Alþýðublaðið - 20.02.1985, Side 2
2
Miðvikudagur 20. febrúar 1985
— RITSTJÓRNARGREIN . .....................
Hinn vitlausi flokkur
Er þingmaðurinn dr. Gunnar G. Schram i vit-
lausum flokki? Þannig spyr Bjarni Pálsson,
fyrrverandi skólastjóri að Núpi. Bjarni skrifar
kjallaragrein í DV og tekur þar til umfjöllunar
tvær blaðagreinar þingmannsins.
Bjarni vitnar f eina af greinum dr. Gunnars
um vanda húsbyggjenda. Þar segir þingmaöur-
inn:
„Eftir að verðtrygging launa var afnumin í
júní 1983, en henni haldið á húsnæðislánum,
hefur greióslubyrði húsbyggjenda aukist svo
verulega aö f algert óefni er komið“.
Sfðar í grein Gunnars segir: „Þessi þróun
hefur leitt til þess að mikill fjöldi ungs fólks er
að kikna undan hinni gífurlegu greiðslubyrði
og stendurframmi fyrirþví að missaeignirsín-
ar á nauðungaruppboði".
Þettasegir Bjarni Pálsson að sé harður dómur
um stjórnarstefnuna. Spurningin er: Á þing-
maðurinn sjálfur nokkra sök? Ef hann væri ein-
lægur hefðu þessar tilvitnuðu greinar trúlega
hafist á þessa leió: „Eftirað ég og félagar minir
í þingflokkum stjórnarinnar afnámum verö-
tryggingu launa í júní 1983, en héidum henni á
húsnæðislánum..o. s. frv. Og að mati Bjarna
hefði síðari greinin getað byrjað eitthvað á
þessa leíð: „Þessar aðgerðir okkar félaga hafa
leitt til þess að mikill fjöldi ungs fólks er að
kíkna undan hinni glfurlegu greiðslubyrói ...“
o. s. frv.
Um þetta tvöfalda siðgæði dr. Gunnars segir
Bjarni Pálsson: „Nei takk. Þingmaðurinn vill
vera stikkfrí og reynir aö læða þvf að fólki að
þarna hafi verið um einhvers konar óumflýjan-
lega þróun að ræða. Framkvæmd markvissrar
og ómannúðlegrar stefnu kallar hann þróunl!
Að lokum telur dr. Gunnar að það sé sanngirn-
is- og réttlætismál að leysa vanda þeirra þús-
unda húsbyggjenda sem hann sjálfur átti sinn
þátt í að skapa þeim. Skilji nú hver sem betur
má“.
Auk þess vill dr. Gunnar gera róttækar skipu-
lagsbreytingar á iandbúnaðarmálum, hverfa
frá útflutningsbótum, niðurgreiðslum og jarð-
ræktarstyrkjum. Hann imprar meira að segja á
því að gera fjárhagslega endurskipulagningu á
sjávarútvegi. Um þetta segir Bjarni Pálsson:
„Skoðum nú málin í Ijósi reynslunnar. Hvern-
ig hyggst þingmaóurinn koma þessum breyt-
ingum í kring? Og nú kemur svolftið skrýtið í
Ijós, sem hvorki ég né aðrir sem skrif hans lesa
getum áttað okkur á. Fjárlög voru nefnilega af-
greidd fyrir um það bil tveim mánuðum og þá
virðist hafa verið eitthvert sambandsleysí milli
handleggs og heila. Þá samþykkti þingmaður-
inn að ieggja á launamenn 1.700 milljóna króna
tekjuskatt til þess m. a. að greiða um 1.300
millj. kr. í útflutningsbætur, niðurgreiðslur og
jarðræktarstyrki. Er manninum sjálfrátt?“.
Mergurinn málsins er sá, að sögn Bjarna
Pálssonar, að fólk féll f þá ófyrirgefanlegu
gildru að treysta þingmanninum og hans sam-
starfsliói á sínum tíma. Doktorinn fyllti nefni-
iega flokk þess fólks sem hratt húsbyggjend-
um fram af bjargbrúninni fyrir hálfu öðru ári.
Nú, segir Bjarni, er hann orðinn hræddur við af-
leiðingarnar, kannski styttist í kosningarog þá
er eins gott að hafa allt á hreinu. Allt bendir til
þess, samkvæmt síöustu skoðanakönnunum,
að skuldararnir muni fá sparkið.
Lokaorö BjarnaPálssonarsegjaí raun allt það
sem segja þarf: „Ef dr. Gunnar G. Schram hefur
tekið pólitískum sinnaskiptum frá því um sfð-
ustu áramót þá á hann ekki lengur heima f
Sjálfstæðisflokknum“. Og síðar: „Það er þvf
einlæg von mín að þíngmaðurinn sjáí að sér,
lagi sambandið milli hugarog handarog sam-
einist þeirri fjöldahreyfingu sem fylkir sér nú
að baki formanns Alþýðuflokksins. Þar gefst
honum tækifæri til þess að leggja sitt af mörk-
um til að efla viðgang jafnaðarmanna. Á þeim
vettvangi getur hann stuðiað aó betra og rétt-
látara þjóðfélagi á ísiandi og hvergi annars
staðar“. FÞG.
