Alþýðublaðið - 19.09.1991, Síða 1
I
Stjórnarandstaöan í Reykjavík vill kanna
Lestar- eða sporvagnasam-
göngur á höfuðborgarsvæðinu
Fulltrúar minnihlutans í
borgarstjórn Reykjavíkur
vilja að kannaðir verði
mðguleikar á því að koma
á fót lestar- eða spor-
vagnasamgöngum í
Reykjavík eða höfuðborg-
arsvæðinu. Mun tillaga
þess efnis verða lögð fram
í borgarstjórn í dag.
Stjórnarandstöðuflokkarn-
ir í Reykjavík leggja til að at-
hugað verði hvort önnur
sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu vilji taka þátt í könn-
uninni með það fyrir augum
að lestar- eða sporvagnakerfi
næði til alls svæðisins. Þá
verði kannaðir möguleikar á
tengingu strætisvagnaferða
við lestar-/sporvagnakerfi.
Þá er lagt til að gerð verði
áætlun um stofn- og rekstrar-
kostnað og jafnframt áætlað
hvað sparaðist með minni
notkun einkabíla.
1 greinargerð með tillög-
unni kemur fram að hug-
myndir í þessa átt hafa ekki
náð fram að ganga í borgar-
stjórn hingað til. Flutnings-
menn telja hins vegar að
mönnum verði stöðugt Ijós-
ara gildi almenningssam-
gangna sem geti keppt við
einkabíl. Til þess að verða
raunverulegur valkostur
þurfi almenningssamgöngur
að svara kröfum fólks um
hraða og ferðatíðni og að
lestir eða sporvagnar á sér-
stökum forgangsbrautum
hafi betri möguleika á slíkri
þjónustu en strætisvagnar í
þungri umferð.
Borgarfulltrúar minnihlut-
ans benda á að á heimsþingi
Alþjóðasambands sveitar-
stjórna sl. sumar, sem fjallaði
um umhverfismál, hafi verið
lögð rík áhersla á viðleitni
borgaryfirvalda til að draga
úr notkun einkabíla. Loft-
mengun frá bílum sé talin
eiga stóran þátt í að valda
svokölluðum gróðurhúsa-
áhrifum.
Þá benda flutningsmenn
tillögunnar á að samkvæmt
áætlunum verði íbúar á höf-
uðborgarsvæðinu árið 2010 á
bilinu 168—198 þúsund og
telja því skynsamlegt að
könnunin nái til alls höfuð-
borgarsvæðisins.
Islenskir gosdrykkir slökkva breskan þorsta
Sól hf. rnorgf aldar
framleiðslugetuna
til aö geta sinnt mörkudum sínum med Seltzer og Blávatn
Islenskur drykkur,
Seltzer, selst í miklu magni
um allt Bretland um þess-
ar mundir. Og það þrátt
fyrir þá staðreynd að dós
af þessum gosdrykk í
plastdós frá Sól hf. kostar
í Bretlandi 2 pund og 80
pens, medan kókdós kost-
ar ekki nema 25 pens. Það
er eitthvað meira en lítið
að gerast hjá fyrirtækja-
samsteypunni Smjörlíki
MÚTUR
— segir ríkissaksóknari Svíþjódar og
ákœrir 17 manns vegna
skemmtiferdar til íslands
Boðsferð til Islands
haustið 1989 er orðin að
dómsmáli hér í Svíþjóð.
Ríkissaksóknari hefur
ákært 17 manns fyrir að
hafa mútað — og þegið
mútur. Skemmtiferðin sem
farin var til íslands kann
að snúast upp í andhverfu
sína.
..Skemmtiferð til íslands er
ekki við hæfi fyrir fólk í þess-
um stöðum.” sagði ríkissak-
sóknari í dag.
Það var haustið 1989 sem
byggingarfyrirtæki bauð
háttsettum starfsmönnum i
bæjarfélögum á Suður-Skáni
til skemmtiferðar til íslands.
A dagskrá var fundur í einn
dag, en þrír dagar voru til
fjálsrar ráðstöfunar. Þetta
þykir rikissaksóknara ekki
næg ástæða til að ferðast til
Islands í boði byggingarfyrir-
tækis. Telur ríkissaksóknari
byggingarfyrirtækið hafa
haft af því augljósa hagsmuni
að „rnýkja starfsmennina
upp". Vill hann nú fá botn i
málið.
íslandsreisa þessi er sögð
hafa kostað 77 þúsund krón-
ur á hvern þátttakanda.
hf., Sól. hf og íslensku
bergvatni hf.
Davíð Scheving Thorsteins-
son, forstjóri fyrirtækjanna,
sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að hann vildi ekki
viðra neinar magntölur. Slíkt
væri aðeins vatn á myllu sam-
keppnisaðilanna. Hann sagði
þó að Seltzer-salan hefði auk-
ist um 600% á stuttum tíma.
Sagði Davíð að fleiri en
blaðamenn vildu fregnir af
útflutningi fyrirtækisins.
Samkeppnisaðilar reyndu allt
hvað þeir gætu að fá vitn-
eskju um þau mál, færu jafn-
vel niður að höfn til að telja
gámana sem fluttir eru um
borð í skipin!
,,í útflutningsmálum má al-
veg orða það svo að við erurn
rétt að byrja að læra að
skríða. Kannski verðum við
farnir að staulast svolítið
áfram á báðum fótum á
næsta ári."
Davíð sagði að i plastdósa-
gerð fyrirtækisins væri unnið
24 tíma á sólarhring alla daga
ársins, eins og í álverinu.
Framleiðsluaukning hefði
orðið 300% á stuttum tíma og
tæki á leið tii landsins um
þessar mundir til að tvöfalda
framleiðsluna. Ekki hefðist
undan til að sinna útflutningi
eins og dæmið stendur í dag.
Seltzer-gosið er flutt utan til
Bretlands eins og fyrr greinir,
en blávatnið er selt á markað
í Bandaríkjunum í plastflösk-
um.
Maður á mann
Öryggisgæslan virðist vera góö á Evrópuleikjunum í knattspy mu hór á landi en áhorfendur fáir
ef marka má þessa mynd sem tekin var á leik Vals og Sion sem lauk með sigri Sion 1—0 í fyrra-
dag. í gær lék svo Fram gegn Panathinaikos og lauk leiknum með jafntefli 2—2.
A-mynd: E.ÓI.