Alþýðublaðið - 12.02.1991, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR
12. FEBRÚAR 1991
BÓKMENNTAVERÐLAUN: Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, afhenti í gær þeim Fríðu Á Sigurðardóttir
og Herði Ágústssyni íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
árið 1991. Dómnefndir tilnefndu átta bækur úr flokki fag-
urbókmennta og sjö úr flokki handbóka, fræðirita og frá-
sagna. Fríða hlaut verðlaunin fyrir bókina Meðan nóttin
líður, í flokki fagurbókmennta, en Hörður fyrir bókina
Skálholt II, í flokki handbóka, fræðirita, og frásagna.
7% VERÐLÆKKUN í GRAFARVOGI: Gunnlaugs-
búð í Grafarvogi færði Grafarvogsbúum kærkomna búbót
um áramótin. Verðlagsstofnun komst að því í lok janúar sl.
að vörur höfðu lækkað í versluninni um 7% frá því í okt-
óber í fyrra. Verð á 50 vörutegundum lækkaði eða var
óbreytt í helmingi þeirra verslana sem voru kannaðar. Og
á þessu þriggja mánaða tímabili var meðalverð allra var-
anna sem voru kannaðar óbreytt í öllum búðunum.
ÓMAR SHARIF KEMUR: Hinn heimskunni kvik-
myndaleikari og briddsspilari tekur þátt í 9. Flugleiðamót-
inu í bridds, sem verður haldið á Hótel Loftleiðum um
næstu helgi. Tilkynning um þátttöku Sharifs barst óvænt
í gær og vakti að vonum gleði manna. Á mótinu verða
austurríska landsliðið og snillingarnir Chemla frá Frakk-
landi og Zia Mahood frá Pakistan.
VIÐ RAMMAN REIP.. . Fjármálaráðherra mótmælti
reikningum Ríkisendurskoðunar vegna sölu ríkisins á Þor-
móði ramma á Siglufirði. Það tók ráðherra tvær klukku-
stundir að gera grein fyrir máli sínu, en þrátt fyrir taland-
ann tókst honum ekki að sannfæra Pál á Höllustöðum, sem
hélt sig við mat Ríkisendurskoðunar. Eins og kunnugt er
skeikar um 100% á mati Ríkisendurskoðunar og mats-
manna fjármálaráðherra.
CARGOLUX ÁFLJÚGANDIFART: Cargolux verður
fyrst flutningafyrirtækja til að taka Boeing 747-400 flug-
vélar í notkun, en fyrsta vélin verður afhent í nóvember
1993 og önnur mánuði síðar. Cargolux er sem kunnugt er
upphaflega afkvæmi íslenskra flugfélaga, en Flugleiðir
hafa afskrifað allar sínar eignir í fyrirtækinu.
ALMANNAÞJÓNUSTA í STAÐ FANGELSIS-
VISTAR: Óli þ. Guðbjartsson dómsmálaráðherra hefur
lagt fram frumvarp um að þeir sem dæmdir hafa verið til
fangelsisvistar geti í staðinn unnið ólaunað í þágu samfé-
lagsins. Hafi maður verið dæmdur í allt að 10 mánaða
óskilorðsbundna refsivist er heimilt að dæma hann til sam-
félagsþjónustu. 20 klukkustunda vinna á að koma í stað
eins mánaðar dóms. Skilyrði er að almannahagsmunir
mæli ekki gegn því að þessari „refsingu" sé beitt.
Nýtt lyfjabákn?
Lyfjakostnaður er tvöfalt
hærri á íslandi en á Norður-
löndunum. Heilbrigðisráð-
herra vill reisa lyfjastofnun rík-
isins en lyfsalar segja það
miðstýringarbákn.
3
Dómshús við
Lækjartorg
Ríkið keypti í gær hús Út-
vegsbankans heitins undir
dómshús Reykjavíkur.
Ruotsintappaja
96 þúsund manns sáu lands-
keppni Svía og Finna í frjálsum
íþróttum 1970. Áhugi á þess-
um bardaga grannþjóðanna er
hreint ótrúlegur.
Jón Sigurðsson idnaöarráöherra um álmálid:
ÍÖRUGGUM
FARVEGI
Jón Sigurðsson iðnað-
arrádherra hélt í gær ut-
an á fund forsvarsmanna
Atlantsálsadilanna til að
meta stöðu álmálsins og
móta stefnu fyrir loka-
áfanga þess.
Iðnaðarráðherra segist
ætla að freista þess að
koma framkvæmdum af
stað á árinu og komast að
samkomulagi um það. Ljóst
sé þó að fyrirvarar á að fjár-
magna framkvæmdir séu
fyrir hendi af hálfu Atlants-
áls. „Verkefnið nú er að
finna leið til þess að málið
komist engu að síður af
stað á þessu ári," segir Jón
Sigurðsson.
Iðnaðarráðherra segir
Matthías Á Mathiesen,
fyrsta þingmann Reyknes-
inga, fara með staðlausa
stafi er hann staðhæfi að
ríkisstjórn hafi klúðrað ál-
versmálinu. Haft er eftir
Matthíasi í DV á laugardag
að ekki verði betur séð en
að álversdraumurinn sé bú-
inn.,, Ég fullyrði að örsökin
er aðgerðaleysi og seina-
gangur stjórnarflokkanna í
upphafi, sem og breytt
vinnubrögð iðnaðarráð-
herra," segir Matthías. Jón
Sigurðsson vísar þessum
ummælum Matthíasar á
bug.
„Málið er nú í öruggum
farvegi," sagði Jón Sigurðs-
son í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær.
Sjá nánar viðtal á síðu
3.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra undirbýr vesturförina í gærmorgun: Verkefnið að koma mál-
inu af stað á þessu ári. A-mynd: E.ÓI.
ÍDAG
Leiðari Alþýðublaðsins í dag fjallar um samstöðu Al-
þingis um að styðja ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
að taka upp stjórnmálsamband við Litháen. Alþýðu-
blaðið fagnar hve vel og markvisst hefur verið unnið
að Litháen-málinu og telur mikilvægara að stíga
skrefið til fulls en að hika og óttast viðskiptalegar af-
leiðingar frá hendi Sovétmanna.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: SAMSTAÐA UM LITHÁEN.
RITSTJORN r 625566 — 83320 ♦ FAX 627019 * ASKRIFT OG AUGLYSINGAR r 625566
Danskur stúdent til vandræða
Dönskum stúdent, sem
er búsettur á íslandi, var
árið 1989 synjað um
námslán úr Lánasjódi ís-
lenskra námsmanna
vegna náms í Skotlandi.
Umboðsmaður Alþingis
álítur að synjunin sé ekki í
samræmi við 2. grein Hels-
inki-sáttmálans, sem kveð-
ur á um að norrænir ríkis-
borgarar, sem dvelja á
Norðurlöndum utan
heimaiands síns, njóti svo
sem framast er unnt sömu
réttarstöðu og ríkisborgar-
ar dvalarlandsins. íslands-
deild Norðurlandaráðs hef-
ur beint því til Norður-
landaráðherrans í ríkis-
stjórn Steingrims Her-
mannssonar, Júliusar Sól-
nes, að hann láti kanna
hvort unnt sé að samræma
reglur norrænu námslána-
sjóðanna innbyrðis.
Frá þessu er greint í
skýrslu íslandsdeildar
Norðurlandaráðs, sem var
lögð fyrir Alþingi í gær.
Ekki er þess getið hvað orð-
ið hafi af þeim danska.