólk á 20 mínút-
um úr höfuðborginni.
afsláttur er veittur ef fjöl-
skyldan fer öll út að borða.
Börn njóta sums staðar nokk-
urra fríðinda.
í Skandinavíu var jólaborð
upphaflega á borðum stór-
bænda. Þeir vildu skera sig
úr. Það er fyrst á allra síðustu
árum að fólk fór út að borða
til að snæða af „jólahlað-
borði.“ Hingað berst þessi
liefð frá Norðurlöndum.
JÓLAHLADBORÐ
Verð Sér Hvenær
Naustið hd./kv.1.490 kr. Hefðbundið Alla daga
Óðinsvé hd. 1.590 kr. kv. 1.890 kr. „Danskt" Alla daga
Hótel Saga hd. 1.400 kr. kv. 1.800 kr. Hefðbundið Hefðbundið Alla daga Alla daga
Loftleiðir hd. 1.395 kr. Hefðbundið Alla daga
Holiday Inn hd./kv. 1.573 kr. Hefðbundið Alla daga
Glóðin, Keflavík hd./kv. 1.600 kr. Hefðbundið Alla daga
Gunnlaugur Helgason fréttamaður rennir fránum augum yfir glæsilegt jólahlaðborð á Hótel Sögu.
A-mynd: E.ÓI.
Greidslur í fœðingarorlofi:
Jafnréttis gætt á islandi
Á íslandi er fæðingar-
orlof fjórða lengst í Evr-
ópu. Svíar eru á toppi og
Norðurlönd raða sér í
efstu sæti. Fæðingar-
styrkur og dagpeningar
í fæðingarorlofi eru
greidd í hálft ár á Islandi
og eru í dag 53.300 kr. að
meðaltali.
Það er aðeins á íslandi og
Englandi sem greiðslur í
fæðingarorlofi eru föst upp-
hæð. Alls staðar annars
staðar eru þær hlutfall af
launum. Það fer því eftir
launum viðkomandi
hversu háar greiðslurnar
eru. Hér hefur það þótt
FÆ ÐINGA RORLOF
jafnréttismál að allar konur
sætu við sama borð.
Svíþjóð 52 vikur 90% Eins og fram kemur í töfl-
Finnland 47 vikur 80% unni raða Norðurlöndin sér
Danmörk 28 vikur 90% í efstu sætin. Aðeins Sví-
ísland 26 vikur 53.300 kr. þjóð, Finnland og Dan-
Noregur Ítalía 24 vikur 100% mörk greiða fæðingarorlof
22 vikur 80% í lengri tíma. Þingkonur
England 18 vikur 36.500 kr. Kvennalista hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um að
Holland 16 vikur 100% lengja fæðingarorlofið úr 6
Lúxemborg 16 vikur 100% í 7 mánuði strax, í 8 mánuði
Frakkland 16 vikur 84% að ári og í 9 mánuöi frá 1.
(V)Þýskaland 14 vikur 100% janúar 1992. Málið er ekki
Belgía 14 vikur 80% • fullrætt á þingi en talið er
Spánn Irland 14 vikur 75% að það kosti ríkið um 200
14 vikur 70% milljónir að lengja orlofið
Grikkland Portúgal 14 vikur 13 vikur 50% 100% um hvern mánuð.