Alþýðublaðið - 12.02.1991, Page 8
liftryggiifgar
iii
/rgms
oiiz/y
AL1*J(>Ð/V
LÍFTRYGGINGARFELAGIÐ HF.
I.ÁGMÚLI 5 - RFYKJAVtK
sínd 681644
GEVALIA
I Þai er kalfið 687510
•••• ••••• •
• • • • •
•••• ••••• •
• • • • •
• ••••• •••
• • • •
• •••• ••••
• • • •
• • • • • • •
SPURNINGIN UM LANDHERNAÐ: Varaforsætisráðherra íraks,
Saadoun Hammadi, sagði að þjóð hans hefði kosið að berjast við fjöl-
þjóðaherinn. í gær var fyrirhugað að George Bush Bandaríkjaforseti
hitti hernaðarráðgjafa sína að máli til að ákveða tímasetningu og um-
fang landhernaðar til að hrekja lraka frá Kúvæt.
SAÚDÍ-ARABAR STAÐFASTIR: Konungur Saúdí-Arabíu, Fahd,
sagði að ríki hans væri staðráðið í að halda áfram þátttöku í Persaflóa-
stríðinu þar til írakar væru hraktir frá Kúvæt. Hann sagði að allar frið-
arumleitanir yrðu að fela í sér brotthvarf íraka frá Kúvæt.
SOVÉSK SENDINEFND TIL BAGHDAD: Sendimaður Míkhaíls
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga fór í gær til Baghdad til þess að reyna að
telja íraksleiðtoga, Saddam Hussein, á að draga herlið sitt frá Kúvæt
og forða landi sínu frá verri útreið af völdum herja bandamanna.
SCUD-ARAS A ISRAEL: írakar skutu Scud-flaug á fsrael seinni
part dags í gær en svo virtist sem enginn hafi slasast í árásinni, sem
var sú tólfta frá byrjun stríðsins, að sögn talsmanna ísraelska hersins.
LOFTARASIR HERTAR: Sprengjuvélar fjölþjóðahersins auka nú
enn loftárásir sínar á íraska hermenn í Kúvæt, að sögn yfirmanns í
bandaríska flughernum, Richards Neal. Talsmaður breska hersins
sagði að verið væri að eyða íraska fiughernum með sprengjuregni. Út-
varpið í Baghdad sagði að flugvélar bandamanna hefðu gert 63 árásir
á hernaðar- og íbúðarskotmörk á undanförnum sólarhring.
BANDARÍSKUR KVENHERMAÐUR í HALDIÍRAKA: Banda-
rískum kvenhermanni er haldið sem stríðsfanga af írökum, samkvæmt
upplýsingum sem fengust frá íröskum stríðsfanga, að sögn talsmanna
bandaríska varnarmálaráðuneytisins.
AFGHANSKIR SKÆRULIÐAR í RAÐIR BANDAMANNA:
Þrjú hundruð afghanskir skæruliðar hafa gengið til liðs við fjölþjóða-
herinn undir forystu Bandaríkjanna í stríðinu gegn frak, að sögn hátt-
setts manns í her Saúdí-Araba.
INNFLYTJENDUM TIL ÍSRAELS FÆKKAR: Persaflóastríðið
hefur valdið því að straumur innflytjenda frá Sovétríkjunum til ísrael
hefur minnkað um 60 prósent, að sögn talsmanna innflytjendaeftirlits-
ins í ísrael.
ARAFATÍ JORDANÍU: Leiðtogi Palestínuaraba, Jasser Arafat, kom
til Amman, höfuðborgar Jórdaníu, í gær til viðræðna við Hussein kon-
ung um Persaflóastríðið, að sögn talsmanns PLO.
ÁHRIF TSJERNÓBÝL-SLYSSINS: Sovéskur erindreki sagði að
meira en fjórar milljónir manna, þ.m.t. 800 þúsund börn, hefðu beðið
skaða af völdum Tsjernóbýl-slyssins árið 1986.
Fjölþjódaherinn við Persaflóa:
LANDHERNAÐ
Talid er ad George Bush
Bandaríkjaforseti ætli að bíða
með að taka ákvörðun um að
hefja orrustu á landi gegn írök-
um en talið er að sú ákvörðun
muni taka mikinn toll í liði
bandamanna. Bush átti í gær
fund með Dick Cheney varnar-
málaráðherra og Colin Powell,
æðsta manni bandaríska hers-
ins, til að ræða um tímasetningu
á landhernaði en þeir eru ný-
komnir frá Saúdí-Arabíu, þar
sem þeir könnuðu aðstæður og
lögðu mat á árangur hernaðar-
ins fram að þessu.
Frá útvarpinu í Baghdad bárust
þau skilaboð í gær að Irakar myndu
ekki semja um vopnahlé fyrr enn
fullur sigur hefði unnist. Þetta mun
vera svar íraka við tillögum sem
komið hafa fram undanfarið um að
samið verði um vopnahlé.
