Alþýðublaðið - 19.02.1991, Side 5
Þriðjudagur 19. febrúar 1991
5
Óskar Vistdal
Ljós Ijóðsins er
mergur málsins
Norska skáldiö Stein Mehren í Norrœna húsinu
Dagana 16. og 17. ffebrúar sl. var dagskrá um
norska skáldið Stein Mehren i Norræna húsinu. Allt
ffrá þvi hann kom ffyrst ffram 1960 hefur Stein Mehr-
en verið i fremstu röð norskra höfunda. Hann heffur
geffið út rúmlega 30 bækur, þar aff er helmingurinn
Ijóðabækur en annað skáldsögur, leikrit, hugleið-
ingar og ritsmiðar um menningarmál. Sem Ijáð-
skáldí er honum jafnað við stárskáld i norskri bák-
menntasögu á borð við Olaff Bull, Olav Aukrust og
ekki sist Henrik Wergeland. Rátt eins og þessi skáld
er Stein Mehren heimspekiskáld sem kaffar i leynd-
ardáma lifsins i alheimsvidd i Ijáðum sem oft eru
hugleiðingar og spakmæli eða algleymisvitrun.
Stein Mehren yrkir í andstæðun-
um: „Ég skil lífið aðeins gegnum
andstæðurnar. En ég get aðeins lif-
að því gegnum það sem það líkist,
það er að segja gegnum það sem
ég þekki aftur. I þessari spennu
heldur það líf, sem ég held fast í,
fast í mig,“ fullyrðir hann. Hvert
fyrirbrigði öðlast merkingu fyrir
andstæðu sína. Hvað væri lífið án
dauðans og hvernig gætum við
metið ljósið ef ekki væri myrkrið?
í hinni þversagnafullu sögu með
sitt „lýsandi myrkur“ og „myrka
ljós“ leitar Stein Mehren yrkis-
efna. Undirstöðuhugmyndin er sú
díalektík tilverunnar sem finnst
jafnvel í minnstu brotum alheims-
ins: „Við berum í okkur sköpunar-
andartakið / eins og steinninn ber
í sér sólargeislann / Sekúnduna
sem rennur ármilljónir gegnum
hann. (. ..) Við berum í okkur
sköpunarandartakið / og myrkrið
í ríki dauðans."
Þetta brot er úr ljóðasafninu
Króróna. Myrkvinn og Ijós
hans, sem kom út árið 1986 og er
að margra mati besta verk skálds-
ins. Aldrei hafa skáldið og hugsuð-
urinn Stein Mehren stutt hvor ann-
an jafn dyggilega og í þessari bók.
Kóróna heitir lýsandi hringur sem
birtist um sólu við almyrkva, nán-
ast eins og sættir ljóss og myrkurs,
og þannig tákn fyrir þá samein-
ingu andstæðna sem Mehren legg-
ur sig eftir. „Öll ljóð mín eru til-
raun til þess að grípa það ljós sem
(...) myrkvinn felur, dregur til sín
og sendir frá sér.“
Bókin er í þremur hlutum. Fyrsti
og þriðji hluti eru ljóðabálkar. Mið-
hlutinn er safn meitlaðra athuga-
semda í þrettán svokölluðum
„myrkvum" sem standa sem and-
stæða við — skulum við segja —
lýsandi ljóðabálkana — díalektík
þessa skáldskapar sem ótvírætt
áréttar yrkisefnið, „menn tuttug-
ustu aldar / Dæmdir til þess að
hafna sálu sinni, brottreknir / í lík-
ömum sínum / Og myrkrinu sem
lýsir kringum þá."
Maðurinn, fórnarlamb þver-
sagna tilverunnar, hann stendur
með annan fót í ljósinu og hinn í
myrkrinu. Sem félagsvera er mað-
urinn að auki fangi þess „skiln-
ingsháttar" sem hann fæðist með,
dauðadæmdur til forgengilegs lífs:
„í hverju samfélagi liggur hneigð
til þess að lokast utan um mennina
eins og samfélagið reyndi að gera
sig að skilningshætti, sérstakri líf-
veru og einkasviði lífsreynslunnar.
í sérhverju samfélagi er kraftur
sem vill fullkomna sig sem hnatt-
líf, allsherjarlífveru, þar sem of-
aukið er huglægum skilningi ein-
staklingsins. Til þessarar allsherj-
ar fullnustu notar samfélagið
skilningshátt tímans, hugmynda-
kerfi og tækni. Tölvan er það
verkfæri okkar tíma sem best er til
þess fallið að Ioka með samfélag-
inu umhverfis okkur.
í meðfæddri og forgengilegri til-
veru okkar í samfélagsfangelsinu
sem tengir okkur við hið tíman-
lega og líkamlega er einnig
draumurinn um andstæðuna, vitr-
unin um hið yfirskilvitlega og há-
spekilega. Hún er hreyfiaflið bak
við „skilningsháttinn" og undir-
staðan í Fást-harmleik mannkyns-
ins, viðleitni þess að dæma sjálft
sig óþarft. „I ákefð lífsins sjálfs,
ofsanum gegn dauðanum, liggur
eilífðarvídd sem sprengir lífið, efn-
ið, óendanleikann. Þetta er
draumur dauðans í okkur, að við
temjum óendanleikann í okkur.
