Alþýðublaðið - 04.09.1991, Page 1
Rafhitun á landsbvvsðinni
Allt að 11-12% lækkun
húshitunarkostnaðar
Talsvert lægra verðfyrir húshitunarkostnað segir Sigfús Guðlaugsson rafveitustjóri á Reyðarfirði
Húshitunarkostnaður
íbúða á landsbyggðinni,
þar sem kynt er með raf-
orku, hefur minnkað um
allt að 11-12% eftir að Al-
þingi breytti orkujöfnun-
argjaldi vegna húshitunar
á landsbyggðinni á síðasta
þingi. „Það var fyrir jöfn-
unargjald upp á 79 aura
fyrir kílóvattstundina en
er núna komið upp í 126
aura,“ sagði Sigfús Guð-
laugsson, rafveitustjóri á
Reyðarfirði, í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
Sigfús tók þó fram að áður
hefði verið greitt jöfnunar-
gjald fyrir allt að 40 þúsund
kílóvattstundir á hús á ári, en
nú hefði það verið lækkað
niður í 30 þúsund kvst. Það
væri gert til að hvetja til orku-
sparnaðar. Auk þess væri
greitt fastagjald fyrir hverja
íbúð sem næmi rúmum
12.000 kr. á ári. „Þetta þýðir
á milli 11 og 12% lækkun á
húshitunarkostnaði fyrir þá
sem eru með notkun upp á
30.000 kvst. Lækkunin verð-
ur hins vegar hlutfallslega
minni ef notkunin fer yfir
30.000 kvst. og þeir sem nota
um 40.000 kvst. greiða svip-
að verð og áður. Það er hins
vegar langalgengast að orku-
notkun á íbúð sé um
30—36.000 kvst., þannig að
flestir njóta góðs af þessari
lækkun," sagði Sigfús.
Þá kom fram hjá Sigfúsi að
þrátt fyrir gjaldskrárhækkan-
ir væru menn að greiða um-
talsvert lægra verð fyrir hús-
hitunarkostnað en áður.
„Fyrir 30.000 kvst. greiða
menn núna um 68.900 krón-
ur en hefðu þurft að greiða
samkvæmt gamla kerfinu um
77.900 kr. Þetta þýðir því um
9.000 króna lækkun húshit-
unarkostnaðar á þeim land-
svæðum sem búa við raf-
magnshitun. Hér fyrir austan
er alis staðar rafhitun nema á
Egilsstöðum, þar sem er hita-
veita," sagði Sigfús Guðlaugs-
son, rafveitustjóri á Reyðar-
firði, að lokum.
Bœjaryfirvöld í Njarðvík
Afli af íslands-
miðum fari um
hérlenda
fiskimarkaði
„Það sem við erum að
tala um er ekki endilega
að skylda verði að vera
með fiskmarkaði á hverju
krummaskuði, heldur að
sá fiskur, sem fluttur er
beint út, verði boðinn upp
hér á landi,“ sagði Kristján
Pálsson, bæjarstjóri í
Noregur
Einka-
skólar
á
hausinn
Það er víðar en á íslandi
sem talað er um gjöid fyrir
skólagöngu. í Noregi reka að-
standendur einkamennta-
skóla upp ramakvein og vilja
rukka nemendur um
150—200 þúsund króna
skólagjöld. „Ella verðum við
að loka.“ Ríkið leyfir aðeins
að nemendur séu rukkaðir
beint um 100 þúsund króna
skólagjöld. Nye Helt-
berg-menntaskólinn í Osló
fær nú um 230 þúsund ís-
lenskra króna frá ríkinu á
hvern nemanda, en það næg-
ir hvergi nærri. Málið er orð-
ið brennheitt og gæti bland-
ast inn í kosningabaráttuna í
Noregi, en þar er kosið til
sveitarstjórna um næstu
helgi.