Miklar 1
orrustuflugvélar að gerðinni F-15
Eagle, í stað 12 F-4E Phantom, sem
nú eru þar.
Nú er verið að byggja níu Styrkt
flugskýli á Keflavíkurflugvelli og
verður þeim Iokið fyrir komu F-15
vélanna.
Einnig er áætlað að byggja
styrkta stjórnstöð á Keflavíkurflug-
velli, til að stjórna bæði kafbáta-
hernaði og loftvörnum ásamt
björgunarsveitum. Er hér um að
ræða gluggalausa byggingu, sem að
mestu Ieyti er ofanjarðar.
A Keflavíkurflugvelli er gert ráð
fyrir ýmsum öðrum byggingar-
framkvæmdum á vegum hersins,
sem allar tengjast því að styrkja
stöðina fyrir Ioftvarnir. Þá er ógetið
flughafnarinnar, sem þegar er hafin
framkvæmd á.
Að lokum er fyrirhugað að end-
urnýja þær tvær ratsjárstöðvar, sem
staðsettar eru hér, á Stokksnesi og
Miðnesheiði og setja upp tvær nýj-
ar ratsjárstöðvar, aðra á Vestfjörð-
um og hina á Norðausturlandi, fáist
heimild íslenskra stjórnvalda til
þess.
Áætlaður kostnaður við þessar
framkvæmdir, ef ratsjárstöðvarnar
eru undanskildar, er um 11 millj-
arðir íslenskra króna.
Alþýðublaðið mun greina nánar
frá skýrslu Gunnars Gunnarssonar
á næstunni.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Aðalfundur
Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur
var haldinn fimmtudaginn 14. febrúar sl. í Félagsmið-
stöð jafnaðarmanna v/Hverfisgötu/ Ingólfsstræti.
Á fundinum var kosin ný stjórn Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur. í henni eru eftirtaldir: Formaður: Vilhelm
Júlíusson, Ásta Benediktsdóttir, Fríða Hjálmarsdóttir,
Anna Kristbjörnsdóttir, Kristin Arnalds, Tómas Waage,
Magnús Marísson, Árni Stefánsson, og Halldór Jóns-
son.
Spilakvöld í Firðinum
Spilin verða tekin fram hjá Alþýðuflokknum í
Hafnarfirði næstkomandi fimmtudag, 21. febrúar
kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu. Spiluð
verður hefðbundin félagsvist.
Sigurvegarar fá vegleg verðlaun. Einnig er þetta
síðasta umferð í þriggja kvölda keppni. Fyrir
hæstaskorsamanlagt verðasvo veitt heildarverð-
laun.
Allirvelkomnir í spennandi og skemmtilegaspila-
mennsku.
Nefndin.
Alþýðuflokksfólk
— Kópavogi
Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna í Kópavogi verð-
ur haldin laugardaginn 23. febrúar nk. í Félags-
heimili Kópavogs.
Salurinn opnaður kl. 19. og er miðaverð kr. 700
aðeins. Heiðursgestur hátíðarinnar verður Gréta
Aðalsteinsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi í Mos-
fellssveit, en veislustjóri Árni Gunnarsson.
Dans — glaumur — gleði — til kl. 3.
Miöapantanir hjá Grétu (44071), Hrafni (43936) og
Hauði (41394).
Mætum öll — létt í lund.
Nefndin.
Þorsteinn 1
milljónir) greiða um það bil helm-
ing eignarskatta einstaklinga, að
hæstu 2% framteljenda eiga
13,4% framtalinna eigna en
greiða aðeins að meðaltali 27,8
þúsund krónur. Að vegna al-
ræmds neðanjarðarkerfis vina
hans eru tekjur faldar, þótt lúxus-
stíll afhjúpi opinberar tölur um'
afkomu fólks og fyrirtækja.
Þorsteinn ver með ráðum og dáð
vini sína sem enga fórn hafa þurft
að færa, sem skammta sér sjálfir
lífskjör og greiða ekki sinn hlut í
sameiginlega sjóði landsmanna,
en lifa í vellystingum og halda
uppi eftirspurn eftir lánsfé og
mikilli einkaneyslu í formi risnu,
bifreiðakaupa, ferðalaga og villu-
bygginga.
Byggung 1
fá staðfestingu á því. Og ekki hafa
þeir heldur haft samband við okkur
núna, heldur les maður fyrst frétt-
ina í Þjóðviljanum um að félagið sé
að fara á hausinn.
