Alþýðublaðið - 19.05.1990, Blaðsíða 8
8
GÓÐA HELGi
Laugardagur 19. maí 1990
Fjárhúsin opin
Sunnudaginn 20. maí gefst al-
menningi kostur á aö heimsaekja
fjárhúsin viö Fjárborg en þar stend-
ur nú sauöburöur sem hæst. Tilefni
fararinnar er opnun nýja Húsdýra-
garösins í Laugardal.
Farnar veröa þrjár rútuferðir frá
Húsdýragaröinum á klukkustundar-
fresti. Lagt veröur af stað í fyrstu
ferðina kl. 14.00 á morgun sunnu-
dag.
Húsbréf
Einföld og örugg
fasteignaviðskipti
Nú stendur húsbréfakerfið öllum opið við
kaup og sölu notaðra íbúða. Með þessum
nýja valkosti á að aukast öryggi bæði
kaupenda og seljenda, jafnframt því sem
stuttur afgreiðslutími og hátt langtímaián
á einum stað mun koma báðum aðilum
til góða.
Húsbréfaviðskipti grundvallast á því að
tilvonandi kaupandi hafi í höndum umsögn
ráðgjafastöðvar um greiðslugetu sína.
Án hennar er hvorki hægt að gera
kauptilboð né fá íbúð metna.
Tilvonandi íbúöakaupendur:
Byrjið á að sækja um umsögn ráðgjafastöðvar,
áður en þið takið nokkrar skuldbindandi
ákvarðanir á fasteignamarkaðnum. Það er
mikilvægt öryggisatriði fyrir bæði kaupendur
og seljendur og algjört skilyrði fyrir ibúðar-
kaupum í húsbréfakerfinu.
ítarlegt kynningarefni um húsbréfakerfið liggur
frammi hjá fasteignasölum um land allt og í
afgreiðslu Húsnæðisstofnunar.
Kynningarmynd um húsbréfakerfið verður sýnd í
ríkissjónvarpinu mánudaginn 21. maí kl. 22.45.
[§3
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
Breyttur
opnunartími
Þjóðminjasafnsins
Þjóðminjasafnið er nú komið á
sumartíma, eins og mörg önnur fyr-
irtæki. Fram til 15. september veröur
safnið opið alla daga, nema mánu-
daga, kl. 11.00—16.00.
Sýning hjá MHI
Undanfarna daga hefur staðið yfir
sýning á lokaverkefnum útskriftar-
nemenda Myndlista- og handíöa-
skóla íslands. Sýningin er á Kjarvals-
stööum og er opin á milli
11.00—18.00. Síöasti sýningardagur
er á morgun sunnudag þannig aö
þaö fer hver aö veröa síðastur aö sjá
verkefni þessara nýútskrifuöu lista-
manna.
Trúarskáldin
tekin fyrir
Nernendur i 3. bekk Leiklistar-
skóla islands hafa sett saman Ijóöa-
dagskrá um íslenskan trúarskáld-
skap fyrr og síðar. Þetta er gert í
samvinnu viö Leikfélag Reykjavíkur.
Sýningarnar veröa á litla sviöi
Borgarleikshússinn og fara fram
dagana 21. og 22. mai. Meðal verka
má nefna brot út Merði Valgarðssyni
eftir Jóhann Sigurjónsson, Passíu-
sálma Hallgríms, stutt atriöi úr
Gullna Hliöinu eftir Daviö Stefáns-
son og Jón í Brauðhúsum eftir Hall-
dór Laxness.
Finnland og síðari
heimsstyrjöldin
Sendiherra Finnlands, Hakan
Branders, ræöir um um Finnland og
síöari heimsstyrjöldina í Norræna
húsinu i dag laugardag kl. 16.00. I
fyrirlestrinum fjallar hann m.a. um
stjórnmálaástandið í Finnlandi og
utanríkisstefnu Finna á styrjaldarár-
unum. Sendiherrann flytur mál sitt á
sænsku og er fyrirlestur hans liður i
þáttaröö um síöari heimsstyrjöld-
ina.
„Þeir héldu dálitla
heimstyrjöld"
Á laugardagskvöld kl. 21.00 og á
sunnudag kl. 16.00 verður söngdag-
skráin „Þeir héldu dálitla heimsstyrj-
öld" lög og Ijóö í stríöi flutt í Nor-
ræna húsinu. Þaó eru leikararnirÁsa
Hlín Svavardótir, Edda Heiðrún
Backman, Egill Ólafsson og Jóhann
Siguröarson sem hafa tekið saman
dagskrána. Aögöngumiöar verða
seldir við innganginn.
Sveinn sýnir
í Hafnarfirði
Sveinn Björnsson listmálari sýnir
nú myndir sinar í Hafnarborg í Hafn-
arfiröi. Hann er þar meö 61 stóra
mynd frá tímabilinu 1957—1985.
Þetta er afmælissýning því nú eru
40 ár síðan Sveinn sýndi fyrst opin-
berlega. Sýning Sveins stendur yfir
til 27. maí.