Alþýðublaðið - 28.06.1989, Side 6
6
Miðvikudagur 28. júní 1989
UMRÆÐA
EB OG ÚTHAFSVEIÐAR VIÐ
GUYANA OG V-AFRÍKU
Eins og flestum er nú kunnugt verða íslendingar að
ákveða hvort þeir ganga í Evrópubandalagið eða ekki fyrir
árið 1992. Skoðanakönnun leiddi í Ijós að við erum hlynnt-
ir aðild að bandalaginu. Ég hefi trú á að íslendingar taki
rétta ákvörðun í þessu máli. Við erum greindir, íslending-
ar, og þjóðin er vel menntuð.
Með aðiidinni gætu íslending-
ar vel samið um fiskveiðirétt af
vannýttum fiskistofnum innan
200 mílna lögsögu okkar lands,
svo sem af karfa og kolmunna, til
þess að öðlast hina mikilvægu
fiskmarkaði innan bandalagsins.
Við yrðum einnig að leyfa frjálsa
eignaraðild í viðskiptum og bönk-
um, og frjálsræði í sölu landa og
lóða, svo eitthvað sé nefnt. Þess í
stað gætum við svo stundað við-
skipti í aðildarlöndunum og fjár-
fest á annan hátt, t.d. í stjórnun
úthaf'sfiskveiða við strendur
Spánar og Portúgals með frysti-
togurum, og mannað togarana
með mannskap frá Færeyjum,
Noregi, Spáni og Portúgal, og
fjármagnað veiðarnar með fjár-
framlögum frá aðildarlöndunum.
Færeyingar hafa t.d. sjálfir stund-
að fiskveiðar á fjarlægum mið-
um, svo sem hér áður fyrr við ís-
land og nú við Grænland og víðar.
Þeir stunda sáralitla veiði innan
sinnar lögsögu.
Þaðer ekki svo fráleit hugmynd
að íslendingar stundi í framtíð-
inni fiskveiðar við vesturströnd
Afríku, sem ég held að Færeying-
ar stundi þar nú þegar. Ellegar og
einnig frá Atlantshafsströnd
Guyana í Suður-Ameríku. Á
hvorumtveggja stöðunum til að
metta EB-fiskmarkaðinn.
Greinarhöfundur átti þátt í því
árið 1984 að vekja áhuga á sam-
„Við gætum stundaö viðskipti í aöildarlöndunum og fjárfest á annan
hátt, t.d. í stjórnun úthafsfiskveiða við strendur Spánar og Portúgals,
mannað togarana með mannskap frá Færeyjum, Noregi, Spáni og
Portúgal og fjármagnað veiðarnar með fjárframlögum frá aðildarlönd-
unum,“ segir Páll Hannesson m.a. i grein sinni um hugsanlega aðild
íslands að EB.
Páll Hannesson
skrifar
vinnu í fiskveiðum milli landanna
íslands og Guyana og hafði með
bréfaskriftum milligöngu meðal
áhrifamanna i utanríkismálum í
Guyana og Guyana Fisheries
Limited í höfuðborg landsins,
Georgetown. Erindi þetta var sent
ti utanríkisráðuneytisins til um-
sagnar. Þeim fannst málið áhuga-
vert, en málið féll niður. Var þetta
hugsað sem helmingaviðskipti um
fiskveiðar landanna við strendur
Guyana. Málið var líka rætt við
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóra Landssambands
íslenskra útvegsmanna, en ekkert
gerðist í málinu. Ég vil hér með
endurvekja þetta mál, þeim til
umhugsunar er áhuga hafa á út-
hafsveiðum íslendinga, þar sem
nú þegar hefur verið stofnað
hlutafélag til kaupa á skipi til fisk-
veiða við strendur Alaska.
Ókeypis jass
í Djúpinu
Annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, verður jassunnendum
boðið upp á eyrnakonfekt í
Djúpinu. Fram koma Friðrik
Karlsson, gítar, ReynirSig-
urðsson, víbrafón, Richard
Korn, kontrabassa, og Maar-
ten Van Der Valk á trommur.
Tónleikarnir hefjast klukkan
21.30 Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill meðan húsrúm
leyfir.
Flóra íslands
Eyþór Einarsson, for-
stöðumaður Náttúrufræði-
stofnunar íslands, talar um
flóru íslands á opnu húsi í
Norræna húsinu nk. fimmtu-
dagskvöld 29. júní kl. 20.30.
