Alþýðublaðið - 11.05.1990, Síða 3
Ólafsfjördur:
Síðast munaði sjö
atkvæðum
Úrslit 1986
D-Sjálfstæðisflokkur
359 atkv. 50,5% 4 fulltr.
H-Vinstri menn
352 atkv. 49,5% 3 fulltr.
Kjörnir
bæjarfulltrúar 1986
Af D-lista: Birna Frið-
geirsdóttir, Sigurður
Björnsson, Óskar Þór Sig-
urbjörnsson og Þorsteinn
Asgeirsson.
Af H-lista: Ármann Þórö-
arson, Björn Valur Gísla-
son og Ágúst Sigurlaugs-
son.
I kosningunum 1980
urðu þær breytingar að
Sjálfstæðisflokkurinn
vann naumlega meirihlut-
ann af Vinstri mönnum.
Takið eftir að aðeins mun-
aði 7 atkvæðum á listun-
um.
Sjálfstæðismenn hafa ráðið
lögum og lofum í bæjarstjórn-
inni í Ólafsfirði síðustu fjörg-
ur ár eftir sjö atkvæða sigur í
kosningunum 1986. Hefð er
komin á það að andstæðing-
ar Sjálfstæðismanna samein-
ist um einn framboðslista og
þegar kom að bæjarstjórnar-
kosningum fyrir fjórum ár-
um, höfðu þeir haft meiri-
hluta í þrjú kjörtímabil í röð.
Sá meirihluti féll naumlega
í kosningunum. Aðeins mun-
aði 7 atkvæðum á listunum
og hefur sennilega aldrei
munað jafn mjóu. Heimildar-
menn okkar í Ólafsfiröi
treystu sér ekki til að spá
neinu um það hvort talning
atkvæða kynni að verða
álíka spennandi nú og fyrir
fjórum árum, né hver úrslitin
kunni að verða.
Atvinnuástand mun á
landsbyggðinni óvíða betra
en í Olafsfirði um þessar
mundir og hefur batnað tals-
vert á síðustu árum. Fólki
fjölgar aftur í Ólafsfirði eftir
nokkurt fækkunarskeið og
fólksfjöldinn nálgast nú 1200
en var kominn niður í 1140
þegar fæst var.
Utgerð og fiskvinnsla eru
undirstöðuatvinnuvegir i Ól-
afsfirði eins og flestum kaup-
stöðum á landsbyggðinni og
rétt eins og annarsstaöar
hafði fastgengisstefnan víö-
tæk áhrif á afkomu sjávarút-
vegsfyrirtækjanna þar. Þegar
Atvinnutryggingasjóður og
síðar Hlutafjársjóður komu til
sögunnar, beittu bæjaryfir-
völd sér fyrir því að sameina
frystihúsin tvö á staðnum til
aö þau yrðu lánshæf.
Rækjuverksmiðja hefur
líka verið starfrækt á Ólafs-
firði síðustu tvö til þrjú árin
og skapaö taisveröa atvinnu
og vegiö upp á móti áhrifum
þeirra kvótaskerðingar sem
Ólafsfiröingar hafa orðiö fyr-
ir.
D-listi Sjálfstædisflokkur
1. Óskar Þór Sigurbjörnsson
2. Kristín Trampe
3. Sigurður Björnsson
4. Þorsteinn Ásgeirsson
5. Guörún Jónsdóttir
6. Haukur Sigurðsson
H-listi Vinstri menn og óháðir
1. Björn Valur Gíslason
2. Jónína Óskarsdóttir
3. Guðrbjörn Arngrímsson
4. Þuríður Ástvaldsdóttir
5. Þórhildur Þorsteinsdóttir
6. Sigríður Rut Pálsdóttir
Úrslit 1986
B-Framsóknarflokkur
271 atkv. 33,5% 2 fulltr.
D-Sjálfstæðisflokkur
og óháðir
337 atkv. 41,7% 3 fulltr.
G-Alþýðubandalag og
aðrir vinstri menn
200 atkv. 24,8% 2 fulltr.
Kjörnir
bæjarfulltrúar 1986
Af B-lista: Guðlaug
Björnsdóttir og Valdimar
Bragason.
Af D-lista: Trausti Þor-
steinsson, Ólafur B. Thor-
oddsen og Ásdís Gunnars-
dóttir.
