Alþýðublaðið - 18.05.1990, Page 3
Ingibjörg Ágústsdóttir Isafirdi:
Ljúka framkvæmdum við
grunnskóla og iþróttahús
„Viö höfum tekiö þátt í meirihlutasamstarfi og það hefur
gengið mjög vel. Meö okkur í meirihlutasamstarfinu hafa ver-
iö Framsóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið," sagöi Ingi-
björg Ágústsdóttir bæjarfulltrúi á ísafirði sem skipar efsta
sæti A-listans i komandi sveitarstjórnarkosningum.
Alþýðublaðið spurði lnt>ibjöri>u
því næst hvernit> kosnint>arnar legð-
ust í hana.
„Ég held að enginn geti spáð í það
hvernig kosningarnar fara á ísafirði
núna. Það hafa bæst við tvö fram-
boð frá síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingum. Það er l-listinn og Kvenna-
listinn og það gerir það að verkum
að erfiðara er að spá um hvernig
kosningarnar fara en ella.
Alþýðuflokkurinn er núna með
þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Við von-
umst til að okkur takist að halda
þriðja manninum en vissulega getur
það reynst erfitt."
— A hvaða mál leggið þið
mesta áherslu í þessari kosn-
ingabaráttu?
„Þar er nú fyrst og fremst að Ijúka
framkvæmdum við grunnskóla og
íþróttahús. Þá teljum við það vera
forgangsverkefni að hér verði byggt
öldrunarheimili á næsta kjörtíma-
bili. I stórum dráttum má segja að
við leggjum mikla áherslu á að efla
hér á Isafirði fiskvinnslu og útgerð
til aö reyna að fjölga fólki svo að
hægt sé að standa undir þeim fram-
kvæmdum sem gera þarf. Þá skiptir
ákaflega miklu máli að fjármálin
séu í góðu lagi og við höfum tekiö
mjög á þeim, sérstaklega við gerð
síðustu fjárhagsáætlunar.
— Hefur fyrirhuguð ganga-
gerð á Vestfjörðum haft áhrif á
kosningabaráttuna?
„Nei, fyrirhuguð gangagerð hefur
ekkert komið inn í kosningabarátt-
una hjá okkur. Það eru að sjálfsögðu
allir mjög ánægðir með að þetta
skuli standa til og þau munu valda
heilmikilum breytingum hérna hjá
okkur."
Ingíbjörg Ágústsdóttir.
— Hafa orðið miklar breyting-
ar á framboðslista ykkar?
„Já, ég skipaði þriðja sæti fram-
boðslista Alþýðuflokksins við síð-
ustu sveitarstjórnarkosningar og
náði kjöri. Kristján Jónasson sem
hefur setið í bæjarstjórn í tólf ár og
skipaði fyrsta sætið síðast hefur
ákveðið að hætta en sá sem skipaöi
annað sætið síðast, Halldór
Guðmundsson, er fluttur úr bænum.
Það er því mikið um nýtt fólk á list-
anum hjá okkur. Kúnar Víðisson
kennari skipar nú annaö sætið hjá
okkur en Pétur Sigurðsson forseti
Alþýðusambands Vestfjarða er í
þriðja sætinu,'' sagði Ingibjörg að
lokum.
Sex efstu á frambodslistum
á ísafirði
A-listi
Aiþýðuflokkur
1. Ingibjörg Agústsdóttir
2. Rúnar Vífilsson
3. Pétur Sigurðsson
4. Karítas Pálsdóttir
5. Óðinn Svan Geirsson
6. María Valsdóttir
B-listi
Framsóknarflokkur
1. Kristinn Jón Jónsson
2. Einar Hreinsson
3. Guðríður Sigurðardóttir
4. Magnús Reynir Guð-
mundss.