Sovétmenn hafa lýst yfir áhyggj-
um sínum af þróun mála i Persaflóa-
stríðinu. Sjálfur hefur Gorbatsjov
Sovétleiðtogi látið að því liggja að
fjölþjóðaherinn undir forystu
Bandaríkjanna gangi of langt í árás-
um sínum á írak, lengra en sam-
þykkt Sameinuðu þjóðanna sagði til
um. Ýmsir telja að Gorbatsjov sé nú
undir auknum þrýstingi harðlínu-
manna innan hersins, sem ekki eru
hrifnir af framgangi Bandaríkja-
manna í stríðinu. Sovétmenn hafa
hingað til studd aðgerðir fjölþjóða-
hersins heils hugar. I gær hélt sendi-
nefnd frá Sovétríkjunum undir for-
mennsku Jevgeny Primakovs til
Baghdad og mun ætiunin vera að
vara íraka við og hvetja þá til að
hörfa frá Kúvæt. Æ fleiri ríki hyggj-
ast nú senda nefndir til íraks til að
leita lausnar á Persaflóadeilunni. Þ.á
m. eru Kínverjar og 14 önnur ríki
sem eru hlutlaus í deilunni.
Saddam Hussein kom fram opin-
berlega í fyrsta sinn í tvær vikur í
gær og var kokhraustur að vanda.
Hann sagði að írakar yrðu staðfast-
ari með hverri klukkustundinni að
berjast til þrautar í þessu stríði og
hafa sigur. Hussein hvatti landa sína
til dáða og sagði að Ijóst væri að guð
væri með þeim gegn heiðingjunum
sem sitja nú um landið.
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur sagt að innrás á landi í Kúveit
verði ekki gerð fyrr en rétti tíminn
rennur upp. Menn telja því að beðið
verði með landhernað enda er for-
setinn undir miklum þrýstingi inn-
anlands um að halda uppi sprengju-
árásum á Iraka til að mannfall í
Bandaríkjaher verði semm minnst.
Hins vegar er einnig þrýst á að stríð-
inu ljúki sem fyrst til að koma í veg
fyrir aukna andúð araba og hugsan-
lega riðlun í bandalaginu gegn írök-
um.
Réttarhöldin yfir Winnie Mandela:
VITNI RÆNT
Winnie Mandela, eiginkona
leiðtoga Afríska þjóðarráðsins í
Suður-Afríku, Nelsons Mandela,
hélt fram sakleysi sínu af ákær-
um um mannrán og líkamsmeið-
ingar fyrir rétti í gær. Skömmu
eftir framburð Mandela var rétt-
arhöldunum frestað þegar sak-
sóknarinn tilkynnti að einu
helsta vitni hans hefði verið
rænt.
Mikið fjaðrafok varð í réttarsaln-
um þegar saksóknarinn, Jan Swane-
poel, tilkynnti um hvarf vitnis síns
Gabriels Mekgwe. Hann hélt því
fram að Mekgwe, sem var í samtök-
um sem vinna gegn aðskilnaðar-
stefnu hvíta minnihlutans og
Winnie Mandela er sökuð um að
hafa rænt og misþyrmt, hefði verið
rænt frá kirkju meþódista í Soweto
sem haldið hafði verndarvæng yfir
honum. Swanepoel vildi ekki leiða
önnur vitna sinna í stúku á þeim for-
sendum að mannránið gæti haft
neikvæð áhrif á vitnin.
Winnie Mandela er sökuð um að
hafa ásamt lífvörðum sínum rænt
umræddu vitni og þremur öðrum
frá húsnæði meþódista í Soweto fyr-
ir tveimur árum og misþyrmt þeim
rækilega með spörkum, barsmíðum
og svipuhöggum. í skriflegri yfirlýs-
ingu Mandela, sem afhent var rétt-
inum, segir að meðlimir í lífvarðar-
sveit hennar hafi forðað meintum
fórnarlömbum frá gistiheimili me-
þódista vegna kynferðislegrar
áreitni sem þeir hafi orðið fyrir af
hendi kynhverfs prests safnaðarins.
Hún neitaði því að mennirnir hefðu
mótmælt flutningunum og einnig
að þeim hefði verið misþyrmt þeim
á heimili hennar. Eitt hinna meintu
fórnarlamba, 14 ára drengur, fannst
látinn á víðavangi skömmu eftir
mannránið átti að hafa átt sér stað.
Fyrrverandi foringi í lífvarðarsveit
Mandela, Jerry Richardson, var
dæmdur til dauða á síðasta ári fyrir
morðið.
Nelson Mandela hefur sagt að
réttarhöldin séu blekkingarleikur til
þess fallinn að sverta mannorð Man-
delafjölskyldunnar og stuðla að
óeiningu þeirra sem berjast gegn
aðskilnaðarstefnunni.
NOTAÐU
PENINGANA ÞÍNA
í EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN
Við minnum á gjalddaga
húsnæðislána sem var
1. FEBRÚAR
16. FEBRÚAR__
leggjast dráttarvextir á
lán með lánslqaravísvtölu.
leggjast dráttarvextir á
lán með byggingavísitölu.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI 696900