Alþýðublaðið - 19.09.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudaqur 19. september 1991
3
Skipulag Solvangs-
svæðisins i Hafnarfirði:
Dökku reitirnir sýna nú-
verandi byggð með Sól-
vang fyrir miðri mynd.
Reitur 1 gerir ráð fyrir
40 ibúða fjölbýlishúsi,
reitur 2 gerir ráð fyrir
25 íbúða fjölbýlishúsi,
reitur 3 gerir ráð fyrir
13 tveggja herbergja
íbúðum, reitur 4 gerir
ráð fyrir 8 þriggja her-
bergja íbúðum með bíl-
skúr, reitur 5 gerir ráð
fyrir 10 samskonar
íbúðum og reitur 6 ger-
ir ráð fyrir þjónustumið-
stöð fyrir aldraða.
Sólvangssvœdid í Hafnarfiröi
Skipulagt i þágu aldraðra
Ný samtök ýmissa félaga í Hafnarfirdi, HÖFN, hyggja á byggingarframkvœmdir
Bæjaryfirvöld i Hafnarfirði
hafa gert skipulag að öldrunar-
íbúðum og öldrunarþjónustu á
Sólvangssvæðinu. Hugmyndin
er að boðið verði upp á fjölbreytt
íbúðarform á svæðinu, byggð
verði upp ný þjónusta auk þess
sem sú fjölbreytta aðstaða sem
þar er þegar fyrir hendi verði
nýtt. Nýja skipulagið að Sól-
vangssvæðinu er nú til kynning-
ar.
Þórdís Mósesdóttir, formaður
öldrunarnefndar Hafnarfjarðar,
segir að nýtt félag, Höfn, sem sé
samtök ýmissa félagssamtaka, hafi í
huga að byrja að byggja á svæðinu
íbúðir fyrir aldraða sem fyrst á Sól-
vangssvæðinu. Fyrirhugað væri að
byggja nýja elli- og hjúkrunarheimil-
isálmu við Sólvang og væri það orð-
ið mjög brýn framkvæmd til að geta
samnýtt ýmiss konar þjónustu sem
með því fengist. Sólvangur gæti
með þvi móti boðið upp á t.d. dag-
vist, böðun og sjúkraþjálfun þegar
horft væri til framtíðar. Þá horfðu
menn til þess að hægt væri að nýta
í framtíðinni eldhús og mötunarað-
stöðu Sólvangs fyrir íbúana sem
byggju enn á eigin vegum í húsun-
um i kring.
Á Sólvangssvæðinu er gert ráð
fyrir tveimur fjölbýlishúsum fyrir
aldraða, öðru fjögurra hæða með 40
íbúðum og hinu þriggja hæða með
25 íbúðum. Þá er gert ráð fyrir að
reisa 13 litlar, tveggja herbergja
íbúðir svipaðar þeim sem þegar eru
fyrir á svæðinu. Skipulagið gerir ráð
fyrir að byggðar verði 18 þriggja
herbergja íbúðir með bílskúr sem
verði um 130 fm brúttó. Þá er gert
ráð fyrir um það bil 700 fm þjón-
ustumiðstöð fyrir aldraða.
Fyrir á svæðinu er Elli- og hjúkr-
unarheimilið Sólvangur, sem er i
reynd orðið að mestu leyti langlegu-
sjúkrahús og heilsugæslustöð Hafn-
firðinga, auk nokkurra öldrunar-
íbúða. Erna Fríða Berg, skrifstofu-
stjóri á Sólvangi, segir að mjög sé
orðið þröngt um sjúklinga þar og
því nauðsynlegt að hefjast handa
um viðbygginu Sólvangs. Það sem
væri brýnast nú fyrir Hafnfirðinga
væri ekki langlegudeildir fyrir aldr-
aða, heldur millistig milli þess að
þeir gætu búið á eigin vegum og þar
til þeir þyrftu á sjúkrahúsvist að
halda.
„Heimaþjónustan við aldraða og
heimahjúkrun er orðin það mikil og
góð að aldraðir geta almennt dvalið
mun lengur á eigin vegum en áður
var," sagði Erna Fríða. Hún sagði
jafnframt að ýmsir dýrir rekstrar-
þættir, eins og mötuneyti, þvottahús
og dagvist fyrir aldraða, sem þegar
hefði verið gert ráð fyrir og byggt yf-
ir, mundu nýtast nýrri hjúkrunar-
álmu sem fyrirhuguð væri við Sól-
vang. Ennfremur gæti sú þjónusta
nýst þeim öldruðum sem kæmu til
með að búa á svæðinu.
islendingar i sveitar-
stjórnir í Sviþjóð?
