Alþýðublaðið - 04.09.1991, Blaðsíða 3
Miðvikudaqur 4. september 1991
3
Ráðherrarnir og Vestfirðingarnir Jón
Sigurðsson og Sighvatur Björgvins-
son í góðum félagsskap bæjarfull-
trúa Alþýðuflokksins á Patreksfirði,
þeirra Björns Gíslasonar, Kristinar
Jóhönnu Björnsdóttur og Guðfinns
Pálssonar.
Fundir
tilað
hlusta
„Það er gott að ráðamennirnir
skuli gefa sér tíma til að heim-
sækja okkur. Við erum ekki van-
ir ráðherraheimsóknum,“ sagði
Eskfirðingur í viðtali við Al-
þýðublaðið. Tilefnið var auglýst-
ur viðtalstími Jóns Sigurðsson-
ar, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, á bæjarskrifstofunum á
Eskifirði þriðjudaginn 20. ágúst
sl.
I mörg ár hefur það verið venja að
Hvort er erfiðara að stjórna Islandi eða Akureyri? Gísli Bragi Hjartarson, bæjar-
fulltrúi Alþýðuflokksins á Akureyri, ræðir málin við ráðherra.
Framtíð járniðnaðar á Akureyri til umræðu. Stefán Pálsson (t.v.) og Jón Ás-
mundsson, í Járntækni, á tali við Siglbjörn Gunnarsson alþingismann og Jón
Sigurðsson.
Á Eskifirði komu alþýðuflokksmenn saman og ræddu m.a. sjávarútvegsmálin.
Hér sjást þeir Grétar Rögnvarsson skipstjóri og Jón Sigurðsson.
ráðherrar hafi vikulega viðtalstíma
fyrir almenning. Að jafnaði taka
þeir á móti fólki á miðvikudags-
morgnum á skrifstofum sínum í
stjórnarráðinu í Reykjavík. En auð-
vitað er auðveldara fyrir fólkið á
höfuðborgarsvæðinu að notfæra sér
þetta en landsbyggðarmenn.
í júlímánuði auglýstu þeir Jón Sig-
urðsson og Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðisráðherra viðtalstíma á
ísafirði. Margir komu að máli við þá
og þurftu menn ýmislegt að ræða
við fulltrúa landstjórnarinnar eins
og gengur. Jón Sigurðsson hefur
brugðið enn frekar út af venjunni og
hefur síðan haft viðtalstíma á Eski-
firði eins og áður sagði og í síðastlið-
inni viku var hann með viðtalstíma
á bæjarskrifstofunum á Akureyri.
Aðspurður segir Jón viðtalstíma
sem þessa mjög mikiivæga. „Þetta
eru fyrst og fremst fundir til að
hlusta. Til viðtals koma sveitar-
stjórnarmenn, fólk í atvinnurekstri
og einstaklingar. Það er ómetanlegt
að fá á þennan hátt upplýsingar
miililiðalaust um hvað er að gerast í
afkomu byggðarlaga, fólks og fyrir-
tækja.“
En á þessum ferðum gerist fleira
en að sitja í viðtölum. Jón Sigurðs-
son hefur heimsótt fjölda vinnu-
staða í fylgd þingmanna Alþýðu-
fiokksins í kjördæmunum og fund-
að með forystumönnum sveitarfé-
laga um málefni þeirra. Einnig hafa
verið haldnir opnir fundir um
stjórnmál. Með þessu móti fæst
betra samband við fólkið og málin,
sem á mönnum brenna heima í hér-
aði, komast beint til skila.
Á Egilsstöðum er starfandi öflugt félag jafnaðarmanna. Opnum fundi þar
stjórnaði Hermann Níelsson, en frummælendur voru Jón Sigurðsson og séra
Gunnlaugur Stefánsson alþingismaöur.
Islensk skinn til Ítalíu. Iðnaðarráðherra og Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri
íslensks skinnaiðnaöar (t.h.) á Akureyri, á tali viö italska skinnakaupmanninn
Alvaro Crociani.
FLOKKSST JORNARFUNDUR
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Fundur Flokksstjórnar Alþýðuflokksins verður haldinn að Borgartúni 6, n.k.
föstudag kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Meginstefnan í fjárlagagerð fyrir árið 1992
2. Staðan í álmálinu
3. Önnur mál
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins