Alþýðublaðið - 21.02.1985, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 21. febrúar 1985
RITSTJÓRNARGREIN
fiska metið
Til fárra
rlotinn er sigldur í höfn. Bundinn viö land-
festar. Þeir róa ekki í bráð. Þeir eru í verkfalli.
Það er dýr hver dagurinn, sem fiskur berst ekki
á land, hjá þjóð sem byggir lífsafkomu sina á
fiskveiðum. Ersvo komið fyrir íslendingum, aó
þeir þurfi að læra lexíuna sína upp á nýtt? Að
svo lengi sem þeir róa ekki, verður ekki lifað í
landinu? Kannski er sú lexía nokkurra fiska
virði?
Islenskt efnahagslif ereinföld jafna: Afli + verð
á erlendum mörkuðum = þjóðartekjur íslend-
inga. Tekjursjómanna byggjast áaflahlut, fisk-
verði og kauptryggingu. Fiskverð er ákveðið af
nefnd, sem að lokum iýtur forsögn rikisstjórn-
ar. Sú staöreynd, að verulegur hluti aflans, sem
næst inn fyrir borðstokkinn, kemur ekki til
hlutaskiptatil sjómannafheldurfertil útgerðar
til að standa undir okurverði á olíu), — sú stað-
reynd ræöst af lagaseíningu. Kjör sjómanna
ráðast því ekki nemaað litlu leyti við samninga-
borðið.
Hvað segja staðreyndirnar um kjör sjó-
manna? Ef tekjur sjómanna, skv. heimild Þjóð-
hagsstofnunar, eru bornar saman við tekjur
verkamanna, kemur á daginn að sl. ár hafa sjó-
menn orðið fyrir meiri kjaraskerðingu en nokk-
ur önnur starfsstétt.
Ef tekjur verkamanna 1984 eru settar á 100,
þáeru tekjur bátasjómanna83,2: og meðaltekj-
ur sjómanna miðað við allar veiðar 95,2.
Það er rétt að minna landkrabba á, að á bak
við tekjur sjómanna er minnst 12 tíma vinna á
sólarhring — oftast reyndar mun meiri. Sjó-
mennska við strendur íslands að vetrarlagi er
ekki heiglum hent. Þetta er erfiðasta og kald-
samasta starf, sem stundað er frá þessari
veiðistöð. En þrátt fyrir strit og vosbúð ná þeir
ekki lengur sama hlut og í landi. Hvers vegna
þá aö róa?
Hvers vegna hefur hlutur sjómanna minnkað
sl. 3 ár? Vegna þess að árið 1984 var skv. kvóta-
kerfi aðeins heimilt að veiða um 56% af þvi
sem veitt var á árinu 1981 af þorski. Sjómenn á
botnfiskveiðum urðu því fyrir stórfelldri kjara-
skerðingu á árunum 1983 og 1984. Þar að áuki
hefur núv. stjórnarmeirihluti á Alþingi ákveðið
með lögum, að takaæ stærri hlut út fyrir hiuta-
skiptin, til þess að standa undir okurverði á
olíu. M. ö. o., sjómenn hafa orðið skv. lögum að
borga niður útgerðarkostnaðinn af sínum afla-
hlut.
n vað sýnist mönnum að sé hæfilegur launa-
munur milli stétta og starfshópa í þessari ver-
stöð? Fer það að nokkru eftir mati manna á
áreynslu, vinnutíma, vosbúð, áhættu, lífs-
hættu? Kjaradómur telur að hæfilegur launa-
munur sé 1:5. Fái fiskverkunarkonan 14 þús. i
sinn hlut, dæmist rétt vera að toppembættis-
maður fái 64 þús.
Þegareinkageirinn ertekinn með í reikning-
inn, er launamunur orðinn a.m.k. 130.
Hver ætti þá að vera hlutur sjómanna? Er
kjaradómurum ekki Ijóst, aðrói þeirekki verður
hlutur embættismannsins harla rýr? Fái emb-
ættismaður50 þús. fyrir pappírsstúss sitt í hlý-
legri skrifstofu, sýnist ekki ósanngjarnt að sjó-
maðurinn á Halanum fái 100 þús. Það er 1:2. Þá
gæti líka embættismaðurinn skipt á starfi við
sjómanninn, í nafni þeirrar kenningar, að mark-
aðslaunin laði til sín hæfasta fólkið.
Islenzkir sjómenn eru einvalalið. Þeir eru
blómi íslenzkra karlmanna, hinir eiginlegu
landvarnarmenn þessarar þjóðar. Spurningin
er: Til hve margra fiska skal hlutur þeirra met-
inn — af okkur hinum, sem byggjum afkomu •
okkar á striti þeirra?
- JBH.
Um greiðslur sjúklinga
Svo minnkum við veltuna enn meira og mœlum svo stresseinkennin aftur
eftir klukkutíma.
Tryggingarstofnun hefur sent
frá sér eftirfarandi túlkun á
reglugerð um greiðslur sjúkl-
inga utan sjúkrahúsa:
Með reglugerð nr. 436/1984, sem
gildi tók 1. des. sl., urðu nokkrar
breytingar á greiðslum sjúklinga
fyrir þjónustu utan sjúkrahúsa.