5. Fylkir Agústson
6. Sigrún Venharðsdóttir
D-listi
Sjálfstæðisflokkur
1. Ólafur Helgi Kjartansson
2. Hans Georg Bæringsson
3. Helga Sigmundsdóttir
4. Einar Garðar Hjaltason
5. Kristján Kristjánsson
6. Pétur H. R. Sigurðsson
G-listi
Alþýðubandalag
1. Bryndís G. Friðgeirsdóttir
2. Smári Haraldsson'
3. Hulda Leifsdóttir
4. Rögnvaldur Þ. Óskarsson
5. Elísabet Gunnlaugsdóttir
6. Herdís M. Hubner
í-listi
Sjálfstæðs framboðs
1. Haraldur I.índal Haralds-
son
2. Kolbrún Halldórsdóttir
3. Kristján G. Jóakimsson
4. Guðmudur Agnarsson
5. Björn Hermannsson
6. Kristín Hálfdánsdóttir
V-listi
Kvennalisti
1. Ágústa Gísladóttir
2. Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir
3. Sigríður J. Ragnar
4. Hrönn Benónýsdóttir
5. Katrín Jónsdóttir
6. Jónína Emilsdóttir
Rikjandi mjög
vaxandi bjartsýni
„Viö alþýðuflokksmenn erum með tvo fulltrúa núna í bæjar-
stjórn, Framsóknarflokkurinn meö tvo og Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur þrjá fulltrúa. Meirihlutinn hefur veriö í höndum fram-
sóknar- og sjálfstæðismanna. Þaö eru aðeins þessir þrír aðilar
sem bjóöa fram hér á Patreksfirði," segir Björn Gíslason sem
skipar efsta sæti á lista Alýöuflokksins á Patreksfiröi.
Sex effstu á fframboðslistum á Patreksfirði
A-listi D-listi
Alþýduflokkur Sjáifstæðisflokkur
1. Björn Gíslason 1. Stefán Skarphéðinsson
2. Guðfinnur Pálsson 2. Gísli Ólafsson
3. Kristín Björnsdóttir 3. Helga Bjarnadóttir
4. Gunnar Gunnarsson 4. Ingveldur Hjartardóttir
5. Guðný Pálsdóttir 5. Gísli Þór Þorgeirsson
6. Ragnar Fjelsteð B-listi Framsóknarflokkur 1. Sigurður Skagfjörð Ingimarsson 2. Dröfn Árnadóttir 3. Sigurður Viggósson 4. Magnús S. Gunnarsson 5. Sigurður Ingi Guðmundsson 6. Rósa Bachmann 6. Ólafur Örn Ólafsson
Björn Gíslason Patreksfirdi
— Hver eru stærstu málin hjá
ykkur?
„Það eru atvinnumálin. Við erum
að ná okkur eftir það áfall þegar
Hraðfrystihús Patreksfjarðar för á
hausinn en það kom mjög illa viö at-
vinnulífið á staönum en í kjölfar
gjaldþrotsins voru skip seld héðan
af staðnum. Það hefur því veriö að-
almálið að vinna að uppbygginu at-
vinnumálanna aftur."
— Hvernig standa þá atvinnu-
málin núna?
„Það er ríkjandi mjög vaxandi
bjartsýni. Þetta er þó ekki í höfn en
það hafa náðst ákveðnir áfangar í
uppbyggingu atvinnulífsins. I því
skyni hefur hre'ppurinn lagt fram 30
milljónir í hlutafé til að byggja upp
atvinnulífið. Það hefur leitt til þess
að skuldastaða bæjarins er orðin
mjög þung og menn verða aö fara
varlega í framkvæmdir á næst--
unni."
— Hvað með önnur mál?
„Hvað önnur mál varöar er nauö-
synlegt að Ijúka skólabyggingunni
sem hefur verið mjög lengi í bygg-
ingu.
Við erum í vandræöum með öldr-
unarmálin. Það er mjög brýnt aö
koma upp þjónustuíbúöum fyrir
Björn Sigurbjörsson.
aldraða. Viö stefnum aö því að
koma þessu máli áfram. Umhverfis-
málin eru líka ofarlega á blaði og
átaks er þörf í sorphirðumálum."
— Eru þið jafnaðarmann á Pat-
reksfirði bjartsýnir á komandi
kosningar?
