Alþýðublaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 14. febrúar 1985 'RITSTJORNARGREIN' Súpan á undan aðalréttinum? Komið hefur í Ijós að hið rýra plagg sem ríkis- stjórnin sendi frá sér á dögunum og vildi kalla efnahagsúrræði, en var Ktið annað en almenn- ar vangaveltur um allt og ekkert, var aðeins undanfari þess sem koma skal; lafþunn súpan á undan aðalréttinum. í sjónvarpinu á þriðju- dagskvöld birtist forsætisráðherra glaðbeittur með leyniskjöl upp á vasann; 25 atriði af ýms- um toga, tímasett upp ádag — framkvæmda- áætlun ríkisstjórnarinnar. Að visu er plagg Steingríms aðeins hans eigið hugarfóstur, því enginn annar hefur fengið að berja það augum. Albert Guðmundsson fjármálaráðherra, sem sat við hlið Steingríms í sjónvarpssal þetta sama kvöld, vissi ekkert um tilvist þessarar áætlunargerðar Steingríms og fékk ekkert um hana að vita, fremur en alþjóð. Fjármálaráðherravarhins vegarí þeirri sælu trú að efnahagsúrræðin sem hann og Stein- grímur kynntu í síðustu viku, ættu að þýða eitt- hvað. Hann fyrtist við, þegar blaðamenn spuróu hann í nefndum sjónvarpsþætti, hvort þessi svoköliuðu úrræði væru ekki neyðarlega rýr ( roðinu eftir langa meðgöngu á stjórnar- heimilinu. Albert kvað það ósatt vera. í úrræð- unum væri að finna fjöldann allan af markmið- um. Og víst er það satt hjá fjármálaráðherra að ríkisstjórnin hefur nú sem fyrr sett sér ýmis markmið. Sannleikurinn er hins vegar sá að fæst þessara markmiða hafa náóst fram. Ekk- ert hefur orðið úr loforðum. Raunverulegar framkvæmdir hafa gleymst. Svo er þaö hitt, að þótt stjórnarflokkarnir geti í einhverjum atriðum komið sér saman um al- menn markmið, þá er togstreitan milli þeirra slik, að engin leið er að ná málum á skrið. Það er ekkert vandamál fyrir ríkisstjórnir að lýsa því yfir að það beri að draga úr viðskiptahalla, stefna beri að því að fyllafjárlagagatið, það eigi að reynaaðdragaúrerlendum skuldum, það sé brýnt að ná til skattsvikara og að eitthvað verði að gera í húsnæðismálunum. Þegar nánar er spurt um aðferðir og leiðir að þessum mark- miðum, þá verður lítið um svör. Ósamlyndið á stjórnarheimilinu er t. a. m. augljóst á sviöi húsnæðismálanna. Alþýðuflokksmenn hafa lagt til að stóreignamenn verði sérstaklega skattlagðir og það fjármagn sem þannig fæst verði fært til húsnæðislánakerfisins. Þetta tóku síðan framsóknarmenn undir. En Sjálf- stæðisflokkurinn sagði þvert nei. Kemur ekki til greina. Málinu var stungið undir stól hjá rík- isstjórninni. Alþýðuflokksmenn hafa bent á fleiri leiðir sem fara má til að leysa vandamál húsbyggj- endaog íbúðarkaupenda. Þaðervitanlegaeng- in lausn fyrir fólk, þótt fjármagn sé flutt af ein- um stað áannan innan húsnæðislánakerfisins eins og ríkisstjórnin leggur til. Þannig er að- eins verið að veltavandamálum einsyfiráann- an. Alþýðuflokkurinn hefur hins vegar lagt til að skattleggja megi bankana og nota hagnað Seðlabankans til húsnæðismálanna. Sömu- ieiðis hefur Alþýðuflokkurinn sagt að ekki gangi að verðtryggja lán í landinu á sama tíma og launin eru fryst. Þettaviðhorf tóku bæði for- sætisráðherra og fjármálaráðherra undir í sjónvarpinu á þriðjudag og lofuðu bót og betr- un. Fróðlegt verður að fylgjast með efndum. í annan stað hafa alþýðuflokksmenn lagt til að á meðan vísitalan mælir stórhækkaða greiðslubyrði af lánum, en launin sitja föst, þá beri að færa þann mismun sem þar liggur aftur fyrir lánin og lengja þau