Af G-lista: Svanfríöur
Jónasdóttir og Jón Gunn-
arsson
í kosningunum 1986
urðu verulegar breyting-
ar. Alþýðuflokkurinn sem
1982 náði einum manni í
bæjarstjórn, bauð nú ekki
fram undir eigin nafni.
Framsóknarflokkurinn
fékk fjóra menn kjörna
1982 og þar með hreinan
meirihluta en tapaði nú
tveimur fulltrúum. Sjálf-
stæðisflokkur bætti við
sig tveim fulltrúum og Al-
þýðubandalag einum.
Rétt er að taka fram að
1982 voru hrein flokka-
framboð.
Meirihlutasamstarf er
milli Sjálfstæðisflokks og
óháðra og Alþýðubanda-
lags og annarra vinstri
manna.
Dalvíkingar fjarlægjast
flokkslínurnar nokkuð í þess-
um kosningum. Að þessu
sinni eru fjórir listar í boði og
hefur fjölgað um einn frá því
síðast en enginn þeirra
hreinn flokkslisti. í síðustu
kosningum tapaði Framsókn-
arflokkurinn helmingi bæjar-
stjórnarfulltrúa sinna og lenti
í stjórnarandstöðu eftir að
hafa haft hreinan meirihluta.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þá.
þrjá menn og Alþýðubanda-'
lagið tvo.
Nú sameinast A-flokkarnir
svokölluðu um að bjóða fram
lista Jafnaðarmannafélags
Dalvikur en hinir flokkarnir
sem átt hafa fulltrúa í bæjar-
stjórn útvíkka báðir framboð
sín. Framsóknarmenn bjóða
fram með vinstri mönnum en
sjálfstæðismenn með óháð-
um. Alþýðuflokkurinn bauð
ekki fram í síðustu kosning-
um en átti þar áður einn full-
trúa í bæjarstjórninni. Nýtt
framboð bætist við frá því í
síðustu kosningum. Það eru
Frjálslyndir sem bjóða fram
F-lista.
Eins og oft vill verða í
minni og meðalstórum bæj-
arfélögum virðist ekki mikiö
um raunveruleg ágreinings-
efni innan bæjarstjórnar á
Dalvík. Reynslan sýnir að
þótt nokkuð sé um áherslu-
mismun fyrir kosningar eru
menn samstíga í öllum meg-
inatriðum þegar á hólminn er
komið og í þeim tilvikum sem
ágreiningur kemur upp,
þurfa flokkslínur ekki endi-
lega að ráða úrslitum um það
hvaða afstöðu menn taka.
Eftir því sem næst verður
komist munu menn á Dalvík
ekki almennt hafa trú á því
að Frjálslyndir fái mann kjör-
inn í bæjarstjórnina. Að því er
hinum listunum viðkemur
virðast flestir á þeirri skoðun
að kosningin geti orðið jöfn
og spennandi. Listarnir þrír
séu hver um sig nokkuð ör-
uggir um tvo fulltrúa og stór
spurning hver þeirra muni ná
þriðja manni og verða þar
með stærsti flokkur í bæjar-
stjórn.
N-listi Jafnaðarmannafélag
Dalvíkur
1. Jón K. Gunnarsson
2. Símon J. Ellertsson
3. Þóra Rósa Geirsdóttir
4. Halldór S. Guðmundsson
5. Olafur Árnason
6. Helga Matthíasdóttir
H-listi Framsóknarfélag og
vinstri menn
1. Valdimar Bragason
2. Guðlaug Björnsdóttir
3. Rafn Arinbjörnsson
4. Einar Arngrímsson
5. Inga Ingimarsdóttir
6. Símon Páll Steinsson
D-listi Sjálfstæðismenn og óháðir
1. Trausti Þorsteinsson
2. Svanhildur Árnadóttir
3. Gunnar Aðalbjörnsson
4. Hjördís Jónsdóttir
5. Arnar Símonarson
6. Oskar Oskarsson
F-listi Frjálslyndir
1. Haukur Snorrason
2. Snorri Snorrason
3. Ósk Finnsdóttir
4. Sigurður Haraldsson
5. Sigurvin Jónsson
6. Anton Gunnlaugsson