Að við endursamræmum einsemd
okkar í alheiminum." „Þetta er hin
skelfilega uppgötvun Fásts þegar
hann stendur á verkstæði sínu og
skyndilega ljómar heimurinn eins
og öfugritun á glugganum. Hann
hefur selt Mefistófelesi huglægan
skilning sinn, sál sína. í staðinn
hefur hann fengið alla hlutlæga
þekkingu veraldar sem valdsvið
sitt. En á glerrúðunni skín visnað-
ur óendanleikinn eins og dulritun
sem aldrei verður ráðin. Þar sér
hann glataða sál sína sem felu-
rnynd." „Ó, við hefðum átt að
þekkja fyrr þennan draum: Harð-
iæstan universalisma miðalda þar
sem allt framandi var brennt á báli
í þeirri trú að brenna mætti
manninn úr manninum. Hug-
myndafræðingarnir, trúarsetning-
arnar, tök fjölmiðla á okkur. Alls
staðar finnum við drauminn um
að dæma manninn óþarfan.
Draumurinn um hið algjöra upp-
lýsingaflæði um hnöttinn er al-
ræðisdraumurinn að nýju, nú tjáð-
ur á máli tölvualdar."
Á þennan hátt leggur Stein
Mehren til málanna um nýja
„myrkvann", fjölmiðla og tölvu-
tæknina. Spurningin er: Hvaða
áhrif hefur þróun upplýsinga-
tækni á mannlegan skilning og
skapandi hæfileika okkar? „Tölvu-
heilinn reynir ætíð að brjóta niður
óendanleikann með því að stýfa
burt víddir hans, eilífðina og and-
artakið. ímyndunaraflið hjá okkur,
hin huglæga endurminning, berst
af alefli gegn eða-tengingu og og-
tengingu tölvuheilans en vill setja
fram eðaog-tengingu sem er
meira en nokkur rökvísi eða tölvu-
heiti getur samþykkt. Stein Mehr-
ferðir til þess að tengja saman
þekkingu, tilfinningar eða minn-
ingar. Maður raðar saman minn-
ingabrotum sínum, minnissnepl-
um í minningakerfi. Og upplifir til-
finninguna um að það skapast
minning sem nær út fyrir andar-
takið." „Hvað er grísk goðafræði
annað en kerfi til þess að geta
munað eða fyrir minningar?
Þannig gerðu miðaldir himin og
helvíti að minniskerfi fyrir syndir
og dyggðir, fyrir tilfinningar og
skilning á afmörkunum og sam-
hengi. Eins og við könnumst við
úr verki Dantes."
Svo að örlítið sé snúið út úr
Goethe: „Eilíf Fástmyndin kallar
oss.“
Höfundur er sendikennari í norsku
við Háskóla íslands.
en dregur saman hina lýsandi
tölvumyrkva í röð meitlaðra at-
hugasemda sem hér verður tekið
úrval úr:
Tölva getur afmáð sjálfa sig
og forrit sín en hún getur ekki
framið sjálfsmorð. Tölva getur
varaö við háska en ekki óttast.
Tölva getur gefið tilfinningu
um óendanleika og fært út for-
rit sin óendanlega en hún get-
ur ekki skynjað óendanleika.
Hún þekkir fyrir, eftir og nú en
ekki fortíð, nútíð eða framtíð.
Það er unnt að slökkva á og
eyða tölvunni og forritun
hennar en tölvan getur ekki
dáið. Hún hefur ekkert kyn og
enga æsku. HÚn þekkir ekki
'sorgina, bara slysið, ranga
lausn. Hún þekkir tilviljunina
en ekki örlögin. Tölvan þekkir
ekki frelsið, bara óvissuna.
Hún leggur fram sannanir en
sannfærir ekki. Tölvan úreld-
ist en hún verður ekki öldruð.
Að dómi Steins Mehrens stönd-
um við hér frammi fyrir allsherjar
afskiptum af lífi okkar sem allt
andlegt líf verður að tryggja sig
gegn. Gagnvart myrkva upplýs-
ingaflæðisins setur hann Ijóðið
sem tjáningarform lýsandi sköp-
unargáfu mannsins. „Setjum að ég
segi að tölvan sé ljóð. Og ljóðið
tölva. Þannig reyni ég að segja
hvað ljóðið er ekki og hvað tölvan
getur ekki verið."
En hvað er þá ljóð og hvað er
tölva? „Ljóð og tölvutækni eru að-
Vinningstölur laugardaginn
16. febr. 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 6.993.607
A Z. 4af5^tM 4 183.273
3. 4 af 5 187 6.762
4. 3af 5 6.782 435
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
11.941.363 kr.
ijm'
I
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
*
1
í