Alþýðublaðið - 09.07.1991, Qupperneq 3
Þriðjudaqur 9. iúlí 1991
3
/ Þórsmörk í mikilli mannmergd
Sumir eiga ekki að
gista svo fagran stað
— Hugleiding um síðustu helgi í Þórsmörk, m.a. er rætt um fyllerí fram
á morgun, leik á jeppum í stórhættulegum ám, þjónustu sem gjarnan
mætti vera meiri, vegleysuna inn í Mörkina og spurninguna um þaö
hvort reisa mætti kláfferju upp á eitthvert fjallið
Hressir bankamenn frá Bunaðarbankanum, Seljaútibui, komnir á topp Heiðarhorns. í baksýn ægifögur sýn yfir
skriöjökulinn. Þetta er eins og í Ölpunum, heyrðist einhver segja. A-mynd: JBP.
Þórsmerkurferdir eru ein-
stakar. Þær eru sérstök upplifun
fyrir þá sem þangað fara með op-
in skilningarvit. Því miður vird-
ast þó einhverjir í stórum ferða-
mannahópum fara þangað í öðr-
um tiigangi, drekka frá sér allt
vit, nótt sem nýtan dag. „Svona
fólk á að fara á einhverja ljótari
staði,“ sagði nýfermdur ungling-
ur í hópi ferðafólks, sem ég var
með um helgina í Básum í Þórs-
mörkinni. Það eru orð að sönnu.
Höskuldur Jónsson, forseti Ferða-
félags íslands, er á sömu skoðun og
þessi piltur. Honum finnst sárgræti-
legt að vita til þess að fólk skuli velja
Þórsmörk til að misnota áfengið.
Höskuldur sagði ennfremur að sárt
væri til þess að vita að tiltölulega fá-
ir einstaklingar leyfðu sér að halda
vöku fyrir stórum hópum fólks með
drykkjurausi fram undir morgun.
Þetta gerðist því miður allt of oft.
Vegleysan i Mörkina
Sem gestur í fyrsta sinn í Þórs-
mörk kom mér margt á óvart, — þ.e.
annað en hin stórfenglega náttúru-
fegurð staðarins og hið blíða veður
sem skapast þarna inni í fjalla-
hringnum. Mér kom á óvart hversu
ófullkomin ferðamannauppbygg-
ingin á þessum stað er.
Tökum fyrst veginn, sem liggur
frá hringvegi inn í Mörkina. Þetta er
25 kílómetra vegleysa, þar sem rán-
dýr farartæki eru sett í stórkostlega
hættu, þegar aka þarf niður í ár og
lækjarfarvegi á leiðinni. Krossá er
síðasti farartálminn fyrir þá sem
gista vilja í Húsadal og í Langadal.
Þeir sem fara í Bása þurfa ekki að
fara yfir þessa á.
Vissulega ætti að lagfæra veginn,
gera hann nokkurn veginn færan
farartækjum. Til að svo megi verða
þarf varla að verja stórkostiegu fé.
Mér sýnist að Þórsmörk sé allt að
því heilög í hugum gamalla ferða-
garpa í Ferðafélagi íslands. Ekki er
annað en gott um það að segja að
menn viiji vernda þennan fagra
stað. En það er spurning hvort það
er ekki einum of langt gengið að
gera staðinn illsækjanlegan, og auk
þess þjónustulausan að miklu leyti.
Höskuldur Jónsson, forseti Ferðafé-
lagsins, sagði að hann mundi fagna
því ef leiðin í Þórsmörk yrði að-
gengilegri, en Ferðafélagið færi
aldrei að stunda pylsu- eða ham-
borgarasölu á staðnum. Félagið er
með vísi að birgðasölu fyrir ferða-
fólk, auk þess sem það hefur reist
talsverð mannvirki, þar sem fólk í
dagsferðum getur snætt bitann
sinn. Mér sýnist að bjóða mætti
meiri viðurgerning gegn hóflegu
gjaldi í Mörkinni. Slíkt á ekki að
spilla staönum, nema síður væri.
Staðreynd er að fólk vill komast í
Þórsmörk og dvelja þar, flestir koma
þangað til að teyga að sér náttúr-
una, færri til að drekka áfengi í
óhófi. Hvers vegna skyldi fólki ekki
vera auðvelduð dvölin á þessum
stað? Ekki síst ef það vill dvelja leng-
ur en dag eða tvo.
Kláfferja upp q fjoll______
Víða erlendis eru reistar kláfferjur
upp á fjöll. Nú er ég líklega farinn að
særa viðkvæmustu taugar margra
ferðagarpa, sem vilja ekki sjá neitt
„ónáttúrulegt" í Mörkinni. Og vissu-
lega er ekki hægt að telja slík mann-
virki neinn fegurðarauka. En lítum
á málið. Þyrfti mannvirki sem þetta
að vera svo hábölvað? Þarna sá ég
marga eldri borgara á ferð. Þeir gátu
ekki farið í fjallgöngur, gengið á
Heiðarhorn eða önnur fjöll í ná-
grenninu. Öryrkjar geta það ekki
heldur. Fyrir þá sem þannig hagar
um og reyndar fleiri getur slík lyfta
vissulega komið að góðum notum.
Eg er ekki viss um að slík fram-
kvæmd þyrfti í einu eða neinu að
eyðileggja landslagið. Víða eru
gönguslóðir í fjöllunum nánast eins
og sár á landslaginu. Kannski yrði
álagið á þeim aðeins minna ef slíku
flutningatæki væri komið upp.
Höskuldur Jónsson sagði að hann
væri ekki andvígur slíkri hugmynd,
en standa þyrfti vel að framkvæmd-
um. Eins sagði hann að ekki hefði
hann nema gott eitt um það að segja
ef betri vegir yrðu lagðir í Mörkina.
