Alþýðublaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 19. febrúar 1991
iNNLENDAR FRÉTTiR
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
SETUR NIÐUR KARTÖFLUR í FEBRÚAR! íDegi
segir frá því að í veðurblíðunni þar nyrðra séu þess jafnvel
dæmi að menn setji niður kartöflur á þorranum. Að vísu
er þar um að ræða tilraunastarfsemi. Guðni Sveinsson á
Siglufirði segist hafa sett niður fimm kartöflur — og verði
heppnin með honum getur hann snætt nýjar og fínar kart-
öflur snemma í sumar.
FÁ VEIÐILEYFI í PÓSTINUM: Eigendur smábáta,
minni en 10 brúttórúmlestir sem hafa gilt haffærisskírteini,
fá veiðileyfi send í póstinum núna í vikunni. Mikil töf hefur
orðið á útsendingu leyfanna, vegna fjölda athugasemda
sem smábátakarléu- gerðu við tilraunaúthlutunina í nóv-
ember. Alls eru það 650 aðilar sem fá svör — jákvæð eða
neikvæð.
ÍSLANDSBANKI VEITIR STYRKI: Fyrstu styrkjun-
um úr Menningarsjóði íslandsbanka hefur verið úthlutað.
Thor Thors-sjóðurinn í New York fékk 160 þúsund krón-
ur, Barnaheill 100 þúsund, Orgelsjóður Hallgríms-
kirkju sömu upphæð, Stofnun Sigurdar Nordals 300
þúsund. Bankinn mun í ár kaupa listaverk af Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar fyrir 400 þúsund og Listamið-
stöðin í Straumi er styrkt um 250 þúsund.
STYRKJA HEIMILISLAUSA: Tónleikar eru í kvöld kl.
22 í Púlsinum. Þeir eru haldnir til að styrkja heimilislausa
í Reykjavík. Ný dönsk, Bootlegs og Sjálfsfróun leika á
tónleikunum. ínngangur kostar 1000 krónur.
LANDSMÓT í FRJÁLSUM DÖNSUM: Undirbún-
ingur er hafinn fyrir íslandsmeistarakeppni í frjálsum
dönsum unglinga. Unglingamiðstöðin Tónabær og Iþrótta-
og tómstundaráð Reykjavíkur standa fyrir keppninni. Und-
anúrslit fara fram í 7 kjördæmum landsins, en úrslita-
keppnin í Tónabæ 15. mars.
NÝTT FRÁ NÁMSGAGNASTOFNUN: Allmargar
bækur hafa komið út hjá Námsgagnastofnun að undan-
förnu: Leður, uppsláttarrit um leðurhandverk, góð hand-
bók fyrir heimili, skóla og tómstundafélög eftir Skúlínu
Kjartansdóttur og Guðrúnu Helgadóttur;Brauðstrit
eftir Sigurborgu Hilmarsdóttur, sem fjallar um brauð-
strit fyrr og nú. Anna Cynthia Leplar myndskreytti;
Hlýddu og vertu góður um samskipti kynslóðgnna, efni
valið af Hjalmari Arnasyni og Magnúsi Jóni Árnasyni
með myndum Margrétar Friðbergsdóttur.
TANNRETTINGAR: Hið opinbera tekur ekki lengur all-
an kostnað af tannréttingum barna og unglinga á sínar
herðar. Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út reglur um
endurgreiðslur sjúkratrygginga af tannréttingakostnaði.
Tannréttingar eru nú flokkaðar eftir eðli þeirra. Greiðslu-
þátttaka er nú flokkuð eftir mikilvægi aðgerðarinnar.
Sækja þarf um á sérstökum eyðublöðum, sem fást hjá
Tryggingastofnun ríkisins.
ÍSLAND ÚR GERVI-
TUNGLI: Þann 7. sept-
ember 1986 voru teknar
myndir af íslandi úr banda-
ríska gervitunglinu Land-
sat 5. Landmælingar ís-
lands hafa nú gefið út tvær
myndanna með skýring-
um. Þær sýna svæði sem
afmarkast af Esju og Þing-
vallavatni í norðri og
strandlengjunni í suðri.
