Alþýðublaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 19. febrúar 1991 5 Óskar Vistdal Ljós Ijóðsins er mergur málsins Norska skáldiö Stein Mehren í Norrœna húsinu Dagana 16. og 17. ffebrúar sl. var dagskrá um norska skáldið Stein Mehren i Norræna húsinu. Allt ffrá þvi hann kom ffyrst ffram 1960 hefur Stein Mehr- en verið i fremstu röð norskra höfunda. Hann heffur geffið út rúmlega 30 bækur, þar aff er helmingurinn Ijóðabækur en annað skáldsögur, leikrit, hugleið- ingar og ritsmiðar um menningarmál. Sem Ijáð- skáldí er honum jafnað við stárskáld i norskri bák- menntasögu á borð við Olaff Bull, Olav Aukrust og ekki sist Henrik Wergeland. Rátt eins og þessi skáld er Stein Mehren heimspekiskáld sem kaffar i leynd- ardáma lifsins i alheimsvidd i Ijáðum sem oft eru hugleiðingar og spakmæli eða algleymisvitrun. Stein Mehren yrkir í andstæðun- um: „Ég skil lífið aðeins gegnum andstæðurnar. En ég get aðeins lif- að því gegnum það sem það líkist, það er að segja gegnum það sem ég þekki aftur. I þessari spennu heldur það líf, sem ég held fast í, fast í mig,“ fullyrðir hann. Hvert fyrirbrigði öðlast merkingu fyrir andstæðu sína. Hvað væri lífið án dauðans og hvernig gætum við metið ljósið ef ekki væri myrkrið? í hinni þversagnafullu sögu með sitt „lýsandi myrkur“ og „myrka ljós“ leitar Stein Mehren yrkis- efna. Undirstöðuhugmyndin er sú díalektík tilverunnar sem finnst jafnvel í minnstu brotum alheims- ins: „Við berum í okkur sköpunar- andartakið / eins og steinninn ber í sér sólargeislann / Sekúnduna sem rennur ármilljónir gegnum hann. (. ..) Við berum í okkur sköpunarandartakið / og myrkrið í ríki dauðans." Þetta brot er úr ljóðasafninu Króróna. Myrkvinn og Ijós hans, sem kom út árið 1986 og er að margra mati besta verk skálds- ins. Aldrei hafa skáldið og hugsuð- urinn Stein Mehren stutt hvor ann- an jafn dyggilega og í þessari bók. Kóróna heitir lýsandi hringur sem birtist um sólu við almyrkva, nán- ast eins og sættir ljóss og myrkurs, og þannig tákn fyrir þá samein- ingu andstæðna sem Mehren legg- ur sig eftir. „Öll ljóð mín eru til- raun til þess að grípa það ljós sem (...) myrkvinn felur, dregur til sín og sendir frá sér.“ Bókin er í þremur hlutum. Fyrsti og þriðji hluti eru ljóðabálkar. Mið- hlutinn er safn meitlaðra athuga- semda í þrettán svokölluðum „myrkvum" sem standa sem and- stæða við — skulum við segja — lýsandi ljóðabálkana — díalektík þessa skáldskapar sem ótvírætt áréttar yrkisefnið, „menn tuttug- ustu aldar / Dæmdir til þess að hafna sálu sinni, brottreknir / í lík- ömum sínum / Og myrkrinu sem lýsir kringum þá." Maðurinn, fórnarlamb þver- sagna tilverunnar, hann stendur með annan fót í ljósinu og hinn í myrkrinu. Sem félagsvera er mað- urinn að auki fangi þess „skiln- ingsháttar" sem hann fæðist með, dauðadæmdur til forgengilegs lífs: „í hverju samfélagi liggur hneigð til þess að lokast utan um mennina eins og samfélagið reyndi að gera sig að skilningshætti, sérstakri líf- veru og einkasviði lífsreynslunnar. í sérhverju samfélagi er kraftur sem vill fullkomna sig sem hnatt- líf, allsherjarlífveru, þar sem of- aukið er huglægum skilningi ein- staklingsins. Til þessarar allsherj- ar fullnustu notar samfélagið skilningshátt tímans, hugmynda- kerfi og tækni. Tölvan er það verkfæri okkar tíma sem best er til þess fallið að Ioka með samfélag- inu umhverfis okkur. í meðfæddri og forgengilegri til- veru okkar í samfélagsfangelsinu sem tengir okkur við hið tíman- lega og líkamlega er einnig draumurinn um andstæðuna, vitr- unin um hið yfirskilvitlega og há- spekilega. Hún er hreyfiaflið bak við „skilningsháttinn" og undir- staðan í Fást-harmleik mannkyns- ins, viðleitni þess að dæma sjálft sig óþarft. „I ákefð lífsins sjálfs, ofsanum gegn dauðanum, liggur eilífðarvídd