Alþýðublaðið - 25.06.1991, Side 4
ph<?lti5()g fr 688165]
MPYÐMBIMD
Fréttir í hnotskum
MÓTMÆLA SUMARLOKUN Á SJÚKRAHÚSUM:
Heilbrigðishópur BSRB mótmælir harðlega að enn skuli koma til sumar-
lokana á sjúkrahúsum í sumar, en þær eru sagðar stafa sumpart af mann-
eklu og sumpart af of litlum fjárveitingum. „Sýnt hefur verið fram á að
spamaður innan sjúkrahúsanna kemur fram sem aukinn kostnaður annars
staðar í heilbrigðiskerfinu. Þegar upp er staðið verður spamaður hjá opin-
bemm aðilum enginn þar sem aðeins er um tilfærslu á fjármagni að ræða.
Þjáningar og óþægindi sjúklinga og aðstandenda þeirra vegna þessara að-
gerða em aftur á móti ómældar og ófyrirsjáanlegar", segir heilbrigðishóp-
urinn. Hópurinn segir mannekluna stafa fyrst og fremst af Iélegum launa-
kjömm, miklu vinnuálagi og erfiðri vinnuaðstöðu. A þeim málum verði
að taka í samningum í haust. Skorað er á stjómvöld að veita fjármagni til
að tryggja eðlilegan rekstur út árið.
VÍKINGASKIP LEGGUR Á HAF ÚT:
Víkingaskipið með gríska nafnið Gaia heldur af stað frá Reykjavík á há-
degi í dag áleiðis til Grænlands. Skipið er við Grófarbryggju í gömlu
höfninni í Reykjavík.
SÆKJA UM í HÆSTARÉTTI:
Þrjú sóttu um embætti hæstaréttardómara, Auður Þorbergsdóttir borgar-
dómari, Gunnar M. Guðmundsson hæstaréttarlögmaður og Sveinn
Snorrason hæstaréttarlögmaður.
Umsóknimar hafa lögum samkvæmt verið sendar Hæstarétti til umsagnar.
HAPPDRÆTTIÍSLENSKRA VORDAGA:
Iðnrekendur og kaupmenn efndu nýlega til íslenskra vordaga, stórátaks í
kynningu íslenskra iðnaðarvara, sem heppnuðust hið besta. Efnt var til
happdrættis í tengslum við kynninguna. A myndinni er Heiðrún Rósa
Sverrisdóttir í hópi fulltrúa iðnrekenda og kaupmanna. Frá vinstri Júlíus
Jónsson, kaupmaður í Nóatúni, Ólafur Davíðsson, formaður Félags ís-
lenskra iðnrekenda, Heiðrún Rósa, Magnús E.
Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna, og Kristinn Skúla-
son, stjómarmaður í Félagi matvörukaupmanna.
FORMLEGT SAMBAND VIÐ ÚRÚGUAY: Stofnað hefur verið
til formlegs stjórnmálasambands milli íslands og Úrúguay. Sam-
komulag um þetta undirrituðu fastafulltrúar landanna hjá Samein-
uðu þjóðunum á þriðjudag. Sendiherra íslands í Washington, Tómas
A. Tómasson, mun gegna störfum sendiherra íslands þar syðra.
EINAR FÆR LOF í DANMÖRKU: Bækur Einars Kárasonar
um Karólínu spákonu og hennar slekti fá mikið lof i helstu blöðum
Danmerkur þessa dagana. Þar kom út bókin Lykkens Land í þýð-
ingu Peter Söby Kristensen, sem ennfremur fær gott hrós fyrir
vinnu sína. í Jyllandsposten segir í fyrirsögn að „íslenskur rithöf-
undur geri flatneskjuna að hreinni list”, í Berlingske Tidende er
löng og mikil gagnrýni, svo og í Politiken. Greinilegt er að gagnrýn-
endum líst vel á bækur Einars, finna honum helst til foráttu að gerast
langdreginn á köflum. Þríleikur Einars er nú kominn allur á dönsku,
tvær bókanna á sænsku, og senn allar þrjár á norsku, og Finnar eru
byrjaðir að lesa Einar.
KAUPTAXTAR í SAMRÆMIVIÐ RAUNVERULEG LAUN:
Á þingi Landssambands ísienskra verslunarmanna var á það
lögð áhersla að launataxtar landssambandsins verði færðir nær
greiddum launum. Ennfremur að í samningunum verði skýr ákvæði
um kaupmáttartryggingu. Þá var einhugur um að lögð veröi áhersla
á aö viðhalda þeim stöðugleika, sem náðst hefur. I sambandi við líf-
eyrismál var lögð áhersla á að tvísköttun á lífeyrisgreiðslum veröi
hætt, og að greiðslur úr lífeyrissjóðum skerði ekki greiðslur frá al-
mannatryggingum.
