Alþýðublaðið - 25.06.1991, Side 2
MÞY9UBLMD
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson (í starfsleyfi)
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval sf.
Prentun: Oddi hf.
Eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn: 625538
Dreifing: 625539
Tæknideild: 620055
Fax: 627019
Mikilvægur áfangi
í EES samningunum
Þrátt fyrir látlausa gagnrýni hrakspár og efasemdir um að sjónarmið okkar
myndu aldrei hljóta náð fyrir augum Evrópubandalagsins hafa málin þróast á
annan veg. Flestum sem kynnt hafa sér samningsdrögin sem nú liggja fyrir ber
saman um að íslenska sendinefndin undir forystu Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanríkisráðherra hafi náð betri árangri en bjartsýnustu menn þorðu að
vona.
Evrópubandalagið hefur nú fallið frá þeirri grundvallarkröfu sinni að
krefjast einhliða fiskveiðiheimilda í staðin fyrir tollaívilnanir og frjálsan
markaðsaðgang. Þessi breytta afstaða bandalagsins sem fengist hefur fram
vegna þrautseigju íslensku samningamannanna gjörbreytir í raun allri stöðu
íslands í þessum samningaviðræðum.
í öðru lagi má nefna að Evrópubandalagið hefur fallist á að veita tollfrjálsan
aðgang fyrir allar sjávarafurðir án þess að slakað sé á kröfunni um það að
útlendingum sé óheimilt að fjárfesta í veiðum eða frumvinnslu. Nokkra
efasemda hefur gætt um það ákvæði en sá ótti er ástæðulaus þvf það er í okkar
höndum að búa þannig um hnútanna að slíkar fjárfestingar séu útilokaðar.
Þetta merkir með öðrum orðum að meginmarkmið okkar að fá tollfrjálsan
aðgang að mörkuðum Evrópubandalagsins með fiskafurðir eins og um aðrar
iðnaðarvörur væri að ræða hefur náðst, án þess að láta í staðin veiðiheimildir
eða fallast á fjárfestingarrétt erlendra aðila í sjávarútvegi.
Utanríkisráðherra hefur sagt að þessir samningar geti sparað okkur 1,5—2
milljarða f tollum sem við höfum hingað til greitt til landa Evrópubanda-
lagsins. Auk þess sem þetta samkomulag gjörbreyti öllum möguleikum fisk-
vinnslumar til að keppa á hinum stóra og harða neytendamarkaði Evrópu. Hér
á landi mun þá loks skapast grundvöllur til að reka háþróaðan matvælaiðnað
sem hefur tollfrjálsan aðgang að 360 milljónum manna sem vilja kaupa
ómengaða gæðavöru.
Það hefur nokkuð farið fyrir brjóstið á mönnum að þessir samningar gætu
hugsanlega leitt til þess að erlend fiskiskip fengju að veiða eitthvað í íslenskri
fiskveiðilögsögu. Þessar áhyggjur eru líka ástæðulausar. íslenska sendinefndin
hefur vissulega ekki lokað þeim möguleika að skipti á veiðiheimildum gætu
komið til greina. En í því sambandi er rétt að benda á að við vissar kring-
umstæður gæti það orðið okkur til mikilla hagsbóta að fá aðgang að
fiskistofnum t.d. loðnu og rækju sem Evrópubandalagið hefur yfir að ráð í
staðin fyrir vannýtta fiskistofna hér við land.
Af öllu samanlögðu er niðurstaðan sú að við erum hluti af Evrópu,
heimurinn er sífellt að skreppa saman og það er okkur nauðsyn að vera í nánu
og góðu samstarfi við nágranna okkar.
Allur hugsanagangur sem lýtur að því að halda landinu í einangrun er úr takt
við vilja samtímans. Nú þegar þjóðhátíðardagur okkar er nýliðin ættu menn að
minnast þess að einangrun og skortur á samgöngum og samskiptum við
nágranna okkar kostaði okkur sjálfstæðið á þrettándu öldinni. Það má aldrei
gerast aftur að við látum einangrun dæma okkur úr samfélagi við aðrar þjóðir
og tapa þar með hinu ciginlega sjálfsstæði sem fellst ekki síst í því að taka þátt
í samstarfi við aðra á jafnréttisgrundvelli.
