Alþýðublaðið - 28.06.1989, Qupperneq 3
Miðvikudagur 28. júní 1989
3
FRÉTTASKÝRING
Mótmœlin gegn herœfingunum:
Fámennur hópur eða
þeir hugrökkustu?
Herstöðvarsinnar fagna því hversu
fáir tóku þátt — og það gamla geng-
ið. Herstöðvarandstœðingar segja
þátttökuna góða í Ijósiþess að fólkið
átti á hœttu handtöku og dóm.
Heræfingum Varnarliðsins lýkur í dag og þá
væntanlega líka aðgerðum Heimavarnarliðs-
ins. Skiptar skoðanir eru um þátttökuna
og árangurinn af mótmælaaðgerðunum; her-
stöðvarsinnar telja þær sýna að herstöðvar-
andstæðingar séu fámennir, óvirkir og að
mestu sama fólkið og fyrir 15—20 árum. Liðs-
menn heimavarnarliðsins eru hins vegar
ánægðir og ætla að halda ótrauðir áfram.
Aðgerðir þessar gefa til-
efni til að skoða umfang
andstöðunnar við NATO
og Keflavíkurstöði na. í
rannsókn Ólafs Þ. Harðar-
sonar vorið og sumarið
1983 voru 53% aðspurðra
meðmæltir áframhaldandi
veru íslands í NATO, sem
þá samsvaraði um 81.600
manns 20 ára og eldri, 13%
voru andvígir (um 20.000
manns) en 34% höfðu
enga skoðun á þessu (um
52.400 manns).
Yfir 50.000 taldir
andvigir stöðinni
Um leið voru 54% afger-
andi eða frekar hlynntir
Keflavíkurstöðinni, 30%
afgerandi eða frekar and-
vígir henni en 15% töldu
hana ekki skipta máli. At-
hyglisvert þótti að 14%
þeirra sem voru hlynntir
NATO-aðild voru andvígir
stöðinni. Um 13% heildar-
innar eða sem svarar um
20.000 manns voru andvíg-
ir hvoru tveggja. Andstað-
an reyndist sterkust meðal
yngra fólks (24—39 ára),
meðal þeirra sem höfðu
lengstu skólagönguna og
meðal stuðningsmanna Al-
þýðubandalags og Kvenna-
lista.
Ólafur endurtók rann-
sókn sína 1987 og brá þá
svo við að stuðningur við
Keflavíkurstöðina hafði
minnkað úr 54% í 41%,
hlutfall andvígra hafði
aukist lítillega eða úr 30%
í 33%, en hlutfall þeirra
sem töldu stöðina ekki
skipta máli hafði aukist úr
15% í 26%.
Útifundurinn fyrir utan
sendiráð Bandaríkjanna.
Myndin var tekin þegar
fundurinn stóð sem hæst.
Voru um 200 manns á fund-
inum, eins og t.d. Þjóðvilj-
inn segir, eða um 500
manns eins og Soffía Sig-
urðardóttir taldi?
A-mynd/E.ÓI.
Miðað við fólksfjölda á
hverjum tíma hafði stuðn-
ingsmönnum herstöðvar-
innar þá fækkað úr um
83.000 manns i um 66.000
manns, andstæðingum
hafði fjölgað úr um 46.000
í um 53.000 og þeim sem
töldu stöðina ekki skipta
máli hafði fjölgað úr um
23.000 í um 42.000 eða nær
tvöfaldast.
Þessi mikla breyting í átt
að meiri herstöðvarand-
stöðu átti sér auðvitað sín-
ar skýringar. 1987 höfðu
ríkt talsverðar deilur vegna
hvalamálsins, Rain-
bow-málsins og fleiri slíkra
mála. Þessar deilur, eins og
þorskastríðin á sinum
tíma, urðu til þess að vind-
ar tóku að blása, tíma-
bundið, á móti NATO og
herstöðinni. Háværar
kröfur risu upp um endur-
skoðun varnarsamningsins
og upptöku „aronskunn-
ar“ í meira mæli en áður.
Yfir 80.000 á móti
heræfingunum..._________
Og íslendingar eru í
grundvallaratriðum á allt
öðru máli en meginlínan
segir til um hjá NATO.
Drjúgur meirihluti þjóðar-
innar er þannig hlynntur
hugmyndinni um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á
Norðúrlöndunum, drjúgur
meirihluti hefur verið
fylgjandi gjaldtöku af
hernum, friðarhreyfing-
arnar í heiminum eru yfir-
leitt taldar spor í rétta átt
og flest okkar virðast tilbú-
in til að taka varnarsamn-
inginn til alvarlegrar.
endurskoðunar ef hags-
munir okkar og
NATO/Bandaríkjanna
stangast á.
Þegar umræðan um her-
æfingarnar var sem mest í
vor gerði SKÁÍS könnun
fyrir Stöð 2 og kom þá í
ljós að 48,8% voru andvíg-
ir æfingunum, 24,5%
hlynntir þeim, en 26,8%
gáfu ekki ákveðna afstöðu.
Þetta samsvarar því að ná-
lægt 82.000 manns 18 ára
eða eldri hafi verið andvíg-
ir heræfingunum. Að vísu
var þá talað um að æfing-
arnar hæfust á sjálfum
þjóðhátiðardegi íslands og
það jók mikið á and-
stöðuna og má reikna með
að hún hafi minnkað eftir
að dögum var hnikað til og
þátttakendum í æfingun-
um fækkað.
