Alþýðublaðið - 17.01.1991, Side 3
Fimmtudagur 17. janúar 1991
INNLENDAR FRÉTTIR
3
FRÉTTIR
IHNOTSKURN
ROCKY HORROR í HAMRAHLÍÐ: Leikfélag
Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir söngleikinn Roc-
ky Horror Picture Show eftir Richard O’Brien á sunnudag-
inn í Iðnó kl. 20.30. Alls taka þátt í sýningunni 84 mennta-
skólanemar, en auk þeirra hafa fjölmargir nemendur lagt
sýningunni lið á ýmsan hátt. Að sjálfsögðu hefur þurft að
leita út fyrir skólann um sérfræðiaðstoð: Veturliði Gunn-
arsson þýddi leikinn, Kolbrún Halldórsdóttir leikstýrir,
Jón Ólafsson stýrir tónlistarflutningi, leikmynd er gerð af
nemendum undir stjórn Gudrúnar Sigríðar Haralds-
dóttur, dansa samdi Ástrós Gunarsdóttir, lýsingu hann-
aði Egill Ingibergsson, hljóðstjórn annast Sigurður
Bjóla Garðarsson. Aðalhlutverk: Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Guðjón Bergmann,
Steinunn Þórhallsdóttir, Katrín Kristjánsdóttir, Jón
Atli Jónasson, Bergur Már Bernburg, Dofri Jónsson,
Guðlaugur Ingi Harðarson og Gestur Svavarsson.
Sýningarstjóri er Breki Karlsson, aðstoðarleikstjóri Ás-
dís Sigmundsdóttir.
SÁRSAUKAFULL SAMEINING: Eins og stundum
vill verða við sameiningu fyrirtækja, virðist sameining Bí-
ró hf. og Steinars hf. í Kópavogi flokkast undir þá gerð sem
telja verður sársaukafulla. Rafn Ben. Rafnsson, fram-
kvæmdastjóri Bíró-Steinars hf. hefur sent viðskiptaaðilum
prentað bréf þar sem gerð er grein fyrir lögbanni fógeta á
að Guðni Jónsson, fyrrverandi eigandi og framkvæmda-
stjóri Steinars — Stálhúsgagnagerðar og núverandi starfs-
maður hjá húsgagnafyrirtækinu Sess, nýti í eigin þágu eða
annarra viðskiptasambönd sem voru til staðar við sölu á
Steinari Stálhúsgagnagerð. Er Guðni borinn þeim sökum
að hafa komið undan álitlegum erlendum umboðum.
FORVAL ALÞÝÐUBANDALAGSINS: Fjórtán hafa
gefið kost á sér í forvali Alþýðubandalagsins i Reykjavík.
Þeir eru: Árni Þór Sigurðsson, hagfræðingur, Arnór Þórir
Sigfússon, dýrafræðingur, Auður Sveinsdóttir, landslags-
arkitekt, Birna Þórðardóttir, blaðamaður, Guðmundur Þ.
Jónsson, formaður Iðju, Guðrún Helgadóttir, forseti sam-
einaðs Alþingis, Haraldur Jóhannesson, hagfræðingur,
Már Guðmundsson, hagfræðingur, Margrét Ríkharðsdótt-
ir, formaður Þroskaþjálfafélagsins, Matthías Matthíasson,
háskólanemi, Sigurrós M. Sigurjónsdóttir, fulltrúi, Steinar
Harðarson, tæknifræðingur, Svavar Gestsson, mennta-
málaráðherra og Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður.
RAUÐU PENNARNIR:
Mál og menning hefur gef-
ið út ritið Rauðu pennarn-
ir — bókmenntahreyfing
á 2. fjórðungi 20. aldar
eftir dr. Orn Olafsson. I
bókinni er fjallað um þessa
áhrifaríku bókmennta-
hreyfingu sósíalista. Þar
koma við sögu menn eins
og Halldór Laxness,
Steinn Steinarr, Halldór
Stefánsson, Jóhannes úr
Kötlum og Kristinn E.
Andrésson.