sem því nemur. Með öðrum orðum að greiðslubyrði fólks aukist ekki umfram kaupmátt í iandinu. Þettaviðhorf jafnaðarmanna tóku þeir einnig undir, Albert og Steingrímur í sjónvarpinu í fyrrakvöld. Hvort eitthvað verði gert af hálfu ríkisstjórnarinnar í þeim efnum, á svo eftir að koma í Ijós. Aðalatriði málsins er það, að núverandi ríkis- stjórn hefur lofað hinu og þessu, sagt hitt og þetta, lýst háleitum markmiðum hér og þar, en þegar til kastanna kemur hefur allt veriö við það sama; vandamálin látin hrannast upp. i —GÁS. Kristín ur orðið, mjög óskynsamlega og uð það geli haft alvarlegar afleiðingar fyrir Alþýðuflokkinn, út á við og inn á við, að enibœtti fratn- k vœmdastjóra A Iþýðitflokksins sku/i verða lagt niður með þeim hœtti sem það er gert. Ég er einnig þeirrar skoðunar, að hér sé um að rœða aðför af hendi flokksformannsins gagnvart mér persónulega, sem jafnframt beinist gegn kvennasamtökum flokksins, sem ég er formaður fyrir og er i órofa samhengi við þá átreið og vantraust, sem við alþýðuflokks- konur urðum fyrir á síðasta flokks- þingi, er kosið var til flokksstjórn- ar. Ég harma það sem gerst hefur og vísa allri ábyrgð á því á hendur þeim, sem að þessari ákvörðun standa. Ég er þeirrar skoðunar, að fram- kvœmdastjórnin hafihérog nú vik- ið mér að ósekju fyrirvaralaust úr starfi. Fari svo, að leitað verði eftir upplýsingum frá mér um það sem gerst hefur, áskil ég mér því allan rétt til að veita þær og birta þá þessa bókun, ef til kenntr. Kristín Guðmundsdóttir. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. • Deildarstjóri mælastöðvar í innlagnadeild Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Rafmagns-tæknifræði eða verkfræðimenntun áskilin. • Rafmagnseftirlitsmaður í innlagnadeild Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Iðnfræðingsmenntun áskilin. Upplýsingar veitir starfsmannastjóri R. R. í síma 686222. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um- sóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 föstu- daginn 22. febrúar 1985. Örorkubœtur 1 44,4% hærri ellilífeyri en konurnar og mismunurinn því nokkuð meiri en frá var sagt í gær. Þessar upplýsingar komu sem fyrr segir fram í svari fjármálaráð- herra við fyrirspurn Jóhönnu Sig- urðardóttur um lífeyrisgreiðslur úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Fyrirspurnin var flutt í tengslum við beiðni þingmanna Alþýðuflokks og Bandalags jafnaðarmanna um skýrslu frá fjármálaráðherra um heildarendurskoðun lífeyrismála, þar sem Jóhanna er fyrsti flutnings- maður. í greinargerð með þeirri beiðni kemur meðal annars fram að stjórnskipaðar nefndir hafi nú starfað að því að semja tillögur um nýskipan lífeyrismála í rúmlega 8 ár. Þótt áfangar hafi náðst þá sé ekki fyrirsjáanlegt samfellt lífeyris- kerfi fyrir alla landsmenn. í ljósi ítarlegra athugana og því hversu líf- eyrisnefnd hefur starfað þykir flutningsmönnum tímabært að fjármálaráðherra flytji skýrslu um störf nefndarinnar, svo og um hvaða áform séu uppi um nýskipan lífeyrismála hér á landi. Ekki síst í ljósi þess að i hvert sinn sem tillögur og frumvörp um þessi mál eru flutt þá er vísað til þessarar endurskoð- unar nefndanna og þvi aldrei tíma- bært að gera nokkuð fyrr en að þessu starfi loknu. llar myndu allár upplýsingar um ástandið í þessum málum safnast saman á' einn stað og því gætu stjórnrríalamennirnir fengið stöð- una einsog hún er í dag og séð hver vandinn