Alþýðublaðið - 08.02.1991, Blaðsíða 6
6
kaupmátfur minnkar
jm m «- | i g ■
tasteignagjold
Tímakaup hæiikaði um 6% að
medaltali frá 3. áisfjórðungi
1989 til sarna tíma 1990. Til sam-
anburðar hækkaði framfærslu-
vísitalan um tæp 13% og minnk-
aði kaupmáttur því ura 6%. Þetta
kemur fram í nýju fréttabréfi frá
Kjararannsóknarnefnd. Hjá
flestum stéttum hefur það gerst
samhliða knupmáttarrýrnun að
vinnutími hefur dregist saman.
Áætlað er að aðstöðugjöid hækki
um 14% á milli áranna 1990 og
1991, segir í frétt frá Alþýðusam-
bandi íslands. „Það er stórmál fyrii
launafólk að fasteignagjöldin verði
endurskoðuð og þannig komið í veg
fyrir útgjaldaaukningu heimilanna.
Með því má komast hjá þessu hættu-
lega fordærni."
Alþýðusambandið hefur ákveðið
að skrifa öllum aðiidarfélögum sín-
um og hvetja þau til að taka upp við-
ræður við sveitarstjórnarmenn um
endurskoðun á fasteignagjöldum
þar sem þau hafa hækkað umtals-
vert umfram hækkanir launa og
verðlags. Til viðbótar því að sveitar-
félögin hafa hækkað fasteignargjöld
hafa ýmis sveitarfélög tekið upp sér-
stök gjöld vegna þjónustu við fast-
eignaeigendur. Alþýðusambandið
hefur rætt við forystumenn tveggja
stærstu tryggingarfélaganna og
mótmælt stórfelldum hækkunum
tryggingariðgjalda.
Ásmundur Stefánsson sagði í sam-
tali við Alþýðublaðið að Alþýðu-
sambandið legði mikla áherslu á að
stéttarfélögin hvert á sínum stað
þrýstu á sveitarfélögin um að
hækka ekki álögur, það hlyti að
vera sterkast að hver og einn reyndi
að vinna að þessum málum á
heimavelli. Varðandi hækkanir sem
koma frá stórum aðilum, t.d. trygg-
ingarfélögunum, skiptir miklu að
þau sýni gott fordæmi og hækki
ekki gjöld sín umfram það sem rúm-
ast innan þjóðarsáttar. Ásmundur
sagði að þrátt fyrir ýmsar hækkanir
mætti ekki horfa fram hjá því að tek-
ist hefði að stöðva kaupmáttarhrap
og enn væru hækkanir innan marka
þjóðarsáttar.
Látum bíla ekki
ganga að óþörfu!
Útbástur bitnar verst
á börnumBB.
u
UMFERÐAR
RÁÐ
Rannsóknaráð
ríkisins
augiýsir styrki til rannsókna
og tilrauna árið 1991
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrif
stofu ráðsins, Laugavegi 13, sími 21320.
• Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar.
• Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og afurð-
um sem talin er þörf fyrir næsta áratug.
• Mat á verkefnum sern sótt er um styrk til skal m.a. byggt á:
- líklegri gagnsemi verkefnis, m.a. markaðsgildi niðurstaðna, sem
sóst er eftir,
- giídi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina hér á
landi,
- hæfni umsækjenda/rannsóknarmanna.
• Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að;
- fýrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins,
- samvinna fýrirtækja og stofnana innanfands er mikilvægur þáttur í
framkvæmd verkefnisins,
- samstarf við erlend fýrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnanir er
mikilvægt,
- líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri fyrir atvinnurekstur.
Heimilt er einnig að styrkja verkefni, sem miða að uppbyggingu þekk-
ingar og færni á tæknisviðum, sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþróun
hér á landi í framtíðinni.
fFELAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 — 108 Reykjavík — Sími 678500
Félagsráðgjafi
Óskum eftir félagsráögjafa til starfa á hverfaskrif-
stofu fjölskyldudeildar að Síðumúla 39.
Upplýsingar gefur Erla Þórðardóttir yfirfélagsráð-
gjafi í síma 678500.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem það fást.
Félagsmiöstöð jafnaöarmanna
Hverfisgötu 8 —10
Sími15020
Rosiri
Opið I kvöld 8. febrúarfrá kl. 20.30—01.00.
Láttu sjá þig.
Kratakaffi
Miðvikudaginn 13.
febrúar kl. 20.30.
Gestur verður Össur
Skarphéðinsson.
Allir velkomnir.
Þorrablót
jafnaðarmanna í Kópavogi verður haldið laugardag-
inn 16. febrúar nk. í Hamraborg 14a. Húsið verður
opnað kl. 18.30.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 47700 mánu-
dagskvöldið 11.febrúareða fimmtudagskvöldið 14.
febrúar.
Allir velkomnir.
Aiþýðuflokkurinn.
Vesturland
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins heldur fund í Fé-
lagsbæ í Borgarnesi föstudaginn 15. febrúar kl.
17.30.
Fundarefni:
1-Skipan framboðslista Alþýðuflokksins í Vestur-
landskjördæmi í alþingiskosningunum 20. apríl
1991.
2. Kosningaundirbúningur.
3. Önnur mál.
Flokksfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórn Kjördæmisráðs.
Aðalfundur
Alþýðuflokksfélags Kópavogs
verður haldinn mánudaginn 18. febrúar kl. 20.30 í
Hamraborg 14a.
Dagskrá:
Venjuleg aðalr'undarstörf.
Mætum öll.
Stjórnin.