Alþýðublaðið - 17.01.1991, Síða 2
2
Fimmtudagur 17. janúar 1991
Fólk
Deilur um bœjarstjórn í Kópavogi
á byriunarreit
Aftur
Eins og greint var frá i Alþýðublaðinu i gær er ólga
i bæjarstjórn i Kópavogi og meðal bæjarstarfs-
manna vegna uppsagnar forstöðumanns við sund-
laug bæjarins og ráðningar annars manns i hans
stað. Mál þetta er þó aðeins angi af stærri ágrein-
ingi sem meðal annars varð til þess i gær að oddviti
Alþýðuflokksins i bæjarstjórn sagði af sér sem full-
trúi i stjórnsýslunefnd Kópavogskaupstaðar.
ÞORLÁKUR HELGASON SKRIFAR
Eftir sveitarstjórnarkosningar í
vor mynduðu Sjálfstæðisflokkur
og Framsóknarflokkur meirihluta
í bæjarstjórn Kópavogs. Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag höfðu
stjórnað bæjarfélaginu um árabil,
ýmist með framsókn eða án. Síð-
asta kjörtímabil var Framsóknar-
flokkur utan stjórnar. Að loknum
kosningum í vor gekk Sjálfstæðis-
flokkur að skilyrðum Framsókn-
arflokks um að embætti bæjar-
stjóra félli framsókn í skaut.
Framsóknarmennska
eða fagleg vinnubrögð?
Eitt fyrsta verk nýja meirihlut-
ans var að endurskoða ýmislegt í
stjórnkerfi bæjarins. Fyrir dyrum
standa veigamiklar breytingar á
verkaskiptingu — einkum milli
æðstu embættismanna bæjarins.
Ráðning nýs forstjóra við sundlaug
er einn angi þess máls. Minnihluti
telur farið með offorsi og pólitíska
ólykt af málinu. Starfsmannafélag
bæjarins mótmælti harðlega og
segir að hæfum starfsmanni hafi
verið vikið úr starfi ,,án nokkurrar
ástæðu."
Guðmundur Oddsson, oddviti
Alþýðuflokks, sagði á fundi bæjar-
stjórnar í fyrradag, þegar gengið
var frá ráðningu nýs forstöðu-
manns sundlaugarinnar, að leitað
hafi verið að framsóknarmanni og
hann fundist um síðir. Las Guð-
mundur úr fundargerð þar sem
fram kemur m.a. að talsmenn
meirihluta hafi bókað: „.. . ekki
er pólitískur meirihluti fyrir
áframhaldandi starfi forstjórans."
Valþór Hlöðversson, oddviti Al-
þýðubandalags, segir vegið að
starfsheiðri manna og atvinnuör-
yggi starfsmanna Kópavogskaup-
staðar ógnað í máli sundlaugarfor-
stjórans.
Meirihlutinn í Kópavogi á í
vanda. Guðmundur Odds-
son, oddviti Alþýöuflokks-
ins í bæjarstjórn, hefur
sagt sig úr stjórnsýslunefnd
og samstarf um bœjar-
stjórn er í hœttu.
j sundlaug eða upp i
Blófjöll_____________________
Málsatvik eru þau að fyrir ára-
mót var ákveðið að ráða nýjan for-
stöðumann að sundlaug bæjarins
og skipta fyrra starfi forstöðu-
manns upp. Um árabil hefur sund-
laug verið í byggingu í Kópavogi,
en Steinar Lúðvíksson forstöðu-
maður, sem starfað hefur við
sundlaugina í 23 ár hefur jafn-
framt haft umsjón með mannvirkj-
um Kópavogskaupstaðar í Bláfjöll-
um. Nú á sundlaugarstarfiö að
vera á einni hendi. Við þá ákvörð-
un var Steinari sagt upp störfum.
Guðni Stefánsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks sagði á bæjar-
stjórnarfundi á þriðjudag, að að-
eins væri verið að segja Steinari
upp „einu starfi." Talsmenn minni-
hluta segja engan vafa ieika á því
að um hreina uppsögn hafi verið
að ræða og í því tilviki hljóti að
hafa verið bornar einhverjar
ávirðingar á forstöðumanninum,
ella sæti hann áfram. Þessu neitar
Sigurður Geirdal bæjarstjóri og
segir faglega að öllu staðið. Um
hafi verið að ræða nýtt starf og
ekkert athugavert við ráðningu
nýs manns í það starf.