BANKAR FA A BAUKINN: Yfirborðskenndar auglýsingar banka
og peningastofnana voru harðlega átaldar á þingi Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna á Akureyri á dögunum, þ.e. þær auglýsingar
sem beinast að svonefndum lífeyrisinnlánsreikningum. Samkvæmt
auglýsingum þessum eiga þessir reikningar að skila betri trygginga-
legum árangri en lögbundnir lífeyrissjóðir landsmanna. Bent er á að
hér er ekki um sambærilegar tryggingar að ræða. Lífeyrissjóðir fela
í sér gagnkvæmar tryggingar á viðtækum grundvelli, upp á það
bjóða bankarnir ekki. Telur LÍV-þingið að bankarnir eigi að halda sig
við sitt rekstrarsvið, en ástunda jákvæð samskipti við lífeyrissjóöi
sem og aðra viðskiptavini.
MOGGINN BOLGNAR: Póstkassar á venjulegum heimilum eru
að verða of litlir fyrir „blað allra landsmanna", Morgunblaðið, sem
belgist út og bólgnar með hverju árinu. Um leið gerist það að upplag
blaðsins eykst. Upplagseftirlit Verslunarráðsins segir að blaöið hafi í
feb.-apríl í ár verið í 52.649 eintaka meðaltalssölu, eintökum hefur
fjölgað um nær tvö þúsund blöð á einu ári. Aðeins Pravda hin sov-
éska mun slá Moggann út í útbreiðsiu.
S
Islenska krónan verður tengd ECU
Kallar á aaa í
peningamalum
Tenging íslensku krónunnar við
ECU, gjaldmiðilseiningu Evrópu-
bandalagsins, verður að líkindum
að veruleika innan tveggja ára.
Þetta mun hafa í fór með sér mikl-
ar breytingar í þjóðarbúskap okk-
ar og stjórn peningamála verður
allt nnur og agaðri en verið hefur
undanfarna áratugi. Vextir, verð-
lags- og kostnaðarþróun verður þá
í samræmi við það sem gerist í ríkj-
um Evrópubandalagsins.
Á fundi fjármálaráðherra Norður-
landa á dögunum kom fram af hálfu
Friðriks Sophussonar fjármálaráð-
herra að stjómvöld hér létu nú kanna
kosti og galla þess að íslenska krónan
tengdist ECU. Hann taldi að slík
tenging myndi stuðla að auknum
stöðugleika í efnahagslífinu og því
væri þetta aðeins spurning um tíma-
setningu. Tenging krónunnar við
ECU yrði líklega framkvæmd á næstu
einu til tveimur árum. Mikilvægasta
verkefni ríkisstjómarinnar væri að
tryggja það að verðbólga yrði ekki
meiri en í öðrum ríkjum OECD. Til
að ná því markmiði verði að halda
genginu sem stöðugustu.
Norðurlönd og ECU
Norðurlönd hafa öll nema ísland
tengt gjaldmiðla sína við ECU. Nú
síðast Finnar fyrir skömmu. Á fundi
fjármálaráðherra Norðurlandanna í
Stokkhólmi í fyrri viku kom fram að
tenging finnska marksins og sænsku
krónunnar við ECU væri liður í að
styrkja hagstjómina heima fyrir og
koma á betra jafnvægi í efnahagsmál-
um landanna. Viðbrögðin í Svíþjóð
hafa meðal annars komið fram í því
að gjaldeyrisstreymi úr landi hefur
stöðvast og vextir lækkað. Finnska
ríkisstjómin telur ákvörðunina mikil-
væga meðal annars vegna þeirra ótví-
ræðu tilmæla aðila vinnumarkaðarins
um að ekki verði gripið til gengis-
breytinga til þess að tryggja gang at-
vinnulífsins.
Miklor breytingar
Frcttabréf um verðbréfaviðskipti
Samvinnubankans fjallaði á dögun-
um nokkuð um það hvort tímabært
væri að tengja íslensku krónuna við
ECU. Þar segir meðal annars:
Tenging krónunnar við ECU og
nánara efnahagssamstarf við Evrópu-
bandalagsríkin hefði í för með sér
miklar breytingar í íslenskum þjóðar-
búskap. Mikilvægustu breytingamar
fælust í því að hér á landi yrði verð-
lags- og kostnaðarþróun óhjákvæmi-
lcga að vera í takt við Evrópubanda-
lagsríkin. Þetta þýðir að fjármála-
stjórn ríkisins og stjóm peningamála
yrði að vera mun agaðri en undan-
farna áratugi. Jafnframt yrði að rfkja
meiri agi á vinnumarkaði. Hin hefð-
bundna leið verðbólgu út úrógöngum
líðandi stundar yrði ekki lengur fær.
Gengisfelling í kjölfar óraunsærra
kjarasamninga yrði út úr ntyndinni.
Gcngisfelling vegna aflabrests yrði
einnig óhugsandi.