SÁÁ ÚTI Á LANDSBYGGÐINNI: Um 3500 einstak-
lingar nutu góðs af starfi Landsbyggðarþjónustu SÁÁ sem
hófst á síðasta ári. Mikill áhugi er því fyrir þessu starfi og
er það að hefjast á nýjan leik og stendur fram á vor. Nám-
skeið verða haldin, 3—5 daga á hverjum stað, hið fyrsta
hefst á Hornafirði 21. janúar og síðan haldið áfram um
Austfirði og Norðausturland.
40 ARNARPÖR HELGA SÉR ÓÐAL: Fuglaverndun-
arfélagið segir 40 arnarpör hafa helgað sér varpstaði (óðal)
á síðasta ári. Þar af komu 12 pör upp 19 ungum, en varp
misfórst hjá 28 pörum af ýmsum orsökum. í sumum tilfell-
um var annar örninn ekki kynþroska og eggin þar af leið-
andi ófrjó. Auk þess sáust 21 stakur örn víðsvegar um land-
ið.
GIFTINGAR 0G SKILNAÐIR: Borgardómarar gáfu
saman 114 hjón á síðasta ári. Þeir veittu líka 170 leyfi til
skilnaðar að borði og sæng. Hjá embættinu komu fyrir 534
skilnaðarmál og yfirlýsingar um sambúðarslit voru 190.
Allar eru þessar tölur svipaðar og verið hefur undanfarin
ár, en fara þó heldur lækkandi.
Heimsmarkadsverd á áli:
Batncmdi horfur komi
ekki til stryrjaldar
Verði styrjöld fyrir
botni Persaflóa má búast
við að heimsmarkaðs-
verð á áli lækki í kjölfar
verra efnahagsástands í
heiminum almennt, kom
fram í máli Ingvar Páls-
sonar verkfræðings hjá
ÍSAL við Alþýðublaðið í
gær.
Ingvar segir að álverð sé
nú lágt, eða um 1.550
bandaríkjadalir tonnið en
hafði farið upp í 1.950 doll-
ara í september á síðasta
ári. Meðalverð á síðasta ári
hafi verið um 1.650 dollar-
ar tonnið. Álverð var hátt á
árinu 1988 og fór um mitt
ár í 2.800 dollara en hafði
verið mjög lágt áður, eða
allt niður í 1.200 dollura í
janúar 1987.
Ingvar Pálsson sagði hins
vegar að ef þau tvö álver
sem eru við Persaflóann
lokuðust mætti búast við
timabundinni meiri eftir-
spurn eftir áli. Þetta væru
um 200.000 tonna álver í
Dubai og í Bahrein.
Komi til stríðs má búast
við að verð á olíu hækki
mjög og þar af leiðandi
hækki framleiðslukostnað-
ur á iðnaöarvörum al-
mennt. Slíkt leiðir til að
menn halda frekar að sér
höndunum og hætt er við
samdrætti. Almennur sam-
dráttur mun því væntan-
lega leiða til minni eftir-
spurnar, t.d. á áli, og þá
lægra verði.
Að óbreyttu er búist við
að álverð verði áfram lágt
fyrri hluta ársins en fari
hækkandi á seinni hluta
þess. Bandaríkin er mjög
ráðandi í verðmyndun á áli.
Álframleiðendur binda
einkum vonir við að aukin
eftirspurn eftir áli verði til
dósagerðar og bílafram-
leiðslu. Áldósir þykja hent-
ugar vegna þess hve auð-
velt er að endurvinna þær.
Þá munu nýjar reglur um
bensínnotkun bíla í Banda-
ríkjunum væntanlega hafa
það i för með sér að ál verð-
ur í auknum mæli notað í
bílaframleiðslu. Nú eru not-
uð um 70 kg af áli í meðal-
fólksbíl í Bandaríkjunum
en búist er við að það eigi
eftir að aukast í 300 kg að
sögn Ingvars.
Heimsmarkaðsverð á gasoliu:
Upp um 46
um síðustu
dollara
helgi
Orkan kann að hækka verulega á markaði á næstunni — nema sú sem hressir hjóireiðamenn fram-
leiða. Hér má sjá Jón Rúnar Sveinsson hjá Húsnæðisstofnun á ferð í rysjótti tíð í gærdag.