íslendingar eru þjóð með sjálfstæða menningu sem á sér djúpar rætur í
vitund almennings, við þurfum að hlúa að því sem er íslenskt. menningar-
starfinu, mentuninni og æsku landsins. Þá þurfum við engu að kvíða í
samkeppninni við erlendar stórþjóðir.
Það er futl ástæða til bjartsýni urn framhald samninganna um Evrópu án
landamæra. íslendingar hafa sýnt það einu sinni enn að þeir munu aldrei fallast
á að hleypa útlendingum inn í landhelgi okkar án þess að við höfum algerlega
í hendi okkar á hvem veg það verður.
Blindrqfélagið
TIIE ICEI.ANmC ASSOCIATION Ol TIIE HI.INI)
HAPPDRÆTTI
BLINDRAFÉLAGSINS
1991
DREGIÐ 19. JIJNÍ
Vinningsnúmer eru:
14463, 12761, 13399, 20016, 821,
7708, 11559, 19149, 20883, 4930,
10982, 18453, 20666, 23473, 6996,
8007, 10148, 19254, 7532, 9844,
15281, 20909, 3769, 14619.
BLINDRAFÉLAGIÐ, samtök blindra og
sjónskertra, Hamrahlíð 17
Símsvarinn er 38181.
llamrahliA |7
Kt'vk|.i\ik
lccl.iml
lcl (,'M IJ- AK7U.1
16,7% skerðing -16,7% hœkkun
Stjóm Lánasjóðs íslenskra náms-
manna samþykkti í byrjun þessa
mánaðar breytingar á útlánareglum
sjóðsins. Allar breytingamar sem þá
vom gerðar miða að niðurskurði,
nema ein breyting. sem hlýtur að
kalla á talsverða hækkun.
Meginbreyting nýju úthlutunar-
reglanna er sú. að grunnframfærsla
einhleyps námsmanns lækkar úr kr.
56.106 á mánuði í kr. 46.716. Hér er
því um að ræða 16,7% skerðingu.
Eflaust má segja, að námsmenn
haft í seinni tíð síðustu ríkisstjómar
verið sérstakur forréttindahópur sem
naut hækkana síns framfærslugmnns
langt umfram það sem t.d. verkamenn
og verkakonur á tíma þjóðarsáttar
urðu að sætta sig við. Því hafi ekki
verið við öðm að búast, en að þama
yrði niðurskurðarhnífnum bmgðið á
loft, þegar fyrirsjáanlegt var að draga
yrði úr ríkisútgjöldum eftir stjóm-
arskiptin.
En á sama tíma og þetta er gert
bregður svo við, að námsmaðurinn
sem nýtur þeirra forréttinda, að geta
stundað sitt nám á heimaslóðum og
búið í foreldrahúsum er verðlaunað-
ur. Hann fær nú 70% af gmnnfram-
færslunni í stað 50% áður. Sem þýðir
að hann fær nú eftir breytingu kr.
32.701, en hafði áður kr. 28.053,
þama er um að ræða 16,7% hækkun.
Sem sagt námsmaðurinn sem
stundar nám í Háskóla íslands og á
heima hjá foreldrum sínum í Laug-
arásnum í Reykjavík fær hækkun upp
á kr. 4.648 á meðan námsmaðurinn
norðan af Langanesi verður að una
lækkun upp á kr. 9.390. Jafnframt
verður að telja líklegra að náms-
maðurinn úr Reykjavík hafi betri
möguleika til tekjuöflunar með námi
ef nauðsyn krefur og aðstæður leyfa.
Og einhvemtíma hefur verið talað um
svartan vinnumarkað í þeim efnum,
ef ég man rétt.
Menntamálaráðherra hefur sagt. að
þessar umræddu breytingar á úthlut-
unarreglum LÍN eigi að spara
ríkissjóði 300 milljónir króna á þessu
ári. Öll sú upphæð að viðbættri
hækkuninni til þeirra sem búa í for-
eldrahúsum hlýtur því að nást með
skerðingu á lánum þeirra sem stunda
þurfa sitt nám fjarri heimahögum.