Festa og framfarir
I greininni er sýnt fram á miklar
sveillur á raungengi íslensku krón-
unnar undanfarin 20 ár. í hagstæðu
árferði hefur raungcngið hækkað
vegna meiri verð- og launahækkana
innanlands en erlendis mælt í söniu
mynt. Þannig hefur góðærið skilað
sér til heimila og fyrirtækja. í slæmu
árferði oftast vegna allabrests eða
verðlækkunar sjávarafurða hefur
gengi krónunnar hins vegar verið fellt
og raungengið því lækkað. Gengis-
felling og verðbólga hafa því jafnað
byrðum ytri áfalla á fólk og fyrirtæki.
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
telur að við tengjumst ECU innan
tveggja ára.
Með tengingu við ECU yrði óhjá-
kvæmilega breyting á þessu. Raun-
gengi krónunnar yrði að halda innan
tiltölulega þröngra marka. í þessu
felst að sveiflumar í þjóðarbúskapn-
um kæmu mun meira fram í afkomu
útflutnings- og samkeppnisgreina en
áður og minna í afkomu heimilanna.
Fyrirtækin yrðu að safna í sjóði í
góðu árferði og ganga á þá þegar illa
áraði. Jafnframt yrði ríkissjóður að
Á glæsilegu útisvæði við Hótel
Örk. Hveragerði. hefur nú verið sett-
ur upp 9 holu golfvöllur og 18 holu
púttvöllur. Golfbrautirnar em allar
„par þrír“, sú stysta er 40 m en sú
lengsta er 140 m. Golfvöllurinn er
hentugur fyrir alla en sérstaklega
fyrir þá sem em að taka sín fyrstu
skref í íþróttinni. Hægt er að fá kylfur
og annað sem til þarf á staðnum.
Brautunum er haganlega komið
fyrir í stómm garði hótelsins og tré
verið gróðursett og sandgryfjur gerð-
ar til að skapa viðeigandi umgjörð. Þá
hafa vcrið sett upp borð og bekkir auk
blómakerja víða um svæðið.
Golfvöllurinn var formlega opnað-
ur um helgina og sló frantkvæmda-
stjóri GSI Frímann Gunnlaugsson
fyrsta höggið. Síðan voru spilaðar 18
holur og náði Frímann bestum ár-
angri allra kylfmga sem þar vom
saman komnir í tilefni opnunarinnar.
Óhætt er að fullyrða að þeim
félögum Magnúsi Thorvaldssyni og
Viktori Sigurbjörnssyni hafi tekist
vel upp við hönnun golfsvæðisins.
Tekið skal fram að golfvöllurinn er
öllum opinn.
Útivistarparadís
Golfvöllurinn er liður í áætlun
Hótels Arkar að skapa sannkallaða
útivistarparadís við hótelið og hafa
nú þegar verið útbúnir tennisvellir og
skokkbrautir auk glæsilegrar sund-
laugar með vatnsrennibraut. bama-
vera rekinn með afgangi á uppgangs-
tímum og halla á samdráttartímum -
en ekki stöðugt með halla. Þetta gerir
auðvitað mun meiri kröfur tii stjórn-
valda og fyrirtækja en gamla hag-
stjómarlagið sem oft hefur magnað
hagsveiflur í stað þess að draga úr
þeim. Fréttabréfið telur að sú festa
sem gæti fylgt tengingu við ECU
væri mun betur til þess fallin að
stuðla að framfömm og hagvexti
heldur en sveiflukennd verðbólga og
óvissa í gengismálum.
Myntsvaeðin þrjú
I aðalatriðum em myntsvæðin í
heiminum þrjú. í Ameríku er Banda-
ríkjadollar ráðandi gjaldmiðill, í Asíu
erjapanskajenið leiðandi og íEvrópu
er evrópska myntsamstarfið með
þýska markið í fararbroddi í aðalhlut-
verki. Gengi þessara gjaldmiðla inn-
byrðis ræðst síðan að mestu af fram-
boði og eftirspurn þótt samstarf stór-
veldanna í þessum efnum gegni stöð-
ugt mikilvægara hlutverki. Aðrar
myntir tengjast meira og minna þess-
um gjaldmiðlum. ECU- tenging felur
í sér að vægi Bandaríkjadollars og
japanska jensins er fellt niður og ein-
göngu miðað við gjaldmiðil Evrópu-
bandalagsríkjanna. ECU.
sundlaug og heitum pottum. Þá er
einnig á sundlaugarsvæðinu trampó-
lín dýna og góð aðstaða til útivcru
almennt. Þá má ekki gleyma aðstöð-
unni innan dyra því boðið er upp á
líkamsræktarsal, gufubað. auk þess
sem starfrækt er nudd- og sólbaðs-
stofa. Þá er einnig góð aðstaða til
þess að horfa saman á kappleiki eða
sportmyndbönd á stóru tjaldi.
Vmning
22. júní 91
ÓlÍJUs) (20)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5aí 5 0 2.151.007
2. 4^ W 5 74.734
3. 4af5 161 4.003
4„ 3af5 4.326 347
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.670,282
Með því að binda ECU-slaufu á íslensku myntina verður hún fvsilegri öðrum þjóð-
um.
Golfvöllur við Hótel Örk