Alþýðublaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 14. febrúar 1985 3 Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboð- um í að framleiða pg afhenda greinibrunna fyrir Hita- veitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík gegn kr. 3.000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 19. febrúar nk. kl. 14. e. h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Hádegisjass á Loftleiðum Við íslendingar höfunr alltaf ver- ið söngelsk þjóð eins og merkja má af þeim fjölda fólks sem er í kórum um allt land og sækir söngskemmt- anir. Ljtið hefur samt borið á því að fram á sjónarsviðið hafi komið söngflokkar, sem leggja fyrir sig Iéttari sönglist eingöngu, hvað þá jasstónlist. Margt kenrur til í þeim efnúm, tímaleysi þeirra sem hæfi- leika hafa, skortur á tækifærum til þess að koma fram opinberlega og margt fleira. Það útheimtir mikla vinnu og samvinnuanda að koma saman góðum fimm manna söngflokki, og er ekki alltaf erindi sem erfiði í þeim efnum. En einn slíkur flokkur virðist hafa yfirstigið vandamálin og kemur nú fram á sjónarsviðið í fyrsta sinn um helgina. Þetta eru 3 stúlkur og 2 piltar, sem nefna sig SEDRÓ FIMM. Nafngrftin er svo- iítið sérstök, en hún er samsetning úr fyrstu stöfum nafna meðli- manna, Sigurbjörg, Elfa, Dagbjört, Ragnar og Ómar. Þrjú þeirra eru í kirkjukórum, einn er starfandi hljóðfæraleikari og tvær af dömunum eru í söng- námi. Annar piltanna kemur fram í uppfærslu á Carmen í óperunni um þessar mundir, svo söngmenntunin er í góðu lagi. Lagavalið er takmarkað ennþá, enda liggur margra vikna vinna á bak við hverja útsetningu þar til hún er talin boðleg til flutnings. Það sem fyrir Iiggur eru útsetningar ættaðar frá Sergio Mendes, Man- hattan Transfer og Pointer Sisters, og fleira er í deiglunni. SEDRÓ FIMM koma fram í há- degisjassi í Blómasal Hótels Loft- Jafnréttisráð: Kynferði ekki rök fyrir lágum launum Jafnréttisráð samþykkti eftirfar- andi samhljóða á fundi sínum þann 11. febrúar 1985: „Kjarasamningur háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna er nú til umfjöllunar hjá Kjaradómi. í greinargerð fjármálaráðherra fyrir dóminum eru m. a. þau rök notuð til að réttlæta lægri laun há- skólamenntaðra ríkisstarfsmanna að konur eru hlutfallslega fleiri í þeim hópi, en í því úrtaki sem notað Amnesty: Pyntingar er hægt að stöðva! — 5.—9. febrúar 1980: Lækna- ráð ríkisins í Brasilíu sakar yfir- mann læknisfræðistofnunarinnar í Sao Paolo, dr. Shibata, um að gefa út tvö fölsk vottorð þess efnis að einn fangi hafi svipt sig lífi og um að annar hafi ekki verið pyntaður. Dr. Shibata var tekinn af læknaskrá í október sama ár. — 13. febrúar 1981: José Arregui Izaquirre, þrítugur Baski, deyr í einangrunarvarðhaldi lögreglunnar í Madrid á Spáni. Líkskoðun leiðir í Ijós að hann hafi verið illa pyntað- ur. Við réttarhöld þann 29. nóv. 1983 eru tveir lögregluforingjar sýknaðir af því að vera valdir að dauða hans. — 5. febrúar 1982: Neil Aggett, leiða sunnudaginn 17. febrúar. Undirleik hjá þeim annast Kvintett Friðriks Theódórssonar þannig, að hér gefst tækifæri til þess að heyra 10 manna flokk flytja mjög skemmtilega tónlist við allra hæfi. HEILBRICÐISEFTIRLIT REYKI AVl K U RSVÆÐIS ^ Heilbrigðisfulltrúi Staða heilbrigðísfulltrúa við Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkursvæðis er laus til umsöknar. Staðan veitist frá 1. mars 1985. Lauh samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Um menntun, réttindi og skyldur fer samkvæmt reglugerð nr. 150/1983 ásamt síðari breytingum. Umsækjendur skulu hafa lokið háskölaprófi í heil- brigöiseftirliti eða hafa sambærilega menntun. Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist formanni svæðisnefndar Reykjavíkur- svæðis (borgarlækninum I Reykjavík) fyrir 25. febrúar nk., en hann ásamt framkvæmdastjóra heilbrigðiseftir- lits veitir nánari upplýsingar. Borgarlæknirinn i Reykjavik. var til samanburðar um kjör há- skólamanna á almennum vinnu- markaði í könnun Hagstofu ís- lands. Jafnréttisráð telur fráleitt að nota kynferði sem rök fyrir lágum launum, enda ber samkvæmt 2. gr. laga nr. 78/1976 um jafnrétti kvenna og karla að greiða jöfn laun fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf án tillits til kynferðis. Það er þvi brot á jafnréttislögum ef kyn- ferði er látið hafa áhrif á laun“ sem var hvítur starfsmaður verka- lýðsfélags blökkumanna, finnst hengdur í klefa sínum í aðalstöðv- um lögreglunnar í Jóhannesarborg í Suður—Afríku samkvæmt heimildum öryggislögreglunnar þar. Aggett hafði sagst hafa verið pyntaður, og styður framburður annarra fanga sem fram kom við rannsókn málsins þær staðhæfing- ar. — Spánn og Suður—Afríka eru í hópi að minnsta kosti 98 ríkja þar sem pyntingar hafa verið stundaðar af stjórnvöldum eða látnar við- gangast á síðustu árum. Nú stendur yfir alþjóðlegt átak Amnesty International gegn pyntingum und- ir kjörorðinu Pyntingar er hægt að stöðva! SERSTOKLAIM VEGNA GREIÐSLUERFIÐLEIKA Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að settur verði á stofn nýr lánaflokkur með það markmið, að veita húsbyggjendum og íbúðarkaupendum lán vegna greiðsluerfiðleika. í framhaldi af þvi er Húsnæðisstofnun rfkisins að láta útbúa sérstök umsóknareyðublöð, sem verða tii afhendingar frá og með 19. febrúar 1985 f stofnuninni og verða þá jafnframt póstlögð til lánastofnana og sveitarstjórnarskrifstofa til afhendingar þar. Umsóknir skuiu hafa boríst tyrír 1. júní 1985. Þeir einir eru lánshæfir sem fengið hafa lán úr Byggingarsjóði rfkisins á tfmabilinu frá l.janúar 1980 til 31. desember 1984 til að byggja eða kaupa íbúð f fyrsta sinn. Tímamörkskulu miðuð við lánveitingu en ekki hvenær lán er hafið. RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA Jafnhliða stofnun þessa lánaflokks hefur verið ákveðið, að setja á fót ráðgjafaþjónustu við þá húsbyggjendur og íbúðarkaupendur, sem eiga í greiðsluerfiðleikum, og mun hún hefja störf 19. febrúar næstkomandi. Sfmaþjónusta þessarar ráðgjafaþjónustu verður f sfma 28500 á milli kl. 8.00 og 10.00 f.h. alla virka daga. Að öðru leyti vfsast til fréttatilkynningar Húsnæðis- stofnunarinnar, sem send hefur verið fjölmiðlum. Húsnæðisstofnun ríkisins

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.