Rútur fullar qf________________
fólki fastar i Krossá
I Krossá mátti um helgina sjá alls-
konar uppákomur, sem komu mér
satt að segja á óvart, og raunar
blöskraði mér sú fifldirfska sem þar
kom fram. Rútur fullar af fólki fastar
í þessari gríðarlega straumþungu á
fannst mér satt að segja ógnvekj-
andi sjón. Er ekki verið að leika sér
að mannslífum, þegar ekið er út í
ána svo vatnsmikla, sem hún var í
veðurblíðunni um helgina? Ég held
að þarna gæti orðið stórslys, ef rútu-
bíl hvolfdi. Þarna hafa orðið hryggi-
leg slys, og þau gætu orðið miklu
stærri ef ekki er gripið í taumana.
Þarna voru líka milijónajeppar á
ferð og flugi yfir ána, aftur og aftur,
gjörsamlega að ástæðulausu. Þarna
voru á ferð ungir menn á glæsibíl-
um (væntanlega feðra sinna), og
storkuðu örlögum sínum og farþega
sinna. Ekki virtist nein löggæsla á
staðnum, og sagt var að sumir þess-
ara ökuþóra væru ekki alveg lausir
við áfengi, hvað sem hæft er í því.
Ferðafélag íslands er einn frum-
kvöðlanna í Þórsmörk. Þangað fóru
ekki nema reyndustu ferðagarpar í
eina tið. En allt er breytingum háð,
líka þetta. Jeppamenn fara allra
sinna ferða, og í dag er enginn mað-
ur með mönnum nema hann eigi
jeppa. Margir þessara jeppamanna
eru afskaplega náttúrufjandsamleg-
ir og sá maður það gjörla í Mörkinni
um helgina.
Betri umgengni um
móður náttúru__________________
En svo jákvæðu hlutirnir séu
skoðaðir, þá verður að segja að í
Básum í það minnsta, þar sem Uti-
'vist ræður ríkjum, og án efa einnig
handan árinnar, var umgengni al-
mennt góð. Ég sá að fólk henti ekki
frá sér rusli á fjallgöngum, né heldur
á tjaldstæðum, nema þessir sem
voru í óminni áfengis allan tímann.
A umgengni í náttúrunni er að
verða mikil og góð breyting til batn-
aðar.
í lok hugleiðingar um þessa ein-
stæðu náttúruperlu, Þórsmörk, vil
ég leyfa mér að fullyrða að þau
ferðafélög og aðrir ferðamálaaðilar,
sem í Mörkina fara með ferðafólk,
bjóða góða þjónustu, bílstjóra og
leiðsögufólk. Landverðir eru líka
greinilega starfa sínum vaxnir og
vinna gott starf. A þessu fólki veltur
það hvernig Merkurtúrinn heppn-
ast.
Félagar í deild lífeyrisþega
innan Hjúkrunarfélags íslands
Fariö veröur í skemmtiferð fimmtudaginn 18. júlí nk.
kl. 13.00 frá Suðurlandsbraut 22 — komið til baka
um kl. 19.00.
Farið verður austur í sveitir, drukkið kaffi á Laugar-
vatni og ekin Lyngdalsheiðin um Þingvelli til baka.
Tilkynnið þátttöku til skrifstofu HFÍ í síma 687575
— í síðasta lagi fyrir hádegi mánudaginn 15. júlí.
Á nýju Ijósi
Breiðfylking jafnaðarmanna í nýju Ijósi
Miðvikudaginn 10. júlí nk. verður fundur í Naustinu
(efti hæð) kl. 20.30.
Gestir fundarins:
Ellert B. Schram, ritstjóri DV, og Guðmundur Ólafs-
son hagfræðingur.
Umræðuefnið:
Flverjar eru hinar nýju fylkingar í íslenskum stjórn-
málum? Flvar eiga jafnaðarmenn og frjálslynt fólk
samherja? Flvað er að frétta af breiðfylkingu jafnað-
armanna?
Allir velkomnir.
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna.
Auglýsing
um styrkveitingu úr Þróunarsjóði leikskóla
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefn-
um í leikskólum/skóladagheimilum.
Með þróunarverkefnum er átt vð nýjungar, tilraunir
og nýbreytni í uppeldisstarfi.
Um styrk geta sótt sveitarstjórnir/leikskólastjórar/
fóstruhópar/einstakar fóstrur.
Sækja má um styrk til nýrra verkefna og verkefna
sem þegar eru hafin.
Umsókn fóstru skal fylgja umsögn viðkomandi
rekstraraðila.
Styrkumsóknir skulu berast menntamálaráðu-
neytinu fyrir 10. sept. 1991 á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi í afgreiðslu mennta-
málaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja-
vík.
Skrifstofa Alþýðuflokksins
verður opin frá kl. 10—15 út júlímánuð vegna sum-
arleyfa.
Skrifstofa Alþýðuflokksins.
Dagsbrúnarmenn
Enn eru laus sæti í ferðina um Breiðafjörð dagana
12.—14. júlí nk.
Skráning á skrifstofu í síma 25633.
Stjórn Dagsbrúnar.
Get Yourself
a European Passport!
Europe is growing and coming more and more to-
gether.
Europe unites and uses symbols. Now you can get
a genuine Symbolic European Passport which
reveals the solidarity and sympathy to the Europ-
ean idea.
Send your name and adress TODAY for FREE IN-
FORMATION to: EUROPASS, P.O. Box 2104 Hana,
N-4301 Sandnes, Norway.
PS / Include 5 US dollar or equal in your own curr-
ency, for postage and handling.