Alþýðublaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 11
Laugardagur 22. desember 1990
11
Ungur tölvuspilari prófar IMintendo-
-tölvuspil í Tölvudeild Magna.
Tölvuspilin eru heillandi í augum barnanna og ekki sakar aö fá aö spreyta sig á einu i Tölvulandi.
A-myndir: H.ÓI.
Ekki lengur kerti og spil í jólapökkunum:
Tölvujól barncmna
ar þátttöku og reyndu oft á við-
bragðsflýti og kunnáttu.
Tölvulandsmenn sýndu okkur
líka leiktæki sem er tengt við sjón-
varpstæki. Það kostar 18.900
krónur og er með 160 leikjum inn-
byggðum, sem að sjálfsögðu spar-
ar mikið í kaupum á sérstökum
leikjum. Tveir stýripinnar fylgja
og er því bæði hægt að spila við
tölvuna eða þá að tveir keppa sín
á milli. Með öllu þessu leikjaúrvali
mega blessuð börnin eflaust
þakka fyrir að fá að komast ein-
stöku sinnum að fyrir leikgleði for-
eldranna, eða afa og ömmu. Opin-
berlega er þetta tæki hins vegar
vinsælast hjá aldursflokknum sex
til tólf ára. Þá eru lítil tölvuspil
með einföldum leikjum mjög vin-
sæl meðal barna og kosta þau frá
1300 krónum.
EiHhvqð fyrir alla___________
Hjá Tölvudeild Magna á Lauga-
veginum hafði afgreiðslufólk í
nógu að snúast ekki síður en í
Tölvulandi. Viðskiptavinir á öllum
aldri tóku fram pakka með tölvu-
leikjum og grandskoðuðu eins og
neftóbaksmenn í fornbókaversl-
unum handfjalla eftirsóttar
skruddur. Sölumenn Magna sögðu
mikla sölu vera í tölvuleikjunum,
sem væru til í miklu úrvali, og
þarna ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Verðið er
nokkuð breytilegt eftir þeim teg-
undum tölva sem leikirnir eru
gerðir fyrir, eða frá 3.500 krónum
upp í um 7 þúsund.
Nintendo-tölvutæki, sem tengt
er við sjónvarpstæki, er mjög vin-
sælt. Það kostar 13.900 krónur og
fylgja þá tveir leikir, leikjabyssa og
tveir stýripinnar. Einstakir leikir
kosta síðan frá um 2.500 krónum
og allt upp í um 5 þúsund. Einnig
selur Tölvudeild Magna tölvuleik-
tæki sem hægt er að halda á og er
það með sérstökum skjá, en leik-
kortum er stungið í tækið. Þetta
leiktæki kostar 23.900 krónur.
Mjúku pakkarnir_________________
í gegnum tíðina hafa mjúkir
pakkar notið takmarkaðra vin-
sælda hjá börnum. Slíkir pakkar
innihalda jafnan fatnað af ein-
hverju tagi, jafnvel útprjónaða ull-
arvettlinga frá langömmu. Mjúku
pakkarnir með nytsömu innihaldi
þykja sem sagt ekki eins spenn-
andi og þessir hörðu. Fram á síð-
ustu ár hafa þeir hörðu gefið vonir
um leikföng af ýmsu tagi, dúkkur
fyrir stelpur og bíla fyrir stráka.
(Ætli þessi setning verði ekki
kærð fyrir Jafnréttisráði?) Nú, eða
þá skemmtilegar ævintýra- eða
sögubækur, svo dæmi séu nefnd.
Hörðu pakkarnir á jólum nútím-
ans innihalda hins vegar oftar en
ekki tölvuleiki af ýmsu tagi.
Tölvujólin eru staðreynd hvort
sem mönnum líkar betur eða verr.
Spila við tölvuna eða
félagann___________________
Við spurðum þá í Tölvulandi
hvort hægt væri að mæla með
tölvuleikjum sem heppilegum
gjöfum. Hvort börn og unglingar
eyddu ekki nú þegar nógum tíma
fyrir framan sjónvarpið. Þeir
bentu á, að hér væri um tvennt
Einar S. Einarsson i Tölvulandi með sýnishorn af þeim tölvuleikjum sem eru í boði.
Það er hætt við gróti og gnistran tanna ef jóla-
pakki nútimabarnsins reyndist innihalda kerti og
spil. En ef i Ijós kæmi TV GAME COMPATIBLE, NIN-
TENDO eða LYNX yrði annað uppi ó teningnum og
gleðin allsróðandi. Tölvutæki, tölvuleikir og tölvu-
spil eru þau leikföng sem börn ffrú sex óra aldri virð-
ast sækjast mest eftir nú á timum. Þá leikur sterkur
grunur á að margir feður velji leikföng af þessu tagi
til að gefa börnunum i jólagjöf með það i huga að
njóta góðs af sjálfir. Fólk á öllum aldri hefur heillast
af tölvuleikjum og i sumum tilvikum hefur þeHa
gengið út i þær öfgar að menn hafa orðið helteknir
tölvufikn og þurf t á h jálp að halda til að losna undan
áþján fiknarinnar.
SÆMUNDUR GUÐVINSSON SKRIFAR
Tölvuleikir i úrvali____________
Tölvur eru nú til á fjölda heimila
og notaðar i ýmsum tilgangi eins
og gefur að skilja. Sumir færa
heimilisbókhaldið inn á tölvu
meðan aðrir nota þær til að tölvu-
væða ættir sínar og þannig mætti
lengi telja. En þeir eru líka ófáir
sem nota tölvurnar meira og
minna sér og sínum til skemmtun-
ar og dægrastyttingar. Og þar
komum við að tölvuleikjunum
sem er að finna í æ fleiri jólapökk-
um barnanna.
Við fórum og kynntum okkur
úrvalið á tölvusviðinu í nokkrum
verslunum í Reykjavík. í Tölvu-
landi við Hlemm gaf að líta geysi-
mikið og fjölbreytt úrval tölvu-
leikja sem hægt er að nota í allar
algengar gerðir tölva. Má þar
nefna flughermi, golfhermi og
leynilögregluleiki, svo fátt eitt sé
nefnt. Strákarnir í Tölvulandi
sögðu að sífellt væru að koma full-
komnari leikir á markaðinn og
grafíktækni notuð í æ ríkari mæli.
Leikirnir seljast grimmt og ekki
síst til jólagjafa. Nýir leikir í
PC-tölvur, svo dæmi sé tekið, kosta
frá um fimm þúsund krónum og
allt upp í tíu þúsund. Auk þeirra
leikja sem áður hafa verið nefndir
má geta um fullkomin bridge- og
skákforrit.
ólíkt að ræða. Annars vegar að
sitja fyrir framan skjáinn aðgerða-
laus og láta mata sig á því efni sem
þar væri á dagskrá hverju sinni.
Hins vegar að taka þátt í skemmti-
legum leikjum sem krefjast virkr-