Nauðsynlegt hefur reynst að
setja fram skýringar við þessa
reglugerð, þannig að hún yrði fram-
kvæmd eins um land allt og hefur
verið haft samráð við landlæknis-
embættið, Tryggingastofnun ríkis-
ins og Læknafélag íslands um það
á hvern hátt reglugerðin verður
framkvæmd.
1. Greiðslur sjúkratryggðra til
samlagslækna.
Sjúkratryggðir greiða, eins og
verið hefur, fyrstu 75 krónur fyr-
ir hvert viðtal á lækningastofu
og fyrstu 110 kr. fyrir hverja vitj-
un læknis til sjúklings, að við-
bættum kr. 30 fyrir ferðakostn-
að.
Þetta gjald er óbreytt frá því sem
verið hefur.
2. Greiðslursjúkratryggðraályfja-
kostnaði.
Samlagsmaður greiðir fyrstu
120 kr. af lyfjum í Lyfjaverðskrá
I og af innlendum sérlyfjum, en
kr. 240 af lyfjum í Lyfjaverðskrá
II.
Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða kr. 50 og kr. 100 fyrir
hverja afgreiðslu lyfja, svo sem
til er vitnað hér að framan.
Með þessu ákvæði eru greiðslur
elli- og örorkulífeyrisþega lækk-
aðar frá því sem áður var, en þá
greiddu þeir helming.
3. Greiðslur sjúkratryggðra á sér-
fræðilæknishjálp, rannsóknum
og röntgengreiningu.
Samlagsmenn skulu greiða kr.
270 fyrir hverja komu til sér-
fræðings, fyrir hverja rannsókn
á rannsóknastofu eða fyrir
hverja röntgengreiningu. Þó má
aldrei krefja sjúkling nema um
eina greiðslu fyrir hverja komu
og skiptir ekki máli hve margar
tegundir rannsókna ásamt við-
tali er um að ræða.
Fari sjúklingur í franthaldi af
komu til sérfræðings í aðgerð og
svæfingu, greiðir hann engan
hlut af aðgerðarkostnaði, en
greiðir fyrstu 270 kr. af þóknun
svæfingalæknis. Sama máli
gegnir ef sérfræðingur visar til
annars sérfræðings; þá greiðir
sjúklingur að nýju kr. 270.
Fyrir þá sérfræðiþjónustu sem
hér um ræðir, greiða elli- og ör-
orkulífeyrisþegar kr. 100 í hvert
skipti, fyrstu 12 aðskilin skipti
árlega, en eftir það ekkert.
Hér eru því greiðslur elli- og
örorkulífeyrisþega lækkaðar frá
því sem áður var, því þá greiddu
þeir helming kostnaðar.
Elli- og örorkulífeyrisþegar eiga
því, eins og aðrir, að fá kvittun
fyrir greiðslum sínum og ef þess-
ir lífeyrisþegar leggja fram kvitt-
anir fyrir 12 greiðslum, fá þeir
yfirlýsingu sjúkrasamlags um að
þeir eigi ekki að greiða fyrir
þessa þjónustu út það almanaks-
ár.
4. Á rannsóknarstofu eða röntgen-
deild þarf sjúklingur aldrei að
greiða fyrir einnota vörur eða
lyf; sá kostnaður er innifalinn í
heildargjaldi.
5. Hjá heimilislækni og sérfræð-
ingi þarf sjúklingur að greiða
fyrir einnota vörur, sem notaðar
eru vegna sjúklings sjálfs og
hann fer með burt með sér, svo
sem lyf og umbúðir.
Sjúklingur á hins vegar ekki að
greiða fyrir einnota vörur sem
eru rekstrarvara, svo sem spraut-
ur, nálar, hnífar, pinnsettur,
sloppar, lök, hlífðarskór og annað
þ. u. I.
6. Á rcikningi læknis eða stofnun-
ar, sem krefur samlag um fulla
greiðslu, þarf að koma fram frá
hvaða lækni eða stofnun sjúkl-
ingur kom.
Kristján 1
rædd á Alþingi, og hann hefði ekki
heyrt betur en að hver einasti mað-
ur, sem tók til máls, jafnt þingmenn
sem ráðherrar, hefðu lýst því yfir að
bæta yrði kjör kennara. „Vissulega
fóru umræðurnar út í gamla góða
karpið á tímabili, en það var ekki
annað að heyra á ræðumönnum, en
að þeir væru sammála um að bæta
yrði kjör okkar.
Sjómenn 1
upp á tæplega 3,3 milljarða kr.
Miðað við 41,6% væri hlutur sjó-
mannaaf þessu 1361 milljón kr., en
hins vegar tæplega 1540 milljónir
miðað við 47% hlutfall og mismun-
urinn því um 180 milljónir kr. Á
sama tímabili hefur hlutfall veiða-
færakostnaðar farið minnkandi á
togurunum úr 8% í tæplega 7% og
hjá bátum úr 12% í tæplega 10%.