Önnur myndin er innrauð í breyttum litum, en sýnir greini-
lega mun á grónu landi og ógrónu. Hin myndin er í venju-
legum lit. Tilgangurinn er að kynna tækni og gögn sem
hægt er að nota til að fylgjast með ástandi landsins. Útgáf-
an á að stuðla að umræðu um fjölbreyttari nýtingu gervi-
tunglamynda af landinu en nú er, meðal annars til ýmissa
sérhæfðra rannsókna. Myndirnar fást hjá Landmælingum
og kosta 493 krónur.
KVENNARÁÐSTEFNU FRESTAÐ: Fyrirhugaðri
kvennaráðstefnu, sem halda átti hér á landi í sumar, hefur
nú verið frestað um eitt ár. Var þetta ákveðið eftir fund ís-
lensku undirbúningsnefndarinnar með bandarískri undir-
búningsnefnd. Of naumur tími gafst til,undirbúnings, sepir
í bréfi frá Guðrúnu Agnarsdottur. Aætlaður fjöldi þatt-
takenda er um 1000.
Tveir létust
vegna hnifsstungna
Þeir hörmulegu at-
burðir áttu sér stað nú
um helgina að 24 ára
gömul kona og 48 ára
gamall maður létust af
áverkum sem þau hlutu.
I báðum þessum tilvik-
um var um að ræða fólk
sem þekkist.
Konan sem lést var
þroskaheft og fannst látin í
herbergi 28 ára gamais
manns sem býr á sambýli
fyrir þroskahefta. Á líkinu
voru áverkar og stungur.
Maðurinn hefur verið
dæmdur í gæsluvarðhald
til 3. apríl, þá er honum
gert að sæta geðrannsókn.
Maðurinn hefur gengist við
verknaðinum.
Kona um fimmtugt sem
um langt skeið hefur verið
skjólstæðingur Kleppsspít-
•alans hefur viðurkennt að
hafa orðið 48 ára gömlum
manni að bana. Konan
stakk manninn í kviðinn
með hnífi með þeim afleið-
ingum að hann lést. Konan
lét sjálf vita um verknað-
inn. Maðurinn hafði haldið
til hjá konunni um nokkurt
skeið. Kona þessi hefur áð-
ur orðið manni að bana og
átt í margvíslegum útistöð-
um, sem rekja má til geð-
rænna vandamála hennar.
Fleiri mál þar sem lík-
amsmeiðingar komu við
sögu áttu sér stað um helg-
ina. Ungur maður stakk
föður sinn með hnífi í
brjóstið og flúði af vett-
vangi. Faðirinn var fluttur á
sjúkrahús en reyndist ekki í
lífshættu. Sonurinn náðist
fljótlega og hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald
til 23. mars.
Ölvuð kona vopnuð hnífi
réðst inn í íbúð við Hverfis-
götu í fyrrinótt. Konan taldi
að dóttir sín á unglingsaldri
væri í
húsinu, en svo reyndist
ekki vera. Konan ógnaði
engum og olli engum
skaða.
í þessum húsum urðu
þeir voveiflegu atburðir
um helgina að tvennt
lét lífið eftir
hnifsstungur.
A-mynd: E.ÓI.
Verslanir os, fyrirtœki heimsótt í sérstakri áhlaupslotu:
Sérsveitir
á ferðinni
Fjármálaráðherra
kynnti í gær sérstaka
áhlaupslotu, eins og það
er kallað í gögnum ráðu-
neytisins, vegna sjóðvéla
og sölureikninga í verslun
og þjónustu. Sérstök eftir-
litssveit á vegum ríkis-
skattstjóra mun á næstu
mánuðum fara í verslunar
og þjónustufyrirtæki, og
gera athugasemdir þar
sem notkun sjóðvéla og
söluskráningu er áfátt.
Sérsveitir fjármálaráðherra
hafa þegar hafið starf sitt við
eftirlit í fyrirtækjum. Ástand
sjóðvéla og sölureikninga
hefur verið kannað í 241 fyr-
irtæki. Af þessum fyrirtækj-
um reyndust 105 vera með
allt sitt á hreinu en athuga-
semdir voru gerðar við stöðu
mála í 136 fyrirtækjum. Þeim
fyrirtækjum sem gerðar voru
athugasemdir hjá er gefinn
45 daga frestur til að bæta úr
því sem áfátt þykir. Hafi við-
komandi ekki gert viðunandi
úrbætur innan 45 daga kem-
ur til lokunar.