Nei, því miöur. Peir höföu ekki rœnu á aö skrá nöfn sín á auöa framboöslista
Það voru laus sæti fyrri a.m.k.
22 íslendinga eða aðra í bæjar-
og sveitarfélögunum hér í Sví-
þjóð í kosningunum um síðustu
helgi. Ef þeim hefði hugkvæmst
að skrá nöfn sín á auða lista Nýja
lýðræðsisflokksins, hefðu þeir
komist að í þeim kjördæmum
þar sem Lýðræðisflokksmenn
komust að — en gleymdu sjálfir
að leggja fram nöfn. Framboðs-
listarnir voru auðir en hægt er
að leggja fram lista án þess ein-
hver skipi sæti á þeim.
Nýi lýðræöisflokkurinn fékk
menn kosna í 159 sveitarfélögum
vítt og breitt um Svíþjóð. í 22 þeirra
gleymdu þeir að setja nöfn á fram-
boðslistana en hlutu þó kosningu.
Flokkurinn situr því uppi með
mannlaus sæti í ýmsum sveitar-
stjórnum.
Framkvæmdastjóri þessa „Glistr-
upsflokks" lofar því að þetta muni
aldrei koma fyrir aftur. Sænskar
kosningaregiur eru þannig að hægt
er að leggja fram auða lista og geta
menn skráð sig á þá. Hver sem er
getur lagt fram framboðslista með
hverjum sem er. Á einum lista sem
ég sá á kjörstað hafði verið safnað
saman um nöfnum 30 prófessora,
sem áttu fátt eða ekkert sameigin-
legt nema titilinn. Einhverjum hafði
dottið í hug að prenta kjörseðil með
þessum nöfnum — og það er lög-
legt. ,
Ef Islendingar hefðu haft rænu á
að setja nöfn sín á auðu lista Nýja
lýðræðisflokksins hefðu þeir hlotið
kosningu í 22 kjördæmum — svo
framarlega að þeir hafi verið kjör-
gengir. í Svíþjóð búa yfir 5 þúsund
landar og þá hefði ekkert munað
um það að lána nöfn sin í framboð.
Af Nýja lýðræðisflokknum er það
helst að frétta að þar er allt upp í
loft. Deilt er um það hverjir hafi ver-
ið í framboði þar sem fleiri en einn
listi barst í nafni flokksins. Annar
aðal talsmaður flokksins, Bent
Karlsson, hringleikastjóri í Skara
styður jafnaðarmann til forystu í
Skarahéraði, þó hann ætli sjálfur að
styðja stjórn borgaraflokkanna í
landstjórninni. Bert þessi hefur ekki
en gert upp við sig hvort hann ætlar
að taka sæti á sænska þinginu eða i
Skarasveit. Hann var ávíttur eftir
kosningarnar er síðdegisblað birti
mynd af honum í sænska þinginu
kosninganóttina. Bert steig upp á
ræðupúltið en það þótti skrifstofu-
stjóra sænska þingsins ekki hæfa
réttkjörnum þingmanni.
VALTILL RIKSDAGEN
LANDSEKONOMERNA
1 Lennart Nyberg, konsult
2 Rolf Adamson, professor
3 Torsten Almén, professor
4 Stefan Arnborg, professor
5 Erik Arrhenius, professor
6 Fritz Bank, professor
7 Gunnar Berefelt, professor
8 Gunnar Bergholtz, professor
9 Lars Bergström, professor
10 Torsten Bohlin, professor
11 Anna Christensen, professor
12 Gudrun Dahl, professor
13 Östen Dahl, professor
14 Ingrid Detter de Lupis, professor
15 Áke W. Edfeldt, professor
1Ö Göran Englund, professor
17 Gi nnel Engwall, professor
18 Lars Fant, professor
19 Per Frostin, professor
20 Mats Furberg, professor
21 Birger Gerhardsson, professor
22 Tor Ragnar Gerholm, professor
23 Göran Grimvall, professor
24 Sven Halldén, professor
25 Ulla Jacobsson, professor
26 Siegfried Lienhard, professor
27 Gustaf Lindencrona, professor
28 Jan Lundqvist, professor
Prófessoralistinn til sænska Rikisdagsins