Maður vonast hinsvegar til að
þetta komist á hreint sem fyrst"
Að búa heima
Öldrunarráð íslands boðar til
ráðstefnu um málefni þeirra öldr-
uðu borgara sem búa á heimilum
sínum. Ráðstefnan verður haldin
að Hótel Esju (II hæð) föstudaginn
1. mars 1985. Hún hefst kl. 13.00 og
er gert ráð fyrir að henni verði Iokið
kl. 18.00. Að loknum flutningi
stuttra framsöguerinda verður
kaffihlé. Eftir það hefjast umræð-
ur. Gert er ráð fyrir að þátttakendur
greiði fyrir veitingar (kaffi og kök-
ur) kr. 115 við inngang. Ráðstefnu-
stjóri verður formaður Öldrunar-
ráðs Islands, sr. Sigurður Helgi
Guðmundsson. Ráðstefnan er öll-
um opin.
Dagskrá:
1. Kostir og gallar þess frá félags-
og sálfræðilegum sjónarmiðum
að búa heima: Sigurveig Sigurð-
ardóttir félagsráðgjafi.
2. Umhverfi: Guðrún Hafsteins-
dóttir iðjuþjálfi.
3. Fjölskyldu- og félagslíf: Sigríður
Jóhannsdóttir sjúkraliði.
4. Heimilishjálp, umfang, fram-
kvæmd og nýting starfskrafta:
Jónína Pétursdóttir deildar-
stjóri.
5. Heimahjúkrun, umfang, fram-
kvæmd og nýting starfskrafta:
Kolbrún Agústsdóttir hjúkrun-
arframkvæmdastjóri og Marg-
Charlie Chaplin
kvikmyndakvöld
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna mun í febrúarmánuði heiðra
Charlie Chaplin, einn af merkustu
mönnum kvikmyndalistarinnar.
Fimm af helstu kvikmyndum hans
verða sýndar þrjú kvöld. Hrafn
Gunnlaugsson, kvikmyndaleik-
stjóri mun kynna Chaplin og verk
hans við upphaf hverrar sýningar.
Allir eru velkomnir á þessar sýn-
ingar og aðgangur er ókeypis.
Dagskrá:
21. febrúar kl. 20.30 „The Kid“
gerð árið 1921 og „The Gold
Rush“ (Gullæðið) gerð árið
1925.
26. febrúar kl. 20.30 „The
Circus“ gerð árið 1928 og „City
Lights“ (Borgarljós) gerð árið
1931.
28. febrúar kl. 20.30 „Lime-
light“ gerð árið 1952.
rét Þorvarðardóttir heimahjúkr-
unarfræðingur.
6. Dagvist: Guðjón Brjánsson for-
stöðumaður.
7. Nýting fjármagns í samanburði
við aðra þætti öldrunarþjón-
ustu: Sveinn H. Ragnarsson fé-
lagsmálastjóri.
8. Kaffihlé.
9. Umræður.
Ný
Toyota
Toyota kynnir Toyota Corolla
1300. Toyota Corolla 1300 er fram-
leiddur 3 og 5 dyra og fer nú sigur-
för um heiminn.
Toyota Corolla 1300 er knúinn 12
ventla 1300 rúmsentimetra vél sem
skilar meiri krafti og notar minna
bensín en nokkur af samkeppnis-
bílunum. Einnig er vindstuðull
Toyota Corolla 1300 einn sá lægsti í
bílum af þessum stærðarflokk (Cd
0, 34). Toyota Corolla 1300 er hann-
aður til að vera rúmgóður, þægileg-
ur, sparneytinn og kraftmikill. Bíll-
inn er búinn ýmsum þægindum sem
ekki eru algeng í bílum af þessari
stærð.
Toyota Corolla hefur einnig upp
á að bjóða 1600 rúmsentimetra 16
ventla GT vél í bíl sem byggður er
frá grunni til að vera sportbíll og á
sér enga keppinauta í verði.
Hver einstök Corolla er fram-
leidd undir mjög ströngu eftirliti í
verksmiðju Toyota. í framleiðsl-
unni eru notuð ýmis háþróuð efni
og aðferðir til að gera Toyota
Corolla að þeim smábíl sem stendur
fremstur í fíokki gæða. Allir Toyota
bílar eru framleiddir í einum full-
komnustu bílaverksmiðjum í heim-
inum. Eftir framleiðslu þurfa bíl-
arnir að standast alls kyns prófanir
og þolraunir. Er þetta gert til að
tryggja gæði allra Toyota bíla.
Laugardaginn 16. og sunnudag-
inn 17. febrúar var Toyota Corolla
1300 kynntur hér á landi. Haldin
var sýning í bílasal Toyota að Ný-
býlavegi 8, Kópavogi. Yfir 1.500
manns kom á sýninguna.
Mikil sala var strax enda bíllinn á
mjög góðu verði, eða frá kr.
307.000,,