Njarðvík, í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
í ályktun frá bæjarráði
Njarðvíkur er skorað á ríkis-
stjórnina að beita sér fyrir
lagasetningu um að allur fisk-
ur veiddur á íslandsmiðum
verði boðinn upp á mörkuð-
um hér á landi. „Það virðist
vera hægt að senda út fisk al-
veg endalaust," sagði Krist-
ján, „á ótrygga markaði, á
sama tíma og ekki er hægt að
fá það á hreint hvort íslend-
ingar eigi að fá að bjóða í
þann fisk eða ekki. Menn eru
óhressir með hversu lítið
magn kemur inn á fiskmark-
aðina."
Bæjarráð Njarðvíkur lýsir
yfir þungum áhyggjum vegna
uppsagna starfsfólks tveggja
fiskvinnslufyrirtækja á staðn-
um og þeirrar atvinnuóvissu
sem fjöldi fiskvinnslufólks í
Njarðvík býr við. Þá segir í
ályktuninni: „Ljóst er, að fisk-
vinnsla á Suðurnesjum stend-
ur á brauðfótum, m.a. vegna
óstöðugleika í hráefnisöflun
og mikilla sveiflna í hráefnis-
verði. Að mati bæjarráðs
hafa stjórnvöld aðeins eina
leið til að tryggja stöðugleika
í fiskvinnslu almennt og þar
með um leið atvinnu fisk-
vinnslufólks, en það er að
lögskipa fiskmarkaði. Það
mun einnig, að mati bæjar-
ráðs, tryggja hámörkun af-
urðanýtingar í sjávarútvegi
landsmanna. Bæjarráð vill
því beina þejrri áskorun til
ríkisstjórnar Islands, að hún
beiti sér fyrir lagasetningu,
um að allur fiskur, veiddur á
fiskimiðum við ísland, verði
boðinn upp á fiskmörkuðum
> á ísiandi."
Fiskvinnslan er sem fyrr það sem skapar auðinn sem þjóðin hefur úr að spila,
Vöruskiptin við útlönd hag-
stæð það sem af er árinu
Sjávarafurðir um 83% alls útflutnings sem er 6% meira en á
sama tíma ífyrra
Vöruskiptahagnaðurinn
í júlí á þessu ári var hag-
stæður um 0,4 milljarða,
en í júlí í fyrra var hann
hagstæður um 1,9 millj-
arða miðað við sama
gengi. Fyrstu sjö mánuði
þessa árs voru fluttar út
vörur fyrir 54,6 milljarða
króna, en inn fyrir 54,2
milljarða. Vöruskiptajöfn-
uðurinn á þessum tíma var
því hagstæður um 0,4
milljarða króna, en á sama
tíma í fyrra var hann hag-
stæður um 4,9 milljarða
króna, ef reiknað er á
föstu gengi.
Fyrstu sjö mánúði þessa árs
var verðmæti vöruútflutn-
ingsins ívið minna á föstu
gengi en á sama tíma í fyrra.
Sjávarafurðir voru um 83%
alls útflutnings, 6% meira en
á sama tíma í fyrra. Útflutn-
ingur á áli var 18% minni og
útflutningur kísiljárns var
44% minni en á sama tíma
síðastliðins árs. Útflutnings-
verðmæti annarrar vöru, að
frátöldum flugvélum og skip-
um, var 18% minna á tímabil-
inu frá janúar til júlí en á
sama tíma í fyrra, þegar
reiknað er á föstu gengi.
Verðmæti vöruinnflutnings
fyrstu sjö mánuði ársins var
9% meira en á sama tíma í
fyrra. Verðmæti innflutnings
til stóriðju var 9% meira en í
fyrra. Verðmæti sérstakra
fjárfestinga, s.s. skipa, flug-
véla og að hluta til Lands-
virkjunar, var 51% minna en
í fyrra, en olíuinnflutningur
dróst saman um 5% að verð-
mæti fyrstu sjö mánuði árs-
ins. Þessir innflutningsliðir
eru jafnan breytilegir frá einu
tímabili til annars, en séu þeir
frátaldir reynist annar inn-
flutningur, sem er um 80% af
heiidinni, hafa orðið nærri
23% meiri en í fyrra, sé reikn-
að á föstu gengi.
RITSTJÓRN © 625566 - 625538 • FAX 62701 9 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR © 625566