er. „í framhaldi af því von- umst við svo til að stjórnmála- mennirnir grípi til einhverra úr- ræða, sem leysa muni vandann“ Búist er við örtröð eftir helgina? „Já, ef dæma á af þeim við- brögðum, sem þegar hafa orðið, en hér hefur síminn ekki þagnað alla vikuna, má búast við að fjöldi manns muni leita til okkar eftir helgina" Norræna félagið kynn- ir lýðháskólanám arinnar fylgir hér með en kynningin er öllum opin og þátttaka ókeypis. Lýðháskólar kynntir Laugardaginn 16. febrúar efnir Reykjavíkurdeild Norræna félags- ins til kynningar á lýðháskólum á Norðurlöndum. Kynningin fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 15:00. Fjallað verður um námsbrautir og námstil- högun og sagt frá námskostnaöi og styrkmöguleikum. Sérstaklega verður rætt um námsmat og tengsl- in við framhaldsskólakerfið ís- lenska. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Síminn FELAGSSTARF ALÞÝÐUFLOKKSINS Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verð- ur haldinn fimmtudaginn 14. febrúar 1985 kl. 20.30 ( Félagsmiðstöð Jafnaðarmanna, Hverfisgötu 8—10. Fundarefni: Venjulega aðalfundarstörf. Stjórnin. Jú. Grétar kvað það rétt vera og það yrði eitt af hlutverkum Ráð- gjafaþjónustunnar. Sagði hann að Húsnæðisstofnun eða ráðuneyti myndi ganga í það að tala við bank- ana fyrir fólkið og semja við kröfu- hafana. Þó sagði hann að ekki væri enn búið að tala við bankana, en að það yrði gert. „Þetta er ekkert sem gengur greiðlega fyrir sig en við munum gera okkar besta til að greiða úr vanda hvers og eins.“ Þá sagði Grétar að þessi ráð- gjafaþjónusta væri ekki eingöngu hugsuð fyrir þá sem eiga nú þegar í greiðsluvandræðum, hún væri ekki síður ætluð þeim, sem væru að huga að íbúðarkaupum um þessar mundir. Einnig sagði hann að niðurstöð- ur úr vinnu Ráðgjafaþjónustunnar gætu orðið ráðgefandi fyrir stjórn- málamenn um hvernig hægt væri að taka á vandanum, því hjá þeim Lýðháskólahreyfingin á Norður- löndum er öflug fræðslu- og félags- málahreyfing, sem stendur á göml- um merg. Lýðháskólar í þessum löndum eru fjölmargir og bjóða upp á fjölbreytt nám á öllum svið- um. Auk hefðbundins alhliða bók- náms bjóða lýðháskólarnir marg- víslegar aðrar námsbrautir t. d. á sviði handmennta, listiðnaðar, tungumálanáms, fjölmiðlunar- náms auk lengri og skemmri nám- skeiða um tiltekin efni. Þá eru meðal lýðháskólanna ýmsir sér- hæfðir skólar s. s. fyrir hreyfihaml- aða og heyrnarskerta svo dæmi séu nefnd. Lýðháskólar eru ætlaðir öllu fólki 18 ára og eldri og engar sér- stakar kröfur eru gerðar til undir- búningsmenntunar. Á hverju ári fara allmargir ís- lendingar til náms í lýðháskólum á Norðurlöndum og öðlast fyrir milligöngu Norræna félagsins fjár- styrk til námsins. Reykjavíkurdeild Norræna félagsins hefur ákveðið að efna til kynningar á lýðháskóla- námi á Norðurlöndum í samvinnu við skrifstofu Norræna félagsins. Kynningin fer fram í Norræna hús- inu n. k. laugardag, 16. febrúar og hefst kl. 15:00. Dagsdkrá kynning- Sendum okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins mins og föður okkar Sigurgeirs Kristjánssonar Mýrargötu 10 með minningargjöfum og blómum. Sérstakar þakkir færum við Slippfélaginu hf., og starfsfólki þess. Og þökkum öllum þeim fjölda sem vottuðu minningu hans virðingu með nærveru sinni við jarðaför hans 8. febrúar sl. Guð blessi ykkur öll. Pernilla M. Olsen og börn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.