Hefði ekki verið sanngjarnara og
eðlilegra að lækka framfærslugrunn-
inn eitthvað minna, t.d. um u.þ.b.
10%, halda sama hlutfalli (100%-
50%) og ná á þann hátt sama spamaði
fyrir ríkissjóð?
I ritinu „Átján rauðar rósir", sem
Alþýðuflokkurinn gaf út fyrir al-
þingiskosningamar í apríl sl. segir
m.a. „Námslán em mikilvæg til að
jafna aðstöðu til menntunar. Þau eiga
að taka mið af aðstæðum námsmanna
og tekjum en einnig af almennum
kjömm í samfélaginu."
Þessi mismunun sem hér er vakin
athygli á gengur því þvert á stefnu
Aljjýðuflokksins.
Gera verður þá kröfu til þingmanna
flokksins og ráðherra, að þetta atriði í
nýjum útlánareglum verði þegar í
stað rætt við menntamálaráðherra og
gerð krafa um leiðréttingu.
Perlan vígð
GAMALL DRAUMUR RÆTTIST
Perlan, útsýnishús Hitaveitu
Reykjavíkur, var formlega vígð um
helgina. Heildarkostnaður við
framkvæmdirnar voru tæpir 13
milijarðar króna. Arkitekt var
Ingimundur Sveinsson og helstu
verktakar voru Hagvirki sem sá
um uppsteypu, SH-verktakar sem
sáu um innanhússfrágang, útsýnis-
palla og lóð og loks Josef Garner og
Co. sem annaðist gerð hvolfþaks-
ins.
Árið 1985 hófust umræður um að
gera hugmyndina um útsýnishús á
Öskjuhlíð að veruleika. Þann 5. maí
1988 samþykkti borgarstjóm að hefja
byggingu hússins, sem varð síðan
fokhelt í árslok 1989.
Forsögu þess að byggja útsýnishús
á Öskjuhlíð má rekja að minnsta kosti
aftur til ársins 1930. Jóhannes Kjar-
val listmálari segir í bók sinni Grjót
sem kom út 1930 þegar hann rekur
hugleiðingar smiðs nokkurs sem
hann var kunnugur: „Merkilegasta
hugmyndin var að byggja höll eða
musteri inn áÖskjuhlíð. Atti að þekja
musterishliðarnar spegilhellum. svo
norðurljósin gætu nálgast fætur
mannanna - átti að skreyta þakið
kristöllum allavega litum, og ljós-
kastari átti að vera efst á mæninum,
sem lýsti út um alla geima."
Þegar hitaveitugeymamir á Öskju-
hlíð voru reistir 1938 var efnt til sam-
keppni um fyrirkomulag gcymanna. I
þessari samkeppni komu fram tillög-
ur um útsýnis- og veitingahús á milli
gcymanna.
Ekkert varð úr þeim framkvæmd-
um, en umræðan um útsýnishúsið
lifði og er nú orðin að veruleika 53 ár-
um seinna.
Þó útsýnishúsið sé byggt við hita-
veitugeymana er f raun um sjálfstæða
byggingu að ræða. Megingólf hússins
hvílir á sérstökum stöplum og er í
raun ekki tengt lönkunum nema að
því leyti að þeir mynda útveggi jarð-
hæðarinnar.
í húsinu eru veitingastaðir af ýms-
um gerðum og á efstu hæðinni er
vandaður salur sem snýst í einn hring
á klukkustund.
Það er veitingamaðurinn Bjarni
Ámason sem leigt hcfur starfsemina í
húsinu sem verður opið almenningi
alla daga frá kl.10-18 en veitingasal-
urinn á efstu hæðinni verður einnig
opinn á kvöldin.
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og jarðarför
Benedikts Blöndals
og virðingu sýnda minningu hans
Guðrún Karlsdóttir
Anna Blöndal Einar Þorvaldsson
Lárus Blöndal Anna Kristín Jónsdóttir
Karl Blöndal Stefanía Þorgeirsdóttir
Lárus H. Blöndal