Alþýðublaðið - 09.07.1991, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 09.07.1991, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 9. júlí 1991 101.TÖLUBLAÐ - 72. ÁRGANGUR Skemmdir á steyptum húsum FROSTSKEMMDIR STEYPU ERU NÚ ALGBIGASTAR í reglulegum könnunum sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðaríns ger- ir á ástandi húsa hefur ekki komið fram eitt ein- asta dæmi nm alkal- ískemmdir á húsum byggðum eftir mitt ár 1979. Hins vegar hafa komið fram ýmsar aðrar skemmdir á húsum og ber þar hæst frostskemmdir, en þær eru oftast afleiðing þess að loftíblöndun steypu er ófullnægjandi eða of mikið vatn í henni. Þetta kom fram í samtali við Hákon Ólafsson forstjóra Rannsóknastofnunarinnar er hann var inntur eftir ástæð- um steypuskemmda í húsum sem hafa verið til umræðu. Þar hafa meðal annars verið nefndar blokkir í Kópavogi sem Byggung lét byggja fyrir nálægt 10 árum. Hákon sagði að þar væri ekki um alkal- ískemmdir að ræða. „A þessar blokkir var not- að svokallað múreinangrun- arkerfi utan á steypuna. Ein- angrun var sett á að utan og akrýlmúr þar utan á, sem er amerískt kerfi. Þetta er bara örþunn akrýlhúð utan á ein- angruninni eða liðlega þrír millimetrar. Aðferðin hefur einfaldlega misfarist að veru- legu leyti og verulegar skemmdir orðið vegna þessa. Við höfum gert úttekt á þessu fvrir húsfélagið," sagði Hákon Ólafsson. Hann sagði aðspurður að þetta kerfi sem þarna var reynt hefði aldrei verið notað hérlendis fyrr. Þáverandi framkvæmdastjóri Byggung hringdi í Rannsóknastofnun- ina og spurði hvort hún hefði reynslu af þessari aðferð en var svarað neitandi. En þetta var hins vegar samþykkt í byggingarnefnd bæjarins. Hákon sagði að það hefði verið vonlítið dæmi að ætla sér að koma með nýtt kerfi í þessa veru sem þarfnast sér- hæfðra vinnubragða. Það stæði og félli með góðum vinnubrögðum. Hefðu menn enga reynslu í þessum efnum væri það nokkuð gefið að það misfærist að einhverju leyti. Auk þess væri það mik- ið álitamál hvort þessi aðferð hentaði á blokkir sem mikið mæddi á. Aðrar aðferðir voru notaðar á sumar af blokkum Byggung. Skemmdir á steyptum hús- um eru af ýmsum toga. Há- kon sagði að það hefði ekki verið fyrr en 1987 að menn töldu sig knúða til að setja reglur og herða reglur í bygg- ingarreglugerð varðandi samsetningu á útisteypu til að tryggja veðrunarþolið. Mikil brögð höfðu verið að því að steypa var framleidd án þess að uppfylla kröfur sem Rann- sóknarstofnun byggingariðn- aðarins hafði gefið út í upp- lýsingablaði löngu áður. Há- kon Olafsson sagði að þetta væru kröfur sem verkfræð- ingar þyrftu að iáta fylgja á teikningum eins og með járnagæði en þessu var ekki fylgt eftir. Múrarameistarar pöntuðu bara steypu í ákveðnum styrkleikaflokki sem tryggir ekki veðrunar- þol. Nú er hins vegar lög- bundið varðandi útisteypu að sementsmagn þarf að vera yfir 300 kíló á rúmmetra, loft- magn þarf að vera yfir 5%, mælt rétt áður en steypan fer í mótin og hlutfall vatns og se- ments þarf að vera minna en 0,55. Þetta tryggir veðrunar- þolið. Þessar kröfur voru hins vegar ekki uppfylltar fyrir 1987 og margur íbúðareig- andinn er nú að bíta úr nál- inni vegna þess. Steypa er viðkvæmt efni í meðhöndlun og erfitt eða útilokað að koma í veg fyrir steypu- skemmdir í einhverju formi. Um mitt ár 1979 voru gerð- ar nokkrar samhliða ráðstaf- anir til að koma í veg fyrir alkalískemmdir. Þá var farið að blanda kísilryki í sement- ið. Samtímis voru gerðar kröfur um þvott á sjávarefni til að losna við saltið og enn- fremur bannað að nota Hval- fjarðarefni. Engar alkal- ískemmdir hafa orðið á hús- um sem hafa verið byggð eft- ir þetta. Keflavíkurflugvöllur Kcmar fækka orrustuvélum Ákveðið hefur verið að fækka F-15-orrustuflug- vélum í 57. flugsveit bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli snemma á næsta ári. Fækkað verður um sex orrustuflugvélar eða úr 18 í 12. Ástæðan fyrir þessari fækkun er fyrst og fremst nið- urskurður á útgjöldum til varnarmála í