Fram kom á blaðamanna-
fundi sem fjármálaráðherra
hélt í gær að í flestum tilfeli-
um þar sem athugasemdir
voru gerðar var um smávægi,-
leg tæknileg atriði að ræða. Á
næstu vikum er gert ráð fyrir
að sérsveitirnar muni heim-
sækja um 6000 þúsund versl-
unarog þjónustufyrirtæki.
Fjármálaráðherra segir að
hertar aðgerðir á síðasta ári
hafi skilað í ríkiskassann um
einum milljarði fram yfir það
sem búast hefði mátt við
hefði ekki verið gripið til sér-
stakra aðgerða, t.d. hótana
um að fyrirtækjum yrði lokað
stæðu menn ekki í skilum
með söluskatt á réttum tíma.
„Ég mun kalla nefndina
saman til fyrsta fundar á
allra næstu dögum. For-
sætisráðherra óskar eftir
því að nefndin hraði starfi
sínu eftir föngum og verð-
ur lögð áhersla á að svo
megi verða, enda eru með-
nefndarmenn mínir engir
aukvisar og kunnugir
þessum málum,” sagði
Kristján Guðmundsson,
fyrrverandi bæjarstjóri í
samtali við Alþýðublaðið.
Kristján er formaður
nefndar sem Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
Fram kom í máli ráðherra að
á næstu vikum verður farið af
stað með mikið kynningar-
átak, gefnir verða út kynn-
ingarbæklingar og auglýst
verður í fjölmiðlum og því ná-
kvæmlega lýst hvað þeim
sem hafa með sjóðvélar að
herra hefur skipað vegna
tjóns sem varð í óveðrínu er
gekk yfir landið þann 3.
febrúar. Aðrir í nefndinni eru
Björn Marteinsson, verk-
fræðingur hjá Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðar-
ins, Rúnar Guðmundsson,
skrifstofustjóri hjá Trygginga-
eftirliti ríkisins, ogSigmar Ár-
mannsson, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra
tryggingafélaga.
Að sögn Kristjáns Guð-
mundssonar er nefndinni
ætlað að afla ítarlegra upplýs-
inga um fjárhagslegt tjón í
gera ber að aðhafast.
Ráðherra sagði að grund-
vallarhugsunin í þessum að-
gerðum væri annars vegar
sú, að menn skili sameigin-
legum fjármunum lands-
manna í sameiginlegan sjóð.
Hins vegar jafnréttisreglan í
viðskiptalífinu að fyrirtækin
sem eru heiðarleg og standa
í skilum líði ekki fyrir verri
samkeppnisstöðu við þá sem
stinga skattinum að ein-
hverju eða öllu leyti undan.
Fjármálaráðherra sagðist
binda miklar vonir við það að
almenningsálitið héldi áfram
að verða jafn-virkt og það
hefði verið, þar væri sterk-
asta aðhaldið.
Fjármálaráðherra Vildi
ekki upplýsa hvort ákveðin
gerð fyrirtækja, eða þjón-
ustuaðila stæði sig verr en
aðrar við að uppfylla kröfur
ráðuneytisins.
óveðrinu og hafa um það
samvinnu við ríki, sveitarfé-
lög, tryggingafélög og aðra
aðila. Einnig á nefndin að
koma með tillögur um hvern-
ig megi tryggja í framtíðinni
að einstaklingar og fyrirtæki
fái bætt tjón af völdum
óveðra og náttúruhamfara.
Kristján sagði að fréttir um
tjón af völdum óveðursins
þann 3. febrúar hefðu borist
víða að af landinu. í fljótu
bragði sýndist honum sem
ein stétt manna hefði farið
einna verst út úr þessu veðri,
en það eru garðyrkjubændur.
Oveöriö í byrjun febrúar:
Sérstek nef nd
kcmnar tjónið