Engu að síður verður
þetta að teljast verulega
hátt hlutfall andstæðinga
heræfinganna, tveir af
hverjum þrentur sem af-
stöðu tóku voru á móti
þeim.
En þótt yfir 80 þúsund
manns hafi verið á móti
æfingunum og yfir 50 þús-
und nranns teljist andvígir
herstöðinni tóku aðeins
60—70 manns þátt í að-
gerðum Heimavarnarliðs-
ins þegar mest var um að
vera og um 200 manns tóku
samkvæmt Þjóðviljanum
þátt í mótmælum í ágætis-
veðri fyrir utan sendiráð
Bandaríkjanna vegna æf-
inganna. Og Alþýðu-
bandalagsfélagið í Reykja-
vík þurfti meira að segja að
hætta við sérstaka ferð
suður á þess vegum vegna
ónógrar þátttöku. Þelta
verður að teljast virkni á
mjög lágu plani.
Hinn pólitiski still
og Birna Þórðar
Sérstaklega í Ijósi þess
að fyrir 15—20 árum og
svo í kringum þorskastríð-
in fengust nokkur þúsund
manns til að fara í Kefla-
víkurgönguna, t.d. 1976,
en þá létu Suðurnesjamenn
sig ekki muna um að loka
beinlínis herstöðinni vegna
herskipa Breta.
Ólafur Þ. Harðarson
taldi i samtali við Alþýðu-
blaðið að ekki væri rétt-
mætt að draga ályktanir
um afstöðuna til varnar-
liðsins út l'rá þátttökunni í
mótmælunum. „Þátttakan
var vissulega ekki mikil, en
það er breytilegt frá einum
tíma til annars hvort menn
eru tilbúnir til að taka þátt
í slikum mótmælaaðgerð-
unt. Þannig má vera að nú
sé ríkjandi allt annar pólit-
ískur still én á síðasta ára-
tug. Það eitt að mótmælin
voru ekki kröftug leiðir
ekki til þeirrar ályktunar
að menn hafi verið sáttir
við þessar æfingar."
Herstöðvarsinnar eru að
vonum ánægðir með hvað
mótmælin voru í raun fá-
menn. Þessa ánægju mátti
sjá tekna saman í Stak-
steinum Morgunblaðsins í
gær: „Það sem vakti sér-
staka athygli í sambandi
við þessi mótmæli var hve
fámenn þau voru og að þar
komu enn einu sinni santan
þeir, sem hafa verið fremst-
ir í baráttunni gegn Banda-
ríkjunum allt frá því að
Víetnamstríðið var háð
fyrir 15 til 20árunr. Bendir
ekkert til þess að þessi hóp-
ur hafi endurnýjast. Þvert
á móti minnkar hann jafnt
og þétt. “
Þetta sjónarhorn var í
raun undirstrikað í ljós-
vakamiðlunum, sem
kepptust við að sýna Birnu
Þórðardóttur kljást við
lögregluþjóna, meðan lítið
sást til annarra.
Fólk sem óttaðist ekki
handtðku og dóm
Liðsmenn Heimavarn-
Að vonum vöktu athygli
framganga Birnu Þórðar-
dó.ttur og harkaleg við-
brögð lögregluþjóna gagn-
vart henni. I fréttum Ijós-
vakamiðlanna sást litið til
annarra. Enda hafa ýmsir
ályktað að mótmælendur
séu fámennur hópur, af-
gangur af stærri hópi sem
mótmælti fyrir 15—20 ár-
um. Mynd/Jim Smart.
arliðsins eru hins vegar
langt í frá óánægðir nteð
þátttökuna. Soffía Sigurð-
ardóttir sagði í samtali við
Alþýðublaðið, aðspurð um
útifundinn, að frásagnir
um að þar hel'ðu aðeins
verið um 200 manns væru
hreinlega rangar. „Ég er
vön slíkum fundum og hef
ekki lagt i vana minn að
Ijúga til um þátttökuna eða
fegra stöðuna. Ég taldi
fólkið á þessum útifundi
fyrir utan sendiráðið og
þar voru um 500 manns.“
Og Soffia var ánægð
með þátttökuna og árang-
urinn af aðgerðunum á
Suðurnesjum. „Okkur
tókst að gera það sem til
stóð. Við sýndunt fram á
umgengnisrétt okkar um
landið og okkur tókst að
sýna frarn á að herliðið
gæti ekki vaðið hér um
með heræfingar, enda
tókst okkur að trufla þess-
ar æfingar talsvert. í heild
áætla ég að um 100 manns
hafi tekið þátt í þessum að-
gerðum Heimavarnarliðs-
ins, í tveimur fjöldaað-
gerðum og í gönguferðum
lítilla hópa. Þetta er góður
árangur, því við verðum að
Iíta til þess, að aðgerðirnar
fóru frarn undir banni sem
átti að framfylgja. Við er-
um að tala um fólk sem var
reiðubúið til að mæta því
að vera handtekið og að
mæta fyrir dóm. Það er
vitaskuld alvarlegt fyrir
fólk að komast 3 sakaskrá,
nú þegar þarf að framvísa
sakavottorði æ oftar,“
sagði Soffía.