Bandaríkjunum í ljósi breyttra aðstæðna í al- þjóðamálum, að því er fram kemur í frétt frá utanríkis- ráðuneytinu. Þar segir að fækkunin muni ekki hafa áhrif á getu varnarliðsins til að fylgjast með umferð her- flugvéla umhverfis ísland enda hafi dregið úr henni á undanförnum tveimur árum. Þá séu F-15-orrustuflugvél- arnar mun fullkomnari en F-4 Phantom, sem þær leystu af hólmi. Fækkunin hefur engin áhrif á fjölda íslenskra starfs- manna hjá varnarliðinu. Tæplega 60 Bandaríkjamenn fylgja vélunum sex til Banda- rikjanna en þeir verða leystir af hólmi af svipuðum fjölda Bandaríkjamanna sem munu starfa við nýjar þyrlur sem flugbjörgunarsveit varnar- liðsins tekur í notkun innan skamms. Austurstrœti Óvíst hvort nýja rikið verður opnað fyrir jól „Húsnæðið sem við keyptum í Austurstræti er enn í leigu hjá Pennanum en það munu standa yfir viðræður um slit á þeim leigusamningi. Fari það mál eins og ætlað er þá opnum við útsölu þarna annaðhvort 15. nóvember eða ekki fyrr en í lok febrúar,“ sagði Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, í samtali við Alþýðublaðið. Forstjórinn sagði að ef ekki tækist að opna fyrir jól þá yrði það ekki fyrr en að lokn- um áramótum og birgðaupp- gjöri. Húsnæðið í Austur- stræti 10 var keypt fyrir all- nokkru af þremur systkinum af Blöndalsætt og var kaup- verð kjallara, jarðhæðar og fyrstu hæðar um 42 milljónir. Það hefur staðið autt mánuð- um saman og hefur það ekki orðið til að lífga uppá gamla miðbæinn. Húsnæði áfengis- útsölunnar við Lindargötu var selt Reykjavíkurborg fyrir svipaða upphæð og greidd var fyrir húspartinn í Austur- stræti. Aðspurður sagði Höskuld- ur það rétt að búast mætti við skorti á bílastæðum við Aust- urstrætisútsöluna. Hins vegar væri þessi verslun ekki ætluð þeim sem væru að gera stór- innkaup heldur þeim sem versluðu á algengasta mát- ann, keyptu eina eða tvær flöskur í einu og þyrftu því ekki að leggja við dyrnar. Næsta útsala úti á landi verður opnuð á Egilsstöðum en Höskuldur bjóst ekki við að það yrði fyrr en á næsta ári. Útsalan þar verður í nýju húsi sem er í byggingu. Búið að slökkva eldinn í vél bílsins, margir til kallaðir að messa yfir honum í miðju kjarr- inu. A-mynd: JBP. ÞÓRSMÖRK — jeppi fór sjálfur af stad þegar tölua tók völdin og stóð siðan i Ijósum logum án efa munu kosta eigandann í vélarrúmi og málning er talsvert fé, því töluvert brann stórsködduð. Vísitala framfœrslukostnadar Hækkaði um 0,7% Ferðafólk í Básum í Þórs- mörk tók eftir því á laugar- dag að einn bílanna á bíla- stæðinu, manniaus, tók skyndilega á rás, og hélt af stað inn í kjarrið. Fór hann þannig drjúgan spotta, en upp úr vél hans steig mik- ill reykur. Athygli vakti að á örstuttri stund dreif að marga gesti með slökkvitæki úr bílum sínum. Eldurinn var slökktur, eigandinn fannst, og bíllinn dreginn upp á bílastæðið að nýju. Sagt er að nútímatækni í bílaframleiðslu hafi þarna átt hlut að máli. í þessum bílum, Pajero, er tölvustýrð vél, og að sögn kunnugra á staðnum var það tölvan sem ákvað að setja bílinn í gang með fyrr- greindum afleiðingum, sem Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu fram- færslukostnaðar miðað við verðlag í byrjun júlí og reyndist hún vera 156,0 stig eða 0,7% hærri en í júní. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 3,3% og jafn- gildir sú hækkun 13,9% verðbólgu á heilu ári. Af 0,7% hækkun vísitöl- unnar frá júni til júlí stafa tæp- lega 1% af 1,7% verðhækkun á bensíni í byrjun þessa mán- aðar. Einnig hafði verðhækk- un nýrra bíla í för með sér tæplega 0,1% hækkun vísi- tölu. Verðhækkun ýmissa annarra vöru- og þjónustu- liða olli alls um 0,5% hækkun vísitölu framfærslukostnaðar. Breyting á þátttöku almenn- ings í lyfjakostnaði er ekki með í þssum tölum þar sem Hagstofunni tókst ekki að afla haldgóðra upplýsinga í tæka tíð. Áhersla verður lögð á að meta þessi áhrif við út- reikning vísitölunnar í ágúst. RITSTJÓRN © 625566 - 625538 . FAX 627019 . ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.