Alþýðublaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 19. febrúar 1991
Tekjur sveitarfélaga á Nerðurlandi
Útsvarstekjur á Norðurlandi
hækkudu talsvert minna en
landsmeðaltal milli áranna 1989
og 1990. Meðan útsvar á lands-
vísu hækkaði að meðaltali um
10,1 % hækkaði útsvar á Norður-
landi um 8,8%
í fréttabréfi frá Fjórðungssam-
bandi Norðurlands segir að líkur
megi að því færa að þessu hafi að
mestu ráðið samdráttur í atvinnu-
tekjum í fjórðungnum. Hins Vegar
hafa bæði aðstöðugjöld og fast-
eignagjöld í fjórðungnum hækkað
meira en nemur landsmeðaltali.
Sérstaklega hafa fasteignagjöld
hækkað mikið umfram landsmeðal-
tal á Norðurlandi, eða 28% á móti
21% hækkun á landsvísu.
Hækkun fasteignagjalda byggist á
þeirri miklu stökkbreytingu sem
varð þegar farið var að reikna fast-
eignaskatta eftir hliðstæðum álagn-
ingarstofni og í Reykjavík, segir í
fréttabréfinu. Hækkun aðstöðu-
gjalda á Norðurlandi er skýrð með
hærri álagningarstiga sveitarfélaga
en áður.
Tekjur sveitarfélaga á Norður-
landi af útsvari, aðstöðugjöldum og
fasteignagjöldum halda þó í heild
hart nær í við meðaltalshækkun
milli áranna 1989 og 1990. Þessar
tekjur sveitarfélaganna hækkuðu
að landsmeðaltali um 14,2% en á
Norðurlandi um 14%.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39 — 108 Reykjavík — Sími 678500
Fræðsla — upplýsingar
Starfsmann vantar nú þegar til afleysinga á
fræöslu- og upplýsingasvið öldrunarþjónustudeild-
ar. Starfið er fólgið í almennri fræðslu og upplýs-
ingastarfsemi í þágu deildarinnar, útgáfu frétta-
blaðs o.fl.
Fyrir hugmyndaríkan starfsmann býður þetta starf
upp á marga skapandi og skemmtilega möguleika.
Starfið gerir kröfu til frumkvæðis og sjálfstæðra
vinnubragða. Menntun á sviði félagsvísinda, t.d. fé-
lagsráðgjöf, félags- og fjölmiðlafræði eða kennslu
er áskilin.
Upplýsingar veitir yfirmaður öldrunarþjónustu-
deildar, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir í síma 678500.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk.
Verkstjóri í öldrunarþjónustu
Verkstjóra í heimaþjónustu vantar í félags- og þjón-
ustumiðstöð fyrir aldraða að Vesturgötu 7.
Starfssvið verkstjóra er fólgið í daglegum rekstri
heimaþjónustu aldraðra, verkstjórn, og ráðgjöf við
starfsmenn.
Æskilegt er að umsækjendur geti unnið sjálfstætt
og hafi einhverja reynslu á sviði félagslegrar þjón-
ustu og þægilegt viðmót í mannlegum samskipt-
um.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
627077.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk.
Starfsmenn í öldrunarþjónustu
Sjúkraliða vantar til aðstoðar við böðun aldraðra.
Um er að ræða 50% starf við félags- og þjónustu-
miðstöðina að Vesturgötu 7. Góð vinnuaðstaða og
fullkomið sjúkrabað.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 627077.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk.
Aðstoðarmann við böðum aldraðra vantar að fé-
lagsstarfi aldraðra í Furugerði 1.
Góð vinnuaðstaða og fullkomið sjúkrabað.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 36040.
Umsóknarfestur er til 28. febrúar nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, óskareftirtilboðum í jarð-
vinnu o.fl. vegna lagningar 132 kV jarðstrengja milli
Aðveitustöðvar 2 við Meistaravelli í Reykjavík og
Aðveitustöðvar 7 á Hnoðraholti í Kópavogi.
Verkið skiptist í 2 áfanga og er óskað eftir tilvoðum
í hvorn áfanga fyrir sig:
Áfangi 1
í Reykjavík, 3900 m skurðlengd og áætlaður verk-
tími 8. apríl til 10. ágúst.
Áfangi 2
í Kópavogi, 6450 m skurðlengd og áætlaður verk-
tími 8. apríl til 20. september.
Helstu verkþættir eru; skurðgröftur, fleygun og
sprengingar, lagning jarðvírs, lagning strengpípna í
götur og innkeyrslur, söndun undir og yfir strengi
og pípur, útdráttur strengja (að hluta), lagningu
steinhellna og hlífa, fylling skurðar, brottflutningur
umframefnis og frágangur lands.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12.
mars kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur auglýsir eftir
skólatannlækni við Seljaskóla.
Til greina kemur að ráða tvo tannlækna í 50% starf
eða einn tannlækni í 100% starf.
Upplýsingar gefur yfirskólatannlæknir í síma
22400.
Umsóknum skal skila á skristofu starfsmannastjóra
Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47, fyrir kl.
16, fimmtudaginn 28. febrúar nk.
Útboð
/Sk'
S- ooo w
' HJU Í
*
Aðalfundur
F.S.V.
Aðalfundur Félags starfsfólks t' veitingahúsum
verður í Baðstofunni Ingólfsbæ, Ingólfsstæti 5,
þriðjudaginn 26. febrúar kl. 16.00.
Dagskrá verður samkvæmt félagslögum.
F.h. stjórnar F.S.V.
Sigurður Guðmundsson.
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum í
gerð 1155 m af götum á Hvaleyrarholti 4. áfanga.
Innifalið er lagning holræsa, vatns- og hitaveitu-
lagna ásamt jarðvinnu fyrir raf magns- og símalagn-
ir.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudegin-
um 19. febrúar nk., á skrifstofu Bæjarverkfræðings
í Hafnarfirði, Strandgötu 6, gegn 15.000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26.
febrúar kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgvar, f.h. Bygg-
ingadeildar Borgarverkfræðings, óskar eftir tilboð-
um í 134 fermetra viðbyggingu við skemmu í Ár-
bæjarsafni.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 7.
mars kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGÁR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
FloL
. #
tarfid
Frá SUJ
Sambandi ungra jafnaðarmanna hefur boðist að
senda nokkra fulltrúa á Friðarráðstefnu ungs fólks í
Evrópu, sem haldin verður í borginni IEPER í Belgíu
dagana 7—13. apríl.
Umsóknir og nánari upplýsingar fást hjá SUJ,
Hverfisgötu 8—10, 2. hæð.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. mars.
SUJ.
KRATAKAFFI
miðvikudaginn 20.
febrúar kl. 20.30.
Gestur: Magnús Jóns-
son.
Fjölmennum. Spáum í
pólitíkina (og veðrið).
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.