I bréfi meirihlutans til Steinars
er honum „boðið áframhaldandi
starf við nýju sundlaugina með
breyttu starfsfyrirkomulagi."
Bragi Michaelsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagði á fundi bæjarstjórnar
að Steinari hefði verið boðið for-
stöðumannsstarf í Bláfjöllum,
enda um mikið áhugamál hans að
ræða.
Samkomulag um_______________
Smárahvammsland_____________
Sundlaugarmálið virðist aðeins
angi af stærra máli. Mikið er enn á
kafi en annað hefur komið upp á
yfirborðið. Fyrir kosningar í vor
vændu sjálfstæðismenn meiri-
hlutastjórn Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags um óheiðarleg
vinnubrögð við bæjarstjórnunina.
„Smárahvammsmálið" var eitt
þessara mál og nú dregur það
verulegan dilk á eftir sér. Guð-
mundur Oddsson hefur ákveðið
að segja af sér í svokallaðri Stjórn-
sýslunefnd Kópavogskaupstaðar.
Þeirri nefnd er falið að gera tillög-
ur að breyttu stjórnfyrirkomulagi í
bænum og taka á ýmsum skipu-
lagsatriðum.
Oddviti Sjálfstæðisflokks í bæj-
arstjórn Kópavogs, Gunnar Birgis-
son, gagnrýndi harkalega hvernig
fyrrverandi meirihluti bæjarins
hefði staðið að verki, er fyrirtæk-
inu Frjálsu framtaki var úthlutað
landi í Smárahvammi til að byggja
á. í Morgunblaðinu 28. des. sl. er
haft eftir Gunnari að þeir sem
stóðu að samningum fyrir bæinn
hafi hvorki haft reynslu né þekk-
ingu og aö vinnubrögðin hafi ver-
ið með öllu óverjandi. „Erlendis,
ef menn hefðu gert slíkar „bomm-
ertur," yrði stjórnmálaferill þeirra
ekki lengri," sagði Gunnar.
Ummæli Gunnars kölluðu á
sterk viðbrögð forystumanna
minnihlutans. Farið var ofan í
samningagerðina alla og til þess
kvaddir sérfræðingar. 8. janúar,
þegar skýrsla þeirra lá fyrir, var
sérstök ályktun samþykkt á fundi
bæjarstjórnar, en með henni átti
að gera Smárahvammslandið upp
endanlega. Að heiðursmannasam-
komulagi var ekki gert ráð fyrir
neinum bakreikningum.
I ályktun bæjarstjórnar segir
m.a.: „Eftir að hafa farið ítarlega
yfir alla samninga, er málið varða,
skiluðu ráðgjafarnir bæjarráði
greinargerð, dags. 21. nóvember
sl. Þar kemur fram það álit að til
þess tíma hafi báðir aðilar staðið
við gerða samninga, og ekki séu
efni til frekari endurskoðunar á
þeim."
Ennfremur segir í sömu ályktun
bæjarstjórnar Kópavogs: „Bæjar-
stjórn Kópavogs lýsir fullu trausti á
ráðgjöfum bæjarráðs ... og mikil-
vægt að bæjarstjórn sem heild
standi einhuga að baki þeim
áformum sem þar eru uppi." í
framhaldi þess drógu Guðmundur
Oddsson og Valþór Hlöðversson
til baka tillögu um að fram færi op-
inber rannsókn vegna Smára-
hvammssamninga við Frjálst
framtak.
Guðmundur Oddsson
hættir i stjórnsýslunefnd
Héldu allir að þar með væri
Smárahvammsmáli lokið og munu
Guðmundur og Valþór hafa lýst
því yfir að eftirleikur yrði enginn.
Yrði hins vegar því enn haldið
fram að ekki hefði heiðarlega ver-
ið staðið að málum, mun Guð-
mundur a.m.k. hafa tjáð meiri-
hlutanum að þá væri samstarf
meiri- og minnihluta um stjórnun-
armál í hættu.