Olíukostnaðurinn hefur aftur á
móti farið úr 31% árið 1983 í
25—26% 1984—1985, hjá togur-
um, en úr 18% hjá bátum 1983 í
rúmlega 15% miðað við óniður-
greidda olíu og 2% samdrátt í sókn.
Auk minnkandi aflahlutar hefur
aflasamdráttur komið hart niður á
sjómönnum og í samanburði við
landverkafólk hafa tekjur sjó-
manna skerst í botnfiskveiðunum
um 21% hjá togarasjómönnunum
frá 1981 og um 16% hjá bátasjó-
mönnum, en minna í öðrum veið-
um.
Sparifé 1
eignum og spurning hlýtur að
vakna hvort að bankarnir hafi
gengið á innlánsfé sparifjáreigenda
til að fjármagna fasteignamyndun
sína, en það er kannski annað mál
og um það fáum við tækifæri til að
fjalla síðar, en þegar það er ljóst að
sparifjáreigendur verða að treysta á
þá ábyrgð fyrir sínum innstæðum,
að eigið fé bankanna sé nokkuð
traust þá er rétt að upplýsa það að
í skýrslu um efnahag og rekstur
bankanna fyrir árið 1982 sem útgef-
in er af Seðlabanka, þá kom fram t.
d. að eigið fé eins viðskiptabankans
að frádregnum fasteignum og
áhöldum var ekkert í árslok 1982 og
að bankinn hafði fjárfest töluvert
umfram eiginfjárstöðu og var var-
anleg fjármyndun í þeim banka
33% umfram eigið fé. Svo var það
um tvo aðra banka þetta árið, að
eiginfjárstaða þeirra var á 0 í árslok
þannig, að full ástæða er vissulega
fyrir því að setja þessu ákveðnar
skorður og tryggingu um ákveðna
eiginfjárstöðu bankanna.
En ég ítreka spurningu mína til
ráðherra: Er það með vitund ríkis-
stjórnarinnar að þessar skuldbind-
ingar eru gerðar?“
Kjartan Jóhannsson tók einnig
til máls og spurði í framhaldi af
þessu hvernig tekist hefði að standa
við það, að yfirdráttur til skamms
tíma færi ekki fram úr innstæðum
bankanna erlendis. Þá sagði hann
að það væri engin raunveruleg end-
urtrygging eða ábyrgð á innstæðum
í öðrum bönkum en ríkisbönkum
heldur en eignir bankanna sjálfra.
Þannig að ef einhver þessara banka
yrði gjaldþrota stæðu eignirnar
ekki undir skuldbindingunum.
Viðskiptaráðherra sagði að sem
betur fer hefði aldrei til slíkrar
stöðu komið, en að hann ætlaði að
gera bragarbót á stöðu tryggingar-
sjóða sparisjóða og fleira er tryggði
betur innstæður manna. Varðandi
eiginfjárstöðu á núll-punkti viður-
kenndi ráðherra að misbrestur
hefði orðið í fyrra og reglum því
breytt.
Lyfjafræði mið-
taugakerfisins
Árið 1970 var gefinn út lítill
bæklingur er nefndist „Ávana- og
fíknilyf og efni“ eftir dr. Þorkel
Jóhannesson.
Bæklingur þessi bætti á sínum
tíma úr brýnni þörf fyrir fróðleik
um ávana- og fíkniefni, og var hann
endurútgefinn 1972 lítið breyttur.
Menntamálaráðuneytið fór þess
á leit við höfundinn að hann endur-
skoðaði bækling þennan og gerði
ítarlegri grein fyrir efninu, og er
niðustaðan þessi bók „Lyfjafræði
miðtaugakerfisins“ sem Mennta-
málaráðuneytið sendir yður hér
með.
Um efni þessarar bókar segir
höfundur í aðfaraorðum sínum m.
a.:
„Texti sá, sem hér birtist á að vera
heimildartexti. Megin áhersla er því
lögð á tvö atriði. Hið fyrra er, að
læknanemar eða aðrir geti með því
að lesa yfir einn eða fleiri kafla
aflað sér grunnþekkingar á því efni
sem um er fjallað.
Síðara atriðið er, að framhalds-
skólanemendur eða aðrir eiga að
geta fundið með hjálp atriðaorða-
skrár samþjappaðar upplýsingar
um tiltekin meginatriði í lyfjafræði
miðtaugakerfisins."
Það er von útgefenda að bók
þessi geti lagt grunninn að skyn-
samlegri umfjöllun um þau víð-
tæku vandamál sem fylgja notkun
og misnotkun ávana- og fíkniefna í
nútímaþjóðfélagi.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Staða yfirsjúkraþjálfara við endurhæfingadeild sjúkra-
hússins er laus til umsóknar.
Æskilegt erað umsækjandi geti hafið störf 1. júní 1985.
Upplýsingar um starfiö veitir Inger Eliasson, yfirsjúkra-
þjálfari í síma 96-22100.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist fram-
kvæmdastjóra sjúkrahússins fyrir 15. apríl 1985.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.