Fyrirlesturinn verður haldinn
á dönsku. Með fyrirlestrinum
sýnir Eyþór litskyggnur af ís-
lenskum plöntum. Eftir stutt
kaffihlé verður sýnd kvik-
myndin „Sveitin milli sanda“
með norsku tali.
Fyrirlesturinn er liður í
sumardagskrá Norræna
hússins, sem hefur verið
fastur liður I starfsemi húss-
ins allt frá árinu 1979. Flún er
einkum sett saman með tilliti
til norrænna ferðamanna og
flutt á einhverju norðurlanda-
málanna.
Aðgangur er ókeypisog eru
allir velkomnir.
Sumarsýningar
í Norræna
húsinu
17. júní voru opnaöar tvær
sýningar I Norræna húsinu.
Sýning á málverkum eftir
Jóhann Briem I sýningarsöl-
um. Sýnd eru um 30 málverk
öll í eigu einstaklinga eða
stofnana. Verkin eru máluð á
árunum 1958 til 1982.
Sýningin stendur fram til
24. ágúst og er opin daglega
kl. 14—19.
í andyri hússins var opnuð
sýning kl. 16.00 og nefnist
Jörð úr ægi.
Þessi sýning er haldin í til-
efni af 100 ára afmæli
Náttúrufræðistofnunar ís-
lands. Sýningin lýsir myndun
Surtseyjar og hamförunum í
Heimaey sem eru á margan
hátt táknræn fyrirmyndun ís-
lands.
Sýndir eru helstu sjófuglar
eyjanna og algengar háplönt-
ur. Einnig er lýst landnámi líf-
vera I Surtsey.
Sýningin verður opin fram
til 24. ágúst og opin kl. 9—19
nema sunnudaga frá
kl. 12—19.
5% hækkun
á húsaleigu
Leiga fyrir íbúðarhúsnæði
og atvinnuhúsnæði sem
samkvæmt samningum fylgir
vísitölu húsnæðiskostnaðar
eða breytingum meðallauna
hækkar um 5% frá og með
1. júlí 1989. Reiknast þessi
hækkun á þá leigu sem er í
júní 1989. Leiga helst síðan
óbreytt næstu tvo mánuði,
þ.e. í ágúst og september
1989.
Boðaðar hertar
reglur um
áldósir
Aðgefnu tilefni vill ráðu-
neytið ítreka það að í bráða-
birgðakerfi því sem Endur-
vinnslan h.f. mun koma upp
síðar í sumar mun verða
tekið við samanbrotnum
(beygluðum) áldósum en
síðar meir, er kerfið er komið
í endanlega mynd, munu
veröa gerðar strangari kröfur
um ástand dósanna. Mun
það verða rækilega auglýst
þegar þar að kemur.
Bílaverkstæði
Badda á
Akranesi
Leikför Þjóðleikhússins
með hið vinsæla leikrit Ólafs
Hauks Símonarsonar Bfla-
verkstæði Badda lýkur á
Akranesi á fimmtudaginn.
Þar verður 118. sýning á verk-
inu í Bíóhöllinni og hefst hún
kl. 21. Þessi sýning bættist
við upphaflega áætlun vegna
beiðni Skagamanna.
Bílaverkstæði Badda var
frumsýnt hjá Þjóðleikhúsinu i
október 1987 og var síðan
sýnt 90 sinnum fyrir fullu
húsi á Litla sviðinu síðasta
leikár og aftur 7 sinnum í maí
þetta leikár. Þá var sýningin
valin ásamt Degi vonar á
Norrænu leiklistarhátíðina I
Helsinki I Finnlandi I maí
1988 og sýnd þar tvisvar við
góðar undirtektir. Til stóð að
Bilaverkstæðið færi í leikferð
um landið í fyrra, en af óvið-
ráðanlegum orsökum varð að
fresta þeirri för. En nú er
búið að sýna 18 sinnum á
Vestur-, Norður- og Austur-
landi auk Vestmannaeyja.
Fullt hús hefur verið á
flestum stöðum í leikferðinni.
Fundað um
laxavernd í
Edinborg
Sjötti ársfundur Laxavernd-
unarstofnunarinnar (NASCO)
var haldinn ( Edinborg, Skot-
landi 13.—16. júni síðastlið-
inn. Á fundinum voru sér-
fræðingar og stjórnendur frá
Bandaríkjunum, Kanada,
Grænlandi, íslandi, Fær-
eyjum, Norðurlöndunum og
Sovétríkjunum auk fulltrúa
Efnahagsbandalagsins fyrir
•hönd Bretlandseyja. Stofnun-
in, sem stofnuð var með sátt-
mála árið 1984, hefur að
meginmarkmiði verndun,
ræktun og skynsamlega nýt-
ingu á laxastofnum við
norðanvert Atlantshaf.