I Morgunblaðinu í gær er svo
haft eftir Gunnari Birgissyni m.a.
að „allar mínar fullyrðingar
standa eftir sem áður um að þetta
hafi verið lélegir samningar fyrir
bæjarfélagið ..Guðmundur
Oddsson tilkynnti bæjarstjóranum
í Kópavogi að hann segði af sér
sem fulltrúi í Stjórnsýslunefnd
Kópavogs vegna þessara ummæla
Birgis. Einn fulltrúi situr í stjórn-
sýslunefndinni frá hverjum bæjar-
stjórnarflokki.
Guðmundur segir að ekki sé
hægt að sitja undir þvílíkum
áburði sem hann telji koma fram
hjá Gunnari. Niðurstaða bæjar-
stjórnar 8. janúar hafi verið sátta-
gerð. „Með yfirlýsingu sinni í
Morgunblaöinu nú lýsir oddviti
sjálfstæðismanna yfir áframhald-
andi stríði við minnihlutann. Þar
með sé ég ekki ástæðu til frekara
samstarfs," sagði Guðmundur
Oddsson í gær.
Hlegið að
ríkissjónvarpinu
Það vakti hlátur margra, þegar
Ríkissjónvarpið fór að segja frá
því góða framtaki Stöðvar 2 að
senda út CNN-fréttir á öllum tím-
um utan dagskrárinnar. Frétta-
maður var sendur út af örkinni
og reyndi allt hvað hann gat til
að fá slæmar hliðar á málinu.
Hvorki gekk né rak. Viðmæl-
endur, Þorbjörn Broddason og
Svauar Gestsson , virtust báðir
hrifnir af framtaki Stöðvar 2 og
Svavar tók af öll tvímæli um það
að fréttaflutningurinn yrði ekki
stöðvaður með ráöherravaldi!
Menn spyrja hins vegar þeirrar
spurningar hvers vegna RÚV
hristir ekki af sér doðann og ger-
ir stóra hluti eins og Stöð 2 nú.
Fyrsti prófessorinn i
heimilislækningum
Jóhann Ágúst Sigurdsson, 42 ára
heilsugæslulæknir í Hafnarfirði
hefur verið ráðinn í stöðu fyrsta
prófessorsins í heimilislækning-
um. Frá 1976 hefur verið til
staða lektors í þessari grein
lækninga við Læknadeild Há-
skóla Islands og gegndi Örn
Bjarnason því starfi fyrstur
lækna. Jóhann Agúst er fæddur
á Siglufirði og varð stúdent frá
MR 1968, en lauk embættisprófi
1975 og hélt til framhaldsnáms í
heimilislækningum í Gautaborg
að námi hér loknu. Doktorsrit-
gerð um háan blóðþrýsting hjá
miðaldra konum varði hann við
Gautaborgarháskóla 1982. Frá
1981 starfaði dr. Jóhann við
Heilsugæslustöð Hafnarfjarðar
og jafnframt sem héraðslæknir
Reykjaneshéraðs. Við síðar-
nefnda embættinu tekur Sveinn
Magnússon, heilsugæslulæknir í
Garðabæ. Jóhann er sonur Gydu
Jóhannsdóttur og Sigurdar
Jónssonar, fyrrum fram-
kvæmdastjóra Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði, síðar for-
stjóra Sjóvá. Kona Jóhanns er
Edda Benediktsdóttir og eiga
þau þrjú börn.
Lísbet sýnir i Nýhöfn
Á laugardaginn opnar Lísbet
Sveinsdóttir, 38 ára, málverka-
sýningu í Listasalnum Nýhöfn
við Hafnarstræti. Lísbet er þekkt
leirlistarkona auk þess sem hún
hefur unnið að gerð steindra
glugga. Nú sýnir hún á sér nýja
hlið, á sýningunni eru málverk,
sem hún hefur málað síðustu 2
árin í portúgölsku sólskini. Verk
Lísbetar prýða marga staði, m.a.
má nefna þann fræga sænska
banka, Enskildabanken, og
stofnanir Reykjavíkurborgar,
sem keypt hafa verk hennar.
FRtTTASK ÝRING
Af síðasta bæjarstjórnarfundi: Guðni Stefánsson t.v. og Sigurður Geirdal bæjarstjóri. Á bak við Sigurð sér i Birnu Friðriksdóttur.