Alþýðublaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 1
1—
■
'f''s ?
■y ; r;. ;'••■■■■. .:
/■;■■■.
.
■•- ■ ■ ■
'
SIGURVEGARAR — Rannveig Guðmundsdóttir vann frækilegan kosningasigur í Reykjanes-
kjördæmi — og sama gerði Ossur Skarphéðinsson í Reykjavík. Hér óska þau hvort öðru til
hamingju þegar þingflokkur Alþýðuflokksins kom saman í gærmorgun. Til hægri á myndinni
er Sigbjörn Gunnarsson, hann vann sigur á Norðurlandi eystra, og til vinstri Karl Steinar
Guðnason, nýendurkjörinn þingmaður fyrir Reykjaneskjördæmi. A-mynd: E.ÓI.
Núverandi rikis-
stjorn óstarfhæf
— segir Jón Baldvin Hannibalsson, formaöur Alþýöuflokksins
„Núverandi ríkisstjórn er í
raun ekki starfhæf þar sem
hún ræður ekki framgangi
mála í báöum deildum Alþing-
is, sem enn eru við lýdi. Auk
þess er ágreiningur milli
stjórnarflokkanna í veigamikl-
um málum, svo sem þeirra er
varða stóriðju og evrópska
efnahagssvæðiö. Með tilvísun
til þessa tel ég eðlilegt að efnt
verði til stjórnarmyndunarvið-
ræðna forystumanna flokk-
anna. Einhver formanna mun
síðan fara til forseta íslands er
hann telur sig hafa möguleika
á stjórnarmyndun. Á meðan
bíðum við átekta,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, í samtali
við blaðið um þá stöðu sem
komin er upp í kjölfar kosning-
anna.
Hann var spurður hvort hann
vildi að núverandi ríkisstjórnar-
flokkar, að Borgaraflokknum frá-
töldum, héldu áfram stjórnarsam-
starfi eða að Alþýðuflokkurinn
myndaði stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum. Jón Baldvin sagði að
ekki væri hægt að svara spurning-
unni á þessari stundu. Viðreisn
vekti upp góðar minningar, en sú
stjórn hefði verið mynduð við allt
aðrar aðstæður en nú ríktu. Hann
sagðist vilja vísa til þeirra mála
sem Alþýðuflokkurinn setti á odd-
inn í kosningabaráttunni. Það
væri ekkert launungarmál að
harðvítugur ágreiningur hefði
verið uppi með stjórnarflokkun-
um um ál- og Evrópumál á síðustu
dögum þingsins.
Um úrslit kosninganna almennt
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
að Alþýðuflokkurinn hefði haldið
stöðu sinni sem þriðji stærsti
flokkur landsins og annar stærsti
flokkurinn í Reykjavík. í Reykja-
neskjördæmi hefði fylgi flokksins
farið úr 18,2% upp í 23,3% en ein-
mitt í þessu kjördæmi hefðu for-
sætisráðherra og formaður Al-
þýðubandalagsins kynt hvað mest
elda tortryggni í álmálinu. Árang-
urinn hafi orðið hrakleg útreið
Framsóknarflokksins þar. Alþýðu-
flokkurinn hefði hins vegar tapað
manni á Norðurlandi vestra og
mistekist að endurheimta þing-
sæti á Suðurlandi. Á móti kæmi
kjördæmakjörinn þingmaður á
Austurlandi í fyrsta sinn í áratugi.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
að Alþýðuflokkurinn hefði styrkt
stöðu sína eftir fjögurra ára stjórn-
arsetu og fest sig í sessi. Hins vegar
hefði flokkurinn átt að ná meiri ár-
angri miðað við unnin verk á kjör-
timabilinu og vandaða stefnuskrá.
Ráða þyrfti bót á augljósum veil-
um í flokks- og félagsstarfi.
Fréttaskýring Alþýðublaðsins
Sterkur vilji til viðreisnar?
— sjá bls. 2