A-mynd: E.ÓI.
Verö á gasolíu hækkaði
mjög mikið í upphafi þess-
arar viku, eða um 46
bandaríkjadaii tonnið.
Gasolíutonnið er því kom-
ið í um 340 dollara en kost-
aði fyrir innrás íraka í Kú-
veit um 170—180 dollara.
Það hefur því tvöfaldast á
þessu tímabili.
Hörður Helgason hjá Olís
segir að verðið hafi verið um
274 dollarar á tonni af gasolíu
og sé nú orðið svipað og það
var fyrst eftir innrásina. Bens-
ínverð hefur hækkað hlut-
fallslega mun minna, eða úr
259 dollurum í um 308 doll-
ara nú. Heimsmarkaðsverð á
hráolíu hefur sveiflast nokk-
uð til frá eftir að innrásin var
gerð og er nú um 30 dollarar.
Fyrir innrás íraka á Kúveit
kostaði olíutunnan á heims-
markaðsverði um 15 dollara
en hefur verið undanfarið
verið um 25 dollarar. Búist er
við að það verð tvöfaldist eða
þrefaldist komi til stríðs.
Hækki verðið til lengri tíma
má búast við að samsvarandi
hækkun komi fram hér á
landi, sagði Hörður við Al-
þýðublaðið. Hins vegar þurfi
verð á unnum olíuvörum
ekki hækka að sama skapi og
verð á hráolíu.
Enn sem komið er þurfa
bifreiðaeigendur ekki að ótt-
ast sprengingu á bensínverði.
Bensínlítrinn er nú á um 57
kr. og hefur því hækkað inn-
an við 10% frá því í sumar,
eða miklu minna en nemur
hækkun á hráolíu á heims-
markaði.
Húsnœðiskönnun Búseta:
Gamla Reykjavik vinsælust
Þeim fjölgar um helming sem vilja helst búa í Hafnarfiröi
Unga fólkið vill helst búa
í gömlu Reykjavík. 662
tóku þátt í húsnæðiskönn-
un Búseta, sem var gerð í
nóvember sl. 70% vilja að
íbúðir í búsetakerfinu séu
í fjölbýlishúsum. Meðal-
leiga þeirra em svöruðu er
28.200 krónur.
Markmiðið með könnun-
inni var m.a. að afla grund-
vallarupplýsinga um hús-
næðisaðstöðu og óskir félags-
manna í Búseta. Að undan-
förnu hefur fjölgað mjög
íbúðum í byggingu á vegum
búsetafélaga um allt land.
Ungu fólki fjölgar í Búseta.
Nú eru 10% fleiri undir 30 ára
en í sambærilegri könnun
1988. Þeim fjölgar einnig um
10% sem kjósa að íbúðir í bú-
setakerfinu verði parhús eða
raðhús. Yfirgnæfandi eru þó
óskirnar um fjölbýli. 7 af
hverjum 10 kjósa íbúðir i fjöl-
býlishúsum.
Mið- og vesturbær Reykja-
víkur er vinsælasta hverfi
þessa hóps. 55% finnst æski-
legast að þær rísi á þessu
svæði á höfuðborgarsvæð-
inu. Önnur hverfi í Reykjavík
eru ekki eins ofarlega á óska-
listanum og hefur áhugi á
Grafarvogi minnkað frá sið-
ustu könnun. Vaxandi áhugi
er á að búa í Kópavogi,
Garðabæ og einkum i Hafn-
arfirði. í könnuninni 1988
sögðust 5% vilja helst að bú-
setaíbúðir yrðu í Hafnarfirði
en nú svara helmingi fleiri á
sömu lund.
Spurt var hvort viðkom-
andi ætti í erfiðleikum með
að halda því húsnæði sem
hann byggi í og svaraði næst-
um þriðji hver því játandi.
52,4% sögðu ástæðuna vera
hættuna á að vera sagt upp
húsnæði.