sem sprengir lífið, efn- ið, óendanleikann. Þetta er draumur dauðans í okkur, að við temjum óendanleikann í okkur. Að við endursamræmum einsemd okkar í alheiminum." „Þetta er hin skelfilega uppgötvun Fásts þegar hann stendur á verkstæði sínu og skyndilega ljómar heimurinn eins og öfugritun á glugganum. Hann hefur selt Mefistófelesi huglægan skilning sinn, sál sína. í staðinn hefur hann fengið alla hlutlæga þekkingu veraldar sem valdsvið sitt. En á glerrúðunni skín visnað- ur óendanleikinn eins og dulritun sem aldrei verður ráðin. Þar sér hann glataða sál sína sem felu- rnynd." „Ó, við hefðum átt að þekkja fyrr þennan draum: Harð- iæstan universalisma miðalda þar sem allt framandi var brennt á báli í þeirri trú að brenna mætti manninn úr manninum. Hug- myndafræðingarnir, trúarsetning- arnar, tök fjölmiðla á okkur. Alls staðar finnum við drauminn um að dæma manninn óþarfan. Draumurinn um hið algjöra upp- lýsingaflæði um hnöttinn er al- ræðisdraumurinn að nýju, nú tjáð- ur á máli tölvualdar." Á þennan hátt leggur Stein Mehren til málanna um nýja „myrkvann", fjölmiðla og tölvu- tæknina. Spurningin er: Hvaða áhrif hefur þróun upplýsinga- tækni á mannlegan skilning og skapandi hæfileika okkar? „Tölvu- heilinn reynir ætíð að brjóta niður óendanleikann með því að stýfa burt víddir hans, eilífðina og and- artakið. ímyndunaraflið hjá okkur, hin huglæga endurminning, berst af alefli gegn eða-tengingu og og- tengingu tölvuheilans en vill setja fram eðaog-tengingu sem er meira en nokkur rökvísi eða tölvu- heiti getur samþykkt. Stein Mehr- ferðir til þess að tengja saman þekkingu, tilfinningar eða minn- ingar. Maður raðar saman minn- ingabrotum sínum, minnissnepl- um í minningakerfi. Og upplifir til- finninguna um að það skapast minning sem nær út fyrir andar- takið." „Hvað er grísk goðafræði annað en kerfi til þess að geta munað eða fyrir minningar? Þannig gerðu miðaldir himin og helvíti að minniskerfi fyrir syndir og dyggðir, fyrir tilfinningar og skilning á afmörkunum og sam- hengi. Eins og við könnumst við úr verki Dantes." Svo að örlítið sé snúið út úr Goethe: „Eilíf Fástmyndin kallar oss.“ Höfundur er sendikennari í norsku við Háskóla íslands. en dregur saman hina lýsandi tölvumyrkva í röð meitlaðra at- hugasemda sem hér verður tekið úrval úr: Tölva getur afmáð sjálfa sig og forrit sín en hún getur ekki framið sjálfsmorð. Tölva getur varaö við háska en ekki óttast. Tölva getur gefið tilfinningu um óendanleika og fært út for- rit sin óendanlega en hún get- ur ekki skynjað óendanleika. Hún þekkir fyrir, eftir og nú en ekki fortíð, nútíð eða framtíð. Það er unnt að slökkva á og eyða tölvunni og forritun hennar en tölvan getur ekki dáið. Hún hefur ekkert kyn og enga æsku. HÚn þekkir ekki 'sorgina, bara slysið, ranga lausn. Hún þekkir tilviljunina en ekki örlögin. Tölvan þekkir ekki frelsið, bara óvissuna. Hún leggur fram sannanir en sannfærir ekki. Tölvan úreld- ist en hún verður ekki öldruð. Að dómi Steins Mehrens stönd- um við hér frammi fyrir allsherjar afskiptum af lífi okkar sem allt andlegt líf verður að tryggja sig gegn. Gagnvart myrkva upplýs- ingaflæðisins setur hann Ijóðið sem tjáningarform lýsandi sköp- unargáfu mannsins. „Setjum að ég segi að tölvan sé ljóð. Og ljóðið tölva. Þannig reyni ég að segja hvað ljóðið er ekki og hvað tölvan getur ekki verið." En hvað er þá ljóð og hvað er tölva? „Ljóð og tölvutækni eru að- Vinningstölur laugardaginn 16. febr. 1991 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 6.993.607 A Z. 4af5^tM 4 183.273 3. 4 af 5 187 6.762 4. 3af 5 6.782 435 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 11.941.363 kr. ijm' I UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 * 1 í

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.