Alþýðublaðið - 28.06.1989, Page 7

Alþýðublaðið - 28.06.1989, Page 7
Miðvikudagur 28. júní 1989 7 ÚTLÖND Enginn Lech Walesa i Prag „Tékkóslóvakía stendur í stað. Ekki einu sinni Stalín er gagnrýndur þar. Þetta segir sína sögu um stöðu okkar, 21 ári eftir „vorið íPragT segir Jiri Hajek í viðtali við Arbeiderbladet. Jiri Hajek heimsótti Noreg á dögunum — fyrsta utan- landsferð hans frá árinu 1968. Hann talar reiprennandi norsku, sem hann lærði af norskum samföngum sínum i heimsstyrjöldinni síðari. Hann er 77 ára og hefur þurft að þola kerfisbundnar ofsóknir af Jiri Hajek, sem var utanrikisráð- herra í stjórn Dubceks. yfirvöldum í Tékkóslóvakíu. Hann er reiðubúinn til að lýsa ástandinu í heimalandi sínu og segist ekki vita hvort sér verði refsað þegar hann snýr aftur til Prag. „Það er áríðandi að standa fast á hugsjónum sínum og láta hótanir yfirvalda ekki buga sig. Þeim er alltaf að fjölga í Tékkó- slóvakíu sem láta ekki hræða sig frá því að halda fast í hugsjónir sínar.“ Hajek hefur undanfarin ár ver- ið talsmaður mannréttindasamtak- anna Charta 77, nú hefur annar tekið við. Hann hefur nóg að gera sem formaður í sendinefnd Tékkóslóvakiu i Helsingfors-ráð- inu. „Þrátt fyrir að kommúnista- flokkurinn hafi reynt að kæfa alla gagnrýni er mótmælahreyfingum alltaf að fjölga. Það er erfitt fyrir þær að starfa og þær eru stöðugt undir eftirliti lögreglunnar," segir Hajek. Fyrir nokkrunt vikurn var rithöfundurinn Vaclav Havel handtekinn í Prag ásamt 69 öðr- um meðlimum mannréttindasam- taka. Handtakan fór fram þegar félagarnir höfðu safnast saman og héldu svokallaðan „ólöglegan" fund. Havel hafði nýlega verið lát- inn laus úr fangelsi, eftir að hafa setið inni í átta mánuði fyrir „fjandsamlegar" aðgerðir gegn ríkisstjórninni. Þó þessum mönn- um sé sleppt úr fangelsi fyrr eða síðar sýnir þetta kerfið í Tékkó- slóvakíu. Jiri Hajek segist ekki hafa tölu á öllum þeim handtökum sem hann hefur orðið fyrir síðastliðið 21 ár. Hajek segir haldhæðnislega frá því að einn og sami lögreglumað- urinn hafi „passað“ upp á hann á þessum árum. Upp á síðkastið ekki alveg eins uppáþrengjandi, en yfirvöld hafa yfirsýn yfir ferðir hans og athafnir. Hajek segir pólitískt lýðræði það eina sem geti komið efnahagsmálum landsins i lag. Eins og sakir standa bendir þó ekkert til þess að Milos Jakes, leiðtogi kommúnistaflokksins, hafi slik áform í huga. Það benda allar líkur til þess að baráttan fyrir frjálsari og lýðræðislegri Tékkóslóvakíu verði þungur róður. „Trú mín er nú samt sú, að vilji meirihluta þjóðarinnar beri sigur úr býtum. Eg mun ekki og vil ekki ntissa trúna á framfarir,“ segir Jiri Hajek. (Arbeiderbladet, stytt.) SJÓNVARP Stöö 2 kl. 23.05 NIADURINN FRÁ FANNÁ (The Man from Snowy River) Aðalhlutverk: George Miller, Kirk Douglas, Tom Burlinson, Sjónvarpið kl. 21.40 MÁLALIÐINN (La Bandera) Aðalhlutverk: Jean Gahin, Ro- bert Le Vigan og Annabella Amios. Frönsk bíómynd frá árinu 1939, Sigrid Thornton, Jack Thompson, Larraine Bayly, Tommy Dysart og Bruce Kerr. Gamaldags falleg áströlsk mynd, byggð á sögu um ungan pilt sem verður ástfanginn af dóttur yfir- mannsins. Hestar og náttúra spila stóra rullu í myndinni, sem fær þrjár og hálfa stjörnu. byggð á skáldsögu eftir Pierre Mac Orlan. Leikstjóri Julien Duvivier. Myndin segir frá manni sem framið hefur morð, en gengur til liðs við útlendingadeild Spánarhers og Sjónvarpið kl. 20.30 GRÆNIR FINGUR Tíundi þátturinn um garðrækt í umsjá Hafsteins Hafliðasonar. í þessum þætti verður fjallað um lif- ræna ræktun. Sjónvarpið kl. 20.50 EYJAR ELDGYÐJUNNAR Islands of the Fire Godess) Bresk, vönduð heimildamynd um Hawaii-eyjaklasann, „Eyjar eldgyðjunnar“. liggur leiðin til Norður-Afríku. Þar verður hann ástfanginn, en það er ekki auðvelt fyrir mann sem er eft- irlýstur vegna morðs. 0 S7ÖÐ 2 17.50 Sumarglugg- inn. 16.45 Santa Bar- bara. 17.30 Þráhyggja (Compulsion). 1800 18.45 Táknmáls- fréttir. 18.55 Poppkorn. 1900 19.20 Svarta naðran. 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Grænir fingur (10). Þáttur um garð- rækt. 20.50 Eyjar eldgyðj- unnar. Bresk heim- ildamynd um Hawai eyjaklasann. 21.40 Málaliðinn (La Bandera). Frönsk bíómynd frá árinu 1939. 19.19 19:19. 20.00 Sögurúr Andabæ. 20.30 Falcon Crest. 21.25 Bjarg- vætturinn. 22.15 Sigild hönnun (Design Classics). 22.40 Sögurað handan (Tales from the Darkside). 2300 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Málaliðinn framh. 23.40 Dagskrárlok. 23.05 Maðurinn frá Fanná (The Man from Snowy Ftiver). Falleg og vel gerð mynd um ungan dreng og vel taminn hest hans. 00.50 Dagskrárlok.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.