Alþýðublaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 13
Laugardagur 29. desember 1990
13
Framundan er .nýtt ár, bundið vonum og óskum. Hvað mun það bera í skauti? Stjörnuspekingur Alþýdublaðsins hefur
rýnt inn í nánustu framtíd, og leidir okkur í sannleikann um hvers er aö vænta á komandi ári, 1991.
HRÚTURINN
1. mars — 20. apríl
1991 verður ár breytinganna.
Fas þitt mun breytast á flestum
sviðum — og yfirleitt á betri
veg. Rómantíkin endurnýjast,
og það mun einnig koma öðr-
um hliðum lífs þíns að gagni.
Langtímaáætlanir þínar í sam-
bandi við vinnuna byr'a nú að
skila árangri. Gott sumarfrí
leiðir til mikilvægrar vináttu.
Afkoma þín verður ögn verri
en í ár.
NAUTIÐ
1. apríl — 21. maí
Nýja árið hefst á uppsveiflu.
Síðan þróast hlutir jafnara en á
viðunandi hátt. Tímabundin
vonbrigði í ástalífinu taka þó
hamingjusamlega stefnu.
Vinnan er óvenju ögrandi, en
misstu ekki af tækifærinu.
Sumafríið verður endurfundir
við gamlar slóðir. Fjárhagur
þinn er í lagi, en meiri háttar
áhættur verðurðu að forðast.
TVÍBURARNIR
2. maí — 21. júní
Nú verðurðu að taka til hend-
inni og hrinda áætlunum í
framkvæmd, sem lengi hefur
staðið til. Kærleikurinn verður
þó að fá að hafa sinn gang. Þar
vinnur tíminn með þér. Þér
gengur vel í vinnunni en þú
verður að sýna úthald. Sumar-
fríið verður dásamlegt svo það
er ástæða til að fara að leggja
fyrir. Fjármál þín verða að
mestu í lagi.
KRABBINN.
2. júní — 22. júlí
Það verða vissir erfiðleikar í
upphafi árs, en þú getur hlakk-
að til ársins ef þú lítur til þess í
heild. Skilyrði í ástalífi eru hag-
stæð og það verður leikið á
nýjum og óþekktum nótum.
Líklega hefur þú of háleitar
hugmyndir um vinnuna, þann-
ig að þú munt verða fyrir tölu-
verðum vonbrigðum að öllu
óbreyttu. En tíminn mun leiða
í ljós að tækifærin eru fram
undan. Sumarfríið verður allt
öðru vísi en þú átt von á. Fjár-
hagur þinn verður í blóma.
UÓNIÐ
3. júlí — 23. ágúst
Vonir þínar rætast ein af ann-
arri á árinu. Fá vandamál og
blómstrandi mannlíf einkenna
líf þitt fram undan — meira að
segja rómantíkin bankar að
dyrum. Vinnan verður nokk-
urn veginn á þeim nótum sem
þú hefur hugsað þér. En þú
verður að grípa ákveðið tæki-
færi miklu fyrr en þú hyggur.
Þá mun flest heppnast. Sumar-
fríinu eyðir þú að þekktum og
kærum stað. Afkoma þín verð-
ur ekki jafngóð 1991 og hún er
í ár.
MEYJAN
3. ágúst — 22. sept.
Nú er um að gera að grípa
tækifærin sem þú hélst að gæf-
ust ekki á nýju ári. Ástalífið
blómstrar ekki síst á síðasta
ársfjórðungi. Mikils verður
krafist af þér í vinnunni, og þú
bregst ekki. Fjárhagurinn
verður í góðu lagi, svo er
ströngu eftirliti með útgjöidum
fyrir að þakka.
SPORÐDRE KINN
4. okt. — 23. nóv.
Dásamlegt ár er fram undan.
Glæstir tímar og þeir erfiðleik-
ar sem verða á vegi þínum
styrkja þig. Unaðsfundir á
sumri munu gleðja óskaplega.
í lok árs mun árangur erfiðis
þíns í vinnunni koma i Ijós.
Óvænt sumarfrí verður upphaf
að öðru og meira og stofnar til
nýs kunningsskapar. Afkoma
þín verður svipuð og á fyrra
ári.
BOGMAÐURINN
4. nóv. — 21. des.
Líf þitt mun verða að mestu
leyti á sömu brautum á næsta
ári og 1990. Hamingja fylgir
þér á tilfinningasviði og engin
kollstökk. Fremur tíðindalítið í
vinnunni, en í svipuðum dúr
og þú hafðir hugsað þér. Sum-
arfrísins muntu lengi minnast,
því að þá verður gaman. Af-
koma þín verður stöðugt betri
á árinu.
VOGIN
3. sept. — 23. okt.
Þú ert ekki sáttur við lífið og
tilveruna í upphafi árs, en brátt
mun rofa til og þér mun farnast
vel. Þú verður fyrir töluverð-
um vonbrigðum á tilfinninga-
sviðinu, en annað og betra tek-
ur við. í vinnunni skaltu hafa
frumkvæði að yfirveguðu
máli. Þá muntu komast áfram.
Sumarfríið verður að vera á
lágum nótum peningalega, en
það verður eitthvað það dá-
samlegasta sem þú hefur átt.
Aö öðru leyti verður afkoma
þín fremur knöpp, en þér tekst
að sigla skútunni út árið á hag-
sýninni.
STEINGEITIN
2. des. — 20. jan.
Tilbreytingaríkt ár — er það
ekki það sem þú kýst? Og bjart-
ara framundan í ástalífinu.
Vertu ekki of bráður að skipta
um vinnu — tækifærin koma
síðar á árinu. Þú ákveður sum-
arfríið seint en þér dettur
nokkuð stórkostlegt í hug.
Fjárhagurinn verður í lagi,
ekki síst vegna þess að þú fell-
ur frá fáránlegri hugmynd.
VATNSBERINN
1. jan. — 18. febr.
Margt gerist jákvætt á árinu,
enda verður það í þínum huga
í betra lagi. Ekki síst fellur þú
fyrir þeirri/þeim heittelsk-
uðu/heittelskaða og láttu það
ekki ganga þér úr greipum. Þú
verður að leggja þig verulega
fram í vinnunni, en þú hefur
líka reiknað með því. Sumarfrí-
ið verður algjör afslöppun, og
þér tekst að safna kröftum. Af-
koman verður sveiflukennd,
en nokkru betri en á fyrra ári.
FISKARNIR
19. feb. — 20. mars
Uppfinningasemi fiskanna
hjálpar þér að aðlagast breytt-
um aðstæðum á árinu. Erfið-
ieikar gera vart við sig á kær-
leiksheimilinu, en þér tekst að
leysa úr þeim á skynsamlegan
hátt. Árangur í vinnunni lætur
ekki á sér standa, þökk sé því
að þú leggur þig fram og ekki
sakar smáheppni. Þú færð
góða hugmynd í sumarfríinu
sem þú hrindir síðar í fram-
kvæmd. Fjárhagur þinn verð-
ur nokkuð knappur.