„Ég er mjög bjartsýnn. Ég finn
ekki annað en að við höfum meðbyr
og geri mér vonir um einhverja fylg-
isaukningu. Þaö er því til mikils að
vinna að ná því að veröa stærsti
flokkurinn. íhaldið var stærst síöast
en nú ríkir talsverö óeining hjá þeim
svo við erum hóflega bjartsýnir á
góða útkomu Alþýðuflokksins
hérna á Patreksfirði," sagði Björn
að lokum.
Olafur Þór Benediktsson Bolungarvík:
Öflugt atvinnulif
forsenda velferðar
Ólafur Þór Benediktsson skipar efsta sæti A-listans á Bol-
ungarvík, lista jafnaðarmanna og frjálslyndra. Alþýðublaðið
hafði samband við Ólaf og byrjaði á því að spyrja hann hver
hefði veriö hin pólitíska staða í Bolungarvík eftir síöustu sveit-
arstjórnarkosningar.
„Alþýöuflokkurinn fékk við þær
kosningar einn mann kjörinn, G-list-
inn fékk tvo menn, H-listi óháðra
fékk einn mann og D-Iisti sjalfstæð-
ismanna fékk þrjá menn. Alþýðu-
flokkurinn hefur verið í meirihluta-
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.
Samstarfiö hefur gengið mjög vel að
því er best ég veit.
Valdimar L. Gíslason hefur verið
fulltrúi Alþýðuflokksins í bæjar-
stjórninni og áöur í hreppsnefnd-
inni. Hann dregur sig nú í hlé eftir
að hafa verið fulltrúi Alþýðuflokks-
ins í sveitarstjórn í 5 kjörtímabil."
— Hvaða mál setjið þið á odd-
inn fyrir þessar kosningar?
„Við setjum á oddinn atvinnumál-
in, æskulýðsstarfsemi, umhverfis-
og samgöngumál og málefni aldr-
aðra og fatlaðra.
Atvinnumál okkar Bolvíkinga eru
alltaf í brennidepli, því forsendan
fyrir velferð bæjarins og íbúa þess
byggist á því að hér sé rekin þrótt-
mikil atvinnustarfsemi.
Komandi bæjarstjórn veröur líka
að knýja á um aö fjárveitingarvaldiö
standi við gefin loforð um fjármagn
í byggingu brimvarnargarðs sem er
okkur mikil nauðsyn.
Þá er brýnt að viðbyggingu við
grunnskólann Ijúki svo skjótt sem
kostur er því nú búa nemendur og
Ólafur Þor Benediktsson.
starfsfólk skólans við þröngar og
erfiðar aöstæður.
Við höfum verðið gagnrýndir af
minnihlutanum vegna fjármálanna
en það er útilokaö að standa í stór-
um framkvæmdum án þess að
skuldir aukist eitthvað.
Ég er bjartsýnn fyrir hönd listans
því við jafnaðarmenn höfum staðiö
fyrir góðum málum og munum gera
það áfram. Jafnaðarstefnan er fyrst
og fremst mannúðarstefna og viö
látum velferð fólksins sitja í fyrir-
rúmi," sagöi Olafur að lokum.
Sex effstu á framboðslistum
í Bolungarvík
A-listl
Alþýðuflokkur
1. Olafur Þór Benediktsson
2. Magnús Ólafs Hansson
3. Martha Sveinbjörnsdóttir
4. Sigríður L. Gestsdóttir
5. Svarvar Geir Ævarsson
6. Krístín Sæmundsdóttir
D-listi
Sjálfstæðisflokkur
1. Ólafur Kristjánsson
2. Anna G. Edvardsdóttir
3. Ágúst Oddsson
4. Þóra Hallsdóttir
5. Sölvi Rúnar Sóibergsson
6. Hálfdán Óskarsson
F-listi
Samstödu, samtaka
um bæjarmál
1. Kristinn H. Gunnarsson
2. Jón Guðbjartsson
3. Valdemar Guðmundsson
4. Helga Jónsdóttir
5. Anna Björgmundsdóttir
6. KetiII Elíasson