Möguleg áhrif laxeldis á
villta laxastofna var aðalmál
sérstakrar ráðstefnu á fund-
inum. Gerð var grein fyrir
vandamálinu í hinum ýmsu
löndum og rætt um ýmsar
aðferðir til að draga úr
þessum áhrifum, m.a. með
stofnun sviljabanka i með-
limalöndunum.
Laxaverndunarstofnuninni
^er skipt í 3 undirnefndir, sem
Ifylgjast með ástandi laxa-
(stofna á viðkomandi umráða-
svæði með aðstoð Alþjóða-
■ hafrannsóknaráðsins (ICES)
i og semja um kvóta á ein-
staka veiðisvæðum. Á
síðasta ári samdi Vestur-
Grænlands-nefndin til þriggja
ára um 800 lesta árlegan
kvóta við vestur-Grænland,
en á þessum fundi samdi
Norðaustur-Atlantshafs-
nefndin um 550 lesta árlegan
kvóta við Færeyjar til næstu
tveggja ára. í þessu sam-
bandi má benda á að veiðar
Færeyinga undanfarin 2 ár
hafa verið 200—300 lestir á
ári.
Ný og aukin
tækni við
talkennslu
Talþjálfunarbúnaður frá
IBM og ísbliss, tjáskiptahug-
búnaður sem auðveldar tal-
og hreyfihömluðum að koma
hugsunum sínum á framfæri,
var meðal þess sem sýnt var
í opnu húsi IBM á íslandi sl.
föstudag. Fjallað var um
notkun tölva við kennslu og
sýndur hugbúnaður og vél-
búnaður fyrir skólakerfið. Fjór-
ir erlendir fyrirlesarar frá há-
skólum í Bandaríkjunum og
Evrópu fluttu erindi um tölvur
og notkun þeirravið kennslu,
auk þess sem Jón Guð-
mundsson, kennari við Hall-
ormsstaðarskóla, og Kristinn
Jónsson, kennari við Mela-
skóla, greindu frá reynslu
sinni og nemendanna af
tölvusamskiptaverkefni IBM
• Krossgátan
n 1 2 hílÉ 3 r 4
5-°l S <í : to ", u r; ■
6 n. 1 □ 7
5 9 * •
10 □ ii
□ 12 V .
13 □ □
Lárétt: 1 hnettir, 5 hæð, 6 vafi,
7 eins, 10 verksmiðjur, 11 fisk,
12 tryllir, 13 veðráttan.
Lóðrétt: 1 róir, 2 reimin, 3 eins,
4 lögmál, 5 nýtt, 7 óþétt, 9
skepnu, 12 plpa.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 egnir, 5 afla, 6 f ló, 7 át,
8 liðugt, 10 er, 11 nær, 12 Kata,
13 tórði.
Lóðrétt: 1 eflir, 2 glóð, 4 réttra,
5 afleit, 7 ágæti, 9 unað, 12 KR.
• Gengtö
Gengisskráning nr. 119 — 27. júni 1989
Bandaríkjadollar
Sterlingspund
Kanadadollar
Dðnsk króna
Norsk króna
Saensk króna
Finnskt mark
Franskur tranki
Belgiskur franki
Svissn. franki
Holl. gyllini
yesturþýskt mark
itðlsk lira
Austurr. sch.
Portúg. escudo
Spánskur peseti
Japanskt yen
irskt pund
SDR
Evrópumynt
Kaup Sala
58,280 58,440
90,276 90,524
48,801 48,934
7,6558 7,6768
8,1648 8,1872
8,7850 8,8092
13,2726 13,3090
8,8967 8,8108
1,4241 1,4280
34,5763 34,6712
26,4488 26,5214
29,8031 29,8849
0,04120 0,04131
4,2335 4,2451
0,2566 0,3575
0,4683 0,4696
0,41231 0,41344
79.409 79,627
72,8442 73,0442
61,6486 61,8178
og grurtnskólanrta við nem-
endur og kennara í
Danmörku. Átta íslenskir
grunnskólar vítt og breitt um
landið eiga nú greiða mögu-
leika til samskipta við nem-
endur í Danmörku.